Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988.
Viðskipti
Aðatfundur Sláturfélags Suðuriands í gær:
SS tapaði 164 milljonum a
verslunum sínum á 5 árum
- Nýibær varð Jóni H. Bergs
Sláturfélag Suöurlands hefur tap-
að samtals 164 milljónum króna á
verðlagi dagsins í dag á síðustu fimm
árum. Þar af nemur afskrifað fé
vegna Nýjabæjar-ævintýrsins á Sel-
tjarnarnesi um 47 milljónum króna.
Þetta kom fram í ræðu Hjalta Hjalta-
sonar, nýskipaðs ijármálastjóra SS,
á aðalfundi félagsins á Hvolsvelli í
gær. Fundurinn leiddi ennfremur í
ljós, það sem DV hefur sagt frá að
undanförnu, að verslunarrekstur SS
í Nýjabæ var það sem felldi Jón H.
Bergs úr starfi forstjóra.
Beðið var eftir aðalfundi SS á
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverötryggö
Sparisjóðsbækur ób. 19 20 Ib.Ab
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 19 23 Ab.Sb
6 mán. uppsogn 20 25 Ab
12mán. uppsögn 21 28 Ab
18mán. uppsogn 32 Ib
Tókkareiknmgar, alm. 8 12 Sb
Sértékkareikningar 9 23 Ab
Innlan verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsogn 3,5 4 Ab.Ub. Lb.Vb. Bb.Sp
Innlán rneðsérkjörum 19 28 Lb.Sb
Innlángengistryggö
Bandarikjadalir 5.75 7 Vb.Sb
Sterlingspund 7.75 8.25 Ub
Vestur-þýsk mork 2 3 Ab
Danskarkrónur 7.75-9 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverötryggð
Almennir víxlar(forv.) 29,5 32 Sp
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 31 35 Sp
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgenqi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 32,5 36
Utlán verðtryggð
Skuldabréf . 9.5-9.75 Allir nema Ub
Útlántilframleiðslu
Isþkrónur 30.5 34 Bb
SDR 7,75 8.25 Lb.Bb. Sb
Bandarikjadalir 8,75 9.5 Lb.Bb. Sb.Sp
Sterlingspund 11 11.5 Ub.Bb. Sb.Sp
Vestur-þýsk mork 5 5.75 Ub
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5 9
Dráttarvextir 45.6 3.8 á mán.
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. april. 88 35,6
Verðtr. april, 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalaapril 1989stig
Byggingavisitalaapril 348 stig
Byggingavisitalaapril 108.7 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 6% 1. april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR *
Géngi bréfa verðbréfasjóða
Ávoxtunarbréf 1.5063
Einingabréf 1 2.763
Einingabréf 2 1.603
Einingabréf 3 1.765
Fjolþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,767
Lifeyrisbréf 1 389
Markbréf 1,440
Sjóðsbréf 1 1.339
Sjóðsbréf 2 1.221
Tekjubréf 1,367
Rekstrarbréf 1.08364
HLUTABRÉF
Soluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 128 kr.
Eimskip 215 kr.
Flugleiðir 200 kr.
Hampiðjan 144 kr
Iðnaðarbankinn 148 kr
Skagstrendingurhf. 189 kr.
Verslunarbankinn 105 kr.
Útgeröarf. Akure. hf. 174 kr.
Tollvorugeymslan hf. 100kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
Inn birtast i DV á fimmtudögum.
Hvolsvelli í gær með þeirri spennu
sem fylgir því þegar stórfyrirtæki
ganga í gegnum hreinsanir stjórn-
enda, í þessu tilviki Jóns H. Bergs
og Jóhannesar Jónssonar yfirversl-
unarstjóra. Engar deilur komu upp
á fundinum og reyndist hann svo-
nefndur halelújafundur.
' „Mikilvægt er aö Sláturfélag Suð-
urlands fari að græða svo það nái
fyrri íjárhagsstöðu,“ sagði Hjalti
Hjaltason fjármálastjóri á fundinum.
„Fyrirtækiö hefur staðið í miklum
og dýrum íjárfestingum og þess
vegna er það bráðnauðsynlegt aö
dýrt fjármagn sé sett i arðvænlegar
„SS þarf að endurfæöast, rísa úr
öskunni sterkara en nokkru sinni
fyrr. Hið nýja SS á að verða yfir-
burða fyrirtæki, skólabókardæmi
um það hvernig eigi að reka fyrir-
tæki,“ sagði Steinþór Skúlason, hinn
nýi forstjóri Sláturfélags Suður-
lands, á aðalfundinum i gær.
Steinþór lagði gífurlega áherslu á
að SS hefði yfirburði í vörugæðum
og þess vegna ætti fyrirtækið aö
leggja alla áherslu á slátrun og kjöt-
vinnslu. „Við höfum enga yfirburði
í smásölunni. Við töpum á verslunar-
Brotthvarf Jóns H. Bergs, fyrrum
forstjóra SS, frá félaginu bar að sjáif-
sögðu á góma í ræðum manna, bæði
beint og óbeint, á aðalfundi Sláturfé-
lags Suðurlands í húsakynnum
fjátfestingar en ekki þann taprekstur
sem orðið hefur af verslunarrekstri
félagsins.“
Hjalti lagði áherslu á að slátur-
húsin og kjötvinnslan væru upp-
spretta SS. Þar væri félagið í fremstu
röð hérlendis og því ætti aö beina
öllum kröftum að þessum sviöum í
stað verslunarreksturs í Reykjavík,
sem ætti að draga úr og leggja niöur.
„Markmið fyrirtækisins er aö selja
afurðir sunnlenskra bænda eftir
þeim leiðum sem hagkvæmastar eru
hverju sinni," voru lokaorð Hjalta í
skýrslu sinni til fundarins.
-JGH
sviðinu. Hvers vegna eigum við þá
að vera þar?“ spurði hann fundar-
menn.
Steinþór sagði ennfremur að SS-
búðirnar seldu aðeins um 7 prósent
af þeim kjötvörum sem SS fram-
leiddi. „Hvað vilja menn borga mikið
fyrir þessi 7 prósent? Ég segi aðeins
að við erum búnir aö borga of mikið.
Þessari vitleysu verður að linna.“
Og þama átti hinn nýi forstjóri
auðvitaö við tap fyrirtækisins af
verslunarrekstrinum á síðustu
árum. -JGH
félagsins á Hvolsvelli í gær.
Hrafnkell Karlsson, bóndi á Hrauni
í Ölfusi, kom inn á brotthvarfiö með
þessum orðum: „Nú er Maó formað-
ur fallinn." -JGH
Nú er Maó formaður fallinn
Ungur en ákveðinn. Steinþór Skúlason, hinn 29 ára, nýráðni forstjóri SS, á
aðalfundi félagsins í gær. „Þessari vitleysu verður að linna. Hið nýja SS á
að vera yfirburða fyrirtæki. Það á að vera skólabókardæmi um það hvern-
ig reka á fyrirtæki." DV-mynd Brynjar Gauti
Hinn nýi forstjóri Sláturfélagsins:
SS þarf að
endurfæðast
að falli
Hjalti Hjaltason, fjármálastjóri SS. „Mikilvægt að dýrt fjármagn sé sett í
arðvænlegar fjárfestingar en ekki þann taprekstur sem orðið hefur af versl-
unarrekstri félagsins." DV-mynd Brynjar Gauti
Jón Helgason landbúnaðarráðherra var á meðal þeirra fjölmörgu sem
sóttu aðalfund Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli í gær. Fundurinn var
halelújafundur. Ljóst var að bændurnir, eigendur SS, voru búnir að gera
byltinguna áður en til fundarins kom. Hún var gerð á stjórnarfundi i sið-
ustu viku sem lauk á sögulegan hátt fyrir Jón H. Bergs fyrrum forstjóra
fyrirtækisins. DV-mynd Brynjar Gauti
Tap síðasta árs
tæpar 66 milljónir
Tap síðasta árs af Sláturfélagi Suð-
urlands varð tæplega 66 milljónir
króna. Þetta skiptist þannig að tap
af reglulegri starfsemi varð um 19
milljónir en tapað fé í dótturfélagi
SS, Vöruhúsinu við Eiðistorg hf.,
varð um 47 milljónir.
Rekstur Vöruhússins við Eiðistorg
hf. gekk mjög illa á síðasta ári og
varð tapið um 50 milljónir króna.
Staða Vöruhússins er orðin mjög lé-
leg og nema skuldir þess nú mörgum
milljónum umfram eignir. Þess
vegna afskrifar SS nú þetta fyrir-
tæki. Upphæðin, 47 milljónir, er það
sem SS hefur lagt í Eiðistorg."
Fram kom á fundinum í gær að um
mitt síðasta ár bauð Óli Kr. í Olís
hlut sinn í Vöruhúsinu, 40 prósent,
til sölu, ellegar aö hann vildi að öör-
um kosti kaupa hlut SS. Stjómin gaf
stjómarformanninum, Páli Lýðs-
syni, og forstjóranum, Jóni H. Bergs,
vald til ákvarðanatöku.
Þeir keyptu í stað þess að selja Óla
í Olís hlut Sláturfélagsins og losa fé-
lagiö þannig út úr dæminu. Tekin
var ákvörðun um frekari útþenslu á
verslunarsviðinu í stað þess að draga
saman.
Páll Lýðsson, stjórnarformaður SS.
Hann hefur staðið i eldlínunni að
undanförnu. Nú er hann að snúa
fyrirtækinu frá verslunarrekstri í
beint framleiðslu- og kjötvinnslufyr-
irtæki. DV-mynd Brynjar Gauti
Síðan hefur mnnið mikið vatn til
sjávar hjá SS. -JGH