Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988. 33 LífsstOl Rannsokniii Á vegum Norrænu embættismanna- nefndarinnar um neytendamálefni komu nýlega út þrjár skýrslur. Hér veröur drepiö á efni þessara skýrslna til umhugsunar fyrir neytendur, aðal- lega í þeim tilgangi að varpa nokkru ljósi á þau vandamál sem fylgja rann- sóknum í þágu neytenda. Fatnaöur kemur við sögu í þessum skýrslum með ýmsu móti og greinilega kemur fram að nýjar vörur, nýir neyslusiðir og nýjar reglur skapa neytendum ný vandamál. Þvottavélar - prófunaraðferðir Fyrsta skýrslan, sem gerð verður að umtalsefni hér, ber heitið Þvottavélar - prófunaraðferðir. Við kaup á þvotta- vélum hafa neytendur oft mikinn áhuga á að vita hvort sú þvottavél, sem þeir hyggjast kaupa, þvoi vel, hvort vélin slíti þvottinum, hvort hún bili mikiö og þar fram eftir götunum. Til þess að geta svarað á ábyrgan hátt slík- um spumingum, sem virðast einfald- ar, þarf oft að framkvæma flóknar og seinlegar rannsóknir. Það þarf m.a. að finna haldgóðar prófunaraðferðir þannig að öruggar niðurstöður fáist. Þekkingu manna fleygir fram og þá kemur að því að þær prófunaraðferðir, sem samþykktar voru á sínum tíma, svara ekki að öllu leyti kröfum tímans. Á alþjóðlegum vettvangi vinna ýmsir starfshópar að því að bæta prófunarað- ferðir en síðan þarf að ná samkomulagi um þær og allt slíkt tekur langan tíma. Til þess að flýta þessum störfum var ákveðið að Norðurlöndin tækju að sér hluta af verkefnunum. Mikilvægast þótti að athuga hvernig það þvotta- efni, sem notað er í slíkum rannsókn- um, ætti að vera samsett, að hve miklu leyti kalkmagn í vatninu hefur áhrif á þvottaárangur og skolun. Ennfremur var kannað hvers konar efnisbútar væru best fallnir til þess að nota í próf- uninni svo unnt væri aö meta árangur af þvottastörfunum. Allar slíkar rannsóknir miða að því að geta leyst úr spumingum neytenda og jafnframt að benda framleiðendum á leiðir til að bæta framleiðsluna. Skýrslan er ætluð starfsfólki á rann- sóknarstofum sem gera prófanir á þvottavélum. Hér á landi eru ekki gerðar slíkar prófanir svo að vitað sé, en margar spurningar, sem berast til Leiðbeiningastöðvar húsmæðra, benda til þess að mikill áhugi sé á að fá vitneskju um niðurstöður prófana. Önnur skýrslan fjallar um rangar meðferðarmerkingar á textilvörum. Eins og kunnugt er fleygir efnaiönað- inum fram og hggur við að söluvarn- ingurinn taki stakkaskiptum á fárra ára fresti. Með vaxandi fölbreytini er æ erfiðara fyrir neytendur að átta sig á hvernig best sé að halda við fatnaði. Margir neytendur og ýmis samtök hafa því á undanförnum áratugum beitt sér fyrir því að álnavöru og fatnaði fylgi miði þar sem sagt er frá hvemig eigi að þvo og hreinsa hann. Þróunin hefur orðið sú að flestir fata- framleiðendur hafa mætt þessum kröfum. Innan í fatnað er festur miði eða borði þar sem með einfoldum skýr- ingarmyndum eða táknum er sagt frá hvemig eigi aö þvo eöa hreinsa flíkina. í sumum löndum hafa jafnvel verið settar reglur um hvaða upplýsingar eigi að fylgja álnavöru og fatnaði til þess aö neytendur kaupi síður köttinn í sekknum. Neytendur Bæði í fjölmiðlum og skólum hér á landi hefur mikið starf verið lagt í að kenna neytendum að notfærasér þess- ar handhægu upplýsingar. Á seinni ámm hefur hins vegar nokkur grunur leikið á að ekki væri ætíð unnt að treysta þessum upplýsingum til fuhs. Það er að sjálfsögðu bagalegt því þar með minnkar traust neytenda th þess- ara upplýsinga. í skýrslunni kemur fram að stundum eru þær upplýsingar um meðferð, sem fylgja fatnaðinum, þannig úr garði gerðar að óvíst er að flíkin verði hrein sé eftir þeim farið. Ef neytendur í shk- um thvikum ákveða að þvo flíkina t.d. við hærra hitastig og fhkin eyðheggst getur seljandinn vísaö frá kvörtun á þeim forsendum að ekki hafl verið far- ið eftir leiðbeiningum. Það hlýtur að vera krafa allra neyt- enda að meðferðarmerkingar á texth- vörum gefi til kynna þá meöferð sem nauðsynleg er til þess að þær verði hreinar. Að öðrum kosti eru gæði þeirra óviöunandi. Flík úr mismun- andi efnum, sem verður að þvo við ólíkt hitastig (hvít bómull og efni sem láta ht), ætti hvergi að vera á boöstól- um. Stundum vantar ýmsar mikilvægar upplýsingar um meðferð í þvotti, eins og t.d. að ekki megi leggja flíkina í bleyti, aö þvo verði flíkina sér og stærð hennar breytist ahverulega í þvottin- um. í þágu neytenda Kröfur neytenda eru hins vegar þær að fatnaður og álnavara breytist ekki við þvott eða hreinsun sem nauðsynleg þykir. Ef stærðin breytist, hturinn breytist eða ef flíkin lætur ht verður seljandinn að láta shkar upplýsingar í té. Ennfremur kemur fyrir að upplýs- ingar vantar um að tölur, spennur, kragar o.þ.h. þoli ekki þá meðferð sem mælt er með. Þaö er einnig of algengt að þvottatáknin á borðunum verði ólæsileg þegar flíkin eldist, en slíkt vandamál ætti aö vera auðleyst á tækniöld. í stutttu máh má segja að skýrsian drepi á ýmis vandamál sem gefa þarf meiri gaum í framtíðinni. Framleið- endur veröa aö reyna aö bæta ástand- 'iö. Fatnaður og bruni Þriðja skýrslan sem hér verður gerð að umtalsefni fjallar um fatnað og bruna. Gerö fatnaðar getur haft mjög víð- tækar afleiðingar ef það slys vill th að eldur kviknar í honum. Brunasár valda oft miklum sársauka og sárin eru lengi að gróa. Það þótti því ekki úr vegi að kanna hvernig ýmiss konar fatnaður hagar sér við bruna og er sagt frá nokkrum shkum thvikum í skýrslunni. Myndirnar hér á síðunni, sem birtar eru í skýrslunni, sýna hve fljótt eldur getur náð útbreiðslu í mismunandi fatnaði. Bæði snið og efni hafa áhrif á hve fljótt flíkin fuðrar upp. Ef flík er mjög eldfim geta afleiðingarnar orðið afdrifaríkar ef glóð frá vindhngi eöa kertaljós kemst í snertingu við hana. í skýrslunni er einnig sagt frá reglum sem settar hafa verið í nokkrum lönd- um th þess að koma í veg fyrir að mjög eldfimur fatnaður sé á boðstólum. Slík- ar reglur hafa verið settar þegar slys hefur borið að höndum en í skýrslunni kemur fram að erfitt er að móta þess konar reglur og ákveða nákvæmlega í hvaða tilvikum verði aö telja að flík sé svo hættuleg að ástæða sé til að banna aö selja hana. Þar sem unnið er með eld ætti vinnufatnaður ekki aö vera eldfimur. Bamaföt úr þunnum efnum og með víðu sniöi geta verið hættuleg. í Noregi hafa bamafót, sem fuðra upp á skemmri tíma en 7 sekúnd- um, verið bönnuö. Margt fleira er drepið á í skýrslunni en tekið er fram að kanna þurfi öh slík mál ítarlegar en unnt var að þessu sinni. Ákveðið var að halda áfram að kanna þessi mál. * Sigríður Haraldsdóttir 35-51 sekúnda. 11-18 sekúndur. Sjónvarpið Anna Bjamasan, DV, Denver: Sjónvarpiö hér í Bandaríkjunum virðist setja óhugnanlega mikinn svip á allt daglegt líf manna. Marg- ir hafa opið fyrir sjónvarpiö, að því er virðist, allan sólarhringinn, sofa meira að segja með kveikt á sjón- varpinu. Þegar maður kemur frá thtölu- lega „penu“ sjónvarpslandi eins og viö frá íslandi fallast manni eigin- lega alveg hendur við allt þetta flóð, það er langt frá því að við séum búin að læra á kerfið. Hægt er að fá aðgang að 50-60 stöðvum eða jafnvel fleiri meö áskriftum sem kosta frá sjö til tíu dollara á mánuöi. Myndlykilhnn fylgir með í leigunni, þannig leig- irðu í raun og veru myndlykilinn og þarft ekki að kaupa hann. Auglýsingar setja hræðhegan svip á aha dagskrána, nema á þeim stöðvum sem hafa engar auglýsing- ar, en þá er dagskráin þar oft ekki svo skemmtileg, einum of mikið af fræðsluefni, en oft boöið upp á mjög skemmthegar bíómyndir og þætti. Á dögunum sáum viö þriggja þátta miniseríu með Glendu Jackson í aöalhlutverki, Strange Interwiew, stórgóð mynd sem þið skuluð endi- lega horfa á ef hún kemur á ykkar skjái. Þrátt fyrir aht þetta framboð af sjónvarpsefni virðast margir hér hafa video. Hægt er að leigja sér spólur í öhum matvörumörkuðum. Einnig eru leigðar út spólur í Cll búðunum sem eru „sjoppurnar“ hér. Ekki höfum við séð sérstakar videoleigur. Nýjar myndir kosta víða um $1,50, eða um 60 krónur íslenskar, en myndir sem eru árs- gamlar eða meira kosta víða um 99 cent, eða tæpar 40 krónur. Auglýsingamar í sjónvarpinu eru alveg með eindæmum leiðin- legar, ekki kannski auglýsingarnar sjálfar sem slíkar, en þær koma inn í dagskrána á fimm til tíu mínútna fresti. Það er algerlega óþolandi og þegar þú ert búinn að horfa á sömu auglýsinguna 250 sinnum á tveim sólarhringum eða svo ertu alveg búinn að fá nóg, hversu skemmti- leg sem auglýsingin kann að hafa verið í upphafi. En þeir eru fljótir að taka við sér hérna. Um leið og fréttin um gagn- semi aspiríns við hjartasjúkdóm- um birtist á Headline News juku framleiðendur þessa ágæta lyfs auglýsingar sínar og nú eru þeir alhr búnir aö taka fréttina inn í sínar auglýsingar. Headline News er skemmtilegt fyrirbæri. Það er stöð CNN sem flytur fréttaágrip ahan sólarhring- inn. Þar eru einnig sýndar fréttir frá Evrópu og annars staðar úr heiminum, ekki bara Ameríku. Ekki höfum við þó séð fréttir frá íslandi og ekki er minnst á skák í fréttatímunum hér. Hins vegar virðist breskt kóngafólk eiga hehmikið upp á pallboröið hjá þeim CNN-mörinum, því ýmsar fréttir hafa borist af breskum prinsum og prinsessum. Sömu fréttirnar eru á skjánum á hálftíma fresti í allt að einn sólarhring eöa jafnvel lengur þótt stundum sé bætt við þær ef ástæöa er til. Við erum e.t.v. meira fréttaþyrst en almennt gengur og gerist um fólk, en þessi fréttastöð hefur verið aðalstöð okkar á daginn þegar við erum heimavið. Við vilj- um alls ekki falla i þá hræðilegu gryfju að horfa á „Daytime" sjón- varp hér. Það eru ekki beinlínis heimsbókmenntimar sem þar birt- ast á skjánum, hins vegar er auðvelt að festast í stólnum og nenna ekki aö standa upp. I Bandarikjunum þarf ekki aö kaupa myndlykilinn, hann er leigöur. Um hádegisbihð er boðið upp á ýmsa skemmthega orðaleiki og keppnisþætti. Það getur verið gam- an að slíkum þáttum, auk þess sem þeir æfa mann í enskri tungu. Svo höfum við séð þætti sem stældir hafa verið heima, eins og Happ í hendi hennar Bryndísar og Spha- galdur Sveins Sæmundssonar. Það er auövitað ekki hægt að bera um- gjörðina saman enda hafa þessir þættir verið hér á dagskránni síðan í árdaga sjónvarps. Kannski endar þaö með því að við fáum okkur VCR, eins og video heitir hér, eins og hinir th þess að verða ekki bijál- uð af auglýsingaskruminu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.