Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Síða 7
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. 7 Fjárfestingar einstaklinga og hins opinbera: Hið opinbera byggir meira Þegar íjárfestingar hins opinbera eru skoöaöar á árunum 1979 til 1988 kemur í ljós að sjá má greinileg merki einstakra ríkisstjóma og efna- hagsaögerða. Fjárfestingin óx hratt frá 1979 allt þar að lítillega dró úr henni 1982. Næsta ár, 1983, var hins vegar stórlega dregið úr henni. Sá samdráttur hélt að mestu áfram þar til að fjárfestingin tók aftur kipp í fyrra. Sú þróun heldur síðan áfram í ár, samkvæmt spám, þrátt fyrir yfirlýstar aðhaldsaðgerðir hins opin- bera. ■ einstaklingar minna Þegar htið er á hvaða framkvæmd- ir hins opinbera fá það fjármagn sem notað er til fjárfestinga kemur í ljós að þáttur rafveitna og hitaveitna hef- ur minnkað frá því sem áður var. Samgöngumannvirki taka nú til sín meira íjármagn en langmesti vöxtur- inn hefur verið í opinberum bygging- um. Það fjármagn sem varið er til þeirra hefur vaxið jafnt og þétt en þó sjaldan meira en á þessu ári. Þegar litið er til íbúðabygginga, fjárfestinga einstakhnga, kemur í ljós að á þessum tíu árum skera þrjú þau síðustu sig úr. Bygging íbúðar- húsa rokkaði nokkuð upp og niður frá 1979 til 1985. Árið 1986 varð hins vegar 15 prósent samdráttur ofan á 18 prósent samdrátt árið á undan. íbúðarbyggingar höfðu þá dregist saman um fjórðung frá 1979. Fjárfest- ing í íbúðabyggingum óx síðan ekki um nema 10 prósent árið 1987. Gert er síðan ráð fyrir að hún vaxi minna í ár eða um 5 prósent. Fjárfesting í íbúðarhúsum verður þá minni en hún var öh árin 1979 til 1985. -gse Fjárfestingar atvinnuveganna: Vaxa úr takti við framleiðsluna í fyrra fjárfesti útgerðin um 160 prósentum meira í skipum og veiða- færum en árið 1985 þegar kvótakerfið tók gUdi. Það virðist því ekki hafa haft áhrif á fjárfestingar greinarinn- ar að mögulegur afli hvers skips varð nær óbreytanlegur. Á sama tíma og mögulegt aflamagn var óbreytt hátt í þrefaldaðist þaö íjármagn sem varið var til breytinga og kaupa á nýjum tækjum til aö veiða fiskinn. í ræðu sinni á aðalfundi Seðla- bankans sagði Jóhannes Nordal, að þessi aukning hlyti að „vekja menn til umhugsunar, þegar fyrir Uggur, að afkastageta fiskiskipaflotans er svo mikil, að verulega þarf að tak- marka nýtingu hans með veiðikvót- um.“ Svipaða sögu er að segja af þróun framleiðslu og fjárfestinga í land- búnaði. Þrátt fyrir að stööugt hafi verið dregið úr framleiðslunni var í fyrra fjárfest um 135 prósent meira en árið 1979. Þar sem fiskeldi er flokkað sem landbúnaður setur það visst strik í reikninginn að þeirri at- vinnugrein var að mestu komið á fót á þessum árum. En því fer fjarri að það skýri alla söguna. Þegar fjárfestingar einstakra at- vinnugreina undanfarin tíu ár eru skoðaðar kemur og í ljós að þrátt fyrir mikla umræðu um mikla fjár- festingu í verslun og gistihúsum hefur hún ekki nema rétt tvöfaldast á þessum árum. Það er aUt að því lítiö þegar litið er til hefðbundinna greina, landbúnaðar og útgerðar. Fiskvinnslan hefur hins vegar fjár- fest nokkuð jafnt og þétt á undan- förnum tíu árum. Nú er ekki varið nema um 10 prósentum meira í fjár- festingar í greininni en 1979. Fjárfesting í iðnaði hefur vaxið jafnt og þétt. Á þessum tíu árum óx hún um ein 76 prósent. Mest aukning hefur orðið í því sem kaUað er í reikningum Þjóöhágsstofnunar „ýmsar vélar og tæki“. Á þessum tíu árum rúmlega fjórfaldaðist fjárfest- ingin þar. Það er hins vegar erfitt aö ætla einni atvinnugrein þennan flokk umfram aðra. -gse Alviðra í Garðabæ: Afhending íbúða dregist í tvö ár Þeir íbúðakaupendur sem festu kaup á íbúðum í byggingu Alviðru í Garðabæ hafa þurft að sætta sig við mikinn drátt á afhendingu íbúðanna. Fyrirtækinu hefur hvergi tekist aö standa við skuldbindingar sínar gagnvart kaupendunum. Eigendaskipti uröu á Alviðru um áramótin er Björgvin Víglundsson verkfræðingur ' keypti meirihluta fyrirtækisins. Hann sagði, í samtali við DV, að verið væri að vinna að samkomulagi við kaupendur um nýj- an afhendingatíma. Til stendur að afhenda íbúðimar seint á þessu ári. Alls veröa um 30 íbúðir í hinni hringlaga byggingu. Þegar hafa 10 íbúðir selst. Þegar ráðist var í bygg- ingu hússins fyrir rúmum tveimur árum ríkti mikil bjartsýni meðal þeirra sem þá stóðu að fyrirtækinu. Loforð fékkst frá bæjarsfjóm Garða- bæjar um lóðir fyrir þijú hús til viðbótar. Alviðra hefur þær lóðir ekki lengur. Þó er ekki útilokað, ef vel tekst til með byggingu hússins, að fyrirtækið fái fleiri lóðir. Einn þeirra sem stóð að stofnun fyrirtækisins segir helstu mistökin, sem gerð vom, hafi verið að fara af stað á þeim tíma sem gert var. Þá hafi fasteignamarkaöurinn verið afar erfiður. Það hafi orðið til þess aö fáar íbúðir seldust og því hafi Bygging Alviðru í Garðabæ. Erfiðlega hefur gengið með byggingu hússins. Eigandaskipti hafa orðið hjá fyrirtækinu. Framkvæmdir eru hafnar á ný og útlit er fyrir að steypuvinnu Ijúki um mitt sumar. DV-mynd BG framkvæmdir gengið hægar en áætl- anir stóðu til. Við það hafi hugsanleg- ir kaupendur oröið kaupunum afhuga. Björgvin Víglundsson hefur stund- að nýbyggingar um nokkum tíma og sagði heimildarmaður DV að hann kæmi með umtalsvert fjármagn með sér 1 Alviðru og þess vegna hefði aldrei verið eins bjart yfir fram- kvæmdum sem nú. Heimildamaður DV segir að ein helsta ástæðan fyrir því hversu illa hafi gengiö meö bygginguna sé lélegt skipulag framkvæmda. Fram aö þeim tíma er Björgvin Víglundsson keypti Alviðru var sú stefna ráðandi að byijað var á öllum íbúðunum aö hluta í stað þess að gera fáar íbúðir fokheldar. Viö það hefðu þær orðið veðhæfar og um leið auðveldara fyr- ir byggjendur að afla fjármagns. Fréttir Fjárfestingar atvinnuveganna Milljónir Fjármunamyndun Á þessu línuriti má sjá þróun fjármunamyndunar i atvinnuvegunum frá 1979-1988 á föstu verðlagi (1980). Tölur fyrir árið 1986 eru til bráðabirgða. Tölur fyrir árin 1987 og 1988 eru byggðar á spám Þjóðhagsstofnunar. Fjárfestingar einstaklinga og hins opinbera Milljónir Fjármunamyndun 30001 Q íbúðir □ hiðopinbera 1980 1982 1984 1986 1988 Á þessu línuriti má sjá þróun fjármunamyndunar hjá hinu opinbera og einstakl- ingum frá 1979-1988 á föstu verölagi (1980). Tölur fyrir árið 1986 eru til bráðabirgða. Tölur fyrir árin 1987 og 1988 eru byggðar á spám Þjóðhagsstofn- unar. ALLSHERJAR- ATKVÆÐ AG REIÐSL A UM MIÐLUNARTILLÖGU RÍKISSÁTTASEMJARA fer fram dagana 29. og 30. apríl nk. Atkvæðagreiðsl- an fer fram í Verzlunarskóla íslands, Ofanleiti 1, jarðhæð. Kjörfundir verða eins og hér greinir: föstudag 29. april 1988 frá kl. 9.00 til 19.00 laugardag 30. apríl 1988 frá kl. 10.00 til kl. 18.00 Kjördeildir verða í stafrófsröð þannig: . Kjördeild 1: Kjördeild II A-G F-K Kjördeild Kjördeild III: IV: L-R S-R og deild sam- vinnu- starfs- manna. Kjörskrá liggurframmi á skrifstofu V.R., Húsi verzlun- arinnar, sími 68 71 00. Kjörstjórn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.