Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988.
Messur
Dómprófasturinn
Guðsþjónustur í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi sunnudag 29. maí 1988.
Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11 ár-
degis. Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. (Ath.
breyttan messutíma). Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Messa kl. 14. (Ath.
breyttan tíma). Fermd verður Guörún
Lilja Magnúsdóttir, Svíþjóð, Stigahlið 89,
Rvk. Altarisgariga. Organisti Daniel Jón-
asson. Aðalfundur Breiðholtssóknar
verður haldinn að guðsþjónustu lokinni.
Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Jónas Þórir. Sr. Ólafur Jó-
hannsson messar. Sr. Ólafur Skúlason.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Orgelleikur í
20 mín. fyrir messuna. Dómkórinn syng-
ur. Organleikari Marteinn H. Friðriks-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.
Sr. Árelíus Níelsson.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Presttm sr. Guðm. Karl Ágústssori.
Organisti Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Aöalsafnaðarfundur Hólabrekkusóknar
verður haldinn að iokinni messu.
Fríkirkjan í Reykjavík: Almenn guðs-
þjónusta kl. 14. Frikirkjukórinn syngur.
Organisti Pavel Smid. Aðalsafnaðarfund-
ur eftir messu. Sr. Gunnar Björnsson.
Grensáskirkja: Messa kl. 11. Organisti
Ámi Arinbjamarson. Sr. Halldór Grönd-
al.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjömsson. Þriðjudag: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beöið fyrir sjúk-
um.
Landspítalinn: Messa kl. 10, Sr. Ragnar
Fjalar Lámsson.
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Arngím-
ur Jónsson. Organisti Orthulf Prunner.
Hjallaprestakall í Kópavogi: Guðsþjón-
usta kl. 11 í messuheimili Hjallasóknar í
Digranesskóla. Sr. Kristján Einar Þor-
varðarson.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Langholtskirkja: kirkja Guðbrands
biskups. Hin árlega guðsþjónusta hesta-
manna verður á sunnudaginn kl. 11.
Hestamenn koma ríðandi td kirkju og
annast síöan flutning messunnar. í stól
veröur Baldur Jónsson, fyrrverandi vall-
arvöröur. Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Garðar Cortes og fleiri listamenn úr röð-
um hestamanna lyfta hug okkar í hæðir
með tónlist. Jón Sigurbjömsson og
Gunnar Eyjólfsson flytja lestra dagsins.
Jón Stefánsson verður við orgelið og Sig-
urður Haukur annast prestsþjónustu við
aítarið. Mönnum gefmn kostur á að
kaupa sér kjötsúpu áður en stigið verður
á gæðingana á ný. Tökum þátt í sér-
stæðri athöfn, þar sem beðið er fyrir dýr-
um, meira að segja gleymum við ekki
páfagaukum vina okkar í Hallgríms-
kirkju. Jón og Haukur.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Sóknarprestur.
Neskirkja: Laugardag: Suðurnesjaferð
félagsstarfs aldraðra. Lagt af stað frá
kirkjunni kl. 13.00 stundvíslega. Sunnu-
dag: Messa kl. 11. Orgel- og kórstjórn
Reynir Jónasson. Guðmundur Óskar Ól-
afsson. Þriðjudag og fimmtudag: Opið
hús fyrir aldraða kl. 13-17. Miðvikudag:
Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmund-
ur Óskar Ólafsson.
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00 ár-
degis. Dómprófastur sr. Ólafur Skúlason
visiterar Seljasöfnuð og prédikar í guðs-
þjónustunni. Altarisganga. Organisti
Kjartan Sigutjónsson. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. (Ath. breyttan messutíma). Organisti
Sighvatur Jónasson. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
Hafnarfjarðarkirkja: Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Helgi Bragason. Sr. Gunn-
þór Ingason.
Ferðalög
Útivistarferðir
Helgarferðir 27.-29. maí
1. Purkey - Breiðafjarðareyjar. Sann-
kölluö náttúmparadis. Tjaldað í eyjunni.
Gönguferðir. Sigling m.a. að Klakkseyj-
um. Aðeins þessi eina ferð.
2. Þórsmörk. Góð gisting í Útivistarskál-
unum Básum. Gönguferðir viö allra hæfl.
Uppl. og farmiðar á skrifstofu, Grófmni
1, simar 14606 og 23732.
Dagsferðir sunnudag 29. maí.
Strandganga í landnámi Ingólfs. 14.
ferð a og b. Kl. 10.30. Hunangshella -
Hafnir - Stóra-Sandvík. Gengið með
Ósabotnum um Hafnir, Hafnaberg og
Skjótarsstaði. Örnefnaríkt land. Verð 800
kr.
Kl. 13 Kalmanstjörn - Stóra-Sandvík.
Gengið um Kirkjusand og Hafnaberg.
Staðfróðir menn mæta í gönguna. Missið
ekki af strandgöngunni. Verö 800 kr. Frítt
f. börn m. fullorðnum. Brottfór frá BSÍ,
bensinsölu.
Kl. 10.30. Fuglaskoðunarferð á Hafna-
berg. Gengið verður frá Kalmanstjöm í
rólegheitum um Hafnaberg. Fjölbreytt
fuglalif. Leiðbeinandi Árni Waag. Hailð
sjónauka meöferðis. Verð 800 kr. Brottför
frá BSÍ, bensínsölu.
10. göngudagur Feröafélags íslands
Sunnudaginn 29. maí verður Ferðafélagið
með göngudag 10. árið í röð. Gengið verð-
ur í Kapelluhrauni sunnan Hafnarijaröar
eftir Hrauntungustíg, sem liggur frá
Krýsuvikurvegi aö Gjáseli, en þar verður
áð og síðan haldið til baka. Brottfór kl.
13 frá Umferðarmiðstöðinrú, austan-
megin. Allir velkomnir, félagar og aðrir.
Ókeypis ferð. Þátttakendur á eigin bílum
velkomnir í gönguna. Næg bílastæði
vestan við Krýsuvíkurvegmn.
<s
ARKLAmafiD©
GASGRILL m/kút og yfirbreiðslu
Verð kr.
14.500,-
Ath!
Aðeins örfá
grill eftir
TIL SYNIS OG SOLU
Dalshrauni 13, Hafnarfirði (Svansbakarí).
Opið laugardaga frá kl. 10-16.00.
i____ Sunnudaga frá kl. 10-16.00.
miw/A)
Sími 652575
Don Giovanni
Síðasta sýning
Nú fer hver að verða síðastur að sjá óperuna Don Giovanni eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart hjá íslensku óperunni. Ákveðið hefur verið að
hafa eina aukasýningu á verkinu og verður hún í kvöld, fóstudaginn 27.
maí.
Þetta er síðasta tækifærið fyrir óperuunnendur að sjá þennan flutning
verksins því það verður ekki tekið aftur upp að hausti.
-gh
Gallerí Gijót:
Höggmyndasýning
Páls frá Húsafelli
Snorri Kristleifsson, DV, Borgarfirði:
Páll Guðmundsson frá Húsafelli
opnar höggmyndasýningu í Gallerí
Grjóti í Reykjavík fóstudaginn 27.
maí kl. 18. Myndefnið er blandað
mannamyndum og alls konar
kynjamyndum sóttum í fomsög-
urnar. Þær hefur hann höggvið í
rautt, blátt og gult grjót sem finnst
á Húsafelli.
Páll er fæddur árið 1959 og alinn
upp á Húsafelli, sonur hjónanna
Ástríðar Ágústsdóttur frá Húsafelli
og Guðmundar Pálssonar frá
Hjálmsstöðum í Laugardal. Hann
stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskólann auk þess sem
hann hefur dvahö í Þýskalandi viö
nám.
I Vesalingunum skiptist á Ijóðræn fegur
Páll er heljarmenni að burðum og lætur sér ekki muna um að hand-
fjatla hnullungana þótt þeir sigi svolítið í. DV-mynd Snorri
Vesa
sýninj
Nú fer hver að verða síðastur að sjá
söngleikinn Vesalingana eftir Victor
Hugo því hann verður ekki á ijölunum
næsta vetur. Sýningar verða á fostu-
dags- og laugardagskvöld nú um þessa
helgi en tvær síðustu sýningarnar verðá
um næstu helgi.
Söngleikurinn byggir á sívinsælli sögu
Victors Hugo, sem verið hefur kveikja
aö mörgum leikgerðum og kvikmynd-
um. Höfundar söngleiksins eru Álain
Boubhl og Claude-Michel Schönberg
I
Tónleikar
Tónleikar í Heita pottinum
Ellen Kristjánsdóttir heldur tónleika í
Heita pottinum, Duus húsi, nk. sunnu-
dagskvöld kl. 22. Með Ellen munu leika
valinkunnir tónlistarmenn, þeir Messo-
fortesveinar, Eyþór Gunnarsson, Friörik
Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann
Ásmundsson.
Skólakór Kársness
í tónleikaferð
Skólakór Kársness fer í tónleikaferð
norður í land um helgina. Kórinn mun
halda tónleika í Akureyrarkirkju laugar-
daginn 28. maí kl. 15, í Húsavíkurkirkju
sunnudaginn 29. maí kl. 14 og í Skjól-
brekku, Mývatnssveit, sunnudagskvöld-
ið kl. 20.30. í kómum eru 40 söngvarar á
aldrinum 11-17 ára en stjómandi þeirra
er Þórunn Bjömsdóttir.
Vortónleikar samkórs
Trésmiðafélags Reykjavíkur
Nk. laugardag, 28. mai, kl. 14.30 heldur
Samkór Trésmiðafélags Reykjavíkiu'
sína árlegu tónleika. Tónleikamir verða
í Breiðholtskirkju í Mjódd. Sungin verða
innlend og erlend lög undir stjóm Guð-
jóns Böðvars Jónssonar við undirleik
Lám Rafnsdóttur. Kórinn er nú að ljúka
sínu 16. starfsári.
FÉLAGSSTARF ALDRAÐRA Í REVKJAVÍK
SUMARFERÐIR 1988
í sumar eru áætlaðar 14 ferðir innanlands á vegum
Félagsstarfs aldraðra hjá Reykjavíkurborg. Upplýs-
ingar eru veittar í Fréttabréfi um málefni aldraðra, sem
borið verður út til allra Reykjavíkinga, 67 ára og
eldri, á næstunni, og í Hvassaleiti 56-58 í síma
689670 og 689671, þar sem tekið er á móti pöntun-
um.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Ljósin í lagi
- lundin góð
Slík áhrif hafa
rétt stillt Ijós
í umferðinni.