Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Page 40
P K Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. RStstiórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sírni 27022 MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988. Hafísinn landfastur við Hom Hafísinn er nú orðinn landfastur við Horn og er hann einnig kominn inn á Húnaflóa. Þá voru Grímseying- ar þegar farnir að sjá staka jaka á reki fram hjá eynni í gær en í dag er búist við að ísinn komi alveg upp að eynni. Vestan við eyna er ísinn í 12—15 sjómílna fjarlægð og nálgast nokkuð hratt að sögn Hafliða Guð- mundssonar, veðurathugunar- manns í Grímsey. Að austan nær ísinn að Melrakkasléttu. Alhr bátar í Grímsey hafa tekið upp net sín vegna íssins og liggja því við bryggju. Landhelgisgæslan gaf þær upplýs- -•-Mngar í morgun að ekki væri útlit fyrir að hægt væri að fara í ískönn- unarflug í dag vegna mjög slæms skyggnis. -JBj Fmmvarpsdrög: Nýir bændur þurfa próf Nú eru til meðferðar í þingflokkum ^stjórnarflokkanna drög að frum- varpi sem felur það í sér að þeir sem hyggjast heíja búrekstur þurfi að hafa til þess réttindi, hafi próf úr bændaskóla eða próf sem talist getur sambærilegt og viðkomandi hafi þá jafnframt lokið námskeiði í bænda- skóla. SamkVæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Jóni Helgasyni landbúnað- arráðherra hefur þetta mál verið í undirbúningi hjá bændasamtökun- um um margra ára skeið og um það gerðar margar samþykktir á þeim vettvangi. í frumvarpsdrögunum felst að menn þurfa að hafa aflað sér tiltekinna réttinda til þess að fá leyfi til að hefja búrekstur og á það við um hefðbundnar búgreinar og einnig » um loödýrarækt og garðyrkju, svo að dæmi séu nefnd. Jón Helgason sagði að enda þótt þessi ákvæöi frumvarpsins yrðu að lögum myndi það ekld breyta rétt- indum þeirra til búrekstrar sem þegar hefðu hafið búskap. -ój V0ÍLASTO ÞRDSTUR 68-50-60 VANIR MENN LOKI Það er auðvitað hagræðing í því að frysta fiskinn í sjónum! Kröftir Verkamannasambandsins: A-------1__ ■ /|| MnftM uætu pytt nær 30% kjavabætair - flórar hækkanir á árínu, staifsaldurshækkanir, græn Kröfugerð sú sem Verkamanna- sarabandið hefur saraið og lögð verður fyrir formannafund í dag er mjög flókin og margþætt. Þess vegna er erfitt að meta hvað hún þýöir í prósentum en samkvæmt heimildum DV má meta hana á 25-30% að loknu því ári sem gert er ráð fyrir að samningarnir gildi. Stefiit er að samningi til 15. febrúar eða 1. mars á næsta ári. í kröfugerðinni er lögö mikil áhersla á starfsaldurshækkanir til þeirra félaga í Verkamannasam- bandinu sem ekki hafa þær fyrir. Mestar kröfur eru gerðar til hækk- ana fyrir þá sem hafa lengstan starfsaldur. Þá er lögð mikil áhersla á að fá inn i samninga þau atriöi sem ýmis félög hafa fengjð en Verkamannasambandið ekki. Parið er fram á að eftirvinna veröi felld niður og þess í stað verði tveir launataxtar, dagvinna og yfir- vinna. Fariö er fram á bæði rauð og græn strik. Þannig verði launa- iiðir samninganna lausir ef verölag fer yfir ákveðin mörk. Ef aftur á móti aörir aöilar á vinnumarkaðn- um fá meiri hækkanir en samið veröiu um við Verkamannasam- bandiö þá verði samningarnir í heild lausir. Gert er ráð fyrir upphafshækkun og síðan fjórum áfangahækkunum á þvi ári sem samningamir gilda. Sérstök desemberhækkun komi til og að orlof verði lengt Þetta eru helstu liðimir í kröfu- gerð Verkamannasambands ís- lands sem lögð verður fyrir formannafundinn í dag. -S.dór Halldór Ásgrímsson og Don Bonker eftir fund sinn i gær. DV-símamynd Ólafur Arnarson Veðrið á morgun: Norðanátt og kuidi áfram Á morgun verða norðlægar átt- ir ríkjandi á landinu og talsvert frost. Stinningskaldi og éljagang- ur við norðurströndina en hægari og úrkomulaust annars staðar. Um sunnanvert landið veröur víöa léttskýjað. Frost verður á bilinu 4 til 8 stig. Fíkniefni: Sex hand- tekin í heimahúsum Fíkniefnadeild lögreglunnar hand- tók í gærkvöldi sex manns í tveimur íbúðum í Reykjavík. í báðum íbúðun- um fannst nokkuð af amfetamíni. Fólkið var haft í fangageymslu lög- reglunnar í nótt. Rannsókn málsins er á framstigi. íbúðirnar, sem leitin var gerð í, eru í miðbæ og austurbæ Reykjavíkur. í morgun lá ekki ljóst fyrir hversu mikiö magn af amfetamíni fannst í íbúðunum þar sem ekki var búið að vigta efnið. -sme Eldur í raðhúsi Töluverðar skemmdir urðu í íbúð sem eldur varö laus í í gærkvöldi. Eldurinn mun hafa kviknað út frá kaffikönnu í eldhúsi. Skemmdir urðu á eldhúsinu, veggir og loft sviðnuðu, rúða sprakk og fleira. íbúðin er í raðhúsi við Bakkasel. Þegar slökkvilið kom á vettvang hafði nágranni komið að með duft- slökkvitæki og ráðið niðurlögum eldsins. Slökkviliðið aðstoðaði við að loftræsta íbúðina. Töluverður reyk- ur og sót hafði náð að fara um íbúðina. -sme Don Bonker: Gott að heyra hvað Halldór hafði að segja Ólafur Amaison, DV, Washingtarv; Haildór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra átti síðdegis í gær rúmlega hálfrar klukkustundar langan fund með Don Bonker, fulltrúadeildar- þingmanni frá Washington, sem í síðustu viku lagði fram þingsálykt- imartillögu sem fyrst og fremst er beint gegn íslandi og Japan. Fimdurinn var vinsamlegur. Don Bonker sagði við DV að fundi loknum að Halldór Ásgrímsson hefði lagt fram geysilega merkilegar yfirlýs- ingar á fundinum og að hann hefði nú mun betri skilning á sjónarmið- um íslendinga en áður. „Ég er ekki viss um að þetta breyti skoðun minni algerlega en vissulega var gött aö heyra hvað Halldór Ás- grímsson hafði að segja,“ sagði Bonker. Halldór Ásgrímsson sagði eftir fundinn aö Bonker hefði sagt að hann vildi sýna okkar málum skiln- ing og sagðist Halldór vona að Bonker stæði viö þau orð sín. Hann sagðist ennfremur telja að fundurinn hefði verið gagnlegur. - sjá einnig bls. 36

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.