Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Síða 35
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988. 35 Fólk í fréttum Þráinn Guðmundsson Þráinn Guömundsson, forseti Skáksambandsins, hefur verið í fréttum DV vegna skáksigurs Jó- hanns Hjartarsonar í St. John í Kanada. Þráinn Skagfjörð er fædd- ur 24. apríl 1933 á Siglufirði og lahk kennaraprófi 1954. Hann lauk fyrrihlutaprófi í íslenskum fræð- um frá HI 1956 og var kennari við Miðbæjarskólann í Rvík 1954-1963. Þráinn var formaður stéttarfélags barnakennara í Rvík 1961-1962 og var settur skólastjóri við Lauga- , lækjarskólann 1963-1964. Hann var í námi í skólastjórnun við háskól- ann í Oregon og víðar í Bandaríkj- unum 1965-1966 og var yfirkennari við Laugalækjarskólann 1964-1975. Þráinn hefur verið skólastjóri Laugalækjarskóla frá 1975 og var settur fræðslustjóri í Rvík 1985-1986. Hann var ritari Skák- sambands íslands 1969-1973 og 1975-1986 og varaforseti 1974-1975. Þráinn hefur verið forseti Skák- sambands íslands frá 1986. Þráinn kvæntist 23. október 1954 Margréti Þórkötlu Guðmundsdóttur, f. 21. janúar 1934. Foreldrar hennar eru Guðmundur Helgason, bakari í Rvík, og kona hans, Þuríður Þor- steinsdóttir. Böm Þráins og Margrétar eru Ingibjörg, f. 29. sept- ember 1955, gift Malcolm White, tölvufræðingi í Bournemouth í Englandi, Guömundm- Ómar, f. 8. september 1957, lögregluþjónn í Rvík, kvæntur Bergþóra Haralds- dóttur fóstra, Hulda Þyri, f. 25. september 1961, gift Halldóri Halld- órssyni, í námi í starfsmannastj órn í Lundi í Svíþjóð, Margrét, f. 26. nóvember 1964, lögreglukona í Rvík, og Lúðvík, f. 31. október 1973,, nemi. Foreldrar Þráins voru Guðmund- ur Þorleifsson, verkamaður á Siglufirði, og kona hans, Ingibjörg Jónsdóttir. Guðmundur var sonur Þorleifs, b. á Róðhóli í Sléttuhlíö í Skagafirði, Jónassonar, b. á Stóra- brekku, Gunnlaugssonar. Móðir Þorleifs var Guðrún Sigfúsdóttir, b. á Stórabrekku, Sigfússonar. Móðir Guðmundar var Björg Jóns- dóttir, b. á Róðhóli, Helgasonar. Móðir Bjargar var Helga Ólafs- dóttir, systir Narfa, langafa Jóns, afa Jóns Óskars rithöfundar og Áslaugar, móður Ásmundar Stef- ánssonar, forseta ASÍ. Ingibjörg var dóttir Jíóns, b. aö Sauðaneskoti í Svarfaðardal, bróö- ur Sigtryggs, afa Aðalsteins Júlíus- sonar vitamálastjóra. Jón var sonur Jóns, b. á Klaufabrekkum, Halldórssonar, bróður Siguröar, afa Sigurðar Hauks Guðjónssonar prests. Móöir Jóns á Klaufabrekk- um var Guðrún Sigurðardóttir, systir Kristínar, langömmu Snjó- laugar, móður Sigurðar Þórarins- sonar jarðfræðings. Móðir Ingibjargar var Margrét Þorkels- dóttir, b. í Göngustaðakoti í Svarf- aðardal, Jónssonar, b. í Göngu- staöakoti, Þorkelssonar, b. á Tungufelli, Jónssonar, ættfóður Tungufellsættarinnar. Móðir Ingi- bjargar var Kristín Siguröardóttir, b. í Hreiðarsstaðakoti, Jónssonar, systir Sigurðar, langafa Sigurjóns Sigtryggssonar, fræðimanns á Si- glufirði. Kristján Kristján Dýrfjörð, Hólabraut 14, Hafnarfirði, er fertugur í dag. Kristján fæddist á Siglufirði og ólst þar upp, einn sjö systkina. Hann lauk Gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla Sigluíjarðar og fór þá á Gufuskipið Hafliða á Siglufirði 1963-1965. Kristján var á báti frá Rvík, 1966-1967 og var í Vélskólan- um 1967-1969. Hann var vélstjóri á bátum frá Rvík, 1969-1973 og frá Homafirði 1973-1975. Kristján var vélstjóri á bátum frá Þorlákshöfn 1976-1979 og Homafirði 1979-1982. Hann var á námskeiði í Vélskólan- um 1983 og hefur verið vélstjóri á níutíu tonna trollbáti, Þresti KE 51 frá 1982. Sonur Kristjáns er Haukur Örn Dýrfjörð, f. 31. júlí 1972, nemi í Kópavogi. Foreldrar Kristjáns era Hólm Dýrfjörð rafvirki, síöar bíl- stjóri á Siglufirði, nú starfsmaður á Kletti í Reykjavík, búsettur í Hafnarfirði, og kona hans, Sigurrós Sigmundsdóttir. Foreldrar Hólms Dýrfjörð vora Kristján Dýrfjörð, rafvirkja- meistari í Hafnarfirði, og Anna Óladóttir. Foreldrar Sigurrósar vora Sigmundur Sigmundsson, verkamaður á Hofsósi, og Sigurrós Bjömsdóttir. Til hamingju með daginn 75 ára_______________________ Þóra Einarsdóttir, Bröttuhlíð 7, Hveragerði, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára Gísli Eiríksson, Dagverðarvík, Glæsibæjarhreppi, er sjötugur í dag. 60 ára Aðalheiður Guðmundsdóttir, Snorrabraut 85, Reykjavík, er sex- tug í dag. Áslaug Magnúsdóttir, Bakkaflöt 2, Garðabæ, er sextug í dag. Kristin Kristjánsdóttir, Ökrum I, Breiðuvíkurhreppi, er sextug í dag. Guðrún Aðalbjarnardóttir, Stóra- gerði 12, Hvolsvelli, er sextug í dag. 50 ára______________________ Jórunn Guðrún Oddsdóttir, Engi- hjalla 1, Kópavogi, er fimmtug í dag. Heba Ásgrímsdóttir, Reynivöllum 8, Akureyri, er fimmtug í dag. 40 ára Guðmundur Svavarsson, Lauga- vegi 160B, Reykjavík, er fertugur í dag. Sabine Marth, Bollagötu 6, Reykja- vík, er fertug í dag. Haukur Ragnar Hauksson, Þernu- nesi 8, Garðabæ, er fertugur í dag. Guðmundina Jóhannsdóttir, Kveldúlfsgötu 16A, Borgamesi, er fertug í dag. Dagbjört S. Höskuldsdóttir, Eyrar- vegi 21, Grundarfirði, er fertug í dag.' Guðjón A. Jóhannson, Túngötu 22, Grýtubakkahreppi, er fertugur í dag. Tilmæli til afmælisbama Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir _________________________Afmæli Sigurbergur Sigsteinsson Sigurbergur Sigsteinsson, íþrótta kennari og fyrrv. handknattleiks- maður, til heimilis að Ásbúð 68, Garðabæ, er fertugur í dag. Sigur- bergur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann stundaði nám í íþróttakennslu við íþróttakennaraskólann á Lauga- vatni en þaðan lauk hann prófi 1969. Sigurbergur hefur síöan stundað íþróttakennslu, fyrst við Lindargötuskólann og Gagnfræða- skóla Austurbæjar í tvö ár en síðan við Árbæjarskóla og V.í. Eins og flesta rekur minni til var Sigur- bergur einn fremsti handknatt- leiksmaður hér á landi á fyrri hluta áttunda áratugarins. Hann lék í áraraðir með meistaraflokki Fram og var orðinn einn leikjahæsti maöur landsliðsins þegar hann dró sig í hlé. Sigurbergur lék einnig með 1. deildar hði Fram í knatt- spyrnu og var um þær mundir valinn í knattspymulandsliðið, en auk þess var hann efnilegur leik- maður í blaki. Hann þjálfaði um skeið kvennalandsliðið og 1. deild- ar lið Hauka, en auk þess hefur hann þjálfað yngri aldursflokka í knattspymu víða um land. Kona Sigurbergs er Guðrún, f. 30.3.1952, dóttir Hauks Sigurðsson- ar og Helgu Guðmundsdóttur, en þau eru bæði látin. Sigurbergur og Guðrún eiga þrjú börn sem öll eru í foreldrahúsum. Þau eru: Herdís, f. 1971, en hún leik- Sigurbergur Sigsteinsson. ur með 1. deildar liði Stjörnunnar og þykir ein efnilegasta handknatt- leikskona hér á landi; Heiða, f. 1976; og Sigursteinn, f. 1977. Sigurbergur á fjögur systkini sem öll búa í Reykjavík. Þau era: Jó- hanna, húsmóðir í Reykjavík, gift Kristni Sigurðssyni og eiga þau íjögur böm; Oddný, sjúkraþjálfari í Reykjavík, en hún var í mörg ár ein þekktasta handknattleikskona landsins; Sjöfn, sálfræðingur í Reykjavík, gift Finni Pálssyni, en þau eiga tvö börn; Þröstur nemi, er í sambýli með Ásgerði Péturs- dóttur og eiga þau eitt bam. Foreldrar Sigurbergs eru Sig- steinn Sigurbergsson, húsgagna- bólstrari í Reykjavík og síðar baðvörður viö Árbæjarskólann, en hann er látinn, og eftirlifandi kona hans, Herdís Antoníusardóttir hús- móðir. Föðurforeldrar Sigurbergs voru Sigurbergur, b. í Þemunesi, Oddsson og kona hans, Oddný Þor- steinsdóttir. Móðurforeldrar Sigur- bergs vora Antoníus, b. á Núpshjáleigu á Berufjarðarströnd, Jónsson og kona hans, Jóhanna Vilhjálmsdóttir. Foreldrar Sigur- bergs í Þernunesi vora Oddur, b. í Hvammi við Fáskrúðsfjörð, Odds- son og kona hans, Þórunn, dóttir Sigurbjargar Eiríksdóttur og Bjöms, b. á Seljateigshjáleigu, Jónssonar, vinnumanns á Vattar- nesi, Jónssonar, b. í Miðgerði í Laufássókn, Sveinssonar. Kona Jóns í Miðgerði var Guörún, systir Þórarins, b. og hreppstjóra í Kol- múla, en foreldrar þeirra vora Bjami, b. á Hjalla á Látraströnd, og Sólveig Jónsdóttir frá Grímsnesi á Látraströnd. Bróðir Sólveigar var Eiríkur, faðir Guðrúnar er átti Kvæða-Þorstein. Oddný, fóður- amma Sigurbergs, var dóttir Þorsteins L. Kemps, b. og hrepp- stjóra á Eyri, og Stefaníu Jóns- dóttur, en foreldrar Þorsteins voru Ludvig Kemp, sem Kempætt er kennd við, b. á Vík við Fáskrúðs- fjörö, á Vöðlum í Vaðlavik og í Gvöndarnesi, og kona hans, Oddný frá Gvöndamesi Einarsdóttir. Valdimar Friðriksson Valdimar Friðriksson vélvirki, Tunguvegi 4, Selfossi, er fertugur í dag. Valdimar fæddist á Selfossi og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann lærði vélvirkjun á Selfossi og tók próf í iöninni í Reykjavík 1968. Valdimar hefur að mestu unnið við sína iðn síðan en hann hefur ætíð verið búsettur á Selfossi. Kona Valdimars er Jóhanna, dóttir Valdórs, verkamanns á Reyðarfirði, Elíassonar og Sigur- veigar Eyjólfsdóttur. Valdimar og Jóhanna eiga tvær dætur, Margréti og Lenu, sem báö- ar eru í foreldrahúsum. Valdimar á þrjú systkini, en þau eru: Sæmundur, múrari á Selfossi, kvæntur Hafdísi Gunnardóttur húsmóður; Erna, húsmóðir í Hafn- arfirði, gift Bjarna Þorvaldssyni trésmið, en þau eiga þrjú börn; Hrefna, húsmóðir í Reýkjavík, gift Friðrik Magnússyni pípulagninga- meistara, en þau eiga eitt barn. Foreldrar Valdimars eru Friðrik, múrari á Selfossi, Sæmundsson, og kona hans, Margrét húsmóðir Valdimarsdóttir. Föðurforeldrar Valdimars: Sæmundur, formaður og b. á Stokkseyri og múrari og kennari á Akranesi og Stokkseyri, Friðriksson og fyrri kona hans, Áslaug Halldórsdóttir. Sæmundur var formaður og síöar heiðursfé- lagi Verkalýðsfélags Akraness. Foreldrar Sæmundar vora Friðrik í Hól í Stokkseyrarhreppi, Guð- mundsson og Margrét Eyjólfsdótt- ir. Friðrik í Hól var bróðir Jóns, b. á Ásláksstöðum á Vatnsleysu- strönd, Bjama ættfræðings, Arons . í Kakkarhjáleigu og Daníels á Þor- kötlustööum, en foreldrar þeirra vora Guðmundur í Starkaðar- húsum á Stokkseyri, Jónsson, og kona hans, Málfríður Loftsdóttir, tréfóts í- Eystri-Rauðarhól, Am- oddssonar. Faðir Guðmundar var Jón söngur Jónsson í Vestra-íra- gerði. Móöurforeldrar Valdimars: Valdimar, b. f Norðurgerði á Skeið- um, Jónsson og kona hans, Sigríð- ur Guðmundsdóttir. Sonur Valdimars í Norðurgerði er Finn- bogi, fóðurafi Þrastar Ámasonar, Evrópumeistara í skák, sextán ára og yngri. Faðir Valdimars í Norð- urgerði var Jón, b. á Syðri-Sýrlæk, Jónsson, b. á sama stað, Gott- sveinssonar. Sigríöur var dóttir Guðmundar, b. á Álfsstöðum á Skeiðum, Guðmundssonar. Andlát Guðlaug Helgadóttir, Hátúni 8, Reykjavík, andaðist í Landspítal- anum 8. febrúar sl. Sigríður Björnsdóttir, Sunnufelli 5b, Fellabæ, andaðist að heimili sínu aðfaranótt 8. febrúar. Ársæll Jóhannsson bóndi, Ljótar- stöðum, Austur-Landeyjum, andaðist í Landspítalanum að kvöldi 8. febrúar. Barnabílstóll - bílpúði - belti! Notar barnið þitt öryggisbúnað í bílnum? yUMFBVMR RAD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.