Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1988, Síða 11
FIMMTUDAGUR 17. MARS 1988.
11
Utlönd
Almennt er taliö að Reagan forseti náði John Poindexter og Oliver North, fyrrum aðstoðarmenn sína. Ákæra var
gefin út gegn þeim og tveimur öðrum í gær og þeir meðal annars sakaðir um samsæri gegn Bandaríkjunum.
Símamynd Reuter
Pomdexter og
North ákærðir
liðin frá því að Terry Anderson var
numinn á brott í Beirút.
Reagan Bandaríkjaforseti sagði að-
spurður í gær að hann vissi ekki til
þess að neinn þeirra sem ákærðir
voru hefðu ætlað sér að fremja neinn
glæp gegn Bandaríkjunum.
Almennt er búist við að Reagan
náði þá North og Poindexter og ef til
vill fleiri en óvíst er tahð aö það verði
fyrr en eftir forsetakosningarnar í
nóveniber næstkomandi.
Ólafur Amaison, DV, New York;
Ákæra var í gær gefin út gegn fjór-
um aðalmönnunum í íran-kontra-
málinu. Það voru þeir OUver North,
John Poindexter, Richard Secord og
Albert Hakim sem voru ákærðir.
Þeir eiga yfir höfði sér margra ára-
tuga fangelsi og háar fjársektir ef
þeir verða sekir fundnir um helstu
ákæruatriði. Þeir eru sakaðir um
samsæri gegn Bandaríkjunum,
þjófnað á eigum Bandaríkjastjórnar
og margt fleira.
OUver North sagði í gær að hann
væri saklaus af öllum ákæruatriðum
og að það væri kaldhæðnislegt- að
þessi ákæra væri gefin út sama dag
og sandínistar gerðu tilraun til að
veita kontraskæruUðunum náðar-
höggið. North sagðist hafa bent á
hættuna sem fylgdi því að skera á
aðstoð handa kontraskæruliðunum
við yfírheyrslur síðastUðið sumar og
að orð hans hefðu nú komið á dag-
inn. Benti North ennfremur á að
þessa ákæru bæri upp á sama dag
og þess væri minnst að þijú ár væru
Verslanir voru rændar eftir að kveikt hafði verið í þeim i óeirðunum í
Panama í gær.
Simamynd Reuter
Uppreisnartil-
raun barin niður
Manuel Antonio Noriega, yfir-
manni hersins í Panama, tókst í
gær að berja niður tilraun til bylt-
ingar í landinu sem hann segir að
gerö hafi verið að undirlagi Banda-
ríkjamanna.
Mikill órói er þó enn í landinu,
efnahagslíf þess er í rústum og
höfuðborgin lömuð vegna mikiUa
mótmælaaðgerða stjórnarand-
stæöinga þar.
Til átaka kom í gær í aðalstöðv-
um hersins þar sem hópur Uðs-
foringja reyndi að taka völdin í
sínar hendur. Að sögn talsmanna
stjórnvalda í Panama voru þetta
liðsforingjar sem þjálfaðir höfðu
verið í Bandaríkjunum.
Sérfræðingar um málefni Pan-
ama segja aö Noriega geti enn
treyst á stuðning um sextán þús-
und manna herUðs og erfitt sé að
greina hvort fleiri aðilar innan
hersins hyggi áaðgerðir gegn hon-
um.
Utanríkisráðherr-
amir leysi hnútinn
Samningaviðræður Afgana og Pa-
kistana, sem miða að því að finna
leiðir til friðar í Afganistan og brott-
flutnings sovéskra hermanna þar,
virðast nú algerlega komnar í strand
og teija margir að utanríkisráðherr-
ar Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
séu einu aðilamir sem hugsanlega
gætu leyst þann hnút.
Sfjórnvöld í Sovétríkjunum hafa
lýst því yfir að brottflutningur þeirra
115 þúsund hermanna, sem talið er
að þau hafi í Afganistan, geti ekki
hafist fyrr en tveim mánuðum eftir
að friðarsamkomulag verður undir-
ritað.
Ekkert hefur hins vegar miöað í
samkomulagsátt í viðræðum þeim
sem hófust þann 2. mars í Genf.
Stærstu deiluefnin þar eru myndun
bráðabirgðastjórnar í Afganistan og
stöðvun hernaðaraðstoðar Sovét-
manna við her Afganistan.
Viðurkenndi
innrásina
Ólafur Amarson, DV, New York;
Alejandro Bendana, utanríkisráð-
herra Nicaragua, og Elliot Abra-
hams, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, áttust við í beinni
útsendingu á ABC-sjónvarpsstöðinni
um miðnætti í nótt.
Bendana sagðist í upphafi ekki vita
til þess að sveitir sandínista hefðu
ráðist inn fyrir landamæri Honduras
og vildi sem minnst gera úr þessari
atlögu gegn kontraskæruliðunum.
Síðar í þættinum sagði hann að
sandínistar ætluðu sér að hrekja
kontraskæruliðana út úr Honduras.
Stjórnandi þáttarins spurði hvort
honum hefði orðið á mismæli en
Bendana ítrekaði orð sín og sagði að
sandínistar vildu fá alla kontra-
skæruliðana í sérstakar búðir í
Nicaragua þar sem vopn þeirra yrðu
tekin af þeim og þeir lagáðir að þjóð-
háttum í Nicaragua.
Orðaskak Bendana og Abrahams
varð allhörkulegt og gengu ásakanir
um lygar og óheilindi á báða bóga.
Meö orðum sínum viðurkenndi
Bendana hins vegar að þrátt fyrir
ailar yfirlýsingar Daniels Ortega um
hið gagnstæða þá hefðu sandínistar
að yfirlögðu ráði ráðist inn í Hondur-
as til að elta uppi þá kontraskæruliöa
sem þar eru.
SKIÐAFATNAÐUR
ÚTSALA!
20% - 50%
AFSLÁTTUR S
af öllum
SKÍÐA-
FATNAÐI
SPORiSVVEAR
- óöýrarl á íslandi
SPORTUF
VID EIÐISTORG - SÍMI 61131J