Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Síða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988.
Tarðafarir
Sigurlaug Friðjónsdóttir lést 13. maí.
Hún fæddist á Hólum í Hvammssveit
14. apríl 1905. Foreldrar hennar voru
Sigurbjörg Jónsdóttir og Friöjón
Sæmundsson. Sigurlaug giftist Jóni
Magnússyni en hann lést árið 1979.
Þau eignuöust þijár dætur. Útfór Sig-
urlaugar verður gerö frá Fossvogs-
kapellu í dag kl. 15.
Binna Berndsen Mann lést 16. maí.
Hún fæddist á Blönduósi 5. desember
1918. Foreldrar hennar voru Elísabet
K. Björnsdóttir og Fritz Hendrik
Berndsen. Eftirlifandi eiginmaöur
Binnu er Frederic S. Mann. Þau
fluttu til Bandaríkjanna áriö 1947 og
bjuggu þar síöan. Þau eignuðust tvo
syni. Útfor Binnu verður gerð frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag kl.
13.30.
Guðfinna Skagfjörð, Snorrabraut 42,
verður jarösungin frá Fossvogs-
kirkju fostudaginn 27. maí kl. 15.
Guðrún Ingvarsdóttir, Elliheimilinu
Grund, áður Vitastíg 11, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni fimmtu-
daginn 26. maí kl. 13.30.
Jónína Jónsdóttir, Brávallagötu 10,
sem lést 10. þessa mánaðar í Landa-
kotsspítala, verður jarðsungin
fimmtudaginn 26. maí kl. 13.30 frá
Akureyrarkirkju.
Sigurður Jónsson, áður búsettur á
Nýlendugötu 4, lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 20. þ.m. Útfórin fer fram
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
1. júní kl. 10.30.
Pálína Tómasdóttir, Háteigsvegi 28,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fostudaginn 27. maí
kl. 13.30.
Margrét Gísladóttir, til heimilis á
Skúlaskeiði 5, Hafnarfirði, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fostudaginn 27. maí kl. 15.
Kristinn Tryggvason, Kvisthaga 10,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju í dag, miðvikudaginn 25. maí,
kl. 16.30.
Magnús Geirsson, Skúlagötu 56,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 26. maí kl.
13.30.
Guðmundur Viðar Guðsteinsson,
Efstasundi 67, verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju fóstudaginn 27.
maí kl. 13.30.
Andlát
Herdís Hákonardóttir, Þinghóls-
braut 12, Kópavogi, andaðist í Landa-
kotsspítalanum aö morgni 23. maí.
Sigríður Blöndal lést á hjúkrunar-
deild Hrafnistu í Hafnarfirði 21. maí
sl.
Sigríður Kristmundsdóttir andaðist
sunnudaginn 22. þ.m. á Hrafnistu í
Reykjavík
Guðmundur Guðjónsson, Garða-
stræti 13, lést mánudaginn 23. maí í
Landakotsspítala.
Ingibergur Sveinsson, Efstasundi 66,
andaðist 22. maí sl.
Jón Oddsson, Hörðalandi 20, andað-
ist í Borgarspítalanum 21. maí sl.
Karl Jónsson, Kleppsvegi 6, lést 20.
maí.
Sigurður Stefánsson bóndi, Löngu-
hhð, Vallahreppi, S-Múlasýslu, and-
aðist á Vífilsstöðum 23. maí.
Guðmundur Andrés Helgason frá
Kirkjuhvammi andaðist á sjúkrahúsi
Patreksfjarðar 23. maí.
Laufey Stefánsdóttir, Fálkagötu 9,
Reykjavík, lést á Landspítalanum 22.
maí.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Eftirtaldar stööur hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu-
stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:-
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
á Egilsstöðum, veitt frá 1. september 1988.
2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
í Ólafsvík.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
á Hólmavík.
4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
í Reykjahlíð, Mývatnssveit.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
á Þórshöfn.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
í Kópavogi.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðv-
arnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
9. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
í Asparfelii, Reykjavík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
18. maí 1988
Merming______________pv
Ágæt reynsla
Þorsteinn Gauti Sigurðsson á tónleikum
Styrktarfélags íslensku óperunnar f
gærkvöldi.
Styrktarfélag íslensku óperunn-
ar er nokkuð duglegt að hcdda tón-
leika og fær oft ágæta krafta til að
troða upp hjá sér. í gærkvöldi var
Þorsteinn Gauti Sigurðsson mætt-
ur í kúlissunum í Gamla bíói og lék
á lasburða Bösendorfer Tónlistar-
félagsins verk eftir Gunnar Reyni
Sveinsson, Rakhmaninoff, Ravel og
Liszt. Verk Gunnars var þrír kaflar
úr fjölþættri svítu, Rondo, Vals
Lentog og Habanera, sem hljómuðu
býsna sannfærandi án þess að rista
sérlega djúpt. Það var yfir þessu
laglegur leikhúsblær sem Gauti
hristi snoturlega fram úr erminni.
Þá kom Rakhmaninoff, Elegía, en
Gauta hefur oft tekist betur upp við
þennan höfund og það í veigameiri
verkum. Sömuleiðis var eins og
vantaði herslumuninn í Jeyx d’eau
Tónlist
Leifur Þórarinsson
Ravels, leikurinn var einkennilega
haminn og jafnvel þreytulegur. En
í Lisztverkunum eftir hlé, Vallée
d’Oberman, Au bord d’une source
en þó sérstaklega Dantesónötunni
náði piltur sér vel á strik og skilaði
oft sterkum og spennandi músíktil-
þrifum. En stundum var þó eins
og söguþráðurinn dytti úr „fókus"
og rétt á mörkunum að leikurinn
héldi athygli manns óskiptri. Hvað
ber til? Þorsteinn Gauti er án efa
einn af okkar fremstu píanistum.
Hann hefur góða tækni og meiri
snerpu í stílnum en venjulegt getur
tahst. En að þessu sinni var dálítið
eins og vantaði dramatíska yfirsýn
í leik hans, tilfinningin væri ekki
alveg í takt við tímann. Kannski
má kenna um þreytu eftir þungan
vetur, kannski vondum flygh en
kannski var prógrammið ekki al-
veg fullmótað í huga og hjarta lista-
mannsins þó að fingumir væru vel
reiðubúnir og klárir. En þetta var
ágæt reynsla. LÞ
Þórður Sigurðsson, Stigahlíð 22, and-
aðist í Borgarspítalanum 21. maí.
Friðleifur Guðmundsson, Ölduslóð
5, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum
laugardaginn 21. maí.
Guðrún Þorsteinsdóttir Imsland lést
á EIli- og hjúkrunarheimilinu Grund
á hvítasunnudag, 22. maí.
Kristín Lilja Jóhannesdóttir,
Bræðrabrekku, Óspakseyrarhreppi,
lést á sjúkraskýhnu á Hólmavík
þann 21. þ.m.
Helga Ólafsdóttir, Höhustöðum, er
látin.
Tilkyimingar
Besti vinur Ijóðsins
heldur skáldakvöld á Hótel Borg í kvöld
kl. 21. Þar verður fagnað tveggja ára af-
mæli Besta vinarms og haldið upp á
merk afmæli margra þeirra sem fram
koma. Þá verður þess minnst að á árinu
er öld liðin frá fæðingu Guðmundar
Kamban og 80 ár frá fæðingu Steins
Steinarr. Þá munu eftirtalin skáld lesa
úr verkum sínum: Sigfús Daðason, Sig-
urður A. Magnússon, Þorsteinn frá
Hamri, Geirlaugur Magnússon, Jón úr
Vör, Steinunn Asmundsdóttir, Kristján
Hrafnsson, Ragnhildur Ófeigsdóttir, Stef-
án Snævarr og Hrafn Jökulsson. Kynnir
veröur Viðar Eggertsson. Gestum Besta
vinar ljóðsins skal bent á að mæta tíman-
lega enda er aðsókn jafnan mikil. Þá ber
þess aö geta að veitingasala Hótel Borgar
verður opin af þessu tilefni. Miðaverð er
kr. 350.
Jóhann Sigurðarson leikari
hlýtur styrk
Að lokinni frumsýningu á Lygaranum
þann 21. apríl sl. veitti þjóðleikhússtjóri
Jóhanni Sigurðarsyni leikara styrk úr
Menningarsjóði Þjóðleikhússins. Sjóður-
irrn var stofnaður á vígsludegi Þjóðleik-
hússins, 20. apríl 1950 af þáverandi leik-
hússtjóra, Guðlaugi Rósinkranz, með
framlögum 38 einstaklinga. Alls hafa nú
48 leikarar og aðrir starfsmenn Þjóðleik-
hússins hlotið styrki úr sjóðnum, þar af
4 leikarar tvívegis. Jóhann hefur verið í
eldlínunni á fjölum Þjóðleikhússins í vet-
ur. Hann brautskráðist frá Leiklistar-
skóla íslands árið 1981 og starfaði næstu
funm árin hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Nemendur Húsmæðraskól-
ans Staðarfelli 1967-68
Þar sem við veröum 20 ára nemendur í
vor höfuð við ákveðið að hittast á Laug-
um í Dalasýslu helgina 10.-12. júní '88.
Ef þú hefur áhuga hafðu þá samband sem
fyrst í eftirfarandi síma: Sigríður Krist-
mundsdóttir s. 75976, Sigrún Guðjóns-
dóttir s. 33705 og Aðalheiöur Sigurðar-
dóttir s. 96-73120.
Uppskeruhátíð og aðalfundur
skíðadeildar Fram
verður haldin 29. maí kl. 15 í félags-
heimili Fram við Safamýri. Öllum vel-
unnurum skíöadeildarinnar er boöið í
kaffi og meðlæti og að vera þátttakendur
í uppskeruhátíö félagsins eftir happa-
drjúgan vetur. Að lokinni uppskeruhátíö
verður hringt til aðalfundar deildarinnar
með venjulegum aðalfundarstörfum og
kosningu stjómar.
Tapað fundið
Dekk tapaðist af kerru
Sérstakt hjól á legg tapaðist á Þingvalla-
hringnum um hvítasunnuna. Skilvis
fmnandi hringi í síma 12130.
Hlaupahjól tapaðist
úr Kópavogi
9 ára stelpa úr Kópavoginum tapaði
skærbleiku hlaupahjóli sínu. Hjólið er
vikugamált og hvarf frá Helgubraut í
Kópavogi. Ef einhveijir geta gefið upplýs-
ingar um hjólið vinsamlegast hringið í
síma 43457.
Kvikmyndir
Háskólabíó/Metsölubók:
Eitilharðir einstaklingar
inn (Brian Dennehy) er haldinn
svokallaöri höfundarstíflu og hefur
varla samið orö frá útkomu met-
sölubókarinnar. Þar spilar inn í að
hann missti konu sína og hefur átt
um sárt aö binda. Inn í hf hans
kemur harðsviraður glæpamaður,
Cleve að nafni, leikinn að James
Woods, sem reynir að sannfæra
hann um mikla spillingu og glæpa-
starfsemi innan eins stærsta iðn-
fyrirtækis Bandaríkjanna. Og vill
fá hann til að opinbera það í bók
hvað sem það kostar. Tilboðið
freistar hans enda veit hann að slík
bók verður metsölubók.
Metsölubók er um tvo eitilharða
einstaklinga sem eiga bakgrunn
hvor sínum megin við lögin og
hvernig með þeim þróast einstakt
samband þó þeir séu alltaf sjálfum
sér samkvæmir.
Það fer óþarflega langur tími hjá
Cleve að sannfæra Meechum sem
þýðir að sjálfsögðu það sama fyrir
áhorfandann. Það bitnar á skýring-
um á til dæmis hvað iðnjöfurinn
Kappa hafi verið að dundað sér við
í gegnum tíðina. Það sem fyrir er
vekur þó upp spennu enda sann-
færandi leikur James Woods á
fantinum Cleve með afbrigðum
góður. Brian Dennehy skilar sínu
einnig vel og tæknilega hliðin er
með ágætum.
-GKr
„Best Seller“ Bandarisk frá 1987:
Framleiðandi: Carter De Haven.
Leikstjóri: John Flynn.
Handrit: Larry Cohen.
Kvikmyndataka: Fred Murphy.
Tónlist: Jay Fergusson.
Aðalhlutverk: James Woods, Brian
Dennehy Victoria Tennant, Allison Bal-
son og fleiri.
Metsölubókin er heilmikil lesn-
ing og spennandi bók sem hefst á
Nixon-ráni, ekki að Nixon sjálfum
sé rænt heldur ræna menn sem
kenna sig við hann skjölum, fé og
fleiru og drepa alla sem verða á
vegi þeirra. Einn öryggisvarðanna
sleppur við ljótan leik og semur
metsölubók sem byggir á upplifun
hans. 15 árum síöar má segja að
myndin í raun byrji. í millitíðinni
hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Rithöfundurinn og öryggisvörður-
Þríhyrningurinn James Wodds, Brian Dennehy og Paul Shenar.