Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1988, Qupperneq 5
imm
FIMMTUDAGUR 17. MARS 1988.'
Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðusambands Norðuriands:
__________5
Atvinnumál
Þeir vilja samflot sem
aldrei hafa sýnt samstöðu
Gylfi Kiistjánsson, DV, Aknreyii:
„Mér finnst það koma úr hörðustu
átt að Jóp Kjartansson í Vestmanna-
eyjum skuli vera að gagnrýna það
að við viljum semja heima í héraði,“
sagði Þóra Hjaltadóttir, formaður
Alþýðusambands Noröurlands, í
samtah við DV vegna ummæla Jóns
Kjartanssonar, verkalýðsformanns í
Vestmannaeyjum í sjónvarpi í fyrra-
kvöld.
Þar gagnrýndi Jón það að verka-
lýðshréyfingin hefði ekki samflot í
viðræðum sinum við atvinnurekend-
ur en hver kysi að semja fyrir sig á
heimaslóðum. Fór ekki á milii mála
að gagnrýni Jóns var beint að Al-
þýðusambandi Noröurlands og
Alþýðusambandi Austurlands.
„Mér finnst ástæöulaust að sitja
undir þessari gagnrýni Jóns þegj-
andi,“ sagði Þóra Hjaltadóttir. „Þeir
sem gagnrýna það að yið viljum
semja heima viröast ekki gera sér
grein fyrir því fyrir hveija við erum
að semja. í tvö síðustu skipti a.m.k.,
sem heildarsamflot hefur verið haft
hjá verkalýðshreyfmgunni, hefur
Jón Kjartansson gengið út áður en
til undirskriftar kom. Það er því ekki
fýsilegur kostur að mínu mati að
vera í samfloti með honum í barátt-
unni núna.
Það er auðvitað alvarlegur hlutur
þegar þeir sem ekki hafa sýnt sam-
stöðu eru að heimta samflot. Jóni
væri sjálfsagt nær að reyna að ná
samfloti með Verkakvennaféiaginu
Snót í Vestmannaeyjum en að vera
að berjast einn á báti og gagnrýna
okkur hin sem viljum semja á okkar
heimaslóðum fyrir umbjóðendur
okkar," sagði Þóra.
m* mi
TECHNICS X-800 HÁÞRÓUÐ
HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐA
MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJAR-
STÝRINGU
Hann leynir sér ekki glæsileikinn
þegar TECHNICS eiga í hlut. En
útlitið eitt segir ekki nema hálfa
söguna, það er innihaldið, endingin
og hljómgæðin .sem skipta öllu máli,
þá koma yfirburðir TECHNICS
hljómtækjanna í ljós.
Það er engin tilviljun að TECHNICS
eru mestu hljómtækjaframleiðendur
heims, þeim árangri nær aðeins sá
sem getur boðið upp á framúrskar-
andi vöru í öllum verðflokkum.
Takið ekki óþarfa áhættu, þið eruð
örugg með tækin frá TECHNICS.
Verð 39.860,- Stgr. 37.870,-
Með fjarstýrðum geislaspilara
Verð 58.810,- Stgr. 55.850,-
FRAMTÍÐAREIGN Á GÓÐU VERÐI.
JAPISS
BRAUTARH0LT2 • KRINGLAN • SiMI 27133