Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Side 7
FÖSTUDAGUR 25. MARS 1988. 7 dv_____________________________Fréttir Ördeyðan á Breiðafirði: Fjörðurinn virðist alveg vera ætislaus - segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar „Það er ekki rétt að þorskárgang- urinn frá 1983 hafi ekki skilað sér í veiðinni. Hann hefur verið uppi- staða þorskaflans annars staðaren á Breiðafirði. Hitt er svo annað mál að þessi árgangur er ekki enn orðinn þessi hefðbundni vetrarvertíðarfisk- ur, það gerist ekki fyrr en næsta ár, þegar hann er orðinn 6 ára. Ástæðan fyrir ö'rdeyðunni á Breiðafjarðar- miðum er án nokkurs vafa ætuleysi því að þorskur sem þar veiðist er með tóman maga,“ sagði Jakob Jak- obsson, forstjóri Hafrannsóknastofn- unar, í samtali við DV um aflaleysið fyrir vestan. Hann sagði að engin loðna hefði gengið vestur fyrir eins og oftast ger- ist. Ástæðurnar væru sennilega þær að þegar loðnugangan hófst var mik- ið austurfall í hafinu og langvarandi sterk vestanátt. Því hefði öll loðnan gengið austur fyrir landið og Breiða- fjarðarmiðin því að kalla ætislaus. Sjómenn og vertíðarfólk á Snæ- fellsnesi er farið að örvænta um að einhver hrota komi á þessari vertíð. í venjulegu árferði er marsmánuður besti vertíðarmánuðurinn. Að þessu sinni hefur hann brugðist svo ger- samlega að engin dæmi eru til annars eins. Stórir netabátar eru að koma að landi með 2 tonn eða minna dag eftir dag. Og það sem bendir til ætu- skorts á miðunum er að línubátar veiða vel, litlir bátar eru að koma með 4 til 5 tonn úr róðri. Þeirri kenningu hefur verið haldið fram að kaldur strengur sé í hafinu fyrir utan hefðbundin mið Breiða- íjarðarbáta og því komi loðnan ekki á miöin. Jakob Jakobsson segist ekki kannast við það. Þó geti verið að kaldur strengur af yfirborðssjó sé þama en það hefti ekki loðnuna í að ganga á miðin ef hún er til staðar. -S.dór Fyrstu vísbendingar benda til þess að rækja frá vorinu 1987 sé mjög sterk- ur árgangur. Rækjan í ísafjarðardjúpi: Sterkur árgangur er gefur góð fyrirheit Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði: „Það er að koma inn nýr árgangur af rækju - rækja frá vormánuðum 1987 - og fyrstu vísbendingar eru að þetta sé með sterkari árgöngum sem komið hafa í Djúpið. Það verða hins vegar ansi mikil afFóll þegar rækjan er svona ung og það ræðst því ekki fyrr en í haust hversu sterkur ár- gangurinn verður. Við bindum þó miklar vonir við hann,“ sagði Guð- mundur Skúli Bragason hjá Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins þegar hann var inntur eftir fréttum af rækjunni. Þó stofnmælingar hafi ekki komið sérlega vel út jók ráðuneytið kvótann í ísafjarðardjúpi um 200 tonn þannig að hann er núna 2000 tonn. Nú er talið að um 1500 lestir hafi verið veiddar. Sumir eru búnir með kvót- ann en aðrir em styttra á veg komnir en rækjuveiðin mUn standa fram yfir páska. Ef árgangurinn frá 1987 verður sterkur, eins og margt bendir til að verði, má búast við aukningu á kvóta vertíðina 1989-1990, þá sem tveggja ára rækja. Kjarasamningaviðræður: Iðnaðarmannafélögin nánast ekkert byrjuð „Eg veit að einstök iðnaðarmanna- félög hafa eitthvað þreifað fyrir sér hjá sínum viðsemjendum en þær við- ræður hafa verið alveg marklausar og óskipulagðar til þessa. Og héðan af þori ég að fullyrða að ekkert ger- ist í samningamálum iðnaðarmanna fyrr en eftir páska,“ sagði Benedikt Davíðsson, formaður Sambands byggingamanna, aðspurður um að- gerðir iðnaðarmanna í kjarasamn- ingamálum. Benedikt sagði að eiginlega væru iðnaðarmannafélögin að bíða eftir því að félög innan Verkamannasam- bands Islands gengju frá sínum kjarasamningum, enda hefði Verka- mannasambandið óskað eftir því við iðnaðarmannafélögin að þau færu ekki í samningaviðræður meðan Verkamannasambandsfélögin væru að. Að sögn Benedikts er atvinnu- ástand nú með besta móti í bygginga- riðnaðinum, bæði hér á höfuðborg- arsvæðinu og eins á Eyjafjarðar- svæðinu. Mikil eftirspurn væri á þessum stöðum eftir byggingariðn- aðarmönnum. -S.dór Ráðhúsreitur stækkar Skipulagsstjórn ríkisins sam- hússins um 46 fermetra. Þrír þykkti á fundi sínum í fyrradag stjórnarmanna greiddu atkvæði með stækkun byggingarreits fyrirhugaðs breytingunni, einn var á móti og einn ráðhúss við Tíömina. Við breyting- sat hjá. una stækkar byggingarreitur ráð- -JBj T ÍOZ’XK Tilvalið til fermingargjafa. 30 watta GÍTARMAGNARAR komnir aftur. Verð frá kr. 10.900,-, einnig ódýrir rafmagnsgítarar. Tilvalið til ferming argiafa. Verð frá kr. 9.800,- (99 innbyggðar raddir) HLJ OMB ORÐ VASAUTV ORP frá kr. 1.800,- HLJÓÐFÆRAVERSLUN Poul Bernburg Rauðarárstíg 16 Sími 20111

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.