Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Page 25
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. 41 Fólk í fréttum Ragnheiður Erla Bjamadóttir Ragnheiður Erla Bjarnadóttir guðfræðingur hefur verið í fhéttum DV vegna sigurs Reykjavíkur í spumingakeppni sjónvarpsins. Ragnheiður Erla er fædd 7. júní 1953 í Rvík og varð stúdent frá MR 1973. Hún var í söngnámi hjá Nönnu Egilsdóttur Bjömsson í Söngskólanum í Rvík 1973-1979 og tók áttunda stig í söng 1978. Ragn- heiður söng í Háskólakórnum 1973- 1978, kór Söngskólans 1974- 1979 og í söngsveitinni Fíl- harmóniu 1975-1977. Hún lauk BSc prófi í líffræði frá HÍ 1976, var í söngnámi hjá Svanhvíti Egilsdótt- ur< í Vínarborg 1979-1981 og hefur" verið í söngnámi í Vínarborg jafn- hliöa öðm námi 1981-1986. Ragn- heiöur sigraði í spurningakeppn- inni Meistarinn á Stöð tvö 1987 og lauk guðfræðiprófi frá HÍ 1987. Systkini Ragnheiðar em Helga Hrefna, f. 14. janúar 1955, hjúk- mnarfræðingur í Rvík, gift Tryggva Baldurssyni flugmanni, og Stefán Örn, f. 23. maí 1957, rekstrahagfræðingur hjá Tóró hf. Foreldrar Ragnheiðar era Bjami Bjarnason viðskiptafræðingur, endurskoðandi og framkvæmda- stgóri Stefáns Thorarensens hf. í Rvík, og kona hans, Alma Thorar- ensen. Föðurbróðir Ragnheiðar er Jónas, læknir í Rvík. Bjami er son- ur Bjarna, læknis og alþingis- manns í Hafnarfirði, Snæhjöms- sonar, múrara í Rvík, bróður Guðrúnar, ömmu Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur, fyrrv. alþingis- manns. Snæbjörn var sonur Jakobs, útvegsbónda í Litla-Seli í Rvík, Steingrímssonar. Móðir Jak- obs var Anna Jakobsdóttir, systir Ingibjargar, langömmu Haralds Böðvarssonar útgerðarmanns. Móðir Bjama var Málfríður, systir Guðrúnar, ömmu Þorsteins Gísla- sonar, forstjóra Coldwater, og langamma Ásgeirs Hannesar Ei- ríkssonar varaþingmanns. Mál- fríður var dóttir Bjama, útvegs- bónda í Bakkakoti á Seltjamamesi, Kolbeinssonar og konu hans, Margrétar Illugadóttur. Móðir Bjarna Bjamasonar er Helga, systir Guðnýar, móður Jón- asar prófessors, Halldórs prófess- ors, Þorvarðar, skólastjóra Verslunarskólans, og Elisar verk- fræðings Elíassona. Helga er dóttir Jónasar, b. á Bakka í Hnífsdal, bróður Valdimars, föður Valdim- ars, höfundar Amardalsættarinn- ar. Jónas var sonur Þorvarðar, b. í Hrauni, Sigurðssonar, b. í Eyrard- al, Þorvarðssonar, ættfoður Eyrar- dalsættarinnar. Móðir Jónasar var Elísabet Kjartansdóttir, b. í Hrauni, Jónssonar og konu hans, Margrét- ar Pálsdóttur. Móðir Margrétar var Margrét Guðmundsdóttir, b. í Am- ardal, Bárðarsonar, b. í Amardal,' Illugasonar, ættfóöur Arnardals- ættarinnar. Móðir Helgu var Guðný Jóns- dóttir, b. á Læk í Dýrafirði, Bjarna- sonar, b. á Rana, Sigmundssonar, bróður Sveins, langafa Jensínu, móður Gunnars Ásgeirssonar stór- kaupmanns. Móðurbróðir Ragnheiðar er Odd- ur Thorarensen lyfsah. Alma er dóttir Stefáns Thorarensen, lyfsala í Rvík, bróður Odds, lyfsala á Akur- eýri, fóður Odds lyfsala þar. Stefán var sonur Odds Thorarensen, lyf- sala á Akureyri, Stefánssonar Thorarensen, sýslumanns á Akur- eyri, Oddssonar Thorarensens, lyfsala á Akureyri, Stefánssonar, amtmanns á Möðruvöllum, Þórar- inssonar, sýslumanns á Gmnd, Jónssonar, ættfóður Thorarens- ensættarinnar. Móöir Stefáns sýslumanns var Sólveig Bogadótt- ir, fræðimanns á Staöarfelli, Benediktssonar, langafa Áslaugar, móður Geirs Hallgrímssonar. Bogi var einnig langafi Hlífar, ömmu Vals Arnþórssonar. Móðir Ölmu var Ragnheiður, dóttir Hannesar Hafstein, ráðherra og skálds, Péturssonar Havsteen, amtmanns á Möðmvöllum. Móðir Hannesar var Kristjana Gunnars- dóttir, prests í Laufási, Gunnars- sonar og konu hans, Jóhönnu Gunnlaugsdóttur Briem, sýslu- manns á Grund í Eyjafirði, ætt- fóður Briemsættarinnar. Móðir Ragnheiðar var Ragnheið- ur Stefánsdóttir Thordersens, prests á Ofanleiti, Helgasonar, biskups Thordersens. Móöir Ragn- heiðar Stefánsdóttur var Sigríöur Ólafsdóttir Stephensen, dómsmála- ritara í Viöey, Magnússonar Stephensens, dómstjóra í Viðey, ÓMssonar, stiftamtmanns í Viðey, Stefánssonar, ættfóður Stephens- ensættarinnar. Móðir Ólafs dómsmálaritara var Guðrún, systir Ragnheiöar, móður Odds Thorar- Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. ensen eldra. Guðrún var dóttir Vigfúsar Scheving, sýslumanns á Víðivöllum, og konu hans, Önnu Stefánsdóttur, systur Ólafs stift- amtmanns og Sigríðar, móður Stefáns Þórarinssonar, amtmanns. Móðir Sigríöar var Sigríður, syst- ir Ragnheiðar, móður Stefáns Thordersens, en þær vora dætur Stefáns Stephensen, amtmanns á Hvítárvöllum, bróöur Magnúsar dómstjóra. Afmæli Jón Ólafsson Jón Ólafsson, kennari og arki- tekt, Börmum, Reykhólahreppi, Austur-Barðastrandarsýslu, er fimmtugur í dag. Jón fæddist í Reykjavík. Hann lauk gagnfræðaprófi 1954, sveins- prófi í húsgagnasmíði í Reykjavík 1958 og síöan meistaraprófi, prófi frá Kunsthándværkerskolen í Kaupmannahöfn 1964 og kennara- prófi frá Kennaraháskóla íslands 1986. Jón vann viö húsgagnasmíði í Reykjavík 1954-60. Hann starfaði á ýmsum teiknistofum í Kaup- mannahöfn 1962-64, en hóf sjáif- stæðan teiknistofurekstur í Reykjavík 1966. Jón var annar stofnenda teiknistofunnar Ark- hönn sf. 1972 og vann að ýmsum hönnunarverkefnum, m.a. sumar- húsabyggð við Svignaskarð í Borgarfirði, sjúkrahúsi og ráðhúsi í Vestmannaeyjum og Fjölbrauta- skólanum og Seljaskóla í Breið- holti. Jón hefur einkum unnið að hönnun húsgagna og lampa, en hann hefur hlotið viðurkenningar á þessu sviöi, bæöi hér á landi og erlendis. Áriö 1975 gekkst Jón fyrir stofn- un fyrirtækisins Verkpallar hf„ sem var fyrsta fyrirtækiö hér á landi sem leigði út vinnupalla. Jón hefur unnið að félagsmálum Félags húsgagna- og innanhúss- arkitekta frá 1966, en hann hefur m.a. verið formaður þess félags um margra ára skeið. Þá hefur hann unnið að félagsmálum tengdum iðnaði og hönnun, bæði á vegum hins opinbera og einkaaðila. Á árunum 1971-74 stóð Jón fyrir uppbyggingu í Reykhólasveit ásamt konu sinni. Jón annaðist stundakennslu við Iðnskólann í Reykjavík og Myndlista- og hand- íðaskóla íslands, en hann hefur sl. tvö ár starfað við kennslu- og hönn- unarstörf á Reykhólum. Asa Bjömsdóttir Asa Björnsdóttir húsmóðir, Hólmgarði 56, Reykjavík, er sjötiu og fimm ára í dag. Ása fæddist á Þorbergsstöðum í Laxárdal í Dalasýslu. Eiginmaður Ásu var Páll H. Rögnvaldsson, en hann lést fyrir tólf árum. Þau bjuggu á Þorbergs- stöðum í fimmtán ár en fluttu til Reykjavíkur 1950. Asa og Páll eignuðust fimm börn sem öll eru uppkomin og gift. Þau eru: Guðrún, Björn, Stella, Alda og Hólmar. Barnabörn Ásu eru nú sextán en langömmubörnin em níu talsins. Foreldrar Ásu: Björn Magnús- son, b. að Þorbergsstöðum, f. 18.12. 1884, og kona hans, Hólmfríður Benediktsdóttir, f. 3.8. 1891. Björn var sonur Magnúsar Jóhannesson- ar á Sveinsstöðum á Snæfellsnesi og Elínborgar Guðmundsdóttur á sama stað. Foreldrar Hólmfríðar voru Benedikt Kristjánsson, b. á Þorbergsstöðum, og kona hans, Margrét Steinunn Guðmundsdóttir frá Snóksdal, Guðmundssonar. Foreldrar Benedikts voru Kristján Tómasson á Þorbergsstöðum og fyrri kona hans, Ása Egilsdóttir. Asa var dóttir Egils frá Hornstöð- um, Jónssonar, en Kristján var sonur Tómasar Eiríkssonar á Ket- ilsstöðum í Hörðudal og vinnukonu hans, Hólmfríðar Hallgrímsdóttur Aðalheiður ÓiafsdótHr Jón Ólafsson. Kona Jóns: Ingibjörg hjúkrunar- fræðingur, f. 26,9.1935, dóttir Árna húsasmiðs í Kópavogi, Hanssonar og konu hans, Helgu Tómasdóttur. Böm: Guðný Sif tækniteiknari; Tómas Árni rafmagnsverkfræð- ingur; og Helga Aðalheiður menntaskólanemi. Foreldrar Jóns: Ólafur Daðason, húsgagnabólstrari í Reykjavík, og kona hans, Guðný V. Guðjónsdótt- ir. Ása Björnsdóttir. frá Álfatrööum, Magnússonar. Ása verður að heiman á afmælis- daginn. Aðalheiður Ólafsdóttir, sem nú dvelur á elliheimilinu Sólvangi í_ Hafnarfirði, er áttatíu og fimm ára í dag. Aöalheiöur fæddist að Björgum i Nesjum í Vindhælishreppi hinum forna í Austur-Húnavatnssýslu. Hún ólst upp á Björgum hjá afa sínum og ömmu til sex ára ald- urs, en fór þá að Eyjarkoti til Sigríðar Gísladóttur og Páls hónada þar Finnssonar. Aðalheiður var í Ey- jarkoti þar til hún varð sextán ára en þá fór hún í vfnnumennsku og var á ýmsum bæjum næstu árin. Aðalheiður stofnaði sitt eigið heimili 1923, bjó fyrst í Keflavík og síðar í Kálfshamarsvík. Fyrri mað- ur hennar var Sumarliði Helgi, f. að Fornubúð á Folafæti í Hestfirði við ísafjarðardjúp 19.10.1896, sonur Sigurðar Stefánssonar frá Hvíta- nesi í Ögursveit og konu hans, Ólafar Oddsdóttur frá Laugabóli í Ögursveit. Aðalheiður og Sumarliði fluttu frá Kálfshamarsvík og vestur í Breiðafjarðareyjar 1933 en síðar til Stykkishólms þar sem leiöir þeirra skildu. Aðalheiður flutti til Hafnar- fjarðar 1950 og hefur búið þar síðan. Aðalheiður hefur búið með síöari manni sínum frá 1952 en hann er Sæmundur Gíslason, f. að Ölfus- vatni í Grafningi 28.3. 1891, sonur Guðlaugar Þorsteinsdóttur og Gísla Þórðarsonar. Sæmundur er bróðir Guðmundar Gíslasonar, skólastjóra Reykjaskóla í Hrúta- firði, tengdafoður Steingríms Hermannssonar utanríkisráð- herra. Aðalheiður átti engin alsystkini en átta hálfsystkini, þar af tvö sam- feðra sem bæði em látin. Þau voru Björg, húsmóðir á Arbakka, en hennar maður, sem einnig er lát- inn, var Guðmundur Guðlaugsson frá Vakurstööum í Hallárdal og eignuðust þau tvo syni, dó annar í frumbernsku en hinn heitir Björn og er giftur og búsettur í Reykja- vík; Björn, bróðir Aðalheiðar, bjó einnig að Árbakka en hann er löngu látinn og átti ekki afkomend- ur. Hálfsystkini Aðalheiðar, sam- mæðra, eru: Aðalsteinn Hansson, giftur og búsettur í Reykjavík; Jó- sefina Guðmundsdóttir, sem nú er ekkja á Hrafnistu í Hafnarfirði; Hildur Pálsdóttir, sem er látin, en hennar maður var Valdimar Thor- arensen, bjuggu þau á Gjögri á Ströndum og eignuðust tvö börn, Jóhönnu Sigrúnu og Adólf, en áður átti Hildur tvo syni, Pál og Daníel; Stefán Ragnar Pálsson, skipstjóri í Keflavík, er látinn, en hann var kvæntur Sigurborgu Valdimars- dóttur og áttu þau þrjár dætur og einn son, sem er Páll skipstjóri, kvæntur og búsettur í Ólafsvík; Margrét Pálsdóttir er látin, en hún átti tvær dætur, Sigurlaugu Frið- geirsdóttur sem býr að Lauga- bakka í Miðfirði og er ekkja eftir Sigvalda Jónsson en þau eignuðust tvær dætur, og Guðrúnu Kristins- dóttur sem býr í Mosfellsbæ, gift Óskari Ágústssyni frá Svalbarði á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu og eiga þau níu böm; Guðmann Pálsson býr í Reykjavík. Foreldrar Aðalheiðar voru Krist- ín Bjarnadóttir og Ólafur Björns- son, b. og oddviti á Árbakka á Skagaströnd. Kristín var dóttir Bjarna, b. að Björgum, Guðlaugs- sonar, b. á Tjörn í Nesjum, Guð- laugssonar, b. í Króki. líl hamingju með daginn 75 ára Sigurður Helgason, Langárfossi, Álftaneshreppi, er sjötíu og fimm ára í dag. Hann verður að heiman á afmælisdaginn. Sveinbjörn Kristjánsson, Blesugróf C5, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára Sigrún Gísladóttir, Víðilundi 8D, Akureyri, er sjötug í dag. Guðmundur Tryggvason, Sölva- tungu, Bólstaðarhlíöarhreppi, er sjötugur í dag. Sigrún Dagbjartsdóttir, Miðstræti 24, Neskaupstað, er sjötug í dag. 60 ára___________________ Ólafur Guðmundsson, Garðavegi 16, Hvammstanga, er sextugur í dag. Haraldur Sigfússon, Barðaströnd 33, Seltjarnarnesi, er sextugur í dag. 50 ára Hólmfriður H. Maríasdóttir, Tóm- asarhaga 9, Reykjavík, er fimmtug í dag. Sigurður Kristjánsson, Hrannar- byggð 19, Ólafsfirði, er fimmtugur í dag. 40 ára_______________________ Rannveig Salóme Ólafsdóttir, Ark- arholti 11, Mosfellsbæ, er fertug í dag. Kristinn Sigurðsson, Krummahól- um 8, Reykjavík, er fertugur í dag. Guðríður Gísladóttir, Bakkaseli 6, Reykjavik, er fertug í dag. Guðlaugur Jóhannsson, Hrauntúni 69, Vestmannaeyjum, er fertugur í dag. Borgþór Guðjónsson, Hæðargerði 4, Reyðarfirði, er fertugur í dag. iSverrir Hauksson, Bankastræti 3, Keykjavík, er fertugur í dag. !Ómar Þór Jóhannesson, Skaga- jbraut 42, Akranesi, er fertugur í 'dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.