Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Page 1
Hjólreiðadagur-
inn endurvakinn
Kvennadeild Styrktarfélags la-
maöra og fatlaöra, íþróttafélag fatl-
aðra ásamt verslunum og fyrir-
tækjum í Kringlunni mun standa
fyrir hjólreiðadegi á sunnudaginn
29. maí undir kjöroröinu „hjólað í
þágu fatlaöra".. Hjólað veröur frá
sex stööum í Reykjavík og einum í
Kópavogi að Kringlunni í Reykja-
vík. Hjólreiöafólkiö verður allt
ræst á sama tima í gegnum út-
varpsstööina Bylgjuna, klukkan
14.00.
Öll fjölskyldan getur hjólað
Ekki er um keppnisfyrirkomulag
að ræöa og getur fjölskyldan sam-
einast í aö hjóla í þágu fatlaðra.
Þeir sem vilja þurfa ekki að hjóla
alla leiö en geta hjólaö hvaöan sem
er á móts viö hjólreiðafólk og vahö
sér þannig vegalengd við hæfi. Fé-
lagar úr Kvennadeild Styrktarfé-
lags lamaöra og fatlaðra verða til
staðar ásamt hjúkrunarfræöingum
til aö aðstoða fólk ef þörf er á. Stað-
irnir sem hjólað verður frá eru:
Árbæjarskóli, Hólabrekkuskóli,
Seljaskóli, Langholtsskóh, Mela-
skóli, Austurbæjarskóli og Byko
viö Nýbýlaveg í Kópavogi.
Safnað til sundlaugar-
byggingar
Fyrirtækin í Kringlunni greiöa 76
krónur fyrir hvern þátttakanda
sem hjólar í þágu fatlaðra en þátt-
takendur greiða ekkert. Allt fé sem
Öll fjölskyldan getur hjólað saman á sunnudaginn undir kjörorðinu „hjól-
að i þágu fatlaðra."
safnast rennur tii eflingar á
íþróttastarfi fatlaöra og til sund-
laugarbyggingar í Reykjadal í Mos-
fellssveit þar sem rekiö er sum-
ardvalarheimili fyrir fötluð börn á
aldrinum þriggja til fimmtán ára.
Hjólreiðadagurinn
endurvakinn
Á árunum 1981-1985 efndi Kvenna-
deild Styrktarfélags lamaöra og
fatlaðra til árlegs hjólreiöadags þar
sem hjólað var í þágu fatlaðra. Þá
var algengt að fjögur til fimm þús-
und manns tækju þátt í hjólreiða-
deginum. Nú hefur verið ákveðið
að endurvekja hjólreiöadaginn og
stefnt er að því að hann verði árleg-
ur viðburður á sem flestum stöðum
á landinu í framtíöinni.
Happdrætti og hressing
Hver þátttakandi fær viðurkenn-
ingu, barmmerki, fyrir þátttökuna
og gildir það sem happdrættismiði.
Að hjólreiðunum loknum fá þátt-
takendurhressingu og dregið verð-
ur um 10 vinninga. Mun þessi loka-
þáttur hjólreiöadagsins fara fram á
efra bílastæði Kringlunnar. Þeir
sem ekki treysta sér til að hjóla til
baka geta tekið sér far með Krfngl-
urútunum en þær munu aka fólki
til þeirra staða sem það lagði af
stað frá.
Allar nánari upplýsingar ásamt
leiðarlýsingum liggja frammi í
verslunum Kringlunnar.
Að stæla
stjöm-
urnar
- sjá bls. 19
Súrsætt
svínakjöt
- sjá bls. 18
Maímót
í bridge
- sjá bls. 19
Syningar
helgar-
innar
- sjá bls. 30
Baby
Boom í
Bíó- j
höllinni |
- sjá bls. 30 jj
—
Lögreglu-
kórar
Norður-
landa
skemmta
- sjá bls. 20
„Tíminn er mikilvægastur
Jóhann Evfells á listahátíð 1988
Á morgun, laugardaginn 28. maí,
verður opnuð í Gallerí Svart á
hvítu, Laufásvegi 17, sýning á verk-
um Jóhanns Eyfells. Sýningin er
hluti af dagskrá Listahátíðar 1988
sem hefst eftir viku. Þetta er fyrsta
atriðið sem opnað er á þessari
Listahátíð.
Jóhann Eyfells er fæddur árið
1923. Hann hefur verið búsettur í
Bandaríkjunum frá árinu 1946, að
undanskildum árunum 1965-1969
er hann kenndi í Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Jóhann nam
arkitektúr og myndlist við háskóla
í Bandaríkjunum og hefur síðan
1969 gegnt prófessorsstöðu við Uni-
versity of Florida í Orlando.
Jóhann hefur aðeins haldið eina
einkasýningu á íslandi áður en það
var árið 1961. Tvisvar sinnum
sýndi hann hér ásamt eiginkonu
sinni, Kristínu Eyfells, í Lista-
mannaskálanum. Þá var Jóhann
einnig einn af tíu gestum Listahá-
tíðar á Kjarvalsstöðum 1984. Hann
hefur tekið þátt í samsýningum
beggja vegna Atlantshafsins og
„Weightlessness", ein af pappírssamfellum Jóhanns.
haldið einkasýningar.
Á sýningunni í Gallerí Svai’t á
hvítu verða verk unnin úr pappír
og einn skúlptúr. Pappírsverk sín
kallar Jóhann „Paper Collaptions"
eða pappírssamfellur. Þessi verk
eru unnin þannig aö pappír er
pressaður undir þungu fargi í móti
úr ýmsum málmum. Mótið eða
stimpillinn ummyndar pappírinn.
Fargið, sem oft er sandur og blaut-
ur jarðvegur, hefur einrúg áhrif á
pappírinn. í viðtali við bandarískt
listtímarit segir Jóhann meðal ann-
ars um pappírsverk sín: „Tíminn
hefur alltaf veriö mikilvægur þátt-
ur í verkum mínum. Tímahugtakið
hefur fyrir mér alltaf v?rið torræð-
ara en rýmishugtakið eða orka.
Tíminn er mikilvægastur. í papp-
írsverkxmum virðist tíminn
skreppa saman og verða að engu...“
Sýning Jóhanns Eyfells verður
opin frá kl. 14-18 alla daga nema-
mánudaga og stendur hún til 15.
júní.
-gh