Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Blaðsíða 6
30
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir -
BíóhöIIin
Baby Boom
Baby Boom hefur aö mörgu leyti
sama þema og Þrír menn og bam.
Báöar em gamanmyndir og fjalla
um fólk sem fær barn óvart upp í
hendurnar án þess að hafa nokkra
reynslu af barnauppeldi.
Hin ágæta leikkona, Diane Kea-
ton, leikur J. C. Wiatt, metnaðar-
gjarna konu sem hefur langskóla-
nám að baki í viðskiptum, er í topp-
Diane Keaton og Sam Shepard i hlutverkum sínum í Baby Boom.
stöðu með himinhá laun. Hún býr
með bankamanni sem ekki síður
en hún er upptekinn af vinnunni.
Lifnaðarhættir þeirra breytast
snöggt þegar henni er tilkynnt að
hún sé eini ættingi þrettán mánaða
telpu. Algerlega reynslulaus í
barnauppeldi tekur hún til við að
ala telpuna upp...
Eins og í Þrír menn og bam er
litia telpan, Elizabeth Wiatt, leikin
af tvíburum, Kristina og Michelle
Kennedy. Voru þær valdar úr hópi
þrjú hundmð tvíbura. Myndinni
leikstýrir Charles Shyer og hand-
ritshöfundur er Nancy Myers.
Diane Keaton hefur ágætt lið leik-
ara með sér í Baby Boom. Ber fyrst
að nefna leikarann og leikskáldið
Sam Shepard sem leikur lækninn
Jeff Cooper. Annar leikari, sem
einnig er þekktur fyrir ritstörf, er
Harold Ramis. Leikur hann sam-
býlismann J.C. Þá má nefna þekkta
karakterleikara á borð við Sam
Wannamaker og Pat Hingle.
HK.
Háskólabíó
Sumarskólinn
Sjálfsagt er varla hægt að
ímynda sér sumarlegri kvikmynd
en Sumarskólann (Summer Scho-
ol) sem Háskólabíó hefur hafið sýn-
ingar á. Fjallar myndin um leik-
fimikennaraxm Freddy Shoop sem
tekur aö sér í sumarfríi á Hawaii
að hjálpa til við kennslu ungmenna
sem hafa ekki staðið sig of vel í
ensku. Shoop hefur takmarkaðan
áhuga á kennslunni og er því Robin
Bishop (Kirstie Alley), fallegur
sögukennari, betri hjálp en eng-
in...
Aöalhlutverkin leika Mark
Harmon og Kirstie Alley. Þau eru
ekki mjög þekktir leikarar. Sjón-
varpsáhorfendur ættu þó að kann-
ast við þau. Stutt er síöan Kirstie
Alley lék eitt aðalhlutverkið í sjón-
varpsmyndaflokknum North and
South og fyrir skömmu var sýnd
The Deliberate Stranger, tveggja
hluta sjónvarpsmynd þar sem
Mark Harmon lék eftirminnilega
fiöldamorðingjann Ted Bundy.
Þekktari er leikstjórinn Carl
Reiner. Hann hefur leikstýrt gam-
anmyndum í fiölda ára. Má þar
nefna Oh God, All of Me og The
Jerk. Honum leist svo vel á hand-
rit Jefís Franklins að hann hugsaði
sig ekki tvisvar um að taka að sér
verkið.
HK.
Mark Rarmon ásamt nemendum sínum i Sumarskólanum.
J. C. Wiatt (Diane Keaton) farast uppeldisstörfin ekki vel i fyrstu.
Laugarásbíó
Aftur til LA.
Laugarásbíó hefur nýhafið sýn-
ingar á gamanmyndinni Aftur til
L.A. (Bom in East L.A.). Leikstjóri
og aðalleikari er Cheech Martin
sem aðallega hefur getið sér frægð
sem annar helmingur Cheech og
Chong. Með félaga sínum Chong
lék hann í fiórum kvikmyndum en
Aftur til L.A. er sú fyrsta þar sem
hann er einn á ferð.
Aftur til L.A. fiallar um Mexíkó-
mann sem Cheech Martin leikur.
Hann býr í L.A. Fyrir misskilning
er hann sendur til Mexíkó sem
ólöglegur innflytjandi. Hann á í
hinum mestu erfiðleikum að losna
úr klandri þessu, þrátt fyrir að
hann tali ekki stakt orð í spönsku.
Myndin fiallar svo um kostulegar
aðferðir sem Cheech notar til að
sanna að hann er alvöru Banda-
ríkjamaður og langar mest til að
komast heim.
Sýningar
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustíg 2,
textílgallerí. Opið þriðjudaga til föstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Nes,
Nýjabæ v/Eiðistorg
Opnaöur hefur verið nýr sýningarsalur,
Gallerí Nes, í verslunarhúsnæði Nýja-
bæjar við Eiðistorg, III. hæð. Opið er
virka daga kl. 16-19 og laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
.Gallerí Svart á hvítu
Laugardaginn 28. maí verður opnuð sýn-
ing á verkum Jóhanns Eyfells. Sýningin
er hluti af dagskrá Listahátíðar 1988.
Opið er alla daga nema mánudaga kl.
14-18 og stendur sýningin tO 15. júní.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
í vestursal stendur yfir sýning sem ber
Jieitið „Böm hafa 100 mál“ sem kemur
frá borginni Regio Emilia á Ítalíu. Em
þar kynntar nýjar hugmyndir um list,
menningu og kennslu ungra bama. I
vesturforsal gefur að líta verk eftir böm
frá bamaheimilinu Marbakka. í austur-
sal er sýning á vatnslitamyndum hins
heimsfræga listamanns Gunthers Uec-
kers. Myndimar málaöi hann af Vatna-
jökli í íslandsferð sinni 1985. í austurfor-
sal er sýning í tengslum við Norrænt
tækniár. Sýnd em verk bama úr sam-
keppni er tengist norræna tækniárinu
ásamt ritgerðum úr samkeppni grann-
skólabama. Kjarvalsstaðir em opnir dag-
lega frá kl. 14-22. Sýningamar standa
yfir tO 29. mai.
Listasaín Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið aOa laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar em tO sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðaOega eftir yngri
Ustamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Safhið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-17. Sérfræðingur veitir leiðsögn um
sýningtma Aldarspegil á sunnudögum kl.
13.30-14.45. Mynd mánaöarins er kynnt
aUa fimmtudaga kl. 13.30. Kafiistofa húss-
ins er opin á sama tíma og safnið.
Mokkakaffi,
Skólavörðustíg
Nú stendur yfir á Mokkakafii sýning á
um það 30 ljósmyndum eftir Davíð Þor-
steinsson. Myndimar em allar teknar
inni á Mokka af gestum kafiihússins og
starfsfólki. Sýningin er haldin í tOefni af
30 ára afmæli Mokkakafíis. Sýningin
stendur fram i júni.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
Á morgun verður opnuð samsýning Text-
ílfélagsins. Sýningin er fimmta samsýn-
ing félaganna í ReykjavOt en einnig hafa
þau haldið samsýningar úti á landi. Það
em 14 félagsmenn sem eiga verk á sýn-
ingunni og em þau unnin með margs
konar tækni í mismunandi efni. Sýningin
stendur til 12. júní og er opin daglega kl.
14-22.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Haukur Dór sýnir teikningar og málverk
unnin á pappír og striga á sl. tveimur
árum. Sýningin, sem er sölusýning, er
opin virka daga frá kl. 10-18 og um helg-
ar frá kl. 14-18. Hún stendur tO 1. júní.
Nýlistasafnið
Robin Van Harreveld sýnir ljósmyndir í
Nýhstasafninu. Sýningin er opin virka
daga kl. 16-20 og kl. 14-20 um helgar.
Sýningin stendur tO 29. maí.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tima í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögmn og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Nú stendur yfir sýning á teikningum
skólabama í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Málverkasýning í anddyri
Landspítalans
Fánýtar stfiæfmgar misskOinnar lista-
konu heitir málverkasýning sem Harpa
Karlsdóttir heldur í anddyri Landspítal-
ans (1. hæð gengið inn frá Kringlu) og
stendur hún fram yfir mánaðamót. Þetta
er fyrsta einkasýning Hörpu.
Sýning í Gimli á Stokkseyri
Elfar Guðni sýnir í Gimli á Stokkseyri.
Þetta er þriðja sýning Elfars í þessu aldna
samkomuhúsi þeirra Stokkseyringa.
Myndirnar em víðsvegar af að landinu.
Meginefni myndanna em hestar. AOar
myndimar em málaðar með oliu á striga.
Þetta er 16 einkasýning Elfars. Hún er
opin um helgar kl. 14-22 og virka daga
kl. 20-22. Henni lýkur 5. júní.
Þrastarlundur
í Þrastarlundi stendur yfir sýning á verk-
um Ragnars Lár. Á sýningunni em 14
gvass- og vatnslitamyndir. Sýningin, sem
hófst um hvítasunnuna, stendur í þijár
vikur.