Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1988, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 17. MARS 1988.
7
DV
Viðskipti
Bandarísk aðferð heldur
fiski férskum í fimm vikur
Fiskur helst ferskur í fimm
vikur
Ný aöferö til að halda fiski fersk-
um hefur verið þróuö viö Cornell-
háskóla í Bandaríkjunum.
Bakteríur í roöinu eru drepnar
meþ því aö dýfa fiskinum ofan í
heitt vatn í 5 sekúndur. Með því
aö nota salt í ísinn er hægt aö kæla
fiskinn niöur undir frostmark án
þess aö hann frjósi og helst hann
þá sem nýr í 5 vikur, kælist flskur-
inn þá án þess aö nokkurn tíma
frjósi. Með þessu helst nýjabragöið
í allt að 5 vikur.
Ranns. The Lnor Link.
Úr Globeflsh.
Bergey VE 544
seldi afla sinn í Hull 15. mars,
alls 141 tonn, fyrir 8,238 millj. kr.
Meðalverð kr. 28,35. Athyglisvert
er aö koli selst á kr. 172 kg; ég hef
ekki séð verð á kola svo hátt áður.
Grimsby: Bv. Klakkur
landaði og seldi afla sinn 14. og
15. mars, alls 207,9 lestir fyrir 11,502
millj. kr. Þaö vekur athygli hvaö
grálúðan selst oft á góðu verði í
Bretlandi nú síðustu mánuðína.
Verðið var annars sem hér segir:
Þorskur kr. 53,94. Ýsa kr. 78,55.
Koli kr. 74,17. Grálúða kr. 71,89.
Ýmis flatfiskur kr. 81,71 kílóið.
Bv. Halkion seldi afla sinn í
Hull
14. mars, alls 105 tonn, fyrir 5,8
millj. kr. Meðalverð kr. 55,34.
Bremerhaven: Bv. Vigri
seldi afla sinn 14. mars, alls 216
lestir, fyrir 14,8 millj. kr. Meðalverð
kr. 68,59.
New York
Um það leyti sem sölusýning
hófst á fiski í Boston barst mikið
af laxi frá Noregi. Norskir laxa-
framleiðendur höfðu fjölmennt á
sýninguna í Boston enda var mikið
að sjá af norskum sjávarafurðum.
Daginn sem sýninginn var sett bár-
ust á markaðinn hjá Fulton 36-Ú0
tonn af laxi frá Noregi. Verð á ó-
slægðum laxi var frá kr. 399 til 432
kílóið. Eftirspurn var lítil og bjugg-
ust menn við að svo yrði um sinn.
Fiskimarkaður
Ingólfur Stefánsson
Metverð á norskum laxi í
Mílanó
Undir miðjan mánuðinn hækkaði
verð á laxi verulega. Verð á laxi í
heilu lagi var þá í verslunum kr.
432-538 kg en laxasneiðar 768-920
kr. kg. Þorskflök frá kr. 250-280
kílóið. Skötuselshalar kr. 550 kOó-
ið. Frystur lax kr. 314 kílóið.
Frosinn skötuselur kr. 410 kílóið. .
Saltfiskverkun í Cuxhaven
Saltfiskframleiðslan í Cuxnaven
er sú einasta innan EEC sem fram-
leiðir þurrkaðan saltfisk, að eigin
sögn. Hjá fyrirtækinu vinna 40
manns í húsnæði sem er 2000 fer-
metrar. Fyrirtækiö stuðlar að því
að nýta flsk sem annars hefði farið
til fiskmjölsframleiðslu. Með þessu
segir fyrirtækið að það hjálpi FAO
með því að auka matvælafram-
leiðslu. Keyptur er flskur, sem ek'ki
selst, fyrir lágmarksverð á fersk-
fiskmörkuðunum í Cuxhaven og
Bremerhaven og er heist um að
ræða ufsa. Stærð hans er aðallega
40-55 cm og nokkuð af 50 til 65 cm.
Telja forráðamenn að það taki þá
4 vikur að fullverka fiskinn sem er
pakkaður í sérhannaðar umbúðir
eða geymdur þar tíl útskipun fer
fram. Segja framleiðendur að fisk-
urinn sé þurrkaður við 30 stiga
hita. Gert er ráð fyrir að auka fram-
leiðsluna, sem var 2000 tonn á
síðasta ári, og taka upp alþjóðlegan
markað.
Stærsta fisklöndunarhöfn
Spánar La Coruna
La Coruna er á norðvesturströnd
Spánar og er á Atlantshafsströnd-
inni. Yfir 12 milljónir tonna fara í
gegnum höfnina og er því ein af 5
stærstu hafnarborgum Spánar.
Hún er stærsta fisklöndunarhöfn
Spánar en þar er landað árlega
80.000 tonnum af ferskum fiski, auk
frosins fisks og saltflsks.
Stærsta fiskihöfn innan EBE
Verðmæti þessa afla, sem landað
er í höfninni, er 100 millj. sterlings-
pund. Fiskúrinn kemur frá hinum
ýmsu veiðisvæðum, en aðallega frá
„Grand Sole“ fiskibankanum. Auk
spánskra fiskiskipa landa þarna
fiskiskip frá hinum ýmsu fiskveiði-
þjóðum innan EBE. Fiskiskip í La
Coruna eru 400 og eru 50.000 tonn
samtals. Meira en 60 úthafsveiði-
T *
3
s .. .
Engey seldi afla sinn í Brem-
erhaven 9. mars 1988.
Sundurl. eftir teg. Seltmagnkg V.íerl. mynt Söluv. ísl. kr. Kr. pr. kg
Þorskur 10.970,00 34.344,50 800.965,26 73,01
Ýsa 8.193,00 35.707,60 832.754,79 101,64
Ufsi 11.348,00 23.857,06 556.382,42 49,03
Karfi 143.335,00 377.283,70 8.798.821,81 61,39
Koh 0,00 0,00 0,00 0,00
Grálúða 0,00 0,00 0,00 0,00
Blandað 24.486,00 54.602,78 1.273.418,73 52,01
Samtals: 198.332,00 525.795,64 12.262.343,02 61,83
Sölur úr gámum 14. mars
1988
Sundurl. eftir teg. Seltmagnkg V. í erl. mynt Söluv. ísl. kr. Kr. pr. kg
Þorskur 135.975,00 110.528,80 7.960.726,29 58,55
Ýsa 107.205,00 98.873,60 7.121.272,17 66,43
Ufsi 14.050,00 7.918,20 570.300,44 40,59
Karfi 11.505,00 5.575,20 401.548,20 34,90
Koli 62.585,00 66.746,20 4.807.328,31 76,81
Grálúða 2.100,00 1.999,60 144.019,19 68,58
Blandað 15.167,50 16.827,60 1.211.991,06 79,91
Samtals: 348.587,50 308.469,20 22.217.185,66 63,73
Sölur úr gámum í Bretlandi
15. mars1988
Sundurl.eftirteg. Seltmagnkg V.íerl.mynt Söluv. ísl. kr. Kr. pr. kg
Þorskur 154.055,00 125.016,80 8.987.332,74 58,34
Ýsa 41.810,00 44.237,80 3.181.237,64 76,09
Ufsi 25.410,00 10.201,40 733.867,73 28,88
Karfi 13.305,00 5.526,80 397.798,67 29,90
Koh 31.095,00 30.937,50 2.224.065,94 71,52
Grálúða 0,00 0,00 0,00 0,00
Blandað 24.308,25 20.203,80 1.452.442,05 59,75
Samtals: 289.983,25 236.124,10 16.976.744,75 . 58,54
Vigri gerði góðan túr til Bremerhaven á mánudaginn og seldi 216 lest-
ir fyrir tæpar 15 milljónir króna. Meðalverð var um 68,50 krónur.
togarar eru að staðaldri gerðir út
þaðan en önnur skip landa þar
reglulega. Fiskverð er hátt á mark-
aðnum í La Coruna.
Uppboð á fiski fer fram í fimm
söluhöllum. Þar er seldur fiskur
úr skipunum, auk þess sem seldur
er fiskur sem kemur á markaðinn
landleiðina frá öðrum fiskihöfnum.
Sölusvæðið er 10.000 fermetrar auk
25.000 fermetra svæðis sem er at-
hafnasvæði fyrir kaupendur.
Kæligeymslur eru tvær, önnur er
50.000 rúmmetrar en hin 30.000
rúmmetrar. Á hafnarsvæðinu eru
16 dráttarbrautir sem geta tekið
upp skip frá 250 lestum upp í 3000
lestir að stærð. Nú er verið að taka
í notkun nýtt svæði við höfnina,
svonefnt „Oza Basin“, sem mun
koma flskiflotanum að miklu gagni
í framtíðinni en stærð hafnarsvæð-
isins er 500.000 fermetrar, en
lengdin á hafnarbakkanum er 2200
metrar.
Úr World Fishing
Vel gengur að selja laxveiðileyfi:
Uppselt í 25
veiðiár
Ólögleguer-
lendu vinnuafli
fjölgar á veit-
ingastóðum
Útlendingaeftirlitið hefur und-
anfarið þurft i auknum mæli að
skipta sér af útlendingum sem
starfa á veitingahúsum í Reykja-
vík, réttindalausir eða án at-
vinnuleyfts.
Jóhann Jóhannsson, lögreglu-
fulltrúi hjá útlendingaeftirlitinu,
sagði í samtali við DV að ekki
væri um formlegar brottvísanir
úr landi aö ræða en töluvert hefði
aukist að stuggað væri við mönn-
um og þeir beðnir um að fara eftir
lögum. „Það er rétt að afskipti
okkar af útlendingum, sem vinna
á veitingahúsum, hafa aukist
töluvert á undanfórnum mánuð-
um. Mikiö af erlendu fólki er
starfandi í veitingahúsarekstrin-
um og hefur því fjölgað samtímis
og austurlenskum matsölustöð-
um hefur fjölgað verulega í
Reykjavík. En þetta er ekki stórt
vandamál og hingað til hafa þessi
mál verið leyst á farsælan hátt
fyrir alla aðila. Við reynum alltaf
að aðvara fólk áður en geröar eru
róttækari aögerðir og hefur það
hingaö til gengiö vel,“ sagði Jó-
hann.
-JBj
„Það hefur gengið vel að selja
veiðileyfi í Kjarrá og þar eru þau
búin, eitthvað eftir í Þverá, en ekki
mikið. Veiðimenn virðast hafa mik-
inn áhuga á að vera þarna í Kjarr-
ánni, líklega eru það landslagið og
staðurinn," sagði Jón Ólafsson, en
hann hefur selt veiðileyfi í Þverá og
Kjarrá í nokkur ár.
„Ég man ekki eftir öðrum eins
áhuga á veiði í mörg ár, nýir veiði-
menn koma inní þetta á hverjum
degi og kastnámskeið eru full af
áhugasömum veiðimönnum. Veiði-
leyfi seljast vel og silungurinn fær
alltaf meiri athygli," sagði veiðimað-
ur sem verið hefur verið viðloðandi
veiðina í mörg ár og fer í fjölda veiði-
túra núna í sumar.
Er við gerðum könnunina á verði
á veiöileyfum fyrir skömmu, heyrð-
um við á mörgum að mikið hefði selst
af veiðileyfum víða og færri kæmust
að en vildu í margar veiðiár. Hér
koma veiðiár þar sem uppselt er
nuna:
Elliðaárnar. Kjarrá í Borgarfirði.
Brennan í Hvítá. Flókadalsá í Borg-
arfiröi. Haffjarðará á Mýrum. Langá
á Mýrum. Laxá í Dölum. Fáskrúð í
Dölum. Hrútaíjarðará og Síká. Víði-
dalsá og Fitjá. Vatnsdalsá. Miðfjarð-
ará. Laxá á Ásum. Blanda. Svartá.
Laxá í Refasveit. Laxá í Aðaldal(ílest
veiðisvæöi). Laxá í Þing. (urriðinn).
Selá í Vopnafirði. Hofsá í Vopnafirði.
Grenilækur. Snæfoksstaðir í Hvítá
og Sogið (Alviöra). Það eru líka
margar veiðiár þar sem lítið er eftir
af veiðileyfum, eins og Leirvogsá,
Laxá í Kjós (Bugöa), Selós og Þverá
í Svínadal, Norðurá í Borgarfirði,
Hvolsá og Staðarhólsá, Laxá og Bæj-
ará, Mýrarkvísl, Sunnudalsá og
Breiödalsá, svo einhverjar séu
nefndar.
Áhugi manna á veiðileyfum þessa
dagana er mikill og fjármunir eru
miklir sem fara í þetta sport veiði-
manna þessa dagana. -G.Bender
Elliðaárnar er ein af þeim veiðiám þar sem veiðileyfi seljast betur en heit-
ar lummur. Davið Oddsson vippar laxi á land úr ánni á opununardegi og
það mun hann eflaust lika gera i sumar. DV-mynd G.Bender