Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Page 29
1
'■ýyny
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988.
29
Lífsstíll
A bamfóstnmámskeiði hjá Rauða krossinum:
Ég nenni þessu ekki
„Ég nenni þessu ekki,“ eru bann-
orö á námskeiðum sem Rauði
krossinn heldur um þessar mund-
ir. Námskeiðin eru haldin fyrir
barnfóstrur allt frá 11 ára aldri.
„Mig langaði að læra að passa
krakka. í sumar ætla ég að gæta
tveggja stelpna, 114 árs og 6 ára.
Önnur er systir mín og hin er
frænka mín. Mér finnst gaman að
passa. Það er svo gaman að leika
við krakkana. Þau eru aldrei þreyt-
andi,“ sagði Edda Dröfn Daníels-
dóttir, 12 ára gömul, er DV hitti
hana að máli á námskeiðinu.
í síðustu viku voru tvö námskeið
í gangi, annað í Gerðubergi og hitt
í Rauða krosshúsinu við Rauðarár-
stíg. En alls mun fyrirhugað að
halda 8 slík námskeið á höfuð-
borgarsvæðinu nú í vor.
Viðurkenningarskjal
Hvert námskeið stendur flögur
kvöld frá klukkan 19.00-22.00 og er
námskeiðsgjaldið 1.500 krónur.
Námskeiðinu lýkur með því að
krakkarnir fá áritað skjal sem við-
urkenningarvott um að þau hafi
tekið þátt í námskeiðinu.
Fyrsta kvöldið er nemendunum
kynntur tilgangur og markmið
hverrar og einnar þar sem tekið
væri fram hvenær ætti að mæta,
hvenær starfsdeginum væri lokið,
hve ráðningartíminn væri langur
og svo framvegis.
Athuga skyldi vel þær reglur sem
foreldrarnir settu bömum sínum
því að það væri mjög misjafnt.
Sumir foreldrar vildu til dæmis að
bömin færu á gæsluvöll á hverjum
degi á meðan önnur ættu að gera
eitthvað allt annað. Sum mættu
borða sælgæti meðan öxmur mættu
það alls ekki og svo framvegis. Svo
væri þaö grundvallarregla að vita
alltaf hvar væri hægt að ná í for-
eldra barnsins eða aðstandendur
þess. Síðan var fjallað um laun.
Rauði krossinn gefur hvorki út
launa- né viðmiöunartaxta fyrir
bamfóstrur. María útskýrði að
launin gætu verið afarmismun-
andi, til að mynda hefði hún kann-
ast við stelpu sem var að passa síð-
astliðiö sumar. Hún hefði byrjaö
að gæta barns fyrir konu sem borg-
aði henni 80 krónur á tímann. Þeg-
ar ráðningartímanum hjá konunni
hefði verið lokið hefði hún farið að
gæta barns hjá annarri konu og
- eru bannorð
hefði fengið 100 krónur á tímann
hjá henni. Síðan sagðist María vita
til þess að 12 ára stelpur, sem ynnu
við að setja vörur í poka í stór-
mörkuðunum, fengju 98 krónur á
tímann. 14 ára krakkar fengju 110
krónur á tímann í unglingavinn-
unni og krakkar fæddir 1974 fengju
131 krónu á tímann. Launin væm
þess vegna mjög mismunandi og
sjálfsagt væri að ganga úr skugga
um í byijun upp á hvaða laun hver
og ein væri ráðin.
Meira fyrir að passa þrjá
„Fær maður meira ef maður
passar þrjá krakka?“ spurði ein í
hópnum. „Já, ábyggilega," svaraði
María. „En ég myndi hugsa mig vel
um ef ég væri á ykkar aldri og
ætlaði að gæta þriggja bama. Það
er erfitt að passa svo marga krakka
og ég held að ég myndi ekki ráð-
leggja neinum að taka að sér svo
mörg böm.“
Svo fór María með stelpunum
yfir mikilvægi þess að vera stund-
vís svo að foreldrarnir gætu treyst
á bamfóstnma svo að þeir þyrftu
ekki að hafa óþarfaáhyggjur.
„Tfiitssemi og almenn kurteisi,
hvað er það?“ spyr María.
„Það er að geta sett sig í spor
annarra,“ svaraöi ein í hópnum.
Já, alveg rétt, en tillitssemi felur
margt annað í sér.
Síðan var farið í atriði eins og
hreinlæti, hvemig ætti að láta
barninu líða sem best. „Og munið
þið, stelpur, maður getur aldrei
sagt: Ég nenni þessu ekki. Það em
bannorð. Það er margt sem fellur
undir ábyrgðartilfinningu, þetta
eru bara nokkur atriði tfi að koma
ykkur af stað.“
Maður lærir margt
Það var komið aö því að stelpurn-
ar fengju að taka sér smáhvíld. „Ég
ætla að gæta eins bams í sumar,“
sagði Lísa Anne Libungan. „Ég er
ekki enn búin að fá krakka tfi að
passa en það var auglýsing í DV í
dag þar sem var óskað eftir stelpu
til að gæta 3ja ára stelpu. Ég ætla
að tala við mömmu stelpunnar sem
var að auglýsa.
Ég hef oft passað fyrir aðra áður
en mig langaði að fara á svona
námskeð til að verða betri barn-
námskeiðsins, sömuleiðis starf-
semi Rauða krossins, nemendurnir
kynntir hverjir fyrir öðmm og
fjallað um sumarvinnu og ábyrgð-
ina sem felst í því að gæta barna.
Hver nemandi fær möppu sem
inniheldur ýmsar dýrmætar upp-
lýsingar um starf bamfóstrunnar
auk ýmissa gagna um börn.
Þegar DV leit við á bamfóstmn-
ámskeiöi í Gerðubergi nú fyrir
skömmu vom 17 verðandi barn-
fóstrur að læra um réttindi og
skyldur barnfóstra.
Ráðningarsamningur
oglaun
Farið var allítarlega í hluti eins
og samningsgerð og leiðbeinand-
inn, María Haraldsdóttir fóstra,
útskýrði fyrir stelpunum að það
væri nauðsynlegt að byrja á því aö
gera samning annað hvort skrifleg-
an eða munnlegan um verksvið
Brosmildar stelpur á barnfóstrunámskeiði hjá Rauða krossinum.
fóstra. Maður lærir alveg helling
hérna,“ sagöi Lisa Anne.
Þær Guðbjörg Þorsteinsdóttir og
Rósa Dögg Flosadóttir, 11 og 13 ára,
sögðust báðar hafa passað krakka
áður. „Ég hef passað fyrir frænku
mína,“ sagði Rósa Dögg og ég var
að passa 3ja ára stelpu fyrir
skömmu sagði Guöbjörg. „Nú er
ég að passa tveggja ára stelpu."
Þær stöllur voru sammála um að
það væri bæði fjölbreytt starf og
skemmtilegt að vera bamfóstra.
Hins vegar væri svolítið erfitt að
fá krakka í pössun, það gengi ekk-
ert allt of vel.
Hreingerningar og tiltekt
Svo var farið í atriði eins og
hreingerningar og tiltekt á heimfi-
um, hversu nauðsynlegt það væri •
að hver og einn gengi úr skugga
um hvert hans verksviö væri. Ef
bamfóstran ætti að gera meira en
að taka saman eftir sig og barniö,
sem væri sjálfsagt, ætti að semja
sérstaklega um það. Ef þið emð
beðnar um að skúra, þurrka af,
ryksuga eða þess háttar þá eigið
þið að vega og meta það með sjálf-
um ykkur hvort ykkur fmnst þið
hafa tíma tfi að gera slíkt, ásamt
því að gæta barnsis. Ef þið getið
ekki talað um þetta við konuna sem
ræður ykkur skulið þið tala um
þessi atriði heima og athuga hvað
foreldrar ykkar hafa til málanna
að leggja."
Vinur barnsins
Tvö seinni kvöldin var svo rætt
um atriði eins og framkomu gagn-
vart börnum. Verið vinir bamsins,
er eitt af boðorðunum. Ræðiö við
þau og útskýrið boð og bönn. í síð-
asta tímanum er svo farið yfir
verksvið kvöldfóstra. Númer eitt
er að vita hvar sé hægt að ná í for-
eldra bamsins eða aðstandendur,
um ferðir heim, samninga um laun,
svefnfrið bama, hávaða, hvort
leyfilegt sé að taka einþvem með
sér, ábyrgðina sem hvfiir á bam-
fóstrunni og svo framvegis.
Það var auðséð að stelpurnar
voru ánægöar á námskeiðinu, enda
voru þær að ræða það í hléinu að
sumir væru farnir að auglýsa 1DV
að þeir vildu bara bamfóstmr sem
hefðu farið á námskeið hjá Rauða
krossinum.
-J.Mar
* '