Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1988, Side 8
56
FIMMTUDAGUR'1'6: JtJNÍ 1088.
ick'A
Af dansandi kroppum
DIRTY DANCING
Útgefandi: JB myndbönd
Leikstjóri: Emile Ardolino. Handrit:
Eleanor Bergstein. Aðalhlutverk:
Patrick Swayze og Jennlfer Gray.
Bandarisk 1987. 100 min. öllum leyfð.
Þaö er ekki nema von aö ungling-
ar, hvar sem er í heiminum, flyk-
kist á þessa mynd. Hún sýnir lag-
lega dansandi kroppa í „heitum“
atriöum, inniheldur rómantíska
ástarsögu, hvetjandi lög og einfald-
an en þokkalega sannfærandi sögu-
þráö. Þá er tæknivinna lýtalaus
(sem hún auðvitað á alltaf aö vera
en það er nú eins og þaö er). Þetta
er formúla sem hefur veriö lengi
kunn en tekist misjafniega að út-
færa. Það eru margar myndir sem
fylgja þessari uppskrift en af nýrri
myndum má nefna Saturday Night
Fever, Grease og Flashdance, allt
myndir sefn byggja á sömu arð-
bæru formúlunni.
Myndin gerist um 1960 og lýsir
sumarleyfissiöum bandarískra
millistéttarfjölskýldna! Líklega
hefur þó danskryddinu verið beitt
ærlega en heldur á ég erfitt meö
aö trúa aö bandarískir unglingar
hafi fiktaö við jafh „heitan“ dans
eins og í myndinni sést.
í sveitina kemur hugguleg vísi-
tölufjölskylda (Bandaríkjamenn
voru á undan okkur að finna hana
upp) sem inniheldur pabba,
mömmu og tvær ungar og ólofaöar
systur. Þær eru dálítið ólíkar og
önnur ákaflega alvarlega þenkj-
andi ung stúlka (Jennifer Grey).
Svo fer þó að lokum aö hún fellur
fyrir aðalhjartaknúsaranum
(Patrick Swayze) og um leiö og ást-
arsaga þeirra er rakin fléttast inn
í myndina flókin sambönd eins og
tíökast í sumarbúðum.
Eins og áður segir eru vinsældir
myndarinnar meðal imglinga með
ólíkindum. Það er ekki endilega
vegna þess hve góð eða frumleg
hún er. Skýringarinnar er líklega
miklu fremur að leita í snjallri
markaðssetningu og, eins og áöur
sagði, vandaðri vinnu á þekktri
smellaformúlu.
-SMJ
©]
Einstök geimferð
INNERSPACE:
Úlgefandi: Steinar.
Leikstjóri: Joe Dante.
Aðalhlutverk: Dennis Quaid, Martin
Short og Meg Ryan.
Bandarisk, 1987 - sýningartími: 120 min.
Innerspace er nokkuð sérkenni-
leg ævintýramynd. Myndin segir
frá ferðalagi geimskips um manns-
líkamann. Það er Steven Spielberg
sem stendur að baki þessarar
ágætu skemmtimyndar.
Að minnka geimskip og áhöfn og
senda í leiðangur um mannslíkam-
ann er samt ekki ný hugmynd þótt
frumleg sé. 1966 var gerð kvikmynd
sem hét Fantastic Voyage og fiall-
aði einmitt um ferð geimskips inn
í mannslíkamann. Þótti sú mynd
nokkuð vel heppnuð
Það sem Innerspace hefur fram
yfir þá mynd er fyrst og fremst
nútímatækni kvikmyndanna, sem
hefur fleygt mikið fram, og fyndið
handrit án þess þó að húmorinn
fari út í öfgar.
Dennis Quaid leikur tilrauna-
flugmann sem á að verða fyrstur
manna til að minnka í örveiru-
stærð. Á að senda hann í geimskipi
inn í kanínu. Vegna óvæntrar
uppákomu lendir haim í líkama
Martin Short, sem leikur taugavei-
klaðan afgreiðslumann sem heldur
að hann sé að verða vitlaus þegar
hann heyrir rödd sem ávarpar
hann...
Þaö eru margir sem vilja hafa
hendur á hári þeirra félaga og snýst
myndin um flótta þeirra og kapp-
hlaup við tímann því súrefnis-
birgðir Quaid eru af skomum
skammti.
Innerspace er vel heppnuð ævin-
týramynd sem flestir ættu að hafa
gaman af. Ekki skemmir góður
leikur aöalleikaranna Denis Quaid,
Martin Short og Meg Ryan. Eru
þau hvert öðru betra.
HK.
★★★
Lánlitlir innbrotsþjófar
THE POPE OF GREENWICH VILLAGE
Útgefandi: Steinar.
Leikstjóri: Stuart Rosenberg.
Aðalhlutverk: Mickey Rourke, Eric Ro-
berts og Daryl Hannah.
Bandarísk, 1984 - Sýningartími: 116
min.
Mickey Rourke og Eric Roberts
sýna snilldartakta í hlutverkum
tveggja ítalskættaöra smákrimma
í The Pope of Greenwich Village
og má sjá þar hvers vegna þeir eru
meðal eftirsóttustu kvikmynda-
leikara í dag.
í byrjun myndarinnar era þeir
þjónar á litlum veitingastað, en
vegna óheiðarleika annars þeirra
eru þeir báðir reknir. Félagarnir,
sem eru mjög ólíkir að eðlisfari,
eiga þó eitt sameiginlegt. Báðir eru
peningalausir og sjá ekki fram á
bjarta framtíð í þeim málum.
Þegar öðrum þeirra dettur í hug
að fremja rán, veröur freistingin
því þeim, sem heiðarlegri er, of
mikil. Hafa þeir upp úr krafsinu
mikla peningaupphæð. Þaö sem
aðeins annar þeirra vissi var að
peningamir voru í eigu glæpafor-
ingja eins, sem ekki sættir sig við
að vera rændur. Byrja nú vanda-
mál þeirra félaga fyrir alvöru...
The Pope of Greenwich VUlage
er geysivel gerö kvikmynd, sem er
bæði spennandi og dramatísk. Per-
sónur eru skarpar og vel gerðar frá
hendi höfundar og meö slíka gæða-
leikara og Roberts og Rourke eru,
þá verður myndin heilsteypt lýsing
á lífi tveggja ólíkra félaga sem eru
blóðskyldir, ekki alltof gáfaðir en
komast þó frá erfiðleikunum í lokin
með hálfreist höfuð.
HK.
frl
Á tímamótum
THAT’S LIVE
Útgefandi: JB myndbönd.
Leikstjórl: Blake Edwards. Framleiö-
andi: Tony Adams. Handrit: Milton
Wrexler og Blake Edwards. Tónlist:
Henri Mancini. Aöalhlutverk: Jack
Lemmon, Julle Andrews, Saliy Keller-
man og Robert Loggla.
Bandarlsk 1987.101 min. Bönnuö yngri
en 12 ára.
Blake Edwards er einn af afkasta-
meiri kvikmyndaleiksfiórum og
hefur oft náö aö gera ágætismynd-
ir. Líklega er hann kunnastur fyrir
myndir sínar um Bleika pardusinn
þar sem Peter Sellers bjó til eina
af fyndnustu persónum kvik-
myndasögunnar. Edwards hefur
ávallt unnið mikið við handrit
mynda sinna og svo er einnig hér.
Edwards virðist hggja tölvert á
hjarta hér í þessari mynd en alvar-
legur tónn hefur verið að færast í
síðustu myndir hans. Hann ákveð-
ur þó að láta grínið fylgja með og
svipar efnistökum hans bara ansi
mikið til Woody AUen.
Myndir segir frá arkitekt nokkr-
um (Lemmon) sem á sextugsaf-
mæh en á í dáhtlum erfiðleikum
með að sætta sig við þaö. Kona
hans (Andrews) óttast að hún sé
með krabbamein, bömin koma í
heimsókn og hafa einnig sín vanda-
mál, þannig að þetta verður að dá-
lítilli vandamálamynd. Það jaðrar
við dálítið væminn tón í öllu þessu
vandamálaharki en Edwards
sleppur þó fyrir hom og myndin
er því þokkaleg að horfa á. Aðal-
leikaramir eiga án efa fiölda aðdá-
enda sem ættu varla að verða fyrir
vonbrigðum með þá hér. Reyndar
hættir þeim dáhtið til að ofgera en
það fylgir oft sfiömuhlutverkinu.
-SMJ
Grettukeppni í sumarbúðum
ERNEST GOES TO CAMP
Útgefandi: Bergvík
Leikstjórl: John R. Cherry. Framleiö-
andi: Stacy Williams. Aöalhlutverk: Jim
Varney.
Bandarisk, 1987. 88 min. Úllum leyfö.
Ekki veit ég til hvaða aldurshóps
þessi mynd á að höfða en varla
getur það verið til neinna vits-
munavera. Það er nefnilega eins
og einfrumungur hafi skrifað
handrit myndarinnar og froskur
leikstýrt henni.
Hér birtist á skjánum einhvar sá
hræðilegasti grettumeistari (Jim
Vamey) sem undirritaður hefur
séð og er þá Rodney Dangerfield
(Back to School) meðtahnn. Þessi
herfilega gretta hefur hópað til sín
ungum ofleikurum sem ákaflega
htið er gert til að halda aftur af.
Söguþráður myndarinnar er í
stuttu máh sá aö glataöur náungi
(Vamey) fær hóp vandræðaungl-
inga til sín í sumarbúðir og í sam-
einingu sigrast þeir á eigin vanda
og annarra. Um leið fá ahir góðu
gæjamir umbun en vondu gæjam-
ir skell! Já, svona gengur lífið fyrir
sig, en líklega verður aö vara fólk
við að eyða tíma sínum á þessa
mynd og það jafnvel þótt hún sé
af Walt Disney fiölskyldunni.
-SMJ
Lúxus-
lifnaður
í Las
Vegas
YOU RUINED MY LIFE
Útgefandl: Bergvik.
Leikstjóri: David Ashwell.
Aóalhlutverk: Soleil Moon Frye, Paul
Reiser og Mimi Rogers.
Bandarísk 1987 - Sýningartimi: 90 min.
Eins og flestar kvikmyndir frá
Walt Disney fyrirtækinu er You
Ruined My Life gamanmynd og það
sem enn meira einkennir leiknar
Disney myndir, krakkar eru í aðal-
hlutverkum.
í þetta skiptið er bamið vand-
ræðagemlingurinn Minerva sem
býr hjá frænda sínum á lúxus-
hóteh hans í Las Vegas. Hún er
sérlega ódæll krakki og hefur
frændi hennar sent hana í marga
skóla en hún send jafnharðan heim
aftur vegna óláta.
Til Las Vegas flækist ungur
kennari sem telur sig hafa fundið
óbrigðult ráð til að græða peninga
í spilavítum borgarinnar. Þegar
það tekst ekki og hann er kominn
í stórskuld, fær hann það tilboð að
skuldin fymist ef hann getur kennt
Minervu bæði bóklegan skólalær-
dóm og almenna mannasiði. Hann
telur það í fyrstu létt verk en kemst
fljótt á aðra skoðun.
You Runied My Life hefur marga
kosti góðra gamanmynda. Hraöinn
er góður og handritið ágætlega
skrifaö. Einn stór gahi er þó á gjöf
Njarðar. Aðaheikkonan, hin unga
SoleU Moon Frye sem leikur Min-
ervu, er einfaldlega ekki nógu góð
leikkona. Krakkinn bægslast
áfram án þess að fá áhorfendur til
að brosa að látunum í sér og það
dregur úr gæðum annars ágætrar
gamanmyndar.
HK