Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Side 17
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. 33 DV íþróttir á næsta letktímabili. Spilar Bjöm Jónsson í V-Þýskalandi næsta vetur? Habenhausen vill fá Bjöm Jónsson - Bjöm ætlar út til viðræðna og til að líta á aðstæður Forráðamenn v-þýska hand- knattleiksfélagsins Habenhausen hafa mikinn hug á aö fá Bjöm Jóns- son úr Breiðabliki til liðsins. Habenhausen leikur i þriðju deild- inni - hafnaöi í 5. sæti í Þýskalands- mótinu nú en stefnan er að koma félaginu upp um deild á næstu tveimur árum. Á Bjöm Jónsson einmitt að verða einn burðarása í fraintiðarliðinu. „Ég vona svo sannarlega að Björn Jónsson sþili með félaginu á najsta keppnistímabih. Við bíöum spennt- ir eftir aö fá hann hingað til viðræðna. Þá munum við fá tæki- færi til að kynnast honum og hann okkur. Þaö er stefna Habenhausen að vinna sæti í 2. deild á næstu tveimur árum og einn liður í því verkefni er aö fá Björn til félags- ins. Ég þekki íslenskan handbolta mjög vel en hann er í háum gæða- flokki. Þeir íslendingar sem hér hafa spiiað hafa sýnt það og sannað í gegnum tíðina," sagði Reiner Witte, þjálfari Habenhausen, í sam- tali viö DV í gærkvöldi. Witte þessi lék lengi við hlið Björgvins Björg- vinssonar hjá Bremen-liöinu í v-þýsku úrvalsdeildinni. „Ég neita þvi ekki að ég er tals- vert spenntur fyrir þessu og v- þýska iiðiö hentar mér einstaklega vel. Ég get neMlega stundað nám samhliða handknattleiknura þarna úti og það er einmitt aö slíku sem ég stefni fyrst og fremst,“ sagði Björa Jónsson í spjalli við DV í gærkvöldL Bjöm mun halda utan einhvem næstu daga til viðræðna við forkólfa félagsins en verkfali verslunarmanna hélt aftur af hon- um í gær. Ef af samkomulagi veröur milli Björns og Haben- hausen munu þeir bræður, Björn og Aðaisteinn Jónssynir, báðir spila í V-Þýskalandi á næsta leik- tímabili. Eins og fram hefúr komið í fjölmiölum ákvað Aðalsteinn að ganga til hðs við annarrar deildar liðið Shútterwald nú ný’veriö. Það þarf ekki aö fara mörgura orðum um hvílíkt áfall það yrði Blikum aö raissa bræðuma sam- tímis. Þeir Aðalsteinn og Bjöm hafa verið kjölfestan í liöi UBK síð- ustu misserin og því átt einn stærstan þátt í vexti félagsins á þeim tíma. -JOG/JKS Ólympíustúfar frá Hollandi Víðir Siguröason. DV, HoUandi: Leikmenn ólympíulandshðsins beygja sig undir strangan aga hjá Sigfried Held. Háttatimi í ferðinni er klukkan 11 á kvöld- in, og sú tímasetning er nákvæm. Það sást vel eitt kvöldið þegar þeir Guðmundur Torfason og Guðmundur Steinsson sátu frammi í setustofu og hoifðu á sjónvarpið. Þar var verið að sýna æsispennandi leik úr hollensku bikarkeppninni, sem leikinn hafði verið fyrr um kvöldið og enginn vissi hvemig haföi endaö. Þegar klukkan sló 11 var æsingurinn í leiknum í hámarki - en þá stóöu Guðmundarnir upp sem einn maður og löbbuðu til herbergja sinna. Höföu þeir þó verið manna æstastir í að fylgjast með gangi mála. Jong Oranje var lengi vel talinn eitt helsta leynivopn Hohendinga í leiknum viö ísland. Mönnum hér gekk misvel aö stauta sig tram úr hollensku blöðunum og þar var alltaf veriö að tala um Jong Oranje í sömu andrá og landsliðið hollenska. Menn furð- uðu sig síðan á því aö hann væri ekki valinn í óiympíuhðið. Þá kom á daginn aö Jong Oranje er nafn það sem Hollendingar nota yfir yngri landslið sín, merkingin er „hinir ungu og appelsínugulu“, og er aöal- lega notuð um 21-árs landsliðið... Hollendingar hafa lítið hampað úrslitun- um í fyrri leiknum við ísland. í leikskránni í fyrrakvöld var lítiö á hann minnst, aðeins meö fáum setningum. Þar var sagt að mannekla hefði háð Hollendingum og að- eins 14 hefðu komist raeð í ferðina. Bjan- sýnin hefði þó verið raikil en úrslitin, 2-2, ollu vonbrigöum. Sigfried Held rölti rólegur um á meðan leikmenn íslands hituöu upp fyrir leikinn. ,JHér er allt i besta lagi,“ sagöi hann viö DV. „Gott veður, fínn völlur og allir heilir. En hvar eru áhorfendumir?!" Von aö hann spyrði, þvi enginn var mættur hálftíma fyrir leikinn og þeir fáu sem komu gátu hreiðrað um sig að vild, vom um eitt þús- und á velli sem rúmar 15 þúsund. „Ef þetta var ekki víti, þá er Óli ekki í Kögglaklúbbnum! ‘1 sagöi Guömundur Steinsson fyrirhöi, þegar hann rölti út úr búningsklefanum á Vjjverberg í gær- kvöldi. Kögglaklúbburinn telur þrjá meðlimi, Guðmund, Ólaf og Pétur Amþórs- son, og inngönguskilyrði er ákveðið vaxtarlag. Þegar Guðmundur var inntur eftir því hvers vegna Heimir Guðmundsson væri ekki gjaldgengur, svaraði hann að bragöi: „Hann er of lítill.U í Víking Handknattleikur: Heimir yfir Heimir Karlsson, sem þjálfaði handknattleikslið Njarðvíkinga í annarri deildinni í vetur, hefur ákveðið að skipta yfir í sitt gamla félag, Víking. Stefnir Heimir á að æfa með liðinu á næsta leikári, þá undir stjórn Bogd- an Kowalczyk, en eins og fram kom í DV fyrir skemmstu mun sá síðar- taldi taka við Víkingum í haust. í spjalli við DV í gær sagðist Heim- ir ætla að æfa meö Víkingum til að halda sér í formi yfir vetrarmánuð- ina en ekki stefna aö því að leika með liðinu í fyrstu deildinni. Þess má geta að Heimir er nú leik- maður og þjálfari Viðis, knatt- spymuliðs Garðsmanna. Það félag féh úr fyrstu deildinni síðastliðið haust. JÖG Suðurnesjamaðurinn Einar Ásbjörn Olason hefur ákveðíð að hætta í Fram. Orðið talsvert þreytandi að aka srfellt milli staða: Einar Ásbjörn er hættur í Fram „Sterkar líkur á að ég fari aftur í Keflavíkurtiðið" Ægir Már Kárason, DV, Suðtimesjum: Suðurnesjamaðurinn Einar Ás- bjöm Ólason hefur ákveðið að hætta með bikarmeisturum Fram eftir eitt leikár með félaginu. „Ég var alls ekki óánægður hjá Fram en það var hins vegar orðið talsvert þreytandi að aka sífellt á mihi staða, Keflavíkur og Reykjavík- ur. Ég hef enn ekki ákveðið í hvaða félag ég fer en það eru sterkar líkur á að ég gangi aftur yfir í Keflavíkur- liðið,“ sagði Einar Ásbjörn í samtali við DV í gærkvöldi. „Ég get ekki neitað því að ég horfi með vissum söknuði til Fram. Þar fann ég einstaklega góðan félagsskap og sjálfur reksturinn á félaginu er lýsandi dæmi um hvernig haga á málum hjá íslensku knattspyrnufé- lagi,“ sagði Einar Ásbjörn ennfrem- ur í samtali við blaðið. • Breski knattspyrnumaður- inn ,Peter Frain, sem hefur gengið til liðs við 2. deildar hð Þróttar, varð löglegur með hði sínu á dögunum og lék sinn fyrsta leik með Þrótti gegn Ár- manni í fyrrak völd en liðin léku þar um 6, sætið í Reykjavíkur- mótinu í knattspymu. Þróttai'- ar sigruðu og skoraði Peter Frain fyrra mai-k Þróttar eftir aðeins 3 mínútur. Hitt markið skoraði Ásmundur Helgason. • Nokkur liðsstyrkur hefur Þrótturum borist í knattspym- unni á undanfömum dögum. Bretinn Darren Giles hefur skipt yfir í Þrótt en samkvæmt upplýsingum frá Þrótti hefur hann meðal annars leikiö með Aston Villa. Þá hefur Hermann Arason gengiö í Þrótt en hann var á síðasta keppnistímabih fyrirhöi Hvatar frá Blönduósi sem vann, sem kunnugt er, 4. deildina á síðasta ári. Þá hefur Ottó Hreinsson hætt við að leika með Gróttu og mun leika meö Þrótti í sumar. • Á sunnudag hefst golfver- tíðin hjá Golfklúbbi Reykjavík- ur með einnar kylfu keppni aö Korpúlfsstöðum. Iæikið verður með fullri forgjöf og verður ræst út frá klukkan 13.00. Völlurinn í Grafarholti viröist koma vel undan vetri og ráð- gert er að halda fyrsta mótiö þar laugardaginn 7. mai, jafn- framt því sem haldinn verður vorfagnaður um kvöldið i golf- skálanum, en umfangsmiklar breytingar hafa verið gerðar á honum að undanfórnu. • Talandi um golf má geta þess að fyrirhuguðu opnu golf- móti hjá Golfklúbbnum Keih, sem fai-a átti fram um næstu helgi, hefur verið frestað vegna þess að völlurinn á Hvaleyri er ekki í leikhæfú ástandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.