Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
sendiherrahjónunum
Eftir sjómennsku í áratugi:
Lýður Ægis gefur út eigin plötu
Timothy
Dalton
- sem fór með hluverk ofurmenn-
isins 007 í „Living Daylights" -
leikur nú í annarri og, eftir því
sem sögur herma, sinni síðustu
James Bond mynd. Myndin mun
vera tekin upp í Mexíkóborg. Að
sjálfsögðu verður íjöldi fagurra
kvenna meöal leikara, en sögu-
þráöurinn er hlaðinn spennu og
hraða. Aðdáendur James Bond
geta nú farið að hlakka til.
Björn Gíslason (3. f.v.) lögregluþjónn og leióangursstjóri í Hvítárferðinni
25. júlí með frönskum leiðangursmönnum.
Þaö er ekki á hveijum degi sem inn
á ritstjórn DV koma skipstjórar með
tónlist eftir sjálfa sig á plötum. Yfir-
leitt hafa sjómenn svo mikiö að gera
við að draga þorskinn að við land-
krabbarnir fáum að sitja einir að
menningarstússinu.
Ási í Bæ var náttúrlega undantekn-
ingin sem sannaöi regluna, síhress
með gítarinn sinn. Svo kom Gylfi
Ægis með Stolt siglir fleyið mitt og
nú hefur bróðir hans, Lýður Ægis,
gefið út plötuna Lómur L.Æ.vís með
textum og lögum sem mest eru eftir
hann sjálfan.
Lýður var 13 ára siglfirskur polli
þegar hann fór á sjóinn og á fiskiflot-
anum hefur hann verið þau 27 ár sem
síðan eru liðin, síðustu tíu árin sem
skipstjóri á Ófeigi frá Vestmannaeyj-
um.
Lýður ætlar á síld með haustinu
en er þessar vikurnar í landi aö
dreifa plötu sinni. Efni hennar er
reyndar alls ekki bundið við sjóinn.
Hún er meira glens og grín og ber
þess merki að höfundur hennar er í
Hrekkjalómafélagi Vestmannaeyja
þar sem hann bjó lengi.
Vestmannaeyingar eru frægir fyrir
einkennileg félög eins og Akóges og
Lundamannafélagið eða hvað það nú
heitir. Tilgangur Hrekkjalómafélags-
ins er einkum sá að þeir hrekki hver
annan sem mest. Einn þeirra ku vera
Ómar Ragnarsson og árshátíö þessa
félags er sögð sú eina sem Ömar
sækir bara til að skemmta sjálfum
sér og ættu það að vera meðmæli
með félagsskapnum.
-ihh
Hlaðborð hja Ananda Marga
Amúrt, hjálparstofnun Ananda
Marga á íslandi, og Rava, lista- og
menningardeild Ananda Marga,
stóðu fyrir hlaöborði laugardaginn
13. ágúst til að afla fjár til hjálpar-
og þróunarstarfs í Afríku.
i Á Hlaðborði 88, eins og borðiö var
------——
kallað, var boðið upp a ljúffenga
austurlenska rétti. Ekki var þó ein-
göngu boðiö upp á mat því gestir
gátu einnig fylgst með skemmtiatrið-
um frá Austurlöndum. Kunnu gestir
greinilega að meta það sem á boðstól-
um var.
Hlaðborð Ananda Marga var mjög girnilegt að sjá og kunnu gestir vel að
meta hina austurlensku jurtarétti. DV-myndir JAK
Danadrottning sýnir myndir sínar í New York.
Danadrottning
sýniríNewYork
Gizur Helgasan, DV, Reeisnaes:
Margrét Danadrottning ætlar nú
að halda sýningu á leikbúningum
þeim er hún hannaði fyrir jólasýn-
ingu danska útvarpsins á leikritinu
Hjarðmærin og sótarinn. Sýningin
veröur haldin í milljónaborginni
New York en einnig er meiningin að
sjálft leikritið verði sett upp í borg-
inni á sama tíma.
Auk þess verður dansk-ameríski
grínistinn Viktor Borge áttatíu ára í
janúar nk. og meiningin er að teikn-
ingar og búningar Danadrottningar
verði liður í feiknalegri afmælishátíð
er haldin verður Borge til heiðurs í
New York.
Listaverk Margrétar hafa nú verið
sýnd í Kaupmannahöfn og París.
frönsku sendiherrahjónunum með
íþróttamönnum í íþróttafélagi fatl-
aðra sem tóku þátt í Hvítársiglingu
25. júlí.
Frakkarnir gerðu ýmsar athuganir
á hitastigi vatnanna og vatnsstöðum
meðan á ferðinni stóð og er ætlunin
að nýta sér þessar upplýsingar til
þess að fara í könnunarleiðangra til
fleiri landa. Með í fórinni voru kvik-
myndatökumenn frá franska sjón-
varpinu sem tóku kvikmynd af leið-
angrinum sem ætlunin er að sýna á
annarri rás franska sjónvarpsins.
Ýmsar hindranir voru í vegi hjóla-
stólafólksins til þess að komast í
franska sendiherrabústaðinn á Skál-
holtsstíg 6, en þetta var ekki í fyrsta
sinn sem Jón H. Sigurðsson líffræð-
ingur og Jóhann Pétur Sveinsson
þurftu að glíma við farartálma í borg-
inni, sem eru allt of margir fyrir fatl-
að fólk.
Lýður Ægisson: trúbador af sjónum.
Fatlaðir, franskir íþróttamenn,
sem fóru í siglingu á Hvítárvatni,
Hvítá, Þjórsá og Jökulsá á Breiðu-
merkursandi 31. júlí til 4. ágúst, voru
fóstudaginn 5. ágúst í móttöku hjá
Jacgues Mer, franski sendiherrann,
býður Jóhanni Pétri Sveinssyni lög-
fræðingi, formanni Sjálfsbjargar
landssambands fatlaðra og íþrótta-
manni, upp á snittur.
Stephanie
Powers
- sem sumir sjónvarpsáhorfend-
ur muna kannski eftir úr þáttun-
um um Harthjónin og ævintýri
þeirra r hjálpaði nýlega vinkonu
sinni Övu Gardner. Ava átti við
öndunarerfiðleika að stríöa og þá
rauk Stephanie með hana á
sjúkrahús. Læknarnir voru á þvi
að Ava heföi gott af því að taka
til hendinni og vinna dálítið, svo
Stephanie bauð henni þá að leika
hlutverk í bíómynd sem Vanessa
Redgrave hafði áöur neitaö aö
leika.
Brigitte
Bardot
segir að fólk fari í taugamar á sér
og að hún hafi ekki hinn minnsta
áhuga á vandamálum þess, þess
vegna búi hún nú með 15 hundum
og 50 köttum! Hún hafi gefið karl-
mönnum æsku sína og fegurð en
nú gefi hún dýrunum visku sína
og kærleik.
í boði hjá firönsku