Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1988, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 27. MAl 1988.
31
• ísland og ítalia eigast við á Laugardalsvelli á sunnudagskvöldið i undankeppni ólympíuleikanna í knatt-
spyrnu. íslendingar léku gegn Portúgal í sömu keppni fyrr í vikunni og máttu þola ósigur. Á myndinni sjást
íslendingar sækja að marki Portúgala. DV-mynd Brynjar Gauti
w. »
CUÍJ CAPIi |
Stórstjömur ítala
á Laugardalsvelli
Stórviðburöur helgarinnar á
íþróttasviðinu verður án efa lands-
leikur íslands og ítala í knatt-
spyrnu á Laugardalsvelli á sunnu-
dagskvöldið kl. 20.00. Leikur þjóð-
anna er liður í undankeppni
ólympíuleikanna en leikurinn er
sá síðasti í b-riðli keppninnar.
ítölum nægir jafntefli í leiknum til
að tryggja sér sæti á ólympíuleik-
unum í Seoul. ítalir erujafnir Aust-
ur-Þjóðverjum að stigum fyrir
þennan leik, báðar þjóðir hafa hlot-
iö 11 stig.
ítalir leggja að vonum mikiö upp
úr þessari viðureign og koma hing-
að til lands með sitt allra sterkasta
lið. Margir af bestu knattspyrnu-
mönnum ítala eru í ólympíuliðinu
og þeirra á meðal eru fjórir leik-
menn í liði AC Milano sem tryggði
sér ítalska meistaratitilinn fyrir
skemmstu og má þar nefna
Colombo, Tassotti, Ancelotti og
Virdis. Einnig eru leikmenn úr hð-
um eins og Juventus, Napoli og
Sampdoria.
Þjálfari liðsins er enginn annar
en Dino Zoff sem er einn af bestu
markvörðum sem uppi hafa verið.
Tæknilegur ráðunautur liðsins er
Enzo Bearzot sem er aðalþjálfari
A-hðs ítala sem tekur þátt í úrshta-
keppni Evrópukeppninnar sem
fram fer í júní í Vestur-Þýskalandi.
ítalskir íjölmiðlar sýna leiknum
mikinn áhuga og koma hingað til
lands um 30 ítalskir blaðamenn og
að auki verður leiknum sjónvarpaö
beint til Ítalíu.
Ekkert leikið í 1. deild en
alltáfullu í2. deild
Ekkert verður leikið 1. dehd um
helgina vegna landsleiks íslands
og Itala en hins vegar verður leikið
af fullum krafti í 2. deild en þá fer
fram önnur umferð deildarinnar.
Tveir leikir eru á dagskrá í kvöld.
Á Selfossi leika heimamenn gegn
Þrótti en bæði þessi lið töpuðu sín-
um leikjum í fyrstu umferö. Á
Kaplakrikavelli í Hafnarfiröi taka
FH-ingar á móti KS frá Siglufirði.
Báðir leikirnir hefjast kl. 20.00.
Á morgun verða þrír leikir, ÍR
leikur gegn Breiðabliki í Laugar-
dal, Tindastóh tekur á Víði frá
Garði á Sauðárkróki og Fylkir og
Vestmannaeyingar leika á Fylki-
svelh. AUir leikirnir hefjast kl.
14.00.
3. deild
í 3. dehd leika eftirtahn lið saman
á laugardag kl. 14.00: Grótta-Vík-
verji, Njarðvík-Reynir S, Stjarn-
an-ÍK, Afturelding-Grindavík,
Magni-Einherji, Dalvík-Huginn,
Hvöt-Þróttur N, Sindri-Reynir Á.
4. deild
í 4. dehd leika eftirtalin hö sam-
an:
Árvakur-Ernir kl. 17.00, Hauk-
ar-Ægir kl. 14.00, Hveragerði-
Ármann kl. 14.00, Víkingur ÓL-
Hafnir kl. 14.00, Æskan-Vaskur kl.
14.00, UMSE b-Neisti kl. 14.00, HSÞ
b-Kormákur kl. 14.00.
Vormót Kópavogs í frjálsum
íþróttum
Vormót Kópavogs í frjálsum
íþróttum verður haldiö á Kópa-
vogsvehi á morgun og hefst kl.
14.00. í karláflokki verður keppt í
100 m og 1000 m hlaupi, kúluvarpi,
spjótkasti og langstökki.
I kvennaflokki verður keppt i 100
m og 600 m hlaupi, kúluvarpi, spjót-
kasti og langstökki.
Skráning keppenda fer fram á
Kópavogsvelh kl. 13.00 á morg-
un.
Opna Dunlop-mótið í golfi fer
fram í Leiru
Opna Dunlop-mótið veröur hald-
ið á Hólmsvelli í Leiru á morgun
og á sunnudag. Byrjaö veröur að
ræsa út kl. 9 í fyrramálið. Leikinn
veröur 36 holu höggleikur með og
án forgjafar.
Verðlaun eru glæsileg eins og
venjulega og gefandi er Austur-
bakki h/f. Skráning fer fram í síma
92-14100 eða í golfskálanum í Leiru.
-JKS
SJÚKRAHÚS PATREKSFJARÐAR
FRAMKVÆMDA-
STJÓRI
Staða framkvæmdastjóra við sjúkrahúsið á Patreks-
firði er laus til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsing-
um um menntun og fyrri störf þurfa að hafa borist
fyrir 30. júní nk. Nánari upplýsingar gefur formaður
sjúkrahússtjórnar, Úlfar Thoroddsen, í síma 94-1221,
vinnusími.
Sjúkrahús Patreksfjarðar
24. maí 1988
KJÖTIÐNAÐARMENN - KJÖTIÐNAÐARMENN
FÉLAGSFUNDIR
verða haldnir í Reykjavík, á Hótel Loftleiðum, Kristal-
sal, sunnudaginn 29. maí 1988 kl. 14.00 og á Akur-
eyri í matsal kjötiðnaðarstöðvar KEA 28. maí 1988
kl. 10.00 fyrir hádegi.
Dagskrá:
Atkvæðagreiðsla um fyrirliggjandi kjarasamning.
önnur mál.
Fjölmennum á fundina
Stjórn FÍK
NISSAN PATROL
TURBO DÍSIL ÁRG. 1987
High roof, lengri gerð, 6 cyl. Nissan vél, 5 gíra, ekinn
26 þ. km, útvarp og segulband, vökvastýri, breið
dekk og spoke felgur, brettakantar, litur hvítur. Ath.
skipti á nýlegum ódýrari bíl. ath. skuldabréf.
Verð 1590 þús.
„Þegar ég var í Samvinnu-
skólanum var aldrei mein-
ingin að fara til starfa hjá
Sambandinu," segir Magn-
ús Friðgeirsson, nýráðinn
forstjóri lceland Seafood
Corporation, í helgarviðtal-
inu á morgun. Magnús er
staddur um þessar mundir í
Bandaríkjunum að kynna
sér starfið áður en lagt verð-
urafstað. Fjölskyldan fer
utan í ágúst en áður þarf
að finna húsnæði. Magnús
segirað húsGuðjóns B. Ólafssonargæti komið
til greina. Meira um Magnús á morgun.
„Við munum ekki
sætta okkurvið að
missa hlustun. Okkar
takmark er að vera á
toppnum," segir Ólaf-
ur Hauksson útvarps-
stjóri íopnuviðtalivið
helgarblaðiðámorg-
un um uppgang
Stjörnunnar.
Hann
segireinnig aðfram-
tíðarstefnan sé sú að
slá út fréttastofu ríkis-
útvarpsins. Bjartsýnn maður, Ólafur, nú þegar
vika er í að vinsælasta útvarpsstöðin verði árs-
gömul.
r^O't^uy\/
Það varð uppi fótur og
fit í sundlaugunum í
Laugardal erfegurðar-
drottning Islands, Linda
Pétursdóttir, mætti í bik-
ini þar í vikunni. Sóldýrk-
endur gteymdu sólinni
eitt augnablik og karl-
mennirnir fylgdust með
hverri hreyfingu fegurð-
ardísarinnar. Við sjáum
myndir af uppákomunni
í sundlaugunum í helgar-
blaðinu á
morgun, frásögn og viðtal. „Þetta var bara skemmti-
legt," sagði hin nýkrýnda þegar ungir herramenn
höfðu kastað henni upp í loftið nokkrum sinnum
og gripið hana auðvitað jafnóðum aftur.