Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1988, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1988.
55
íþróttir helgarinnar:
KR og Fram mætast
í kvöld í Laugardal
• Boltinn i netinu hjá KA mönnum í leik þeirra gegn KR-ingum á dögunum. Bæði þessi liö verða í sviðsljósinu
í kvöld.
í kvöld eru tveir leikir í fyrstu
deildinni í knattspymu. KA og Þór
mætast Á Akureyri og í Laugar-
dalnum er stórleikur umferöarinn-
ar en þar mætast KR og Fram.
Báðir þessir leikir hefjast klukkan
20.
Einn leikur er í 2. deild. FH og
Vestmannaeyjar mætast á Kapla-
krikavelli í Hafnarflrði klukkan 20
en þessum leik var frestað í síðustu
viku.
í 1. deild kvenna leika Valur og
KR og fer sá leikur fram á Hlíðar-
enda. Badmintonfélag Ísaíjarðar og
Fram mætast síðan á laugardag,
einnig í 1. deild kvenna.
Heilumferðí2.deild
á sunnudag
Á sunnudagskvöld leika Vík-
ingur og Valur í 1. deildinni á Laug-
ardalsvellinum og er það fyrsti
leikurinn í 6. umferð. Heil umferð
verður leikin í 2. deild. í Vest-
mannaeyjum leika heimamenn við
ÍR-inga og hefst leikurinn klukkan
20. Á sama tíma leika Fylkismenn
og Tindastóll í Árbæ og munu Fylk-
ismenn vígja nýjan grasvöll. Þrótt-
arar taka á móti FH-ingum á Val-
bjamarvelli og er sá leikur einnig
klukkan 14. Um kvöldið verða tveir
leikir. Víðir og Breiðablik leika í
Garði klukkan 20 og Siglfirðingar
taka á móti Selfyssingum á sama
tíma. Þá fara einnig fram fjölmarg-
ir leikir í neðri deildunum um helg-
ina.
Evrópukeppnin
á fullri ferð
Hápunktur helgarinnar fyrir
knattspymuaðdáendur er síðan
Evrópukeppnin. í dag er frí hjá hö-
unum og því enginn leikur á dag-
skrá en á morgun leika Vestur-
Þjóðverjar viö Spánverja og ítalir
mæta Dönum. Síðarnefndi leikur-
inn veröur sýndur beint klukkan
15.15. Á laugardag fáum við síðan
að sjá leik Englendinga og Rússa í
íslenska Sjónvarpinu.
-RR
Fimleikanámskeið á Laugavatni
20 - 24. júní fyrir börn og unglinga frá 8-15 ára.
A-námskeið fyrir þjálfara 18.-20. júní.
Dómaranámskeið í almennum fimleikum
18. og 19. júní.
Þjálfaranámskeið í almennum fimleikum 22. og 23.
júní, sími 83123, 83402, 43323.
Fimleikasamband íslands
Vefnaðarvara
Tilboð óskast í laka- og koddaveraefni fyrir Ríkisspít-
ala.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, Borgartúni
7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð þann 12. júlí nk.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
_______BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Okkur vantar hjúkrunarfræðing til starfa nú þegar til
lengri eða skemmri tíma.
Fríar ferðir og íbúðarhúsnæði til staðar.
Skjólgarður er elli- og hjúkrunarheimili með 46 íbú-
um.
Allar upplýsingar gefa Amalía Þorgrímsdóttir hjúkr-
unarforstjóri og Ásmundur Gíslason staðarhaldari,
símar 97-81221 og 97-81118
SKJÓLGARÐUR,
Höfn, Hornafirði
BoðsmótTaflfélags Reykjavíkur 1988
hefst að Grensásvegi 46 mánudaginn 20. júní kl. 20.
Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi þannig:
1. umferð mánudag 20. júní kl. 20
2. umferð miðvikudag 22. júní kl. 20
3. umferð föstudag 24. júní kl. 20
4. umferð mánudag 27. júni kl. 20
5. umferð miðvikudag 29. júní kl. 20
6. umferð föstudag 1. júlí kl. 20
7. umferð mánudag 4. júlí kl. 20
Öllum er heimil þátttaka í boðsmótinu.
Umhugsunartími er 1 Vi klst. á fyrstu 36 leikina en síðan
Vi klst. til viðbótar til að Ijúka skákinni. Engar blðskákir.
Skráning þátttakenda fer fram í síma Taflfélagsins á kvöld-
in kl. 20-22. Lokaskráning verður sunnudaginn 19. júní
kl. 19-22.
Taflfélag Reykjavíkur
Grensásvegi 44-46, R.
Símar: 8 35 40 og 68 16 90
Það eru ekki allir, sem gera sér grein
fyrir því að um allt land er í gangi lif-
andi og fjörleg blaðaútgáfa. Þarna er
auðvitað átt við landsmálablöðin svo-
kölluðu. Þau eru með ýmsu sniði. Sum
þeirra eru óháð, en önnurflokkspóli-
tísk, sum stór í sniðum en önnur minni.
Nú eru á fimmta tug blaða og dag-
skráa gefin út um land allt. í Lífsstíl á
mánudag verður leitast við að gera
grein fyrir þessari blaðaútgáfu.
Blómafrjókorn hafa mik-
ið verið auglýst að und-
anförnu. Er þá gjarnan
rætt um ótrúlega eigin-
leika þeirra sem fæðu-
bótarefnis. I Lífsstíl á
mánudag verðurfjallað
um þessa eiginleika og
álitvísindamanna á
þeim.