Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Side 5
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988.
Fréttir
Anna Margrét Jónsdóttir, fegurðardrottning íslands 1987, er komin til Taiw-
an þar sem hún verður fulltrúi íslands í fegurðarsamkeppninni Miss
Universe. Með henni á myndinni eru keppinautar hennar: ungfrú Lúxem-
borg, Garne Lydie, og ungfrú Svíþjóð, Annika Davidsson.
Anna Margrét í
Miss Universe
krýnir ekki arftaka sinn á Islandi
Fegurðardrottning Islands 1987,
Anna Margrét Jónsdóttir, mun ekki
krýna arftaka sinn sem valinn verð-
ur á Hótel íslandi 23. maí næstkom-
andi. Venja er að fráfarandi
fegurðardrottning krýni arftaka sinn
en Anna Margrét er komin til Taiw-
an til að taka þátt í fegurðarsam-
keppninni Miss Universe. Fer sú
keppni fram sama kvöld og fegurðar-
drottning íslands veröur krýnd.
Magnea Magnúsdóttir, sem hlaut
annað sætið í fegurðarsamkeppni
íslands í fyrra, mun krýna hina nýju
fegurðardrottningu. Auk þess stend-
ur til aö reyna að fá erlenda fegurðar-
drottningu til aö aðstoöa við
krýninguna.
Anna Margrét hélt utan síðastlið-
inn sunnudag og dvelur í borginni
Taipei í Taiwan þar sem keppnin fer
fram í 37. sinn. Stúlkur frá öllum
heimshornum taka þátt í keppninni.
Þetta er í annaö sinn sem Anna
Margrét tekur þátt í alþjóðlegri
keppni sem fulltrúi íslands en flestir
muna þegar hún hreppti þriðja sætið
í Miss World keppninni í Bretlandi.
-JBj
Ráðhúsið:
Byggingarleyfi samþykkt
- graftarieyfi löglegt
Byggingamefnd Reykjavíkur-
borgar samþykkti byggingarleyfi
fyrir ráðhús á fundi sínum í gær.
Byggingarleyfið var samþykkt með
þremur atkvæðum gegn tveimur.
Hilmar Guðlaugsson, formaður
byggingamefndar, sagði í samtah
við DV að einnig hefði veriö sam-
þykkt á fundinum umsögn borgar-
verkfræðings um svokallað
graftarleyfi þar sem litið er svo á
að veiting graftarleyfis sé i sam-
ræmi við byggingarlög. Félags-
málaráðherra, Jóhanna Sigurðar-
dóttir, fór fram á slíka umsögn frá
byggingarnefnd Reykjavíkurborg-
ar og skipulagsStjórn ríkisins eftir
að henni barst kæra frá íbúum við
Tjarnargötu sem töldu veitingu
graftarleyfis ólöglega. Sagði Hilm-
ar aö umsögn byggingarnefndar
væri í svipuöum anda og álit skipu-
lagsstjórnar sem samþykkt var í
fyrradag meö þremur atkvæðum
gegn tveimur.
-JBj
Verslunarmenn:
Atkvæðagreiðsla
um sattatillöguna höfst í morgun
í morgun klukkan níu hófst alls-
herjar atkvæðagreiðsla hjá Verslun-
armannafélagi Reykjavíkur um
miðlunartillögu ríkissáttasemjara og
fer atkvæöagreiðslan fram í Verslun-
arskóla íslands.
í dag verður kjörstaður opinn til
klukkan 19.00 en á morgun laugar-
dag frá klukkan 10.00 til 18.00. Þá á
atkvæðagrðiöslu um tillöguna aö
vera lokið í öllum verslunarmanna-
félögum landsins sem eru nú í
verkfalli. Um leið og kjörstaðir lojca
á morgun hefst talning atkvæða hjá
sáttasemjara.
BHHHH
Bí
■ I
Stii
KYNNINGAR-
• •
KV0LD
UM HELGINA
fyrir þá sem lengi hafa hugsað sér að líta inn og
ekkilátið verða afþví.
99
A La Carte
íí
Úrval ljúffengra sérrétta
Leyfið bragðlaukunum að njóta sín
Aðeins það besta er nógu gott
fyrir gesti okkar
Komdu og njóttu þess besta
sem íslenskt skemmtanalíf
hefur upp á að bjóða
Gudmundur Huukur
Heldur uppi studinu
Pantið borð tímanlega
Brautarholti 20 - símar 29098 og 23335
ALLA
HELGINA
Landsins stærsta urval af bolstruðum húsgögnum:
Hornsófar - sófasett - svefnsófar - hvíldarstólar.
Margir litir - góð húsgögn - gott verð.
-S.dór