Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1988, Page 21
DV kynnir íslensku ÓL-farana Nafn: Pétur Guðmundsson Fœddur: 9.3.1962 Hæð: 1,92 m Þyngd: 120 kg Félag: HSK (Ungmennafélagið Samhygö) „Þetta verður mikil og góð reynsla „Mér llst alveg stórkostlega á ólympíuleikana. Þetta verður að sjálfsögðu stór stund fyrir mig enda hlýtur það að vera draumur hvers íþróttamanns að komast á ólympíuleika. Ég hef ekki gert mikið að því að keppa á alþjóðlegum mótum enda er ég ekki búinn að vera nema þrjú ár af alvöru í kúlu- varpinu. Takmarkið hjá mér var bara númer eitt að komast á leikana og fá að taka þátt í þeim,“ sagði Pétur Guðmunds- son kúluvarpari í samtali við DV. Pétur er einn af okkar fremstu fijálsíþróttamönnum. Hann tryggði sér farseðihnn til Seoul í júní í sumar er hann kastaöi 20,03 metra en það er hans persónulega met. Pétur hefur annars verið mjög óhepp- inn og hefur verið nokkuð frá vegna meiðsla. Pétur vinnur sem lögreglumaður í Reykjavík og er auk þess fjölskyldumaður. Hann er nú í tveggja mánaða fríi fram yfir leikana og æfir stíft. „Það eru æfmgar hjá mér fjór- um sihnum í viku og þá tvisvar á dag. Ég stefni auðvitað aö því að vera í toppformi á réttum tíma og þá að sjálfsögðu í Seo- ul. Það er ljóst að keppnin þar verður gífurlega erfið en ég geri mér vonir um að komast í 12 manna úrslit. Til þess verð ég sennilega að kasta 20,50 metra. Ég er staðráðinn í að bæta mig og bæta metið mitt verulega. Þetta verður alla vega mikil og góð reynsla fyrir mig upp á framtíðina," sagði Pétur enn- fremur. -RR OL 88 ©PIB C0PI NHtCiN ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1988. 20 íþróttir Iþróttir Hallsteinn Arnarson, einn besti maður vallarins í leik Víkings og ÍA, etur hér kappi við Karl Þórðarson. Að baki má líta þá Atla Helgason og Björn Bjartmarz úr Víkingi. Þá grillir í Skagamanninn Sigurstein Gíslason að baki Hallsteini en leiklestur Akurnesingsins vakti athygli i Stjörnugrófinni. DV-mynd Eiríkur Víkingar ólánsamir - eru nærri botnsæti eftir 1-2 ósigur gegn Skagamönnum Víkingar eru enn nærri fallsæti eftir ósigur á glæsilegum heimavelli sínum í Stjörnugrófmni. Mótheijar þeirra voru Skagamenn og náðu þeir að gera tvö mörk gegn einu Víkinga. Viðureignin var annars fjörug frá upphafi og læti talsverð í báðum liðum. Þó setti rok og kalsarigning mark sitt á fyrri hálfleikinn en þá fór minna fyrir spili en marklausum spyrnum. í seinni hálfleik lægði og glæddist þá knatt- spyman sem var á stundum leikin með ágætum. Fátt var um markfæri framan af og leikurinn í nokkru jafnvægi. Skaga- menn tóku raunar forystuna með því að nýta fyrsta færi sitt. Víkingar lágu þá á meltunni samtímis því sem Akur- nesingar tóku aukaspyrnu. Knettinum var þá umbúðalaust rennt inn fyrir vörn Víkinga á Aðalstein Víglundsson sem átti ekki í vandræðum með að mæta Guðmundi Hreiðarssyni í mark- inu. Víkingar tóku kipp við markið en lið Skagamanna var beitt og eftir eina sókn þeirra kom seinna markið - alveg undir lok fyrri hálfleiks. Haraldi Ingólfssyni var þá skellt en hann hafði skeiðað um hríð við innanverðan jaðar vítateigsins. Sveinn Sveinsson dæmdi víti án um- svifa og var úrskurður hans réttur. Heimir Guðmundsson skoraði af öryggi úr spyrnunni. Víkingar hófu síðan seinni hálfleik með látum, staðráðnir í að selja sig dýrt. Lítið var enda liðið á hálfleikinn er Andri Marteinsson minkaði bilið með fóstu skoti utan vítateigs. Andri kvaddi félag sitt með þessu marki, í bili að minnsta kosti, en hann heldur utan til náms á næstu dögum. Eftir mark Andra var leikurinn opinn, þokkalega leikinn og bráðfjörugur. Lið- in sóttu á víxl og áttu ágæt færi en hvor- ugu tókst að skora. Ef á heildina er litið voru liðin á marg- an hátt svipuð að styrk þótt staða þeirra í stigatöflunni kunni að gefa annað til kynna. Miðjumenn Víkings voru flestir frí- skir og áttu færi auk þess sem þeir opnuðu vörn Skagamanna fyrir félaga sína. í vörn Víkings bar mikið á Hallsteini Arnarsyni og var ótrúlegt að sjá hversu vel þessi ungi piltur skilaði hlutverki sínu en hann var einn besti maður vall- arins. Hallsteinn spilar með höfðinu og skil- ar knettinum til meðherja sinna úr vöminni í stað þess að kýla fram eins og sumra er háttur í 1. deildinni. Raunar var „nýgræðingur" einnig einn besti leikmaður Skagamanna. Sig- ursteinn Gíslason spilaöi gríðarlega vei á miðjunni en hann fer vel með bolta og skapaði oft mikinn usla í þessum leik með góðum sendingum. Vörn Skagamanna var einnig hreyf- anleg í þessum leik og hélt sóknarmönn- um Víkings í strangri gæslu lengst af auk þess sem hún komst fyrir flest skot Víkinganna. -JÖG Island mætir Færeyjum - leikur þjóðanna verður á Akranesi íslenska landsliðið í knattspymu mætir Færeyingum í landsleik í knattspymu á Akranesi á miðviku- dagskvöld. Þetta er 13 viðureign þjóðanna en fyrsti landsleikur Fær- eyinga eftir að þeir fengu aðild að Alþjóöa knattspymusambandinu í síðasta mánuöi. Sigfried Held landsliðsþjálfari hef- ur valið eftirtalda leikmenn í lands- liðshópinn: Markverðir era Birkir Kristinsson og Guðmundur Hreiðarsson en aðrir leikmenn em Ágúst Már Jónsson, Arnljótur Davíðsson, Atli Eðvalds- son, Guðni Bergsson, Halldór Áskelsson, Ólafur Þórðarson, Ómar Torfason, Pétur Arnþórsson, Pétur Ormslev, Ragnar Margeirsson, Sæv- ar Jónsson, Viðar Þorkelsson, Þor- steinn Þorsteinsson og Þorvaldur Örlygsson. -RR ISLANDSMÓTIÐ Víkingur-IA, 1-2 (0-2) r 0-1, Aðalsteinn Víglundsson, 27. mín. 0-2, Heimir Guðmundsson, 43. mín. 1-2, Andri Marteinsson, 50. mín. Lið Víkings: Guðmundur Hreiðars- son, Stefán Halldórsson, Þórður Mar- elsson, Hallsteinn Arnarson, Svein- björn Jóhannesson, Atli Helgason, Hlynur Stefánsson, Andri Marteins- son, Björn Bjartmarz, Atli Einarsson (Jón Óddsson, 63. mín.), Lárus Guð- mundsson. Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Ólafur Þórðarson, Heimir Guðmundsson, Karl Þórðarson (Elías Víglundsson, 80. mín.), Mark Duffield, Guðbjörn Tryggvason, Aðalsteinn Víglundsson, Sigursteinn Gíslason, Alexander Högnason (Gunnar Jónsson 75. min.), Haraldur Ingólfsson, Sigurður Jóns- son. Gul spjöld: Atli Einarsson, Víkingi. Karl Þórðarson og Alexander Högna- son, ÍA. Áhorfendur: 400. Dómari: Sveinn Sveinsson. Menn leiksins: Hallsteinn Amarson, Víkingi, og Sigursteinn Gíslason, ÍA. Flugleiðamótið í handknattleik: Unglingalands- llðiðátU aldrei móguleika - stórsigur A-liösins, 33-19, í Laugardalshöll Islenska A-landsliðið átti ekki í miklum vandræðum með aö sigia unglingalandslið Islands á Flug- leiöamótinu í Laugardaishöll í gær- kvöldi. A-liðið vann stóran sigur, 33-19, en í leikhléi var staöan 17-9. Unglingaliöiö, styrkt af þeim Júl- íusi Jónassyni og Valdimar Gr.íms- syni, átti aldrei neinn möguleika í þessum leik. Mikill munur var á liöunum eins og búast mátti viö og spennan því lítil sem engin. Þó sáust góðir hlutir hjá báðum liðum en styrkleiki A-liðsins var alltof mikill fyrir hiö unga B-liö. Munurinn varð fljótlega mikiil og í leikhléi var staðan 17—9 fyrir A-liöið. í síöari hálfleik jafnaðist leikur- inn dálítið en íslenska landsliðið hélt öryggri forystu út leikinn. í lokin varö munurinn síðan 14 mörk, 33-19. Bogdan leyfði öllum leikmönnum sínum að spreyta sig í leiknum. Kristján, Alfreð, Atli og Sigurður Sveinsson voru langatkvæðamest- ir í A-liöinu. Siggi Sveins spilaði síðari hálfleikinn og sýndi gamla og góöa takta, skoraði stórkostlegt mark meö skoti frá miðju og áhorf- endur kunnu svo sannarlega aö meta þaö. Guðmundur og Brynjar vörðu hvor um sig 5 skot en Einar hvíldi að þessu sinni. Unglingaiiðið stóö sig þokkalega miðaö viö mótherjana. Oft sáust ágæt tilþrif en leikæfingu og sam- heldni vantar greinilega í liðið og er það mjög skiljanlegt. Strákarmr ættu þó að fá dýrmæta leikreynslu á þessu móti sem kemur til meö að nýtast þeim síöar meir. Mörk A-Uðsins: Kristján, 5, Páll 5, Sigurður S. 5, Ath 5, Alfreð 4, Guð- mundur 3, Bjarki 2, Óttar 2, Jakob og Karl l hvor. Mörk B-liðsins. JúUus J. 6 (4 v.), Sigurður 4, Birgir 3, Júlíus G. 2, Konráð 2 og Héðinn 2. -RR Nýtum ekki færin „Þetta hefur verið að koma hjá okkur í allra síöustu leikjum, við höfum náð að bijótast í gegnum varnir mótherjanna en hins vegar ekki nýtt færin sem skyldi," sagði Víkingurinn Andri Marteinsson í samtali við DV. „Við fengum á okkur klaufamörk í fyrri hálfleiknum eftir að hafa verið sterkari aðiUnn en sá seinni var síðan opinn og fjörugur. Við, eða raunar Víkingar, eigum nú eftir tvo leiki heima, gegn Þór og Völsungum, og tvo úti, gegn Val og ÍBK. Prógrammið gæti því verið erfiöara," sagði Andri sem lék í gær sinn síðasta leik á þessu tímahili en hann heldur nú utan til náms. -JÖG Einn leikmaður spánska liðsins reynir hér að komast framhjá varnarmanni Tékka. DV-mynd Brynjar Gauti Spánverjar lögðu Tékka Spánverjar sigmðu Tékka með 16 mörkum gegn 15 í hörkuspennandi leik á Flugleiðamótinu í gærkvöldi. Staöan í hálfleik var 7-6 fyrir Spán- veija en með þessum sigri hafa Spán- veijar hlotið 4 stig eins og íslending- ar. Áhorfendur í LaugardalshölUnni voru nær alUr á bandi Tékka og studdu þá óspart. Leikurinn var all- an tímann mjög jafn og spennandi en Utið skorað. Markvarslan var góð og vamarleikurinn í hávegum hafð- ur. Markverðir liðanna sýndu heimsklassa markvörslu. Spánveij- ar voru meö fmmkvæðið í fyrri hálf- leik og ávallt með 1-2 marka forystu. í seinni hálfleik náðu Tékkar yfir- höndinni en Spánveijum tókst að tryggja sér sigur í lokin. Mörk Spánveija: Marin 4 (1 v.), Ruiz 3, Munoz 3, Femandez 2, Saga- les 2 og Gomez 2. Mörk Tékka: Novak 4, Bamruk 3, Bartek 3, Bajgar 2 (1 v.), Sovadina 2 ogTarhail. -RR Á Bakkastæði við Tryggvagötu kostar klukkutíminn 30 kr. og 40 kr. í Kolaporti. Á Tollbrú kostar hálfur dagur 80 kr. og heill dagur 150kr. Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.