Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. 9 Fjöldamorð Blóöugar ættflokkadeilur í afríska ríkinu Burundi, sem hafa nú staðið yfir í viku, hafa orðið a.m.k. fimm þúsund manns að bana samkvæmt upplýsingum herforingjastjórnar- innar í Bujumbura. Fréttir eru óljósar frá Burundi en að sögri erlendra fréttaskýrenda er hér um að ræða fjöldamorð þar sem aðeins einn deiluaðila er vopnum búinn. Deilumar standa á milli tutsi ættflokksins, sem er í minnihluta í landinu en í hans höndum eru öll völd, og hutu ættflokksins en til hans teljast um 85 prósent landsmanna. Áð sögn utanríkisráðherra Bur- undi hófust deilurnar þegar útlægir íbúar Burtmdi snem heim á nýjan leik með þeim ásetningi að steypa stjóminni af stóli. Landið, sem fékk sjálfstæði frá Belgíu fyrir um tuttugu ámm, hefur logað í ættbálkadeilum í mörg ár. Að sögn utanríkisráðherra Rwand- an, grannríkis Bumndis, hafa tæp- lega fjömtíu þúsund íbúar Burundi, flestir af hutu ættbálki, flúið yfir landamærin síðan blóðugar deilur hófust þann 14. ágúst sl. Hann sagði að flóttamennirnir fengju tímabund- ið dvalarleyfi en að þeir yrðu að snúa aftur heim. Að sögn vestrænna stjómarerindreka hefur utanríkis- ráðherrann leitað á náðir flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna til að aðstoða fólkið viö að komast aftur til síns heima. Þetta eru blóðugustu róstur í Bur- undi síðan árið' 1972 þegar talið er Að sögn flóttamanna frá Burundi ráðast hermenn herforingjastjórnar tutsi ættbálksins á menn, konur og börn og myrða þau. Símamynd Reuter að tíu þúsund manns hafi látið lífið. Flóttamenn í Rwanda segja að með- limir tutsi ættflokksins og hermenn stjórnarhersins gangi um og stráfelli menn, konur og böm og lík fórnar- lamba fljóta niður ána Akanyaru sem liggur á landamæmm Burundi og Rwanda. Kastar skugga á friðarumleitanir Forseti Zimbabwe, Robert Mugabe, sagði á fréttamannafundi í gær að hann efaðist um vilja ríkis- stjórnar Suður-Afríku til að koma á friði í Angóla og Namibíu. Ummæli forsetans, sem fram komu á alþjóöaráðstefnu um mál- efrii flóttamanna í suðurhluta Afr- iku, hafa kastað skugga á friðarum- leitanir í Angóla og Namibíu en fulltrúar Suöur-Afríku, Kúbu og Angóla munu koma saman til fund- ar síöar í vikunni til aö ræða frek- ari friðarviðræður í Angóla. Mugabe sagöist ekki treysta stjórnvöldum í Suður-Afríku til aö skipta sér ekki af innanríkismálum Namibíu þegar nýlendan fengi sjálfstæði. Friðarumleitanir í Angóla og Namibíu hófust í maí sl. Búist er við að aðalumræðuefni næsta fundar, sem haldinn verður í Brazzaville, höfuöborg Kongó, verði hvenær kúbanskir hermenn hefji brottflutning hetja sinna frá Angóla. Einnig raunu fulltrúarnir ræða um hvenær Namibía hijóti fulla sjálfstjórn í samræmi við ályktun Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var árið 1978. Á ráðstefnunni um málefni flóttamanna, þar sem Mugabe efað- ist um tilraunir til friðar í Angóla og Naraibíu, kom fram að rúmlega ein miUjón manna hefur flúið heimili sín í suðurhluta Afríku. Framsögumenn á ráöstefriunni vörpuöu sökinni margir hveijir á stjórnvöld í Suður-Afríku sem þeir sögðu að væru að reyna að grafa undan efnahag nágrannaríkjanna. Hriktir í stoðum stjómarinnar Óeirðirnar í Burma, sem oröiö hafa þess valdandi að tveir leiðtogar landins hafa sagt af sér embætti, hafa hrist ærlega upp í sósíalista- flokki landsins sem verið hefur ein- ráöur í stjórnmálum í rúman aldar- fjórðung. Nú hriktir í stoöum ríkis- stjórnar Maung Maung, fyrrum dómsmálaráðherra, og telja margir vestrænir stjórnarerindrekar að hætta sé á aö þriðji leiðtogi Burma hrökklist frá völdum. Mótmælendur flykktust út á götur Rangoon, höfuðborgarinnar, í morg- un þrátt fyrir vilyrði stjórnarinnar um að sett yrði á laggimar nefnd sem kanna ætti vilja almennings. Al- menningur í Burma telur að nefnd þessi þjóni ekki nokkrum tilgangi, að sögn stjórnarerindreka í Rangoon. Leiðtogar mótmælenda segjast ætla að standa fyrir fjöldamótmæl- um á hveijum degi og safnaðist mik- ill mannfjöldi saman fyrir framan bandaríska sendiráðið í Rangoon og krafðist lýðræðis. Stjómarhermenn umkringdu þúsundir stúdenta, munka og annarra sem safnast höfðu saman fyrir framan landsspítalann í Rangoon. Vestrænir stjórnarerind- rekar í Burma segjast búast við því að mótmælin haldi áfram næsstu daga, jafnvel vikur. Maung Maung, sem tók við völdum af Sein Lwin í síðustu viku, berst við að reyna að ná stjórn á róstunum. Þessar róstur, sem staðið hafa yfir frá því í vor, eru þær mestu sem sós- íalistaflokkur Burma hefur þurft aö horfast í augu viö. Ekki hafa borist fregnir af mann- falli í þeim óeiröum sem hófust eftir aö Sein Lwin lét af embætti. Talið er að allt aö þrjú þúsund hafi fallið síðan rósturnar hófust en samkvæmt tölum hins opinbera létu 112 lífið og 267 særðust. Útlönd Á ferð og „friðarfiugi“ Javier Perez de Cuellar, aðalrit- ari Sameinuöu þjóöanna, býr sig nú undir viðræöur á tvennum víg- stöðvum, sem hann vonast til aö endi meö lausn á tveimur af erfið- ustu deilumálunum á alþjóöavett- vangi. í þessari viku hefjast við- ræður milli írana og íraka í Genf, við handleiðslu aðairitarans, og einnig viðræður tyrkneskra og grískra Kýpurbúa, sem de Cuellar hefur átt frumkvæði að. Búist er við að viðræöur írana og íraka verði bæði langvinnar og erfiöar. Þrátt fyrir vopnahlé í styrj- öldinni, sem staðið hefur í átta ár milli ríkjanna tvcggja, þuifa báðir aðilar að slá mikið af til að endan- legur friður náist. Þrátt fyrir þaö var de Cuellar bjartsýnn á árangur þegar hann kom til Genf í gær, en kvaðst þó ekki telja að öli vandamál í sam- við fréttamenn i Genf í gær. skiptum ríkjanna yrðu leyst á fá- símamynd Reuier einum mánuðum. Aðalritarinn reynir einnig í þessari viku að efna til viöræöna sem leitt gætu til sátta í deilu Tyrkja og Grikkja um Kýpur. Vonast hann til að sú alda „sátta og samninga", sem gengiö hefur.yfir heiminn undanfariö, . nái til Miðjarðarhafseyjarinnar og vísar í því til samninganna um Afgan- istan, afvopnunarsáttmála stórveldanna, vopnahlésins í Angóla og ann- arra atriða. Leiötogi grískra Kýpurbúa, George Vassiliou, kom í gær til Genf þar sem hann á aö hitta leiðtoga Tyrkja á eynni, Rauf Denktash, i Evrópumið- stöð Sameinuðu þjóöanna. Munu leiötogamir snæöa þar saman hádegis- verö. Útgöngubann í Póllandi Bandaríski teiknarinn LURIE telur „úrbætur“ þær sem pólsk stjórnvöld heita næsta litilvægar miöaö við þvingunaraðgerðirnar sem fylgja. Stjórnvöld í Póllandi heimiluðu í gær að sett yrði á útgöngubann á þeim svæðum þar sem verkföll standa nú yfir. Um er aö ræöa þrjú svæöi í landinu,- en þar standa nú þau umfangsmestu verkföll sem gripið hefur verið til frá því herlög voru sett í Póllandi árið 1981 til þess að berja nið- ur óánægju verkamanna. Innanríkisráðherra Póllands, Czeslaw Kiszczak, tilkynnti ákvöröun þessa í sjónvarpi í gær. Ákvörðunin var tekin eftir að lögregla haföi gert árás á þrjár flutninga- miöstöðvar í borginni Szczecin í norö-vesturhluta landsins og dregið þar á brott verkfallsmenn sem tekiö höföu miöstöðvamar herskildi. Umfangsraestu verkfólhn standa í Lenin-skipasmíðastööinni í Gdansk, í Wroclaw og Poznan. Viðræður líklegar Talið er liklegt aö samningaviðræður milli Suöur-Kóreu og Norður- Kóreu hefjist að nýju innan tiðar. í gær var tilkynnt að sinn fulltrúinn frá hvoru ríki myndu hittast til að skipuleggja frekari umræður um hlut Norður-Kóreu að ólympíuleikunum sera hefjast í Seoul í næsta mánuði. Talsraaöur stjórnarinnar í Suöur-Kóreu sagði í gær aö líklega myndu fulltrúarnfr tveir hittast á morgun. ' Viöræður rikjanna tveggja í síöustu viku urðu ekki árangursnkar og lauk. þeim án nokkurs sámkomulags. » v •• ' " - ' • *v-*>4 ».*-• - v' .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.