Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Side 32
t
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotiö (hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstiórn - Augfýsingar - Áskrift - Oreifing: Símí 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988.
Sigrún í for-
setaframboð?
Flokkurmannsinsstendurnúfyrir
söfnun meömælenda meö framboði
Sigrúnar Þorsteinsdóttur, 46 ára
húsmóður úr Vestmannaeyjum.
Sigrún var efst á lista tlokksins í
Suðurlandskjördæmi í síðustu kosn-
ingum.
„Við ætluðum ekki að gefa út yfir-
lýsingu strax,“ sagði Sigrún þegar
DV bar þetta undir hana. „Við eigum
eftir að sjá aðeins til áður en það
verður endanlega ákveðið hvort ég
fer fram.“
Ef tilskilinn fjöldi meðmælenda,
1.500 manns, safnast til stuðnings
Sigrúnu og flokkurinn ákveður
framboð má því búast við forseta-
kosningum í sumar.
_ -gse
Lík skosks sjó-
manns fannst í
Vestmannaeyjum
Skoskur sjómaður fannst látinn í
hraunkambi ofan við Vestmanna-
braut í Vestmanrtaeyjum í fyrra-
kvöld. Kona, sem var á göngu, fann
s*. líkið. Talið er að hinn látni hafi verið
nýlátinn er hann fannst.
Skotinn var á færeysku fiskiskipi.
Rannsókn fer fram í Vestmannaeyj-
um. Margir hafa verið yfirheyrðir.
Ekkert hefur komið fram sem bendir
til þess að manninum hafi verið ráð-
inn bani.
Líkið var flutt til Reykjavíkur í gær
þar sem það verður krufið. Færeyska
skipið er enn í Vestmannaeyjum.
Rannsókn verður framhaldið í dag.
-sme
Mikill hraði
Alls voru saulján ökumenn kærðir
vegna hraðaksturs í Reykjavík á síð-
asta sólarhring. Einn ökumaður var
sviptur ökuleyfi fyrir aö aka á Elliða-
vogi á 133 kílómetra hraða. Tveir
ökumenn voru teknir fyrir aö aka
Laugaveg, vestan Snorrabrautar, á
89 og 93 kílómetra hraða.
í nótt var ekið á gangandi vegfar-
anda á mótum Klapparstígs og
Laugavegar. Vegfarandinn var flutt-
ur á slysadeild. Ökumaðurinn flúði
af slysstað en náðist sex mínútum
síðar. -sme
Bílstjórarnir
aðstoða
ÉBQ&Ú
senDiBíLnsTöDin
LOKI
Fá Bessastaðir þá ekki
flokkslitinn, appelsínugulan?!
„Ég vil taka það fram að það var
aldrei ætlun okkar að skrifa undir
samning eins og þennan enda teij-
um við hann tímaskekkju. Við
semjum beint við hvem og einn
okkar starfsmann. Þess vegna'ber
að líta á undirskrift þessa samnings
sem mjög skýr skilaboð tii stjórn-
valda um að taka vinnulöggjöfina
til endurskoðunar því að hún er
úrelt og ekki á næstunni heidur nú
þegar. Ef verkfall eins og það sem
nú stendur endurtekur sig gagn-
vart feröamannaiðnaðinum er það
gífurlega alvarlegt mál,“ sagði
Kristinn Sigtryggsson, forstjóri
Amarflugs hf„ í samtali við DV í
morgun um undirritun nýs kjara-
samnings sem flugfélagið og versl-
unarmannafélögin gerðu með sér í
nótt.
y
Kristinn sagði að vegna þess hve
stöif hjá Amarflugi hf. era sérhæfð
væru allir starfsmenn þess með
hærri laun en þau 42 þúsund króna
lágmarkslaun sem nú er farið fram
á. Hann sagði að í samningnum,
sem undirritaöur var í nótt, hefði
verið urn 5,1% launahækkun að
ræða eða sömu prósentu og var í
samningsdrögunum sem felld voru
11. til 13. apríl síðastliöinn.
„Það er eflaust rétt að þetta séu
5,1% hækkun fyrir Afnarflug hf.
vegna þess að þeir hafa greitt það
há laun. Aðalatriðiö er aö í samn-
ingnum er gert ráð íýrir hærri
lágmarkslaunum en við fórum
fram á. Launaflokkar í samningn-
um ffá í nótt eru þrír. í l. flokki
veröa lægstu laun 42.750 krónur á
mánuði og upp í 51.300 krónur eftir
10 ár. 12. fiokki eru launin ff á 48.100
krónum og upp í 55.048 krónur eft-
ir 10 ár og í 3. flokki eru þau 53.924
krónur og upp í 65.234 krónur á
mánuði eftir 10 ára starf,“ sagði
Hólmffíður Ólafsdóttir, fram-
kvæmdasfjóri Verslunarmannafé-
lags Suðurnesja, í viðtali við DV í,
morgun.
Arnarflug ltf. tnun því hefia
regiulegt áætlunarflug strax í dag
og fer vél frá þeim til Amsterdam
klukkan 13.00. I morgun var allt
rólegt í flugstöðinni á Keflavíkur-
flugvelli. Flugvél frá Flugleiðum
hf. fór með diplómata og 6 farþega
sem sluppu í gegn til Lúxemborg í
morgun. Önnur fór til Kaup-
mannahafnar og fengu hjón og
hjartasjúklingur aö fara með þeirri
vél. -S.dór
Arnarflug hefur samið við verslunarmenn á Suðurnesjum og getur því flogið óáreitt. Flugleiðir
sendu vélar sínar hins vegar nánast tómar utan í dag. Ingi Gunnarsson, stöðvarstjóri Arnarflugs,
er við vinnu sína innan við borðið en Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, bíður átekta. Myndin
var tekin í morgun er verkfallsverðir komu í veg fyrir að farþegar Flugleiða kæmust með félaginu.
DV-mynd Ægir Már Kárason
Veðrið á morgun:
Norðaustan-
átt og bjart
víðast hvar
Á morgun lítur út fyrir norð-
austanátt á landinu. Smáslydduél
verða við norðausturströndina
en annars þurrt. Léttskýjað verð-
ur á Suður- og Vesturlandi og í
innsveitum á Norðurlandi vestra.
Hiti verður á bilinu 2-5 stig norð-
anlands en 6-10 stig syðra.
Mikill fjöldi unglinga safnaðist sam-
an í miðbæ Reykjavíkur i gærkvöldi
og nótt. Að sögn lögreglu var fram-
koma krakkanna til mikillar fyrir-
myndar. Það var ekki fyrr enn á
fjórða timanum sem unglingar fóru
að tínast til sins heima. Lögregla
og æskulýðsráð höfðu gert ýmsar
ráðstafanir vegna þess að vitað var
að krakkarnir myndu sækja í mið-
bæinn og halda upp á lok sam-
ræmdu prófanna. Lögreglumenn
voru fjölmennari í miðbænum en
endranær. Á þessar varúðarráðstaf-
anir reyndi litt vegna góðrar fram-
komu unglinganna.
-sme/DV-mynd BG
Alþingi:
Vantraustið fellt
Vantrauststillaga stjórnarandstöð-
unnar var felld á Alþingi í gærkvöldi
með 41 atkvæði gegn 22. Allir þing-
menn stjómarinnar greiddu atkvæði
gegn tillögunni.
Forsætisráðherra sagði við um-
ræðurnar að nú færu þjóðartekjur
minnkandi og mætti fólk því búast
við minnkandi kaupmætti. Undir það
tók íjármálaráðherra og sagði að all-
ir yrðu yrðu að færa fómir ef
versnandi ytri skilyrði krefðust þess.
Ekki bara launþegar. -SMJ
Vinnuveitendur
hafa Wð orð að
fella miðlunar-
tillöguna
Vinnuveitendur eru óánægðir með
að í miðlunartillögu sáttasemjara í
verslunarmannadeilunni er ákvæöi
um vísitöluviðmiðun 1. febrúar á
næsta ári. Menn í sambandsstjórn
Vinnuveitendasambandsins hafa lát-
ið hafa eftir sér að fella ætti tillöguna
vegna þessa. Þeir munu meira að
segja hafa tilkynnt sáttasemjara um
að alls óvíst sé að tillagan verði sani-
þykkt hjá þeim.
Aðilar innan Vinnuveitendasam-
bandsins, sem DV ræddi við um þetta
mál, sögðu það rétt vera að óvíst
væri að tillagan verði samþykkt hjá
vinnuveitendum. Bentu þeir á að ef
svo færi að hún yrði samþykkt, yrði
það ekki með neinni ánægju.
Vinnuveitendur ætla ekki að
greiða atkvæði um miðlunartillög-
una fyrr en á morgun, laugardag.
-S.dór
Hallarekstur
a ríkissjoði
Hallarekstur var á ríkissjóði fyrstu
þijá mánuði ársins. Jón Baldvin
Hannibalsson fiármálaráðherra
staðfesti það en sagðist ekki hafa
nákvæmar tölur við höndina þegar
DV ræddi við hann í morgun. Ráðu-
néytið hefur verið að gera upp
sjóðinn að undanfómu og er stefnt
að því að kynna niðurstöðumar á
blaðamannafundi seinna í dag. -gse