Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 25. MARS 1988. 9 Brautarholti 20 - simar 29098 og 23335 Opiö fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 18 Gudmundur Haukur ásamt Tommy Hunt skemmtir Útlönd Byssurnar þagnaðar Yílrvöld í Panama hafa beðiö hóp bankastjóra um nítján milijóna dollara lán í reiðufé til þess að unnt verði að greiða hermönnum og op- inberum starfsmönnum laun. Þrjár vikur eru nú liðnar frá því að Bandaríkjamenn komu í veg fyrir íjárstreymi til Panama. Bandaríkjadollar er notaður sem gjaldmiðill í Panama og aðgerðir til þess aö hindra launagreiöslur til hermanna og opinberra starfs- manna miða að því að bola Noriega frá völdum. Bönkum 1 Panama var lokað eftir að Bandaríkjamenn frystu innstæður Panama. Allsherjarverkfall hefur lamað alla starfsemi í landinu og hafa menn mótmælt launaleysi og kraf- ist afsagnar Noriega. Noriega, sem er eftirlýstur í Bandaríkjunum vegna meintrar aðildar að eiturlyíjadreifmgu, hef- ur vísað á bug áætlun Bandaríkja- manna um að þeir muni ekki krefjast framsals hans ef hann þiggur landvistarleyfi á Spáni. Byssumar hafa þagnað í Nic- aragua. Samkomulagið um sextíu daga vopnahlé, sem undirritað var á miðvikudaginn milli sandinista og kontraskæruliða, á ekki að taka gildi. fyrr en þann 1. apríl næstkomandi en báðir stríðsaðilar samþykktu að framlengja vopnahléö sem ríkti á meðan á friðarviðræðunum stóð. Bandaríkjastjóm fagnaði vopna- hlénu varfærnislega og hvatti í gær til frekari aðstoðar við kontraskæm- liða. Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna, benti á að enn hefðu sandinistar ekki komið í verk öllum loforðum sínum. Utanríkisráðherrar Guatemala, Honduras og E1 Salvador fognuðu samkomulaginu á fundi sínum í gær í Guatemala. Þeir höfðu komið sam- an til að ræða frið í Mið-Ameríku. í Nicaragua hafa engar fréttir bor- ist af átökum þrátt fyrir óstaðfestar fréttir opinberra fjölmiðla um aö all- ir kontraskæruliðar hafi ekki verið hlynntir samkomulaginu. Stjómin ráðgerir frekari viöræður Þú þarft ekki aö leita lengra TÉKK^ KKISTTII Laugavegi 15 - sími 14320 Kringlunni - simi 689955 Undirritun vopnahléssamkomulagsins i Nicaragua á miðvikudaginn. við fuUtrúa kontraskæruliða á mánudaginn til að mynda sérstök vopnahléssvæði þar sem kontra- Simamynd Reuter skæruliðar, sem taldir eru vera tólf þúsund talsins, geta varðveitt vopn sín og fengið aðstoð Rauöa krossins. Arias Calderon, leiðtogi stjórnarandstöðunnar i Panama, var fagnað er hann kom til Panama I gær. Hann var rekinn úr landi í febrúar síðast- liðnum. Simamynd Reuter Bankastjór- ar beðnir um aðstoð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.