Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1988, Blaðsíða 32
F R E T
A S K O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá i sfma 62-25-25, Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað i DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
- Askrift - Dreífing: Sími 27022
FOSTUDAGUR 25. MARS 1988.
Verslunaimenn
felldu en
■Iðja samþykkti
kjara-
samningana
Til tíðinda dró á vinnumarkaðnum
í gærkvöldi þegar Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur felldi nýgerða
kjarasamninga með 214 atkvæðum
gegn 96. Um leið og úrslitin voru ljós
bar Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélagsins, fram til-
lögu um að trúnaðarmannaráð
félagsins boðaði verkfall. Var sú til-
laga samþykkt með öllum greiddum
^ atkvæðum nema einu. Trúnaðar-
mannaráð tekur ákvörðun um
tímasetningu verkfallsins.
Iðja, félag verksmiðjufólks í
Reykjavík, var með fund á sama tíma
um sömu kjarasamninga. Þar var
annað uppi á teningnum því samn-
ingamir voru samþykktir með 105
atkvæðum gegn 49. -S.dór
Jóhanna hótar
" stjórnarslítum
Á opnum fundi ráðherra Alþýðu-
flokksins í gærkvöldi sagði Jóhanna
Sigurðardóttir að flokkurinn stæði
og félli með þvi að kaupleigufrum-
varpið yrði afgreitt fyrir þingslit í
vor. Þetta mál væri prófsteinn á
hvort Alþýðuflokkurinn ætti erindi
í þessa ríkisstjóm eða ekki.
-gse
Á ofsahraða
á Kleppsvegi
w Nítján ára gamall ökumaður var
sviptur ökuleyfi í gær. Lögreglan
hafði skömmu áður tekið ökumann-
inn fyrir að aka á 156 kílómetra hraða
á Kleppsvegi.
Ökumanninum tókst að snúa lög-
regluna af sér en fyrir aðstoð vegfar-
enda fann lögreglan manninn. Hann
bar því við að hann hefði viljað sýna
ökumanni á Suzuki bifreiö hvemig
alvörabílar væru. Sá kappsami var
á BMW. -sme
Bílstjórarnir
aðstoða
SSJlDIBíUlSTOÐin
LOKI
Lendir PLO-Denni ekki
í harkalegri vopnaleit
þegar hann kemur heim?
a
„Það getur brugðið til
beggja vona með þetta*
sagði Þórarinn V. Þórarinsson,
I, í moigun
Gylfi Kriugánascn, DV, Akureyii
„Við höfum náð þeim árangri að
rætt hefur verið um launaJiðina.
Hins vegar hefúr ekki dregið til tíð-
inda og það getur brugðið til beggja
vona með framhaldið. Ég á von á
langri lotu,“ sagði Þórarinn V. Þór-
arinsson, framkvæmdastjóri VSÍ,
er DV ræddi við hann í morgun.
Samningafundur aðila vinnu-
markaðarins hafði þá staðið í
tæpan sólarhring í Alþýðuhúsinu á
Akureyri. Eini áþreifanlegi árang-
ur þess fundar er að samkomulag
náöist um breytilegan vinnutíma
um miðjan dag í gær. Helsta atriði
þess samkomulags er að vinnutíma
verður ekki breytt frá því sem nú
er nema með samþykki viökom-
andi vinnuhópa. „Að okkar dómi
ér þetta það hagstæðasta sem hægt
var að ná varðandi þetta atriði,“
sagði Hrafnkell A. Jónsson, for-
maður Verkalýðsfélagsins Árvak-
urs á Eskifirði, við DV í gær.
Þetta samkomulag náðist um
miðjan dag í gær. Þá var tekið til
við að ræða launaliðina, kauptaxta,
starfsaldurshækkanir og desemb-
erappbót. Sáttasemjari lét loka
húsinu og síöan hafa menn setiö
við en án árangurs.
„Það má alveg segja það að ekk-
ert hafl þokast hér í nótt,“ sagði
Sævar Frímannsson, formaður
Einingar í Eyjafirði, er DV ræddi
viö hann í morgun. Sævar sagði aö
fundaö væri í nefndum víða um
húsið og hann ætti von á löngum
fundi áður en eitthvað færi að ger-
ast.
„Það hefur ekki verið tekin á-
kvörðxm um hvemig veröur spilað
úr þessu,“ sagöi Guölaugur Þor-
valdsson sáttasemjarier DV spuröi
hann 1 morgun um líklegasta fram-
haldið á fundinum. Sem kunnugt
er þarf stærstur hluti samninga-
manna að rýma hótelherbergi sin
um hádegið í dag og er þá á göt-
unni. Samkvæmt heimildum DV
era taldar líkur á að fundarhlé
verði gert meðan samningamenn
pakka niður og rýma hótelherberg-
in og síðan verði tekiö til við
fundinn aö nýju. Það styður þetta
aö allt flug frá Akureyri um helgina
mun vera fullbókað. Það stefnir því
allt í aö áfram verði reynt á Akur-
eyri og má reikna með að fundur-
inn, sem nú stendur, geti oröiö
rrúög langur.
Þyria sótti veikan sjómann
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
SEF, sótti veikan sjómann um borð
í togarann- Jón Vídalín ÁR í
gær.
Togarinn var að veiðum um 50
sjómílur suðvestur af Reykjanesi.
Frá því aðstoðar var óskaö og þar til
þyrlan lenti við Borgarspítalann liðu
tvær klukkustundir. Veður var gott
og gekk ferðin vel.
-sme/DV-mynd S
Vedríð á morgun:
Él norðan-
lands,
bjart syðra
Á morgun verðm- norðaustan-
átt um allt land, víðast 4 til 6
vindstig. É1 verða um norðanvert
landið en þurrt og víðast léttskýj-
að fyrir sunnan. Frost verður á
bilinu 0 til 6 stig norðanlands en
hiti 0 til 4 stig fyrir sunnan.
Tilbúinn í við-
ræður við PLO
Á fundi Steingríms Hermannsson-
ar utanríkisráðherra og fulltrúa PLO
samtakanna í Svíþjóð, dr. Makalof,
kom það fram hjá Steingrími að hann
hefði ekkert á móti því að llitta full-
trúa og framkvæmdastjóm PLO að
máli og væri tilbúinn í viðræður við
þá. Þetta kemur fram í skriflegri frá-
sögn Þórðar Einarssonar sendiherra
af fundinum.
Hvenær fundur þeirra gæti orðið
sagði Steingrímur að yrði að ákvarð-
ast nánar. Eflaust væri betra að
slíkur fundur ætti sér stað í Túnis
fremur en í Reykjavík, að minnsta
kosti í fýrsta sinn, en aðalstöðvar
PLO samtakanna era nú í Túnis.
-ój
Mjólkurfræðingar
ætla ekki að
vinna yfiivinnu
„Félagið hefur enn ekki boðað yfir-
vinnubann og það v.erður því mál
hvers og eins mjólkurfræðings hvort
hann vinnur yfirvinnu eða ekki.
Okkar samningamál era hjá sátta-
semjara en nú er biðstaða vegna
samninganna fyrir norðan. Ég veit
að meðal mjólkurfræðinga er óá-
nægjan með seinaganginn komin á
suðupunkt," sagði Geir Jónsson,
formaður Mjólkurfræðingafélagsins,
í samtali við DV í morgun.
Samkvæmt heimildum DV hafa
mjólkurfræðingar ákveðiö að hætta
aö vinna yfirvinnu og mun það hafa
allmikil áhrif á mjólkur- og mjólkur-
afurðaframleiðslu fyrir páskana.
-S.dór
Bókageiðarnienn
boða yfiwinnubann
Félag bókagerðarmanna hefur boð-
að yfirvinnubann frá og með
morgundeginum. Félagið hefur um
nokkum tíma staöið í samningavið-
ræðum viö viðsemíendur sína en
ekkert hefur mjakast í átt til sam-
komulags, að sögn Þóris Guðjóns-
sonar sem tekur við formennsku í
félaginu á aðalfundi þess í næsta
mánuði. -S.dór