Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988.
Útlönd
Útsjonarsamur refur
ef til vill líka Ijón
Michael Dukakis, forsetafram-
bjóöandi demókrata, gengur að
framboði sínu á sama hátt og hann
hefur tekist á við öll önnur við-
fangsefni. Hann skipuleggur hvert
verk, vinnur úr því, lýkur við það
og snýr baki við því.
Kunnugir segja að hann hafi allt
sitt líf starfaö á sama veg. Hann las
fyrir hvern dag í skóla, þurfti aldr-
ei aö kúra fyrir próf. Hann gegndi
herþjónustu þegar timi var til þess
kominn, lauk henni án áfalla eða
afreka og sneri aftur að fyrri við-
fangsefnum sínum, stjórnmálum.
í hvert sinn sem hann hefur þurft
að keppa við aðra hefur hann skil-
greint hvað þurfti til að vinna,
byggt sig upp í samræmi við þá
skilgreiningu og yfirleitt unnið.
Þegar hann keppti við vinkonu sína
um efstu einkunn í frönsku komst
hann að þeirri niðurstöðu að hún
hefði fyrst og fremst framburðinn
fram yfir hann. Hann fullkomnaði
framburð sinn á einni önn og varð
efstur. Væntanlega er hann nú þeg-
ar búinn að skilgreina þá yfirburði
sem George Bush, frambjóðandi
repúblikana, kann að hafa og á
komandi tveim mánuðum fáum við
að sjá hvemig hann mætir þeim.
Ferill Michaels Dukakis hefur þó
ekki verið eintómir sigrar. Meðan
og náði fylkisstjóraembættinu aft-
ur árið 1982.
Dukakis hefur verið nokkuð um-
deildur sem fylkisstjóri. Hann hef-
ur staðið við fyrirheit sín um að
berjast gegn spillingu og hefur tek-
ist að komast að mestu hjá stórá-
fóllum. Aðgerðir hans í því er varð-
ar almannatryggingar hafa hins
vegar verið umdeildar og sá efna-
hagsbati sem hann þakkar sér fyr-
ir, svonefnt efnahagsundur í
Massachusetts, er mörgum íbúum
fylkisins aðhlátursefni.
Dukakis er þó enn á uppleið, að
því er virðist. Vinir og vandamenn
telja hann traustasta frambjóðanda
sem komið hefur fram á sjónar-
sviðið um langt árabil. Aðrir telja
hann fyrst og fremst klókan, ref
sem kunni að koma ár sinni fyrir
borð. Þrátt fyrir ósveigjanlega af-
stöðu sína til spillingar hefur Duk-
akis heimilað samstarfsmönnum
sínum að deila út „greiðum“ til
útvalinna, að því einu tilskildu að
hann þurfi hvergi nærri að koma.
Fylgismenn Dukakis segja hann
leiðtoga á borð við Franklin Roose-
velt, sem oft var talinn hinn mesti
refur. Andstæðingar hans segja
hins vegar að hann skorti hæfileik-
ana til að vekja með bandarísku
þjóðinni innblástur til að komast í
gegnum erfiðleika komandi ára.
hann fikraði sig um rangala hér-
aösstjórnmála varð hann stöku
sinnum að lúta í lægra haldi. Eftir
að hafa setið í embætti fylkisstjóra
Massachusettsfylkis í eitt kjör-
tímabil, tapaði hann forkosningum
fyrir Edward J. King, sem síöar
varð fylkisstjóri 1978 til 1982. Duk-
akis gafst þó ekki upp. Eftir að,
hafa sleikt sár sín skamma hríð,
notaði hann tímann til að safna
kröftum og efnivið í næstu baráttu
Michael Dukakis, forsetaframbjóðandi demókrata.
STÁLGRINDAR-
HÚS
- Auðveld í uppsetningu
- Stuttur byggingartími
- Sveigjanleg byggingakerfi
- Breytingar auðveldar
- Stálklæðning frá Inter Profiles
- Steinullareinangrun
- SFS festingar
- C og Z langbönd frá Inter Profiles
- Ókeypis kostnaðaráætlanir
VERÐIÐ ER HAGSTÆTT
GARÐASMIÐJAN GALAX SF
LYNGÁSI 1$ 210 GARÐABÆ
SÍMl 91-53511
GÆÐI TJR STÁJLI
Stjómmála-
legarandstæður
Sú ákvörðun Michael Dukakis að
kalla Texasbúann Lloyd Bentsen til
aö veröa varaforsetaefni í kosning-
unum í nóvember næstkomandi kom
mörgum verulega á óvart.
Varla er hægt að hugsa sér ólíkari
menn. Dukakis er meðalmaöur á
hæð, en Bentsen hávaxinn. Dukakis
leggur áherslu á innflytjendaupp-
runa sinn, fjárhagsstöðu í meðallagi
bg sparsemi, en Bentsen gengur í
sérsaumuðum fótum og ber auðæfi
sín utan á sér.
{stjórnmálum eru þeir einnig jafn-
miklar andstæður og unnt er að
finna innan demókrataflokksins. Það
svo aö Bentsen gæti jafnvel talist
eðlilegur meðframbjóðandi George
Bush, varaforseta.
Dukakis hefur verið á móti aðstoð
við kontraskæruliða, en Bentsen hef-
ur fylgt henni. Dukakis var á móti
skattalækkunum Reagans, Bentsen
með. Dukakis er á móti MX-eld-
flaugaáætluninni, framleiðslu Brl
sprengjuflugvéla, dauðarefsingu,
bænahaldi í skólum, geimvarnaáætl-
un Reagans og innílutningsgjaldi á
olíu. Bentsen er fylgjandi þessu öllu.
Dukakis er fylgjandi eftirliti með
skotvopnum og opinberri ijármögn-
un fóstureyðinga. Bentsen, að sjálf-
sögðu, er harður andstæðingur
þessa.
Hvaða rök liggja þá til grundvallar
því að Dukákis velur sér að varafor-
setaefni íhaldssaman milljónamær-
ing frá Texas, sem árið 1950 hvatti
til þess að Bandaríkin beittu kjam-
orkuvopnum í Kóreustríðinu og hef-
ur undanfarin ár verið fremur af-
rekafár i öldungadeild Bandaríkja-
þings?
Telja má líklegt að Dukakis sé að
leita eftir jafnvægi. Bush hefur byggt
baráttu sína gegn honum mikið á
fullyrðingum um óhæfilegt frjáls-
lyndi hans. Með Bentsen sem með-
frambjóðanda gæti Dukakis gengið
betur að ná til íhaldssamra hvítra
miðstéttarkjósenda, sem í undan-
fómum forsetakosningum hafa tekið
Ronald Reagan fram yfir þá sem
demókratar hafa teflt fram.
Þar á móti vegur hættan á að
Bentsen kosti Dukakis mikinn hluta
fylgis hans meðal svartra Banda-
likjamanna. Dukakis er af mörgum
talinn hafa gengið fram hjá Jesse
Jackson, jafnvel móðgað hann. Jack-
son gæti tekið með sér milljónir at-
kvæða, ákveði hann að snúa baki við
Dukakis fyrir kosningar.
Þótt Bentsen njóti virðingar í Was-
hington, vegna starfa sinna í öld-
ungadeildinni, er hann lítt þekktur
meðal kjósenda og hefur gengið illa
að komast á blað sem hugsanlegur
smmmst
Lloyd Bentsen, varaforsetaefni demókrata
HVER VILL EKKIEIGNAST
SPORTBÍL OG SPÍTTBÁT ?
forsetaframbjóðandi. Hann tók þátt
í forkosningum demókrata árið 1976,
en hætti þeirri baráttu eftir að hafa
beðiö mikinn ósigim þegar í fyrstu
lotunum.
Þá hefur Bentsen verið orðaður við
tilraunir til aö selja áhrif sín. Hann
reyndi eitt sinn að stofna morgun-
verðarklúbb, þar sem fulltrúar
ýmissa hagsmunahópa gátu snætt
með honum einu sinni í mánuði,
gegn tíu þúsund dollara þóknun.
Tilnefning Bentsen sem varafor-
setaefni er því áhættuákvörðun. í
dag er ómögulegt að segja hvort Duk-
akis veðjaði þar á réttan hest.