Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988.
19
Dansstaðir
BÍÓKJALLARINN
Lækjargötu 2, simi 11340.
Lifandi tónlist og diskótek um helg-
ina.
BROADWAY
Álfabakka 8, Reykjavík, simi 77500.
Broadway opnað í sumarskapi með
dúndrandi diskóteki og frábærum
uppákomum. Opið fóstudags- og
laugardagskvöld.
CASABLANCA
Skúlagötu 30.
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
DUUS-HÚS
Fichersundi, sími 14446.
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld. Tónleikar með Ellen Kristjáns
og Messoforte á sunnudagskvöld.
EVRÓPA
v/Borgartún.
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld. Stjörnustæling ’88 hefst í
kvöld. Heiöursgestur: Rina „Tum-
er“.
GLÆSIBÆR
Álfheimum.
Hljómsveit Andra Bachmanns leikur
gömlu og nýju dansana fóstudags- og
laugardagskvöld. Opið kl. 22.00-03.00.
HOLLYWOOD
Ármúla 5, Reykjavík.
Popphijómsveitin Náttúra leikur
klassík og rokk um helgina ásamt
hljómsveitunum Grand og Upplyft-
ingu.
HÓTELBORG
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440.
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, simi
82200.
Dansleikir fóstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Tískusýningar
öll fimmtudagskvöld. Opið frá kl.
19-01.
HÓTEL ÍSLAND
Ðe Lónlí Blú Bojs leika fyrir dansi
íostudags- og laugardagskvöld. Stór-
sýningin „Allt vitlaust" á laugar-
dagskvöld.
HQTELSAGA,
SULNASALUR
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221.
Lokað fóstudagskvöld. Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir
dansi laugardagskvöld. Pálmi Gunn-
arsson skemmtir.
LEIKHÚSKJALLARINN
Hverfisgötu.
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
LENNON
v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630.
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
LÆKJARTUNGL
Lækjargötu 2, simi 621625.
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
ÚTÓPÍA
Suðurlandsbraut.
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
VETRARBRAUTIN
Brautarholti 20, sími 29098.
Guömundur Haukur leikur og syng-
ur um helgina.
ÞÓRSCAFÉ
Brautarholti, s. 23333.
Hljómsveitin Burgeisar leikur um
helgina. Allra síðasta helgi fyrir sum-
ardagskrá.
ÖLVER •
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fóstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Markó Póló spilar
frá kl. 21 fimmtudaga til sunnudaga.
Kynning á
tölyunámi
Skýrslutæknifélag íslands
gengst fyrir kynningu á tölvunámi
sunnudaginn 29. maí klukkan
14-18. Kynningin er öllum opin og
fer fram í Menntaskólanum viö
Hamrahlíð.
Kynningardagur sem þessi er
orðinn árlegur viðburður í starfi
félagsins og er tilgangurinn að gefa
fólki kost á að afla sér upplýsinga
á einum stað um flest það sem til
boða stendur í tölvukennslu. Á
undanfórnum ánun hefur fjöldi
skólanema nýtt sér kynningu þessa
við ákvarðanatöku um nám í há-
skólum eða framhaldsskólum. En
auk skólanema nær kynningin til
fólks í starfi sem vill athuga hvaða
námskeið bjóðast hjá þeim fjöl-
mörgu aðilum sem veita ýms nám-
skeið á þessu sviði. Að þessu sinni
verður meðal annars kynnt nám-
skeið sem starfsþjálfun fatlaðra
stendur að.
Skýrslutæknifélagið telur að í
nútímaþjóðfélagi eigi einhvers
konar tölvukennsla erindi til
flestra. Æ fleiri störf krefjast ein-
hverrar þekkingar eða þjálfunar á
sviði tölva. Einnig eru mörg heim-
ili búin ágætum tölvukosti sem
notaður er til leikja og ýmissa við-
fangsefna sem örugglega gætu orð-
ið fjölbreytilegri ef þekkingin væri
meiri.
Kynnendur á kynningunni eru
frá háskólum, framhaldsskólum og
menntamálaráðuneytinu, svo og
mörgum fyrirtækjum og stofnun-
um sem halda styttri námskeið fyr-
ir aimenning. Þeir munu svara
spumingum varðandi tölvu-
fræðslu og kynningarbæklingum
verður dreift. -gh
Það eru margir skólar og aðilar sem bjóða upp á námskeið í tölvunotk-
un. Með kynningu sinni reynir Skýrslutæknifélagið að auðvelda mönnum
leiðina til að finna námskeið við sitt hæfi.
Göngudagur fyrir
alla fjölskylduna
Á sunnudaginn, 29. maí, verður Ferðafélag íslands með sérstakan
göngudag. Er þetta 10. árið í röð sem félagið gengst fyrir þessum degi.
Að venju er leitast við að velja gönguleið sem er við allra hæfi og um
leið forvitnileg.
Gangan hefst í brunanámu vestan við Krýsuvíkurveginn. Við suður-
enda námunnar er gata sem hefur verið rudd í gegnum Kapelluhraun
fyrir ævalöngu og kallast Hrauntungustígur. í gegnum úfið hraunið er
gengið eftir þessum stíg og eftir um það bil tíu mínútur er komið út úr
hrauninu og tekur þá svokallaður Almenningur við. Eftir rúmlega tutt-
ugu mínútna göngu í viðbót er komið að Gjáseli sem er þarna undir brún
Háaimennings. Smátúnkragi er í kringum tóftina sem enn er það greini-
leg að vel sést húsaskipan. í Gjáseli veröur gert hlé á göngunni og tekið,
upp nesti áður en haldið er til baka.
Þetta er kjörin gönguferð fyrir alla fjölskylduna og ákjósanleg leið til
þess að efla kynni hinna yngri við eigið land. Brottfór er kl. 13 frá Um-
feröarmiðstöðinni og er fólk á einkabílum einnig velkomiö. Ekkert kostar
að taka þátt í þessum 10. göngudegi Ferðafélags íslands.
Þessir þekktu spilarar verða meðal þátttakenda á maimótinu en spila
sinn í hverri sveitinni. Frá vinstri eru Valur Sigurðsson, Aðalsteinn Jörg-
ensen, Jón Baldursson og Ragnar Magnússon.
Bridge:
Maímót Sparisjóðs
Kópavogs og Bridge-
félags Kópavogs
Dagana 28.-29. maí verður haldin
sveitakeppni í bridge í Fannborg
2, Félagsheimili Kópavogs, og
verða óvenju glæsileg peninga-
verðlaun í boöi. Keppnisformið er
útsláttarkeppni með Sviss-fyrir-
komulagi (danskur Monrad) fyrir
þær sveitir sem tapa í útslættinum.
Allar sveitimar byrja í útsláttar-
keppni og þær sem tapa fara í
Monrad-keppnina þar sem sveitir
með svipaðan vinningsfjölda keppa
saman. Þannig munu þær sveitir,
sem tapa í útsláttarkeppninni, eiga
möguleika á verðlaunum eftir sem
áöur ef þær standa sig vel í
Monrad-keppninni. í lokin verða
aðeins tvær sveitir eftir taplausar,
en þær munu keppa um fyrsta og
þriðja sætiö. Efsta sveitin úr Sviss-
keppninni hlýtur annað sætið.
Verðlaunin fyrir fyrstu þrjú sæt-
in eru óvenju glæsileg eins og áður
sagði. Fyrir fyrsta sætið eru 120
þúsund krónur, 80 þúsund fyrir
annað sætið og 40 þúsund fyrir það
þriðja. Auk þess eru alls konar
aukaverðlaun þannig að samtals
nemur verðlaunaféð 300 þúsund
krónum. Sparisjóður Kópavogs
gefur fyrstu verðlaunin.
Spilamennska hefst kl. 13 og spil-
að verður til 19.30 bæði laugardag
og sunnudag. Keppnisstjórar verða
þeir Hermann og Olafur Lárussyn-
ir. Aðstaða er mjög góð fyrir áhorf-
endur sem ættu að fá eitthvað fyrir
sinn snúð því allflestir af sterkustu
spilurum Islands hafa skráð sig í
þessa keppni. Þó var ekki fullskráö
í þessa keppni þegar þessi grein var
skrifuð.
Eftirhennukeppm í Evrópu
Nú um helgina veröur efdrhermukeppni haldin í veitingahúsinu Evr-
ópu. Keppnin fer þannig fram að keppendur koma fram og reyna að líkja
sem best eftir uppáhaldspoppsljörnu sinni i útliti og látbragði. Lög með
viðkomandi poppstjömum verða leikin og keppendur spreyta sig á að
stæla stjörnurnar.
Undankeppnin verður á fóstudagskvöldið en úrslitin ráðast ekki fyrr
en upp úr miðnætti aðfaranótt sunnudags.
í tilefni keppninnar kemur bandaríski stjörnustælarinn Rina sérstak-
lega til landsins til aö skemmta að hætti Tinu Tumer. Mun hún koma
fram bæöi kvöld keppninnar. Dómnethd sker úr um hverjir standa sig
best og munu þeir tveir sem vinna hljóta aö launum helgarferð til Holl-
ands og aðgöngumiða á tónleika sem stórstjarnan Michael Jackson held-
ur á Feyenoord knattspyrnuleikvanginum í Rotterdam þann 5. júní næst-
komandi. Stjómandi keppninnar er Guðmundur Albertsson.
Hljómsveit André Bachmann.
Breytingar í Danshúsinu Glæsibæ
Lúðrasveit Þorlákshafnar mun standa fyrir tónlistarhátíð í Þorlákshöfn
á morgun, laugardaginn 28. maí, og kallast hátíðin Þorláksvaka. Ætlunin
er að flytja lifandi tónlist stanslaust í um það bil tólf klukkustundir.
Hátíðin hefst með skrúðgöngu og lúörablæstri kl. 13. Að því búnu hefst
tónleikahaldiö og koma fram fimm lúðrasveitir, tveir kórar, einleikarar,
trúbadorar og þijár popphljómsveitir. Ýmislegt annaö verður einnig til
skemmtunar. Má þar nefna pílukast, stígvélakast, stangveiöikeppni auk
þess sem ungviöinu gefst tækifæri til að bregða sér á hestbak. Hátíðin
mun að mestu leyti fara fram í 240 fermetra tjaldi og er hún fyrst og
fremst hugsuö sem fjölskylduhátið.
Að undanfomu hafa átt sér stað miklar breytingar í Danshúsinu
Glæsibæ. Búið er að stækka veitingasalinn og er nú hægt 'að taka þar
við um 400 manns í matarveislur. Nýjar innréttingar hafa verið settar
og nýlega var Hljómsveit André Bachmann fengin til að leika á staönum
út júlímánuð.
Ándré Bachmann, sem er trymbill og söngvari, er ef til vill einna þekkt-
astur fyrir starf sitt með dúettinum á Mímisbar undanfarin fimm ár. Nú
hefur hann fengið þá Carl Möller hljómborðsleikara og Gunnar Bernburg
bassaleikara til liös við sig og munu þeir félagar ekki láta sitt eftir liggja
við að kynda. undir dansinum í Danshúsinu Glæsibæ í sumar.