Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 29. APRlL 1988.
Fréttir
Undirbúningi Eurovision að Ijúka:
Sungið fyrir fullu húsi í dag
Elin Albensdóttir, DV, Dublin:
Allir keppendur í Eurovision þurfa
að klæöa sig upp og sminka er síð-
ustu tvær æfmgamar verða í dag.
ÖU þessi vika hefur farið í æfingar,
bæði á söng og ekki síður á tæknileg-
um atriðum. Sviðið í RDS hljóm-
leikahöllinni er allt lagt neonljósum
sem kvikna og slokkna og á víxl.
Sjónvarpsáhorfendur, sem horfa á
keppnina annað kvöld, sjá stórt og
mikið svið en í raun er það minna.
Sviðið er auk þess mjög nálægt
áhorfendum í salnum og ættu kepp-
endur að ná góðu sambandi við þá.
Öryggisgæsla er gríðarlega mikil í
RDS. Allir þeir sem þurft hafa að
fara inn í höllina undanfama daga
hafa þurft að bera áberandi passa
um hálsinn. Inngangurinn minnir á
tollskoðun á flugvöllum. Öryggis-
vörður tekur á móti farangri og
grandskoðar. Síðan þarf að ganga í
gegnum hhð. AUt er þetta gert tU að
koma í veg fyrir að sprengju verði
komið fyrir í húsinu. Öryggisgæslan
verður hert tíl muna í dag og á morg-
un.
írar tala ekki um hryðjuverk en
greinUegt er að þeir telja betra að
vera við öUu búnir. TU að þátttak-
endur og blaðamenn komi ekki inn
á svæðið í leigubUum eða einkabUum
er boðiö upp á fríar rútuferðir frá
hótelum á hálftíma fresti. Rútumar
eru vel merktar Eurovision. Allir
leigubUar sem koma að RBS eru
stöðvaðir við hhðið og athugað hvaða
erindi þeir eigi inn á svæðiö. Borgin
ber ekki nein merki um að hér sé
Eurovisionkeppni í gangi. Hins vegar
em mikU og stór skUti um aUa borg-
ina þar sem minnt er á að Dyflinni
á eitt þúsund ára afmæU á þessu ári.
Veðrið hefur leikið við gesti þessa
viku, sólskin og bUða. Segja írar að
góða veðrið hafi komið með Euro-
visiongestunum fyrir viku.
Veðbankar í Dubiin:
Isiendingar færast neðar
Eliti Albertsdóöir, DV. Dublin:
Veðbankar í Dublin era mjög
margir hér í Eurovision að sögn
starfsfólks í blaöamannastúkunni
í blaðaraannahöUinni. DV hringdi
í einn virtasta veðbankann í DubUn
í gærmorgun og var þá tjáð að ís-
lenska lagið Sókrates væri í 16.
sæti. Svissneska lagið var þá í 1.
sæti. Er DV hringdi í veöbankann
í gærkvöldi var íslenska lagiö enn-
þá í 16. sæti en sænska lagið var
komiö í það fyrsta. í 2. sæti var
svissneska lagið, í 3. sæti var þýska
lagiö og í 4. sæti lagið frá Hol-
landi.
Veðbankamir eru taldir Utið
marktækir. Svíar hafa t.d. hampað
frægum söngvara og auk þess hald-
ið hér sænska viku tíl aö vekja
meiri athygU. Svisslendingar telja
sig einnig sigurstranglega og á
blaðamannafúndi, sem þeir héldu,
kom fram að þeir töldu sig sigur-
vegara. -Er söngkona þeirra var
spurð hvaö hún myndi gera ef hún
ynni svaraði hún: „Mig hefur aUtaf
langaö til að verða heimsfræg."
Stigin annað kvöld munu ráða
úrsUtum en eitt er víst að íslend-
ingar hafa ekki náð að kynna sig
jafn vel hér í DubUn og þeir hafa
gert undanfarin tvö ár í Eurovisi-
on.
írska nkisstjómin með veislu:
Vantaði Stefán og Stormsker
Elín Alberlsdóttir, DV, Dublin:
í gærkvöldi var haldin mikU veisla
fyrir þátttakendur Eurovision, blaða-
og fréttamenn og aðra sem tengjast
hátíðinni. Það var ríkisstjóm írlands
sem bauð til veislunnar í rúmlega
aldargömlum kastala. MikiU fjöldi
var í veislunni þar sem boðið var upp
á drykk, ostapinna og brauö. Þátttak-
endur Eurovision létu sig ekki vanta
enda var forsætisráðherra írlands
mættur tíl að heilsa upp á gesti. Gekk
hann á meðal gesta og ræddi við þá.
Sjónvarpsmenn frá írska sjónvarp-
inu fylgdu honum og vakti nokkra
athygU gesta hversu lengi forsætis-
ráðherrann ræddi við þýsku
mæðgumar. Þykja þær fremur eins
og systur en mæðgur.
íslendingunum þótti nokkuö súrt í
broti að hvorki Stefán HUmarsson-
né Sverrir Stormsker voru í veisl-
unni. Stefán Uggur í rúminu með
flensu en Stormsker kannaði írsku
krárnar meö Hrafni Gunnlaugssyni.
Er ljóst að íslendingar hafa misst af
athyghnni. AUur gærdagurinn var
frídagur hjá íslendingunum og vora
margir hvíldinni fegnir. Læknir kom
á hóteUð þar sem Stefán og einnig
kynnir keppninnar, Hermann Gunn-
arsson, hafa legið í flensu. Hann
ráðlagði algjöra hvUd og gaf þeim
félögum fúkkalyf. í dag er komið að
alvöranni þar sem farið verður í
gegnum aUa dagskrána.
Þessa viku hafa þátttakendur skipt
dögum á milU sín í æfmgum en í dag
verður farið yfir dagskrána eins og
mUljónir sjónvarpsáhorfenda sjá
hana á morgun. SvoköUuð gener-
alprufa verður síðdegis og munu
þátttakendur þá mæta farðaðir og
klæddir eins og á' lokakvöldinu.
Áhorfendur verða í salnum. í leið-
inni verða símtöl á mUU landa
könnuð. Það er semsagt mikið um
aö vera í dag fyrir keppendur í Euro-
vision.
íslendingamir, sem hér era stadd-
ir, vona að Stefán nái sér af flensunni
fyrir lokakvöldið. Aðrir keppendur
virðast hafa sloppið við flensu nema
Þjóðverjar sem hafa kvartað um
slappleUca. Telja þeir að kuldinn á
nóttunni hafi valdið þeim kvefpest
og hita. Syngjandi mæðgumar virt-
ust þó ekki kenna sér meins í boði
ríkisstj ómarinnar.
Sverrir Stormsker og Stefán Hilmarsson slaka á ásamt tveimur félögum sínum úr sveit Finna í Eurovisionkeppninni.
DV-símamynd ELA
Islendingum veitt platínuplata
aðrir keppendur hafa fengið afhenta
þessa platínuplötu. Sverrir Storm-
sker veitti plöttunni viðtöku en þetta
var í fyrsta skipti í sögu Eurovision
að geislaplata var einnig afhent. Stef-
án gat ekki verið viöstaddur en í
staðinn kom Jón PáU Sigmarsson og
blés upp hitapoka við mikinn fógnuð.
Hins vegar hefðu mátt vera fleiri
blaðamenn og ljósmyndarar til að
fylgjast með þessu afreki sterkasta
manns heims undir laginu Sókrates.
Elín Albertsdóttir, DV, Dublin:
Boðið var tíl sérstakrar íslendinga-
hátíðar í gærkvöldi hér í Dublin.
Hátíðin var haldin í diskóteki og
hófst eftir veislu ríkisstjómarinnar.
Búist var við miklu fjölmenni en
færri komu en menn áttu von á. ís-
lenska dúettinum Beathoven var
veitt platínuplata frá Noregi í tilefni
af því að 150 þúsund eintök af plöt-
unni með Eurovisionlögunum höfðu
verið seld á Noröurlöndum. AUir
Verslunaimannafélag Reykjavíkur:
Á annað þúsund komu á kynningarfundinn
- almenn óánægja hjá folki á fundinum með miðlunaitillögu sáttasemjara
Það gerist ekki oft að á annað
þúsund manns komi á félagsfund
hjá Verslunarmannafélagi Reykja-
víkur, jafnvel þótt kjaramálin séu
til umræðu. Það gerðist þó í gær
þegar miðlunartUlaga ríkissátta-
semjara var kynnt. Fundurinn fór
fram í Súlnasal Hótel Sögu og var
húsið yíirfullt. Það fólk sem DV
ræddi við á fundinum var aUt mjög
óánægt með tiUöguna. Sumir köll-
uöu hana kalda vatnsgusu í andUt-
ið, aðrir hneyksli og nokkrir
sögðust ekki hafa trúað sínum eig-
in augum þegar þeir sáu tUlög-
una.
Svona kynningarfundi er sniðinn
afar þröngur stakkur. Magnús L.
Sveinsson, formaður félagsins,
kynnti tillöguna. Hann mátti engan
dóm á hana leggja, aðeins kynna
hana. Fáir tóku til máls á eftir þar
sem aðeins mátti ræða það sem í
tUlögunni stóð en ekkert fara út
fyrir hana. Þetta er samkvæmt lög-
um um sáttatillögur frá ríkissátta-
semjara.
Þeir úr forystusveit Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, sem DV
ræddi við, sögðust aðeins hafa
heyrt neikvæðan tón í garð þessar-
ar tUlögu. Þeir sögðust engan
verslunarmann hafa hitt sem
mælti henni bót.
Aðspurðir um hveiju þeir vUdu
spá um atkvæðagreiðsluna sögðust
þeir engu þora að spá þar um. Þeir
bentu á þann mikla fjölda félags-
manna Verslunarmannafélagsins
sem ekki hefði tekiö þátt í aUs-
herjaratkvæðagreiðslunni 11. tíl 13.
apríl og spurðu sem svo. Hver er
hugur þess fólks? og Tekur það
þátt í atkvæðagreiðslunni nú?
Það verður svo annað kvöld sem
í ljós kemur hvernig fer, hvort
miðlunartUlagan verður samþykkt
eða feUd.
-S.dór
Viðsemjendur verslunaimanna:
Mótmæla fullyrðingum um að launin lækki
Nokkrir aöilar úr hópi viðsemj
enda verslunarmanna hafa sent frá
sér útreikninga á miðlunartUlögu
ríkissáttaseinjara og fuUyrða að
þær fuUyrðingar talsmanna versl-
unarmanna um að sumir félagar í
verslunarmannafélögunum lækki í
launum, séu rangar.
Þeir benda á að öU laun hækki
strax um í það minnsta 8,75% og
því sé það út í hött að einhver laun
lækki. Þá benda þeir á að yfir-
vinnuálag afgreiðslufólks hækki
sérstaklega um 3,85% og að eftir-
vinna skrifstofufólks falh niður og
öll yfirvinna verði greidd meö
1,0385% álagi.
Þessir aöilar hafa reUcnaö út aö
grundvallarlaun almenns af-
greiöslufólks sem eru nú sam-
• • ":t‘ -~ri--------------—
kvæmt samningum 33.086 krónur á
mánuði, heíðu farið í 36.344 krónur
á mánuði ef samningsdrögin sem
felld voru hefðu verið samþykkt.
Þessi grundvaUarlaun fara sam-
kvæmt miölunartillögunni í 36.500
krónur og með 750 króna lau-
nauppbótinni fari taxtinn í 37.250
krónur og sé þetta 12,6% launa-
hækkun.
Ef tekinn er launataxti af-
greiðslufólks eftir 10 ára starf þá
er hann nú 39.703 krónur, hefði
farið í 43.365 í drögunum sem féUu
en fari samkvæmt miölunartUlög-
unni í 44.300 krónur og með
uppbótinni í 45.050 krónur sem er
13,5% hækkun.
Varöandi skrifstofufólk era byij-
unarlaun í flokki „Skrifstofumaöur
1 nú 33.086 krónur hefði fariö í
36.344 krónur en fari í samkvæmt
miðlunartUlögunni 36.500 krónur
sem sé 10,3% hækkun. Hækkunin
á taxta skrifstofufólks samkvæmt
tiUögunni sé á bUinu 9,1% upp í
12,3%.
-S.dór
LÍUi