Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1988, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1988, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988. Fréttir Deitt um sameiningu svettarfélaga í Dalasýslu: „Unnið að þessu með frekiu og yfírgangi“ Skoðanakönnun; 68 prósent „Þetta er slæmt mál og þaö er unn- iö aö þessu meö frekju og yfirgangi. Við viljum vera í friði með okkar sveitarfélag. Þama er Laxárdals- hreppur aö ýta á með frekju vegna fjárhagsvandræða. Stjómvöld em sifellt með áróður og það er vand- ræðamál hvemig Reykjavík hagar sér gagnvart landsbyggðinni. Viö fáum ekkert fjármagn, höldum ekki bílnúmerunum og stöndum svo uppi án nokkurs sveitarfélags. Tal um hagvæmni er kjaftæði. Þeir halda að þeir fái meira fé úr jöfnunarsjóði, en ég efast um það,“ sagði Þorsteinn B. Pétursson, oddviti í Fellsstrandar- hreppi, í viðtali við DV þegar samein- ing hinna átta sveitarfélaga Dala- sýslu bar á góma. Bætti hann því við að viö samein- ingu yrði embættismannavald í Búð- ardal er stjómaði öllu í sýslunni og yrðu íbúar htlu sveitarfélaganna þá áhrifalausir um gang mála. Meira af kappi en forsjá Baldur Gestsson, fyrrverandi odd- viti Klofningshrepps, sem hefur sam- einast Fehsstrandarhreppi vegna fólksfæðar, tók í sama streng. „Það er betra ef fleiri fjalla um málin en færri og við höfum ahtaf getað unnið saman. Ég er á móti umbyltingum í stjómkerfinu. Þetta á að þróast samfara fólksfækkun í sveitunum en sveitarfélög, sem hafa færri íbúa en 50 í þrjú ár, eiga að sameinast því næsta samkvæmt sveitastjómarlögunum. Þama er unnið meira af kappi en forsjá,“ sagði Baldur. Orðrómi um að oddvitar vUdu halda í oddvitatitiUnn vísuöu báðir á bug. Væra menn oft nauðugir í þessu embætti þar sem fáir vUdu. Þor- steinn kaUaði þetta svívirðUegan áróður sameiningarsinna. -hlh „Etja þétt- býji og dreif býli saman“ m „Þama er verið að etja þéttbýU og dreifbýU saman. Það þjónar engum tilgangi. Þetta er samtengt. DreiíbýU og þéttbýU era hér mjög háð hvort öðra, ekki síst vegna fólksfæ''ar. Fólksfæðin hefur svo aftur orsakað að erfiðlega hefur gengið að koma saman hreppsnefndum, tíl dæmis í Hörðudalshreppi," sagði Sigurður Rúnar Friðjónsson, oddviti Laxár- dalshrepps. Sigurður sagði sameiningu sveitar- félaganna vera orðna mikiö tilfinn- ingamál andstæðinga sameiningar- innar og stuðningsmanna þeirra. Væri búið að ræða þessi mál á fiölda funda og því ekki um frekju og yfir- gang að ræða af hálfu þeirra er vUdu sameiningu. - En er Laxárdalshreppur að hugsa um eigin fjárhagsstöðu með sameiningu? „Samkvæmt gögnum frá Hagstof- unm um eignir og skuldir sveitarfé- laganna hér þá standa þau mjög svip- að. Viö skuldum mikið en eram á móti með mestu eignimar. Þó að tvö sveitarfélög samþykki ekki að sam- einast munum við engu að síður ná okkar meginmarkmiðum og öU sfjómsýsla veröur hagkvæmari og markvissari. í dag höfum við 34 sveit- arstjómarmenn en þeir verða milU 7 og 11 eför sameiningu. Verða þá embættismenn í fiUlu starfi að sinna verkefnum sem þeir sinntu með öðra starfi áður.“ -hlh Svona kemur kjörseðillinn til með að lita út þegar gengið verður að kjör- borðinu á laugardaginn og valinn forseti. Kosningaundirbúningurinn er nú kominn á lokastig og stuðningsmenn beggja biða í ofvæni. DV-mynd GVA sameiningu Samkvæmt skoðanakönnun, sem nefnd fiUltrúa sveitarfélag- anna átta, sameininganefiidin, i Dalasýslu framkvæmdi fyrir skömmu, er meirihluti kjósenda í Dalasýslu fylgjandi þvi að sveit- arfélögin átta verði sameinuð. Sendir vora út atkvæðaseðlar þar sem aUt atkvæðisbært fólk var spurt hvort það væri hlynnt sameiningu sveitarfélaganna og átti aö svara játandi eða neitandi Alls voru 674 atkvæðaseðlar sendir út og sáu björgunarsveit- armenn um að safna þeim saman. Uppskera þeirra varð 490 seðlar, eða um 74 prósent svörun. Svöruðu 68 prósent játandi, 28 prósent voru á móti og 5 prósent tóku ekki afstöðu.. Eins var spurt um hvort fólk væri fylgjandi einu, tveimur eöa þremur sveitafélögum í Dala- sýslu og var yfirgnæfandi meiri- hluti fylgjandi einu sveitarfélagi. „Niöurstööumar taka af allan vafa um viöhorf fólks til samein- ingarinnar. Reyndar er erfitt að draga ályktanir af seinni spum- ingunni þar sem fólk á aö velja milli eins, tveggja eða þriggja sveitarfélaga. Var sú spuming ekki nógu vandlega oröuö og hefði getað leitt til misskilnings. Annars höfðu allir jafnan mögu- leika á aö svara þar sem björgun- arsveitarmenn söfnuðu atkvæða- seðlunum saman,“ sagði Sigurð- ur Rúnar Friðjónsson, oddviti Laxárdalshrepps, en hann er formaður sameiningarnefhdar- innar 1 Dalasýslu. -hlh Um 174 þúsund em á kjórskrá í forsetakosningunum: Færri hafa kosið utan kjörstaða „Þaö hafa um 3900 kosið utan kjör- staða hér í Reykjavík, en það er held- ur minna en var síðast," sagði Jónas Gústafsson borgarfógeti. í forsetakosningunum fyrir átta árum greiddu 6.495 atkvæði utan kjörstaða eða um 12,7% af þeim sem greiddu atkvæði. Nú þegar tveir dag- ar era til kosninga era einungis um 5,7% kjósenda í Reykjavík búnir að greiða atkvæði utan kjörstaða. Virð- ist kjörsókn þvi vera dræmari en áður. Alls mun kjörskrárstofninn telja 176.527 kjósendur en Hagstofan áætl- ar aö endanlega muni 173.800 vera á kjörskrá. Af þeim munu 4.700 vera að kjósa í fyrsta skiptið en kosninga- rétt hafa þeir sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag. Kjörfundur mun standa yfir frá kl. 10-23 og mun fólk eiga að greiða atkvæði í samræmi við lögheimili þann 1. desember 1987. Að sögn Jóns Thors í dómsmálaráöu- neytinu er framkvæmd kosninganna ekkert frábrugðin öðrum kosning- um. jfj Heimsbikamiótið í Betfort: Með sigur gegn Short i nesti - Jóhann teflir við heimsmeistarann Kasparov í dag Jóhann Hjartarson vann skák sína við enska stórmeistarann Nig- el Short í 7. umferð heimsbikar- mótsins í Belfort í Frakklandi sem tefld var í gær. Short gafst upp eft- ir 36 leiki er algjört hrun blasti viö. Með sigrinum tókst Jóhanni að þoka sér upp úr neðsta sætinu. Hann hefur hotið 2,5 vinninga en hollenski stórmeistarinn Jan Tim- man er neöstur með 2 v. Öllum skákum 7. umferðar lauk með jafntefli nema skák Jóhanns við Short og skák Húbners við Nogueiras, sem fór í bið. Ribli og Karpov undirrituðu friðarsamn- ingana eftir stutta baráttu en mesta spennan var í tafli Spasskys og Kasparovs, þar sem stíft var sótt á báða bóga. Kasparov og Ehlvest era efstir að loknum 7 skákum með 5 v. en Karpov, Spassky og Sokolov, sem vann biöskák sína við Timman á þriðjudag, koma næstir með 4 v. Ribh, Ljubojevic, Andersson og Beljavsky hafa hlotið 3,5 v., Hubner hefiir 3 v. og biðskák, Jusupov, Speelman og Short hafa 3 v., Nogu- eiras 2,5 og biðskák, Jóhann 2,5 og Timman 2 v. Þriðji sigurinn gegn Short Jóhann tefldi í gær sína bestu skák á mótinu til þessa. Hann hafði hvítt í spænskum leik og tókst að hagnýta sér skemmtilega óvar- kárni Shorts, sem lét hjá líöa að foröa kóngi sínum úr skotlínu lang- drægs biskups. Jóhann vann peð og óvæntur riddaraleikur sló síðan Englendinginn út af laginu. Short reyndi aö flækja stöðuna með því að fóma drottningu sinni en Jó- hann vandaði sig og innbyrti vinn- inginn af öryggi. Þetta er þriðji sigur Jóhanns gegn Short á rúmu ári en oftar hafa þeir ekki teflt. í öllum skákunum hófu þeir taflið með spænskum leik. Jó- hann hafði svart á IBM-mótinu í Reykjavík í febrúar í fyrra en hvítt á alþjóðamótinu í Belgrad sl. haust. Short náði undirtökunum í báðum þessum skákum en Jóhann náði að snúa vöm í sókn. í dag á Jóhann erfitt verkefni fyr- ir höndum: Svart gegn heimsmeist- aranum Garrí Kasparov. Nú er að sjá hvort skákin í gær gefur honum byr undir báða vængi. Sigur gegn Short hlýtur a.m.k. að teljast gott veganesti. Skák Jón L. Árnason Hvitt: Jóhann Hjartarson Svart: Nigel Short Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rbd2 Bf8 12. a3 g6 Nú skiljast leiðir frá skák þeirra í Reykjavík í fyrra en þar hafði Jóhann svart og lék 12. - h613. Bc2 Rb8 og síöan Rbd7, sem er algeng tilfærsla riddarans í þessu afbrigöi. Leikmáti Shorts er nýstárlegur. Hann reynir strax aö skapa sér gagnfæri kóngsmegin en gefur Jó- hanni fijálsar hendur á drottning- arvæng. 13. Ba2 Bg7 14. b4 h6 15. Bb2 Rh5!? 16. d5 Re717. Rb3 Hf818. c4 bxc419. Ra5 Bc8 20. Hcl f5? Jóhann er að ná þrýstingi eftir c-línunni og Short telur sig engan tíma mega missa. En hann fer of geyst í sakimar. Nauðsynlegt er að undirbúa atlöguna með því að víkja kóngnum í homið. 21. exf5 Rf4 22. Hxc4 Svarið við 22. fxg6 yrði 22. - Rd3 með skiptamunarvinningi. 22. - Bxf5 8 I 7 m iö i 4 i 6 1 A 11 Aii 4 B 2 * 3 A A (*) (V) 2 M, A A mn & abcdefgh 23. Rxe5! Þaö var einmitt á þessum reit sem Ehlvest fómaði gegn Jóhanni í 6. umferö, eins og við sáum í DV. Biskupinn á a2 er lykilmaðurinn. Ef 23. - dxe5 (eða 23. - Bxe5 24. Bxe5 dxe5), þá kemur 24. Hxf4! exf4 25. d6 með fráskák og riddarinn fellur. 23. - Bxh3 Nú gengur ekki 24. gxh3? Rxh3 + og svartur nær kröftugri sókn. Short yfirsást hins vegar næsti leikur Jóhanns, sem er mjög sterk- ur. 24. Rb7! Riddaraleikur úr óvæntri átt! Short líst nú ekki á 24. - Db8 25. Rd7! Bxd7 26. Bxg7 Hf7 27. Bal (eða 27. Bxh6 Rxg2!?) en engu að síður hefði hann mátt reyna þetta, því að með 27. - g5! til að svara 28. Dd4 með 28. - Reg6 hefði hann getað veitt kröftuga mótspymu. í stað þessa reynir hann að flækja taflið með því að gefa drottningu sína fyrir hrók og léttan mann en færi hans verða aldrei Edvarleg. 24. - Dc8? 25. Rxd6! cxd6 26. Hxc8 Bxc8 27. Dd2 g5 28. Rc6 Rf5 29. Bbl Rh4 30. He7 Rh5 31. Bxg7 Rxg7 32. Dc3 Rhf5 33. g4! Rxe7 34. Rxe7+ Kf7 35. Bg6+ Kxe7 36. Dxg7+ Og Short gafst upp, því að Hf8 fellur óbættur. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.