Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Rítstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 700 kr. Verð í lausasölu virka daga 65 kr. - Helgarblað 80 kr. Kvennalisti og fjórflokkur Velgengni Kvennalistans og hugsanleg þátttaka hans í næstu ríkisstjóm em á margra vömm þessa dagana, þegar hann hefur reynzt fylgisríkasti stjórnmálaílokk- urinn í hverri skoöanakönnuninni á fætur annarri. Spurt er, hvað Kvennalistinn hafi umfram aöra flokka. Þegar gömlu flokkarnir og Borgaraflokkurinn eru bornir saman við Kvennahstann, er ljóst, aö grundvah- arhugsunin er ólík. Alhr flokkar aörir en Kvennalistinn túlka stjórnmál í stórum dráttum á hefðbundinn hátt og saka Kvennahstann um að vera ekki „í póhtík“. í þessum samanburði geta skipt miklu máli lítil at- riði á borð við, að Kvennahstinn neitar að taka þátt í hinni árlegu veizlu alþingismanna og ýmsum öðmm fríðindum, sem hefðbundnir stjórnmálamenn telja sig eiga skhið. Kvennahstinn er ekki herfangsflokkur. Þjóðin hefur á allra síðustu árum verið að átta sig á, að hinir hefðbundnu stjórnmálaflokkar hafa engan áhuga á að framkvæma stefnuyfirlýsingar sínar, en hins vegar gífurlegan áhuga á að taka þátt í að þjónusta hvers konar sérhagsmuni á kostnað almannahagsmuna. Orka gömlu flokkanna og Borgaraflokksins fer í pen- ingavaldastreitu á borð við skipan manna í bankaráð og aðrar skömmtunarstofur fjármagns og fyrirgreiðslu, kvótakerfi í atvinnuvegunum. Hver flokkur hefur sín gæludýr, sem þurfa margvíslegan forgang til að lifa. Gæludýraþjónustan getur farið upp í sex milljarða króna á ári fyrir aðeins einn aðila, svo sem dæmi hins hefðbundna landbúnaðar sýnir. í heild hefur fyrir- greiðslustefnan, sem gömlu flokkarnir og Borgaraflokk- urinn reka, gert okkur að skuldugustu þjóð veraldar. Kvennahstinn hefur sín gæludýr, en þau eru önnur, svo sem mæður, börn, námsmenn og fiskverkunarkon- ur. Ekki er vitað, hvort þessir mjúku hagsmunahópar verði þjóðfélaginu ódýrari eða dýrari en hinir hörðu, sem nú orna sér við elda hinna hefðbundnu flokka. Ekki er heldur vitað, hvort Kvennahstinn mun, þegar á reynir, treysta sér til að taka snuðið af gömlu gæludýr- unum. Til dæmis verður fróðlegt að vita, hvort land- búnaðurinn verður jafnfrekur á fóðrum fjármálaráð- herra Kvennalistans og hann er hjá Alþýðuflokknum. Eina leiðin til að rýma til við jötuna fyrir gæludýr Kvennahstans er að hrekja frá eitthvað af gömlu gælu- dýrunum. Og raunar þarf að reka í burtu fleiri en kalla má til, ef stefna hinnar hagsýnu húsmóður á að endur- speglast í hallalausum rekstri ríkisbús og þjóðarbús. Rangt er að segja Kvennahstann ekki vera „í póh- tík“, þótt hann sé í annarri póhtík en hefðbundnir valdastreitu- og goggunarflokkar stjómmálamanna, sem láta eins og hanar á haug eða apar í dýragarði. Hins vegar má vefengja, að póhtík hans sé raunhæfari. Skoðanakannanir sýna, að sífeht flölgar þeim kjós- endum, sem vantreysta málfundadrengjum sérhags- muna og eru, nokkurn veginn að óséðu, thbúnir að veita Kvennahstanum traust. Það verður svo síðari tíma mál, ef kjósendur telja listann hafa brugðizt sér. Sennilega áttar Kvennahstinn sig á, að höfuðáhuga- mál samstarfsflokka hans í ríkisstjórn mundi verða að sýna kjósendum, að misráðið hafi verið að styðja hst- ann. Þess vegna hljóta kröfur hstans í stjórnarmyndun- arviðræðum að verða afar harðar og harðsóttar. Líklega leiðir gengi Kvennahstans ekki til þátttöku hans í stjóm á næstu árum, heldur til nánara sam- starfs milli hefðbundnu flokkanna, - flórflokksins svonefnda. Jónas Kristjánsson í 'rj rKiiÆ ; ; \ - i m }\ 1 „Forysta atvinnurekenda er stefnuföst," segir í greininni. - Myndin er frá aðalfundi Vinnuveitendasambands- ins á sl. vori. Líknarstörf í stað stéttabaráttu Nýgerðir og yfirstandandi kjara- samningar gefa glögga mynd af ástandinu í íslenskri stéttabaráttu. Annars vegar sjáum við harðnsnú- ið, agað og mjög miðstýrt atvinnu- rekendavald - með fastákveðna stefnu sem fylgt er út í gegn af hörku. Hins vegar er lin og fálm- andi verkalýðsforysta, ýmist með stóryrði eða úrtölur, sem nýtur minna trausts umbjóðenda sinna en nokkru sinni, sbr. viðtökur þær sem samningar hennar fá í félögun- um. Ekki lengur vísitala! Ég sagði að forysta atvinnurek- enda væri stefnufost. Meginatriðin í stefnu hennar eru fólgin í nokkr- um kennisetningum sem hún heldur mjög á loft ásamt ríkisstjór- inni: a) Verkföll eru úrelt. b) Vísitölukerfi er ógurlegur verðbólguvaldur og hættulegt hagkerfmu. c) Kökukenning. Reikna má „eðlilegt" launastig í landinu út frá stöðu atvinnuveganna. Sé farið út yfir það er þanþoli efnahagslífsins ofgert sem veldur verðbólgu. Ríkisvaldið (Þjóðhagsstofnun) ákvarðar stærð launakökunnar og verk- efni kjarasamninga er bara innbyrðis skipting starfsstétt- anna sín á milli. Ekki þarf aö fjölyrða um fjand- skap atvinnurekenda við verkfalls- baráttu. Kennisetning nr. tvö beinist gegn því sem verið hefur eina andsvar verkalýðsins gegn verðbólgu og er því stríðsstefna gegn honum. Það einkennilega í málinu er að verkalýðsforystan hefur á þessum áratug kjaraárása virt báðar þessar kennisetningar í verki. Verkfallsbarátta á vegum ASÍ eða sérsambanda þess virðist tilheyra sögunni - og á vísitölu- kerfi hafa þeir ekki minnst upphátt lengi. Enda hefur kjaraþróunin á þessum tíma verið niður á við eins og tölumar í fyrri grein minni sýndu. Kjaramál í ríkisforsjá Hugum þá að þriðja atriðinu: kökukenningunni. Við hverja samningagerð núorðiö eru kallaðir fram hagfræðingar, einkum frá Þjóöhagsstofnun, og látnir skýra fyrir launafólki hvað séu hóflegar kauphækkanir, hvað séu „verð- bólgusamningar" og mörkin þar á miUi. Þetta kvað vera bara „tækni- legt spursmáT og „faglegir, hlut- KjaUariim Þórarinn Hjartarson stálsmiður lausir aðilar". En þegar „eðlileg" stærð „launakökunnar" er þannig skilgreind af fulltrúum ríkisvalds- ins er um leið sagt að sá hluti heildaríjármagns atvinnulífsins sem rennur til fjármunamyndunar og gróða 1 framleiðslu- og dreifi- kerfi, bankakerfi plús verslun og þjónustu, séu fastar, óumbreytan- legar, „eðlilegar" stærðir. Gróöasókn þessara aðila valdi því ekki veröbólgu heldur aðeins „óhóflegar kauphækkanir“! Þegar reiknaðar eru út „hóflegar kaup- hækkanir" í þjóðfélaginu er hinn blankari hluti útgerðarmanna not- aður sem allsherjar viðmiðun, svo svigrúm til kauphækkana virðist lítið. Líknið hinum lægst launuðu! Hvert hefur andsvar verkalýðs- hreyfingarinnar veriö við þessum málflutningi og viö kjaraskerðing- unum? Jú, svarið hefur yfirleitt verið ein setning: „Það verður að rétta hlut hinna lægst launuðu". Nú er það svo að það launaskrið, sem að nokkru kom í stað vísitölu- bindingar, er hún var afnumin, var mikið hjá sumum hópum og ekkert hjá öðrum. Því var vissulega ástæða til lagfæringar þar á. En í fyrsta lagi var ekki sett afl að baki kröfunni og í raun látið sitja við orðin tóm. Og í öðru lagi er spum- ingin ekki bara um „hina lægst launuðu". Launarýmunin var að vísu mis- mikil eftir starfsstéttum, en vísi- töluránið og það sem því fylgdi kom harkalega niður á ASÍ-fólki í heild og allflestu almennu launafólki í landinu. í því aö gera máhð að spurningu um „hina lægst launuðu" felst við- urkenning á launakökunni sem ríkisvaldið skammtar launafólki og kjaradeilan er þá bara deila milli hópa launafólks innbyrðis. Sam- kvæmt þessari stefnu er raunar engin launabarátta réttmæt, ann- arra en „hinna lægst launuðu". í þeirri einu lilraun, sem gerð var til að hnekkja kjaraárásunum miklu - í BSRB-verkfallinu 1984 - var stuðningur ASÍ minni en enginn, í samningaþófi VMSÍ um daginn hét Guðmundur J. formaður á ríkis- valdið að hindra að launahækkan- irnar „gengju upp launastigann“. Varla finnum við iðnaðarmenn náð fyrir augum hans. Áfram niður á við Karl Marx segði: „Lausn verka- lýðsstéttarinnar verður að vera hennar eigið verk“ - með stéttvísi og mætti samtakanna. íslenskir verkalýðsforingjar líta öðruvísi á málið. í stað þess að styðja við og örva þann samtakamátt sem hinir ýmsu hópar launafólks búa yfir, í stað stéttarstolts og stéttabaráttu, er kominn einhver líknar- og góð- gerðarhugsunarháttur, „hjálpum smælingjunum". Hér má tilfæra orð Ásmundar Stefánssonar: „Ég hef aUtaf haft samúð með þeim sem minna mega sín í þjóöfélaginu og litið svo á aö þeir sem betur standa beri ábyrgð á að bæta stöðu þeirra," (Vikan nóv. 1986). Slík líknarhugsun er borgaraleg hugsun, hugsun þeirra sem sætta sig við óbreytta þjóð- félagsstöðu verkalýðsstéttarinnar. Sú hugsun fer bara fram á að mild- uð sé sárasta fátæktin sem stingur svo í augun. Undir slíkri foystu hlýtur leið íslenskra launamanna að liggja áfram niður á við. Þórarinn Hjartarsson „Verkfallsbarátta á vegum ASÍ eöa sér- sambanda þess virðist tilheyra sögunni - og á vísitölukerfi hafa þeir ekki minnst upphátt lengi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.