Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988. Iþróttir Gullkálfurinn Pirmin Zurbriggen mun líta ólympíeldinn tendraöan en hann á gull að verja í alpagreinum. Sigurður Gunnarsson verður f eldiínunni í Digranesi í kvðld. HandboM í kvöld: Stjaman og Víkingur mœtast í lokaleik 12. uinferðar í 1. deild karla í kvöld í Digranesi kl. 20.15. Leikurinn er nyög þýðingarmik- ill fyrir bæði liöin, Víkingar þurfa sigur ætli þeir að ógna FH og Val á toppnum. Stjaman viröist hins vegar vera að sogast inn í fallbar- áttuna þrátt fyrir að vera í fimmta sæti sem stendur. Það hefur veriö ansi dökkt ástandið í herbúðum Víkinga nú síöustu dagana en skyttur þeirra Hæðargerðinga, Sigurður Gunn- arsson og Siggeir Magnússon, vom báðar frá vegna meiösla í liðinni viku. Var liöiö þvi væng- stýft og mátti á margan hátt þakka fyrir furöu nauman sigur á Gróttu í bikamum. „Við munum tefla fram okkar sterkasta liöi gegn St}ömunni,“ sagði Vfkingurinn Sigurður Gunnarsson í spjalli við DV i gærkvöldi „Við vitum að leikurinn verður mjög erfiður.. Stjömumenn sýndu styrkleika sinn í fyrri umferð, bæði gegn okkur og öðrum, þeir em til alls vísir,“ sagöi Siguröur. Heil umferð er leikin í 1. deild kvenna. Stjaman og Þróttur leika í Digranesi kl. 19, FH og Fram í Hafnarfirði kl. 20.15, Víkingur og KR í Laugardalshöllinni kl. 20 og Valur mætir Haukum á Hlíöar- enda kl. 18. Þá eigast við Ánnann og HK i 2. deild karla í Höllinni kL 21.15 og Grótta og Afturelding í 2. deild kvenna á Seltjamamesi kl. 20. Loks lýkur 16-liða úrslitum í bikarkeppni karla meö leik Sel- hefstfel. 20. -JÖG/VS NBA-deildin í körfuknattfleik: Kyndillinn er sem hönd guðs: Jafnvel konur komnai að barnsburði hafa hlaupið með kyndilinr - sem tendra mun ólympíueldinn í Calgaiy á laugardag Sænskur handknattleikur: íslendingaliðin standavelaðvígi - Gunnar í 3. sæti yfir markahæstu menn 26 stig. Þrjú efstu liðin keppa í úr- slitakeppni þegar sjálfri deildar- keppninni er lokið. e Saab, sem Þorbergur Aðalsteins- son þjálfar og leikur með, sigraði Eskil 29-23 í 1. deildinni nyrðri og skoraði Þorbergur tvö mörk í leikn- um. Saab er í öðru sæti með 27 stig eftir 17 leiki en Irsta er í efsta sæti með 28 stig og Hellas í því þriðja með 25 stig. GuiuJaugur A. Jónssan, DV, Sviþjóð: IFK Malmö er í öðru sæti í 1. deild- inni syðri í sænska handknattleikn- um. Um síðustu helgi sigraði IFK Malmö lið H43 32-22. Gunnar Gunn- arsson skoraði 7 mörk í leiknum og er þriðji markahæsti leikmaður syðri deildarinnar. Eins og áður sagði er IFK Malmö nú í öðru sæti með 24 stig að loknum 16 leikjum. Vikingama eru efstir með Denvervannstórt - Pétur skoraði 3 og tók 4 fráköst „Fyrsti fiórðungur leiksins og sá þriðji vom hnífjafnir en í öðrum fjórðungnum náði Denver ellefu stiga forskoti á skömmum tíma. Það hélst fram á síðasta korterið en þá hrundi okkar leikur til grunna. Hraðinn var geysilegur eins og alltaf í leikjum þeirra og við stóm menn- irnir vorum því mikið hvíldir,“ sagði Pétur Guðmundsson hjá San An- tonio Spurs í samtali við DV í morgun. San Antonio tapaði í nótt 136-108 fyrir Denver Nuggets á útivelli. Pétur lék í nokkrar mínútur, skoraði 3 stig og tók 4 fráköst. Það er skammt stórra högga á milli hjá Pétri og félög- um því næstu nótt mæta þeir sjálfum Boston Celtics á heimavelli en Bost- on tapaöi í nótt fyrir Houston Rockets, 129-120. „Þeir verða óðir á móti okkur, era ekki vanir að tapa tveimur leikjum í röð svo þetta verð- ur geysilega erfitt,“ sagði Pétur. Los Angeles Lakers lágu óvænt á heimavelli gegn Indiana Pacers, 108-110. Önnur úrslit: Washington- New Jersey 126-117, Atlanta-Philad- elphia 112-110, Chicago-Detroit 74-89, Milwaukee-Cleveland 112-104, Dailas-Utah 124-93, Phoenix-LA Clippers 106-100, Golden State- Sacramento 117-99, Portland-Seattle 139-123. -VS Gísli Guömundsson, DV, Kanada: Kyndillinn, sem ber logann er mun tendra sjálfan ólympíueldinn í Calg- ary, mun á laugardag ljúka sínu sögulega ferðalagi. Þegar hann kem- ur á mótssvæðið og tendrar ólympí- eldinn lýkur lengsta ferðalagi ólympíukyndils í sögu allra ólympíu- leika. Aldrei f>Tr hafa jafnmargir borið kyndillinn. Kyndilfórin hófs 17. nóvember og á laugardag hefur loginn farið yfir 18 þúsund kílómetra leið á áttatíu og átta dögum. Hófst forin á Nýfundna- landi og var hlaupið og gengið sem leið lá eftir öllum helstu þjóðvegum Kanada, gegnum öll fylki og yfirráða- svæði þessa lands, sem er annað stærsta land heims. Að auki hefur kyndillinn verið fluttur með flugvélum, bátum, snjó- bílum og hundasleðum þar sem illfær svæði hafa hindrað hefðbund- in samgöngutæki. Öll þjóðin hefur fylgst með kyndil- for' mi af áhuga og á sama hátt þeim 62M mönnum sem hafa fengið að njóta þess heiðurs að halda loganum á lofti. Það vora stoltir menn sem hlupu með kyndilinn og var hann meðhöndlaður sem heilagur gripur. Einn hlauparinn lýsti honum sem HÖND GUÐS. Hlaupararnir hafa ve- rið á öllum aldri, unglingar jafnt sem aldraðir, konur jafnt sem karlar. Fatlað fólk, bundið við hjólastól, hef- ur ekki látið sitt eftir liggja í því að gera þennan viðburð sem mestan. Þá hafa þungaðar konur jafnvel tekið þátt í þessum kyndilburði og sumar hverjar komnar fulla níu mánuði á leið. Öll þjóðin tók á sinn hátt þátt í kyndilförinni, nema innfædd brot, inúítar og indíánar, sem sniðganga þessa athöfn til að leggja áherslu á baráttu sína fyrir sjálfstæði innan síns yfirráðasvæðis. Á laugardag mun nærri öll þjóöin seijast fyrir framan sjónvarpstæki sín og fylgjast með lokakaflanum, þegar „hönd guðs“ mun tendra sjálf- an ólympíueldinn. Þar með mun hlutverki almennings vegna ólymp- íuleikanna ijúka en íþróttamennim- ir, þeir sem allt snýst um, munu taka við. Skautadrottningin Katarína Witt vann gull i si grein á leikunum i Sarajevo Eðvarð Þór Eðvarðsson úr Njarðvik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.