Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988. Sandkom Þaökomíliós ísólinniog góðaveðrinui Reykjavíkí gairniörgunað lögin um Ijósa- notkun biireiöa ' getaverið nokkuð tvíeggja. Undirritaöur er lög- hlýöinn með albrigðum og heftir alla tíð veriö hlynntur almennri ljósa- notkun. Nú er lögreglan líka farin að hvetja menn til að kæra samborgara sína ef þeir sjá umferöarlagabrot og því heftur Sandkornsritari veriö aö fylgjast með þ ví hvort vinir hans og vandamenn noti ljósin í sóiinni. Því var hann næstum lentur aftan á öðr- um bíl í gærmorgun þegar hann var aö reyna að sjá hvort bílar sem hann mætti væru með ökuljósin kveikL Sólarljósið var svo sterkt að það var illgerlegt. Þaö var því erfitt að kæra nokkum bílstjóra ogíramfylgja þannig óskum lögreglunnar og auk þess kostaði þessi viðleitni næstum umferðaróhapp. Það er skaði að birt- an ftá sólinni skuh deyfa svona lýs- inguna frá ökufiósunum þannig að hún skemmi fyrir manni Ijósaskoð- unina! Fórfyrir lítiö! Ogtalandi um nýju ljósa- login.Viðaúin heimihafavis- indamonnog hönnúöireytt hundruðum milljónakróna í að búa til ökuljósabúnað sem hægt er að leggja niöur ogloka þegar ljósin eru ekki notuð. Shkurbúnaður þykir mikilvægur til að auka straumlínu- lag bifreiðanna og minnka þar með loftmótstöðu og ekki síöur til að spara stórfé sem fer í að bæta broiin Ijós- ker. Þessi ljósabúnaður bætir tug- þúsundum við kaupverð þeirra bfla sem hann hafa og hafa kaupendumir ekki tahö seðlana eftir sér. En eftir að nýju lögin tóku gildi hefur ára- langt hönnunar- og vísindastarf verið lagt í rúst og glæsikerrumar aka hér á landi um með ljósin eins og á stilk- um. Ljósabúnaöurinn, sem kostaði mikla vinnu að hanna og bíleigend- urna stórfé, htur nú út eins og gap- andi meinsemd á straumlinulaginu! Eðaþannig! Brástekki Sjónvarpið brást ekki von- umáhorfenda sinnafrekaren vantermeð hvítasunnu- leikritinuGler- broti. Þjóðin bíður yfirleitt spennt eftir þeim sjald- séðu menningarviðburðum sem fmmflutningur sjónvarpsleikrita er. En oftast nær verða menn svekktir yfir afrakstrinum. Þótt enginn hafi elskast í Glerbroti, líktogí kálinu á eldhúsborðinu í áramótaleikriti Sjón- varpsins um árið, varð almenningur skelfing Utt hrifmn af leikritinu. Það er eins og Sjónvarpið leiti vei og lengi að handritum sem annað tveggja er auðveit að skemma eða eru iéleg fyr- ir. En að sjálfsögðu þarf aðsjástein- hver mennmgarlegur neisti sem al- menningur þessa lands fær ein- hverra hluta vegna ekki notíð. Sjón- varpsmenn þurfa að muna fyrir hvetja þeir eru að búa tfl leikrit og annað efiú. Það er almenningur sem hvorki hefur tíma né vilja tíl að liggja í einhverjum djúpum pælingum yfir efni sem fæstir skilja. Ágætur kunn- ingi Sandkoms dæmdi Glerbrot á þennan óvægna hátt: Misheppnað mennmgarlegt prump! Góð söngkona Ogaðeins meiraumGler- brot. Björk Guðmunds- dóttirerað verðaeinsog Jóhann Hjart- arson,óska- bam þjóðarinnar. Hún er nefhiiega orðin heimsfræg bæði á íslandi og í Englandiog vonandi víðaráður en yfir lýkur. Hún iék aðalhlutverkið í Glerbroti og var það, eftir því sem best er vitað, frumraun hennar á ftöl- unum. Eftir aö hafa horft á sjón- varpsleikritið á hvítasunnudag sagði hinn dómharði kunningi Sandkoms: Jæja, hún er góö söngkona! Umsjón: Axel Ammendrup Fréttir Bann á verðtvyggingu: Alger óvissa um hvað tekur við Hætta á hækkandi vöxtum, þenslu og minnkandi trausti á bankakerfinu „Það setur að manni ugg að vita af ríkisstjórn sem tekur jafnafdrifa- ríkar ákvarðanir án þess að hafa í höndunum eitthvað sem gefur vís- bendingu um afleiðingamar,“ sagði einn bankamanna sem DV ræddi við í gær. Það ríkir mikið óvissuástand í íjár- málaheiminum eftir ákvörðun ríkis- stjómarinnar um að banna verð- tryggingu nýrra íjárskuldbindinga frá og með 1. júlí næstkomandi. Þeg- ar DV ræddi við menn í viðskipta- bönkunum, Seðlabankanum og verð- bréfasjóðunum virtist enginn vita með vissu hvert ríkisstjórnin hefði í raun verið að fara með setningu bráðabirðalaganna. Enginn virtist til dæmis hafa hugmynd um hvort bannið ætti við innlán bankanna eins og útlánin. Þaðan af síður gerðu menn sér fyllilega grein fyrir hvaða afleiðingar þessi ákvöðrun hefði á bankakerfið, verðbréfasjóðina, inn- lendan sparnað og þensiu sem hún þó hlýtur að hafa áhrif á. Flestir þeirra bankamanna sem DV ræddi við sögðust óttast að afnám verðtrygginga á innlán yrði til þess aö traust sparifjáreiganda á banka- kerfinu færi fyrir bí. Það yrði meiri- háttar áfall fyrir bankakerfið. Eins og staða bankanna er í dag, eins og til dæmis Landsbankans, gæti það haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir bankana. Samdráttur í innlánum myndi auk þess leiða til minna framboðs á inn- lendu lánsfé sem aftur leiddi til hærri vaxta og aukinnar erlendrar lán- töku. Önnur afleiðing þess að almenn- ingur treysti ekki bönkunum fyrir sparifé sínu væri sú að þensla ykist. Þegar ekki er hægt að verja peninga fyrir verðbólgu Uggur næst við að kaupa fyrir þá sem fyrst, eins og ís- lendingar þekkja vel. í Seðlabankanum er nú unnið að því að útfæra lögin. Af ummælum bankamanna að dæma Uggur mikið við að vel takist með útfærslu á ákvæði bráðabirðalaganna um af- nám verðtryggingar. Það lýsir hins vegar vel hversu ilia undirbúin lögin eru að þar vissu menn ekki hvort ríkisstjórnin heföi ætlaði sér að afnema verðbindingu á innlánum. í gær voru menn með all- ar leiðir opnar; að banna í raun flest alla sérkjarareikninga bankanna, að heimila þeim sem hafa stofnað þá fyrir 1. júlí að nota þá áfram eða að túlka lögin þannig að þau ættu ekki við innlánskjör. -gse. Steingrímur Hermannsson kom frá Danmörku með umfangsmiklar tillögur um breytingar á peningamarkaðinum á fund rikisstjórnarinnar um næstsíð- ustu helgi. Flestum þeirra var skotið í nefnd en að kröfu Framsóknarflokks- ins bannaði ríkisstjórnin verðtryggingu nýrra fjárskuldbindinga til skemmri tima en tveggja ára. Þessi ákvörðun hefur valdið miklum taugatitringi í bankakerfinu þar sem menn gera sér illa grein fyrir hvaða afleiöingar hún kann að hafa. DV-mynd KEA Óverðbyggð innlán: Rúmur milljarður tapaðist í fyrra A síðasta ári voru raunvextir á almennum sparisjóösbókum nei- kvæðir um 7 prósent, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Seölabankan- um. Sé miðað við varðtryggingu samkvæmt lánskjaravísitölu uröu eigendur þessara bóka af um 1.100 milljónum króna á núvirði á síðasta ári. Bankarnir fengu þessa upphæð í veröbólgugróða. Almennar bækur bera einungis nafnvexti og kjör þeirra taka ekkert mið af lánskjaravísitölu. Ef Utið er til allra spariinnlána er útkoman betri fyrir almenning. Raunvextir þeirra voru þó neikvæðir um 0,8 pró- sent. Þar vega sérkjarareikningar bankanna upp slæm kjör á almenn- um bókum. Vaxtatekjur eigenda sér- kjarareikninganna á síðasta ári uröu um 630 milljónir miöaö viö meðal- talsinnlán bankanna. Bankarnir höföu því um 470 milljónir í tekjur af spariinnlánum í heild. Tekjur bankanna af veltiinnlánum urðu meiri eöa um 1.690 milljónir. Kjör á ávísana- og hlaupareikningum eru með þeim hætti að þessir reikn- ingar ná ekki að halda verðgildi sínu. Raunvextir á öllum innlánum bank- anna voru í fyrra neikvæðir um 3 prósent. Heildartekjur bankanna af öllum innlánum voru því í fyrra um 2.160 milljónir króna. Raunvextir voru hins vegar já- kvæöir á útlánum bankanna, á al- mennum skuldabréfum um 4,7 pró- sent og verðtryggðum bréfum um 7,5 prósent, samkvæmt bráðabirgða- tölum Seðlabanka. -gse Lögin verða sniðgengin Ákvæði í bráðbirgðalögum ríkis- stjómarinnar um peningamál mun að öllum bkindum hafa lítil áhrif á verðbréfasjóðina þó Framsóknar- flokkurinn, sem knúði fram þessar ákvarðanir, hafi einkum beint þeim gegn hinum svokalla „gráa mark- aöi“..Það er einfaldlega of einfalt aö fara í kringum lögin að sögn þeirra sem starfa í verðbréfasjóðunum. Verðbréfasjóðunum verður gert skylt að kaupa ríkisskuldabréf fyrir 20 prósent af öflu nýju fjármagni eft- ir 1. júli næstkomandi. Þeir eiga fyr- ir nokkuð af þessum bréfum. Það verður því einfalt fyrir þá að selja þau bréf fyrir 1. júlí og kaupa þau síöan jafnt og þétt aftur fyrir 20 pró- sent af nýju fé sem bætist í sjóðina. Áhrifanna af þessari byndiskyldu mun því vart fara að gæta fyrr en eftir íjóra til sex mánuði. Á þeim tíma munu verðbréfasjóðirnir fá tíma til að aðlaga sig nýjum aðstæðum og færa sig meira út í kröfukaup og annað sem gefur góða ávöxtun til að vega upp á móti ávöxtun ríkisskulda- bréfanna. Menn hafa líka komið auga á leið til að verðtryggja stutt lán fram hjá ákvæði laganna um bann þar um. Það er einfalt að lána manni 100 þús- und krónur í níu mánuði og bæta síðan við einni 100 króna afborgun eftir tvö ár. Þar með væri lánið orðiö til lengri tíma enn tveggja ára og þvi heimilt að verðtryggja það þó það væri svo að segja greitt upp eftir níu mánuði. -gse Hækkandi vextir í aukinni verðbólgu í kjölfar gengisfellingarinnar eykst veröbólga. Ef bankamir ætla aö tryggja útistandandi lán sín á sama hátt og nú er gert má því búast viö umtalsverðum vaxtahækkunum. Það á bæöi viö um óverötryggð lán og eins lán sem nú eru verðtryggð og eftir bann ríkisstjómarinnar verða á óverötryggðum kjömm. Búist er við að verðbólga á næstu mánuðum fari í 40 prósent og þar yfir miðað við tólf mánaða tímibil. Á undanfórnum mánuðum hefur verð- bólguhraðinn hins vegar verið um 16 prósent. Forvextir á víxlum eru í dag um 30,7 prósent. Miðað viö sextíu daga jafngildir það 35,6 prósent nafnvöxt- tnn. Ef bankamir ætla að tryggja sér sömu ávöxtun þegar verðbólgan verður komin í rúm 40 prósent veröa vextimir að jafngilda rúmlega 60 prósent nafnvöxtum. Ríkisstjómin stefnir að því að ná verðbólguhraðanum niður í 16-17 prósent á seinasta ársfjórðungi þessa árs. Lán til sex mánaða, sem bank- amir veita 1. júlí, þyrfti því að bera um 22 prósent vexti ef bankarnir ætluðu að tryggja sér sömu ávöxtun og þeir fá nú af verðtryggðum lánum. Þeir bankamenn sem DV ræddi sögðu að bankarnir yrðu að búast við hinu versta. Þeir gætu því ekki ákveðið vextina út frá áætlunum rík- isstjórnarinnar. Annaðhvort yrði að ákvarða vexti vel umfram þær áætl- anir eöa miöa viö breytilega vexti á lengri lánum en til tveggja til þriggja mánaða. Hagur lántakenda myndi ekki vænkast hvor sem aðferöin yröi. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.