Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1988, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1988.
53
íkenazys
kvæmdastjómar, og margir þeirra
hátíðargesta, sem mestur fengur hef-
ur þótt að, hafa beinlínis fengist
hingað fyrir hans tilstilli. Síðan 1982
hefur hann verið heiöursforseti
Listahátíðar í Reykjavík og er hann
eini maðurinn sem slíkan titil hefur
bonð.
Á efnisskránni á tónleikunum á
laugardag eru verkin Novelette nr. 8
og Davidsbundlertánze eftir Robert
Schumann, og Tvær noctumur op.
62 og Sónata (nr. 3 eftir Frédéric
Chopin.
inn
ur fengiö fjölda verðlauna fyrir leik
snm.
Á efnisskránni á tónleikunum á
sunnudag verður Kvartett í G-dúr,
K.387 eftir Mozart, Kvartett nr. 1
eftir Janacek og Kvartett í B-dúr,
op. 130 og Grosse fuga op. 133 eftir
Beethoven.
jngkona
iljómsveitinni
vakti hann athygli umheimsins fyrir
frammistöðu sína í Karajan-keppn-
inni árið 1975. Á síðastliðnu ári var
hann ráðinn aðalstjómandi og list-
rænn framkvæmdastjóri Fílharmón-
íuhljómsveitarinnar í Kraká í Póll-
andi.
Á efnisskránni á tónleikunum á
sunnudag eru verk eftir W.A. Moz-
art. Ambroise Thomas og Felix
Mendelssohn.
IÍStdhdtlðl
Iena Cronqvist í
Á listahátíö efnir Norræna húsið
til sýningar á verkum sænsku lista-
konunnar Lenu Cronqvist í sýning-
arsölum hússins.
Sendiherra Svíþjóðar, Per-Olof
Forshell, opnar sýninguna á laug-
ardag, 18. júní, kl. 15.00.
Lena Cronqvist er fædd i Karl-
stad í Sviþjóð árið 1938. Hún stund-
aði nám við Konstfackskolan
1958- 59 og við Konsthögskolan
1959- 64. Hún hefur haldiö fjölda
sýninga í heimalandi sínu, sem og
annars staöar.
Nina Weibull listfræðingur held-
ur fyrirlestur um list Lenu Cron-
qvist í fundarsal Norræna hússins
laugardaginn 18. júní kl. 16.30. Sýn-
ingin stendur til 10. júli.
-gh
Viðey með
sundum
- myndlistarsýning í eynni
A morgun, fóstudaginn 17. júní,
opnar Rósa Ingólfsdóttir myndlistar-
sýningu úti í Viðey í skála Hafsteins
Guömundssonar.
Myndirnar eru unnar með blýanti
og vatnslitum og sýna allar atburöi
sem tengjast sögu Viðeyjar frá fyrri
öldum, einkum við siðaskipti er Dið-
rik frá Minden og menn hans fóm í
ránsferð sína í Viðeyjarklaustur.
Myndimar vora gerðar árið 1984 og
notaðar í heimildarmynd Sjónvarps-
ins, Viöey með sundum. Þær eru í
eign Reykjavíkurborgar sem lánar
þær á sýninguna.
Rósa Ingólfsdóttir lauk prófi frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1968. Hún stundaði einnig leik-
listar- og söngnám og gaf út hljóm-
plötu árið 1972. Hún var ráðin fyrsti
teiknari Sjónvarpsins og starfaði þar
á fyrstu árum þess. Síðar hóf hún
störf hjá Sjónvarpinu á ný og hefur
hún nú verið þar í 10 ár.
Samhhða sýningunni úti í Viðey
er upplestur Ævars R. Kvaran spil-
Myndir Rósu Ingólfsdóttur segja
sögu Viöeyjar.
aður af bandi. Þar er ágrip af sögu
Viðeyjar í gegnum aldirnar. Sýning-
in veröur opin virka daga kl. 11.30-
16.30 og um helgar kl. 13-18. Hún
mun standa til 17. júlí. Út í Viðey
má komast með báti Viðeyjarferða
frá Sundahöfn.
Útivistarferðir
Dagsferðir föstudag 17. júní.
1. KI. 8 Þórsmörk - Goðaland. Einsdags-
ferö kr. 1.30. Einnig tilvalin ferð til lengri
dvalar.
2. Kl. 13 Skálafell v/Esju. 6. ferð í Fjalla-
hringnum. Verð 850 kr. Létt fjallganga á
gott útsýnisfjall. Brottfór írá BSÍ, bensín-
sölu. Frítt f. böm m. fullorðnum.
Sunnudagur 19. júni
Kl. 8 Þórsmörk-Goðaland. Einsdags-
ferð kr. 1.300. Stansað 3-4 klst. í Mörk-
inni.
Kl. 10.30 Fjallahringurinn 7. ferð. Heng-
ill-Innstidalur. Verð 900 kr. Góð fjalla-
ganga.
Kl. 13 Innstidalur-ÖIkeldan. Létt ganga
um litríkt svæði Hengladala. Verð 850 kr.
frítt f. böm með fullorðnum. Brottfor frá
BSÍ, bensínsölu. Sjáumst.
Tónleikar
Jón Páll í Heita pottinum
Nk. sunnudagskvöld leikur tríó gítarleik-
arans Jóns Páls Bjamasonar í Heita pott-
inum. Jón Páll er staddur hér í stuttu
fríi, en hann býr og starfar í Los Angel-
es. Með Jóni leika þeir Tómas R. Einars-
son á kontrabassa og Birgir Baldursson
á trommur. Tónleikamir hefjast kl. 21.30.
Lokadagar Listadjassins í
Djúpinu
Síðkvöldsdjassinn sem dunað hefur í
Djúpinu v/Hafnarstræti á hveriu kvöldi
síðan 6. júní stendur enn í tvo daga, fóstu-
dagskvöldið 17. og laugardagskvöldið 18.
júni. Þessi kvöld koma fram saxófónleik-
arinn Sigurður Flosason, gitarleikarinn
Jón Páll Bjamason og bassaleikarinn
Tómas R. Einarsson. Tónleikamir standa
bæði kvöldin frá kl. 22-01.
Finnski karlakórinn Vantaan
Laulu
Vikuna 18. til 25. júní nk. dvelur finnski
karlakórinn Vantaan Lauiu hér á landi.
Kórinn mun halda þrenna tónleika með-
an á dvölinni stendur. Verða fyrstu tón-
leikamir í Langholtskirkju sunnudaginn
19. júní, aðrir tónleikamir verða í Nor-
ræna húsinu mánudaginn 20. júní og
þriðju og síðustu tónleikarnir verða í
kirkjunni á Selfossi fimmtudaginn 23.
júní. Allir tónleikamir hefjast kl. 20.30.
Stjómandi kórsins er Teppo Salakka.
Efnisskrá kórsins spannar mjög vítt svið
tóniistar, alit frá miðalda tónverkum til
nútíma tóniistar. Söngmenn kórsins í
þessari ferð em 33 talsins.
Hljómleikaferð „Anno Dom-
ini“
Anno Domirif eða A.D. eins og hún er
gjaman köliuð er bandarísk að uppruna
en hijómsveitarmeðlimir aiiir em nú
búsettir í Evrópu og em á stöðugu ferða-
lagi um álfuna tii hijómleikahalds. A.D.
hefur skapað sér sérstakan og kröftugan
stíl sem nær að hrífa með sér alla þá sem
á hlýða. Hljómsveitin er skipuð sjö tón-
hstarmönmun: John Bowers, söngur og
gítar, Diana Bowers, söngur, Kim Peter-
son, söngur, sax ög hijómborð, Jeanne
Peterson, söngur og gítar, Michael
Blackler, söngur, hljómb. og gítar, Jim
Jenkins, söngur, sax, hijómb. og ásláttur
og Fred Stmtton söngur, bassi og hljóm-
borð. Hljómsveitin hefur verið á ferð um
landið undanfarið. í Reykjavík verða tón-
leikar í Gamla bíói laugardaginn 18. júní
kl. 21. Einnig mun hljómsveitin koma
fram á útitónleikum á Lækjargötu þann
17. júni kl. 21 í sambandi við þjóðhátíðina.
Leikhús
Þíbilja
sýnir Gulur, Rauður, Grænn og Blár í
kjallara Hlaðvarpans sunnudaginn 19.
júní kl. 16 og mánudaginn 20. júni kl.
20.30.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir söngleikinn Síldin er komin eftir
Iðunni og Kristínu Steinsdætur í kvöld
kl. 20 og í allra síðasta sinn á laugardags-
kvöld.
Sýningar
Árbæjarsafn
í sumar stendur yfir sýning um Reykja-
vik og rafmagnið. Auk þess er uppi sýn-
ing um fomleifauppgröftinn í Viðey
sumarið 1987. „Gömlu" sýningamar,
m.a. um gatnagerð, slökkviliðið, hafnar-
gerð og járnbrautina, em að sjálfsögðu á
sínum stað. Opið kl. 10-18 alla daga nema
mánudaga. Veitingar í Dillonshúsi frá kl.
11-17.30.
Sími 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
Opið aiia daga nema mánudaga kl.
13.30-16.
Ásmundarsalur
Freyjugötu 41
Þar stendur yfir sýningin Byggt í Berlin.
Sýningin er framlag Arkitektafélags ís-
lands til Listahátíðar 1988 og er hún opin
frá kl. 14-19 alla daga og stendur tii 19.
júni.
Bókakaffi
Garðastræti 17
Haildór Carlsson og Þóra Viihjálmsdóttir
sýna Ijósmyndir á Bókakaffi. Myndefnin
á sýningunni em héðan og þaðan og
stendur sýningin til 25. júni. Bókakaffi
er opið virka daga kl. 9-22, laugardaga
kl. 10-22 og sunnudaga kl. 14-22.
Gallerí List
Skipholti 50,
í Gallerí List verða til sýnis og sölu í júni,
júlí og ágúst verk eftir Braga Hannesson,
Erlu B. Axelsdóttur, Hjördisi Frímann,
Sigurð Þóri, Elías B. Haiidórsson, Helgu
Ármanns, Guðmund Karl, Tolla, Svein
Bjömsson, Ingunni Eydal og fl., einnig
rakú og keramík.
Grafík Gallerí Borg
Austurstræti 10
í glugga grafik-gallerísins stendur nú yfir
kynning á graflkmyndum eftir Hörpu
Björnsdóttur og keramikverkum eftir
Daða Harðarson. Auk þess er til sölu
úrval grafíkmynda eftir Qölda hsta-
manna.
Grafík Gallerí Borg
Austurstræti 10
í glugga grafíkgallerísins stendur nú yfir
kynning á grafikmyndum eftir Hörpu
Björnsdóttur og keramikverkum eftir
Daða Harðarson. Auk þess er til sölu
úrval grafíkmynda eftir fjölda lista-
manna.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Þar stendur yfir sýning á verkum Þor-
valds Skúlasonar. Á sýningunni em um
10 oliumálverk auk nokkurra gvass-
mynda, vatnshtamynda og teikninga.
Flestar myndanna á sýningunni em til
sölu. Opið er virka daga kl. 10-18 og frá
kl. 14-18 laugardaga og sunnudaga. Sýn-
ingunni lýkur 21. júní.
PIZZA-
ELDOFN TIL SÖLU
Ef þú ert svo Ijónheppinn að lesa þessa auglýsingu
eigum við til sölu ítalskan pizza-eldofn í frábæru
standi. Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 688836.
' / Rakarast / Simi 127 f/ — --^(jlárgreidsl f JE \ f jTíijiapantanir ofan Klapparstíg 25 jstofan Klapparstíg 13010
ATHUGIÐ!
Smáauglýsingadeild DV
er opin í dag, fímmtudag
16. júní, kl. 9-22
Lokað: Föstudag 17. júní
Laugardag 18. júní
Opið: Sunnudag 19. júní
kl. 14-22
W WSWkW KEMURNÆSTÚT
Wr MÁNUDAGINN 20. JÚNÍ
FÁm
STAÍVGIR
FÁNASTANGIR
ÚR ORGON P/NE
TRÉSMÐAÞJÓNUSTA
SLIPPFÉLAGK)
Vernd og viðhald eigna
Myrargata2, sími 28811 - 10123