Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988.
Spumingin
Ertu hlynntur áframhald
andi hundahaldi í borg-
inni?
Gunnar Jónsson: Já.
Stefán Jökulsson: Já, með þeim tak-
mörkunum sem í gildi eru.
Heiða Axelsdóttir: Já, og það á að
setja upp sérstakar ruslatunnur fyrir
hunda eins og haft er í Svíþjóð.
Birgir Jónsson: Já, ég er hlynntur
því, eins og kerfið hefur verið.
Trausti Finnbogason: Ég er dýravin-
ur og þess vegna er ég á móti hunda-
haldi í borginni.
Hrönn Jóhannsdóttir: Já, mér finnst
þaö alveg sjálfsagt aö leyfa hunda-
hald.
Lesendur
Þingvallahríngur og heilsuspillandi hristingur:
Hvað ræður forgangs-
róð í vegamálum?
ökumaður skrifar:
Ég er einn hinna mörgu sem not-
að hafa góðviðrisdagana undanfar-
ið til að komast út í guðsgræna
náttúruna og farið með fjölskyld-
una „eitthvað út að keyra“ eins og
maður segir. Það er mikill sómi að
því að geta ekið til Þingvalla á
bundnu slitlagi. - Nú þarf maður
ekki lengur að aka í reyk og drullu
til að komast á fegursta stað á jörð-
inni og bíllinn er í góðu ásig-
komulagi eftir bíltúrana. Öðruvísi
mér áður brá.
En... til að fara þann fræga hring
sem heitir Þingvallahringur, þarf
maður enn þann dag í dag að búa
sig undir heilsuspillandi hristing
og stórskotahríð grjóts í kæfandi
ryki, öllum farþegum til ama og
leiðinda. Á ég þá við leiðina frá
Þingvöllum austur og suður gegn-
um Þrastaskóg,
Á sunnudaginn var óku hundruð
bifreiða þessa leið í dásemdarveðri
en upp til himna steig ljósbrúnn
rykmökkurinn og fæstir sáu út úr
augum. í fjarska var þetta á að líta
sem víglína í stríði, hörkubardaga
hins íslenska ökumanns við ís-
lenska þjóðveginn. - Það þarf ekki
að spyrja að leikslokum. Við öku-
menn urðum undir og sleikjum
sárin, sem eru ónýtir demparar,
brotnar rúður, rispur og brot í
lakki og svekkelsi farþega og bíl-
stjóra.
Þjóðvegurinn er hins vegar þarna
áfram, gijótharður sem fyrr. Svona
í alvöru talað; Hvenær ætla menn
að hafa manndóm í sér að loka
þessum hring með bundnu slitlagi?
Það er ekki eins og þetta sé fáfarin
leið eða heiðarvegur hestamanna.
Þessa leiö fara þúsundir bíla, jafn-
vel tugir þúsunda, á ári hverju.
Þessa leið fara velflestir ferðamenn
sem hingað til lands koma og frá
náttúrunnar hendi er ekkert sem
bendir til annars en á þessum kaíla
geti varanleg vegagerð orðið ódýr.
Ég skal bíða til eilífðarnóns eftir
því að Steingrímsfjarðarheiði eða
Brattabrekka séu malbikaðar, en
það er fyrir löngu kominn tími til
þess, aö „hringnum'1 sé lokað, ein-
hverri fjölfórnustu leið í dreifbýli
hér á landi. Það vantar kannski
þingmenn og góð atkvæöi á þessum
slóðum til að hrinda þessu lítilræði
í framkvæmd!
En hvað ræður forgangsröð og
framkvæmdum í vegamálum hér á
landi, er manni oft hulin ráðgáta.
Ég treysti DV til að kann þau mál
vendilega og ganga á ráðamenn -
nú þegar ferðatíminn fer í hönd.
Bundið slitiag til Þingvalla. Frá Þingvöllum austur og suður gegnum Þrastaskóg lenda ökumenn hins vegar
I bardaga við þjóðveginn, segir bréfritari. - Aðkeyrslan að Valhöli.
Veski gripið
á vinnustað
Helga Kristinsdóttir skrifar: fyrra skiptið fékk hann símanúme-
Ég varð fyrir því óhappi í hádeg- rið hjá mér. Þar sem ég var ekki
inu sl. mánudag (16. maí) að pen- heima hringdi hann aftur í þau og
ingaveski var stolið frá mér á sagðistvinnaáeinhverrikafTistofvi
vinnustaö mínum við Sölvhóls- ogaðéghefðigleymtveskinuþar.
götu. Það eina sem var i veskinu Auðvitaö hefur þjófurinn bara
var ökuskírteini, sjúkrasamlags- skilið veskiö eftir þarna. En það
skirteini og ýmsir minnismiðar og sem verra er aö sá sem svaraði í
nótur - en engir peningar. símann í seinna skiptið náði alls
Ástæðan fyrir því að ég skrifa ekki nafninu á kaitihúsinu sem
þetta er sú að kvöldið eftir (þriðju- hann nefndi. - Þess vegna vil ég
dagskvöld) hringdi eihver karl- biöja þann sem er með veskið að
maður heim til foreldra minna þar hringja aftur í foreldra mína eða
eð heimilisfang þeirra er á ökuskír- mig í sima 38452. - Með fyrirfram
teininu. Hann hringdi tvisvar. - í þökk fyrir birtinguna.
Oiyggisgrindur á dráttaivélan
Standa ekki
enn til boða
Valur Guðmundsson hringdi:
í auglýsingu frá Vinnueftirhtinu,
t.d. í Frey segir: „Frá og með 15. apríl
sl. var skylt samkvæmt reglugerö að
hafa öryggishús eða öryggisgrind á
dráttarvélum í venjulegri notkun." -
„Nú er fresturinn útrunninn," segir
einnig í auglýsingunni.
Notkun er bönnuð frá 15. apríl, án
þessara grinda - og kominn 20. maí,
og það sem verra er að notendum
dráttarvéla standa þessar grindur
ekki til boða. Þær sem þó eru á mark-
aðinum (hjá Sambandinu) eru svo
óheppilegar að sætarými eða vinnu-
aðstaða á vélunum veröur aðeins 62
cm breitt! - Þetta er alls ekki viðun-
andi.
Ég verð að lýsa undrun minni á því
að í öllu því véla- og vöruflóði sem
virðist flutt til landsins skuli ekki
hafa verið hugað að því og þá af við-
komandi aðilum (t.d. Vinnueftirht-
inu) að bjóða mönnum hentug hús
eða grindur á umræddar dráttarvél-
ar. - Ekki væri nú úr vegi aö notend-
ur dráttarvéla fengju frekari vitn-
eskju um framvindu mála.
Óskemmtileg lífsveynsla:
Lögreglan ber fulla ábyrgð
Guðrún Sveinsdóttir og Jónas
Helgason skrifa:
Eins og flestum mun vera kunn-
ugt brotnaði og meiddist mikið
Sveinn Jónasson, 20 ára gamah
Eskfirðingur, á lögreglustöðinni
við Hverfisgötu i Reykjavík að-
faranótt 13. febrúar í vetur. - Síöan
eru hönir meira en 3 mánuðir og
enn er hann ekki útskrifaður, þótt
vonir standi til að það geti gerst
innan skamms tíma.
Við foreldrar og aörir aðstand-
endur höfum aldrei upplifað annan
eins tíma eins og síðan þessi at-
buröur átti sér stað. Hingað hefur
verið hringt í tíma og ótíma af
mönnum sem ekki hafa kynnt sig
og hótað okkur öhu illu, meira að
segja lífláti. - Við höfum veriö
rukkuö um fargjald og annað
vegna feröa á vegum sjónvarpsins,
og okkur sagt að þetta skuldum við
skattborgurum þessa lands!
Á öhum þessum tíma hefur
Sveinn fengið 7.800 kr. í sjúkradag-
peninga og honum sagt að hann fái
ekki meira, fyrr en hann útskrifist.
- Hver skyldi bera ábyrgð á, að líf
fólks skuh vera lagt svona í rúst
af sjálfri lögreglunni? Skyldi þaö
vera háttvirtur lögreglusfjóri, með
því að hafa slíka menn í sinni þjón-
ustu og hér komu viö sögu, eða
æth hann og hans undirsátar vildu
lifa á þessari fjárhæð til margra
mánaða?
Við viljum beina þeirri spum-
ingu til lögreglustjóra. hvort menn
séu ráðnir í lögregluna til að vera
öðrum til fyrirmyndar eða hvort
þeir séu ráðnir til aö leika hasar-
leik og skeyta skapi sínu og kröft-
um á saklausum borgurum. Eöa
ætlar lögreglustjóri einu sinni enn
að koma fram fyrir alþjóð og afsaka
geröir sinna manna sem era búnir
að svifta fólk bæði atvinnu og
heilsu?
Við vhjum benda á það að innan
lögreglunnar starfar enn maöur
sem stóð að aðgerðum með þeim
sem vikið var úr starfi og hefur
aldrei verið hróflaö við honum.
Þeir vora tveir en ekki einn, sem
börðu drenginn, og teljum við okk-
ur hafa fullan rétt á aö upplýsa
hvenær sem er hvaða maður þetta
er, verði ekkert að gert.
Það er von okkar að síðasta fóm-
arlamb þessara manna, bæöi hann
og hans aðstandendur, fari betur
út úr þessu en við höfum gert. Þetta
hefur verið óskemmtileg lífs-
reynsla. - Að lokum þetta; við telj-
um lögreglustjóra og varðstjóra
hans á umræddri vakt, og hann
hefur enn í sinni þjónustu, bera
fulla ábyrgð á þessum óhugnanlega
atburöi, bæði hvað varðar fjár-
hagstjón og annað.