Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988.
11
Utlönd
Republikanar ottast Nunn
sem varaforsetaefhi
Ólafur Amarson, DV, New York:
Það virðist nú ljóst að Michael
Dukakis verður forsetaframbjóð-
andi demókrataflokksins í forseta-
kosriingunum í Bandaríkjunum
sem fara fram í haust. Jesse Jack-
son barðist lengi vel hetjulega en
þurfti að lokum að láta í minni
pokann. Hann hefur nú beðið ósig-
ur fyrir Dukakis þrisvar í röð og
kraftaverk þarf til að Jackson
blandi sér í baráttuna af alvöru úr
þessu. Hann kemur til með að hafa
áhrif en hann verður ekki forseta-
frambjóðandi Demókrataflokksins.
Nunn varaforseti?
Spumingin núna er því sú hver
verður varaforsetaefni Dukakis.
Hjá demókrötum og öðrum kemur
upp eitt nafn aftur og aftur. Þetta
nafn er Sam Nunn.
Sam Nunn er öldungadeildar-
þingmaður frá Georgíuríki. Hann
er formaður vamcumálanefndar
öldungadeildar Bandaríkjaþings.
Hann er helsti sérfræðingur demó-
krata í utanríkis- og vamarmálum.
Hann er einnig virtasti þingmaöur
Bandaríkjanna á þessu sviði.
Michael Dukakis er nú orðinn sem næst öruggur um tilnefningu sem forsetaefni demókrata. Hann er nú að
leita sér að varaforsetaefni.
efninu. Sam Nunn var beðinn um
að vera varaforsetaefni Walters
Mondale fyrir fjómm árum. Hann
sagði hins vegar nei vegna þess að
hann taldi að hann ætti enga hug-
myndafræðilega samleiö með
Mondale.
Sam Nunn hefur sagt að ef hann
eigi að verða varaforsetaefni demó-
krataflokksins nú þá verði það að
vera tryggt að hann hafi einhveiju
alvöruhlutverki að gegna, ekki ein-
ungis því hefðbundna hlutverki
varaforseta aö sækja jarðarfarir
víðs vegar um heim.
I góðri stöðu
Nunn er í góðri stöðu í þinginu.
Hann er bæði virtur og vinsæll og
hann vill ekki verða sams konar
varaforseti og George Bush. Þess
vegna hafa þær raddir vaknað sem
segja að Sam Nunn eigi, auk þess
að gegna embætti varaforseta, að
gegna einu af þremur eftirfarandi
embættum. Utanríkisráðherra,
varnarmálaráðherra eða yfirmað-
ur þjóðaröryggisráðs Bandaríkj-
anna. Það eru fordæmi fyrir því aö
varaforseti Bandaríkjanna gegni
einnig ábyrgðarmiklu embætti í
ríkissfjóminni en það hefur hins
vegar ekki gerst á síðari tímum.
Það er hins vegar ljóst að Sam
Nunn mun ekki taka það að sér að
vera varaforsetaefni demókrata
nema að hann fái einnig alvöru-
hlutverk í ríkisstjórninni.
Réttlætanlegt
Margir demókratar telja hins
vegar að það sé fullkomlega rétt-
lætanlegt að láta Sam Nunn stjórna
utanríkis- eða varnarmálum
Bandaríkjanna til að fá hann í
framboð sem varaforsetaefni. Bæði
er að hann er hæfasti maöurinn til
að gegna þessum embættum og
einnig er það að margir telja að
Michael Dukakis geti ekki borið
sigur af George Bush einn og sér.
Með Nunn í framboði til varafor-
seta geti demókratar hreppt Hvíta
húsið í annað skipti á tuttugu
árum.
Það er kaldhæðnislegt að helsta
andstæðan við Nunn virðist vera
innan demókrataflokksins. Nunn
er íhaldssamur demókrati og hk-
legt er að Jesse Jackson, sem er
mjög vinstri sinnaður og verður
mjög sterkur á flokksþingi demó-
krata í júlí, muni beita sér mjög á
móti Nunn. Það eru hins vegar
margir demókratar sem telja að
jafnfrjálslyndur frambjóðandi og
Dukakis er þurfi íhaldsmann sér
við hhð til að vinna sigur í kosning-
unum í haust.
Repúblikanar óttast að Sam Nunn kunni að gera vonir George Bush
um forsetastólinn að engu.
Demókratar beina nú æ meir sjónum sinum að öldungadeildarþing-
manninum Sam Nunn sem hugsanlegu varaforsetaefni.
Franskbrauð og vínarpylsur
Það er einmitt á utanríkis- og
vamarmálasviði sem Michael
Dukakis er veikastur fyrir. Hann
þykir ákaflega óreyndur á þessum
sviðum og kosningastjóri George
Bush hefur haldið þvi fram að Duk-
akis sé maður sem haldi að erlend-
ur markaður sé staður þar sem
maður getur keypt franskbrauð og
vínarpylsur.
Staðreyndin er sú að repúblikan-
ar vita að þeir geta haft í fullu tré
við Dukakis. Þeir óttast hins vegar
að ef Sam Nunn verður varafor-
setaefni demókrata þá muni hann
geta veitt þeim marga skráveifuna.
Vammlaus sérfræðingur
Það er ekki að ástæðulausu. Sam
Nunn er einn af þeim þingmönnum
semþykja vammlausir og þeir eru
ekki á hverju strái. Repúblikanar
hyggjast leggja áherslu á það hve
Bush hafi mikla reynslu í utanrík-
ismálum, sem hann vissulega
hefur. Sam Nunn er hins vegar of-
jarl Bush á því sviði. Nunn hefur
skapað sér virðingu bæði repúblik-
ana og demókrata fyrir þaö að taka
málefnalega afstöðu til hlutanna.
Hann hefur verið einn helsti
bandamaður Ronalds Reagan á
sviði utanríkis- og varnarmála.
Sam Nunn hefur líka alveg hreina
samvisku. Hann hefur aldrei selt
írönum vopn. George Bush liggur
hins vegar undir grun um að hafa
átt þátt í vopnasölu til írans.
Vill alvöruhlutverk
Sam Nunn er á engan hátt venju-
legur stjómmálamaður. Hann
hleypur ekki eftir bithngum í allar
áttir. Þegar hann var spurður
hvort hann myndi taka að sér að
vera varaforsetaefni Michaels
Dukakis sagði hann að hann þyrfti
fyrst að vera viss um að hann ætti
málefnalega samleið með forseta-
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKIRTEINA RIKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1983- 2. fl. 1984- 3. fl. 01.05.88-01.11.88 12.05.88-12.11.88 kr. 295,59 kr. 282,13
Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteinaríkissjóðsferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, apríl 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS