Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1989, Side 8
32
>831 í'UOAnV'VRO’1
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1989.
Nýja árið ætlar að fara heldur ró-
lega af stað því aðeins ein ný mynd
kemur inn á listann að þessu sinni.
Það er Barnasprengjan sem sýnir
vel þann áhuga sem kvikmynda-
framleiðendur fengu á barnaupp-
eldi á síðasta ári. Fyrsta myndin,
um karlana þrjá og barnið, varð til
að vekja áhugann á þessum nýju
leikurum sem eru yfirleitt frekar
ódýrir starfskraftar. Uistinn féll
niður í síðustu viku vegna áramó-
tauppgjörs en eigi að síður hafa
orðið furðu litlar breytingar á hon-
um þann hálfa mánuð sem liðinn
er.
DV-LISTINN
1. (2) Three Men and a Baby
2. (1) Suspect
3. (5) Rambo III
4. (3) Shakedown
5. (6) The Principal
6. (-) Baby Boom
7. (9) Batteries not Included
8. (7) The Untouchables
9. (4) Best Seller
10. (8) Nuts
2
Ævintýraferð Fífils
AN AMERICAN TAIL
Útgefandi: Laugarásbió.
Leikstjóri: Don Bluth. -
Bandarísk, 1986. - Sýningartími 78 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
An American Tail er sönnun þess
að teiknimyndir er hægt að gera
fyrir alla flölskylduna. Þótt
minnstu börnin hafi kannski fyrst
og fremst gaman af þá snertir þetta.
hugljúfa ævintýri strengi í hjörtum
fullorðinna.
í byijun kynnumst við músafjöl-
skyldu í Rússlandi sem er að und-
irbúa flutning til Bandaríkjanna.
Þegar skipið, sem þau férðast með,
nálgast fyrirheitna landið fellur
yngsti fjölskyldumeðlimurinn, Fíf-
ill, fyrir borð og er taliö að hann
hafi drukknað.
Fífill bjargast aftur á móti á land
og þá byrjar ævintýraferð hans í
leit að fjölskyldu sinni. Hann kynn-
ist bæði góðum og illum verum en
eins og í öllum ævintýrum er endir-
inn góður fyrir aðalpersónu okkar.
Það er óhætt að segja að í An
American Tail séu atriði fengin að
láni úr frægum sögum. Tii að
mynda lendir Fífill htli hjá
óþverranáunga sem neyðir margar
Utlar mýs til að stela fyrir sig.
Minnir óneitanlega á Öliver Twist.
Fleiri atriði mætti taka til.
í heild er An American Tail hin
skemmtilegasta teiknimynd.
Þekktir leikarar lána raddir sínar,
má þar nefna Dom DeLuise, Madel-
ine Kahn, Nehemiah Persotf og
Christopher Plummer.
-HK
í undralandi
Hættulegur leikur
WHO’LL STOP THE RAIN.
Útgefandi: Steinar.
Leikstjóri: Karel Reisz.
Aðalhlutverk: Nick Nolte, Tuesday Weld,
Michael Moriarty og Anthony Zerbe.
Bandarisk, 1978- Sýningartimi 122 mín.
Who’ll Stop The Rain er ein af þess-
um gæðakvikmyndum sem hafa á
einhvern hátt orðið útundan og það
var ekki fyrr en löngu eftir að hún
kom á markaðinn að farið var að
fjalla um hana almennt.
Þegar myndin var gerð 1978
nefndist hún Dog Soldiers eftir
samnefndri verðlaunaskáldsögu.
Þetta nafn gekk ekki og var henni
seinna dreift í Evrópu undir nafn-
inu Who’ll Stop The Rain og vakti
strax athygli þar. Kannski skiljan-
lega vegna þess að leikstjórinn,
Karel Reisz, er breskur og einn af
ahra bestu leikstjórum á Bret-
landseyjum.
Who’ll Stop The Rain er mögnuð
kvikmynd sem fjallar um klaufa-
lega aðferð ungs hermanns, sem
Wfto'/JStopThel&iti
m NDlTf • ‘RjFSCAV WflC - MiCHAcL WmW
vfims&mmr
,,, ANTHOKV ,W -, - iMMm RDSMHðÍ
. v1*«K -T S T\í . ,,,,,.,x ,,,, , fSj^jjf $*)#,
•*#**»»í&i , I ■$.'
Hoitetf&httt
ekki þolir stríðið í Vietnam, til að
gera eitthvað af viti.
Það sem hann gerir er að smygla
heróíni til Bandaríkjanna og fær
hann vin sinn, sem er háseti á
flutningaskipi, tfl að flytja efnið
fyrir sig. Vinurinn Ray Hicks, sem
er sjóaðri í líflnu og hefur fengist
við ýmislegt ólöglegt, er fljótur að
fmna að ekki er aUt eins og á að
vera við heimkomuna.
Ásamt eiginkonu hermannsins
leggur hann á flótta eftir endilangri
Kaliforníu með allt heróínið og
virðast þau eiga litla möguleika því
þeir sem elta þau eru harðsvíraðir
glæpamenn þótt þeir séu lögreglu-
menn að atvinnu.
Karel Reisz hefur gert eftirminni-
lega og áhrifamikla kvikmynd sem
bæði sýnir okkur hvernig stríð get-
ur gjörsamlega eyðilagt siðferðis-
kennd manna og á hinn bóginn
sýnir okkur í tilfelli eiginkonunnar
hve auðvelt er að ánetjast heróíni.
Leikur er í heild mjög góður og er
sama hver á í hlut. Who’U Stop The
Rain er bæði spennandi kvikmynd
og raunsæ þótt söguþráðurinn sé
öfgakenndur.
-HK
★★‘/2
®D
Hártogun
HAIRSPRAY
Útgefandi: Skifan
Leikstjóri og handritshöfundur: John
Waters. Aðalhlutverk: Sonny Bono, Ruth
Brown, Divine, Debbie Harry og Rick
Lake.
Bandarísk 1988. 90 mín. Öllum leyfð.
Það er undirrituðum illgleyman-
legt þegar Waters skaut upp kollin-
um á kvikmyndahátíð hér fyrir
nokkrum árum og sýndi afurð sína,
Bleika flamingóa. Sú mynd var
með eindæmum en var fyrir fá-
visku og misskilning meðhöndluð
sem menningarfyrirbæri. Að
sönnu hefur Waters notiö mikillar
hylli í heimaborg sinni, Baltimore,
þar sem hann hefur verið talinn
frumkvöðull í kvikmyndagerð. Það
breytir þó ekki þeirri staðreynd að
hann hefur hingað til lagt sig eftir
smekkleysu einni og seilst ótrúlega
langt í viðleitni sinni. Hefur hinn
nýlátni og íturvaxni Divine leikið
þar stórt hlutverk.
Hér er Waters hins vegar furðu
stilltur og tekst bara ágætlega upp
í ljúfri endurminningasatíru um
rokktímann. Myndin er á margan
hátt mjög frumstæð en hefur eigi
að síður sjarma fáránleikans auk
þess sem hún er skemmtilega illa
leikin.
-SMJ
★ !4
Uppgjöf leikara
SURRENDER
Útgefandi: Myndbox
Leikstjóri og handritshöfundur: Jerry
Belson. Framleiðandi: Golan-Globus.
Aðalhlutverk: Sally Field, Michael Caine
og Steve Guttenberg.
Bandarisk. 1987. 93 mín. Öllum leyfð.
Michael Ccúne hefur gefist upp
sem leikari og hugsar eingöngu um
að afla sér fjár út á nafnskírteinið.
Þá er gott að ganga til liðs við
frændurna Golan/Globus enda er
þeim ekkert heilagt. Fátt gott kem-
ur frá þeim og svo er einnig hér.
Þrátt fyrir þrjá „fræga“ leikara
er fátt sem prýðir þessa mynd. Úr
því að þetta á að heita gamanmynd
duga tvö glott ekki til að afla henni
hylli. Af myndinni geisla leiðindi,
hvort sem á í hlut leikstjóri, hand-
ritshöfundur (sem er einn og sami
maðurinn) eða leikararnir frægu.
Andleysi verður grafskrift þessar-
ar myndar.
-SMJ
Boxleitner, David Warner og Cindy
Morgan.
Bandarisk 1982. 92 mín. Öllum leyfð.
Þessi mynd fékk mikla umflöllun
þegar hún var framleidd af Walt
Disney fyrirtækinu fyrir sex árum.
Hún þótti boða nýja tíma í vinnslu
kvikmynda enda mikið til unnin í
tölvu og á þar að auki að gerast
inni í einni slíkri.
Þó að þróunin hafi ekki orðið eins
hröð og margir töldu eftir að Tron
var gerð hefur tölvutæknin að
sjálfsögðu sett mark sitt á kvik-
myndagerð. Á neikvæðan hátt,
segja sumir því fégráðugir fram-
leiðendur hafa tekiö upp á þeim
óskunda að hta svarthvítar perlur.
En það eru aðrir sálmar.
Þrátt fyrir fáránlegan söguþráð,
sem að töluverðu leyti byggist á
tölvufantasíu og ótrúlegri sviðs-
mynd, er myndin forvitnilega á að
horfa. Þaö er þó fyrst og fremst
umgerðin sem vekur eftirtekt og á
Tron án efa eftir að komast í kvik-
myndasöguna fyrir hana. -SMJ
TRON
Útgefandi: Bergvik.
Leikstjóri og handritshöfundur: Steven
Lisberger. Framleióandi: Donald Kus-
hner. Aðalhlutverk: Jeff Bridges, Bruce
Steinar hf.:
Gróskumikil útgáfa
Meðal kvikmynda, sem væntaniegar eru á myndband á næst-
unni frá Steinum hf., er Wall Street.
Ráðgert er að gefa út á árinu
yfir 100 titla hjá Steinum hf.
Fyrirtækið er umboðsaðfli fyrir
tvo af stærstu kvikmyndaris-
unum, Warner Brothers og
CBS/FOX.
Útgáfu er skipt í þrjá flokka.
Fyrst eru það kvikmyndir sem
sýndar hafa verið í kvikmynda-
húsum hérlendis og erlendis. í
öðru lagi kvikmyndir sem
framleiddar eru fyrst og fremst
fyrir sjónvarp og í þriðja lagi
endurútgáfa sígildra kvik-
mynda sem ekki hafa verið fá-
anlegar á íslandi nema þá ótext-
aðar.
Janúarútgáfa Steina hf. er
fjórtán titlar og má nefna
myndir á borð við Baby Boom,
Gardens of Stone og Wall Stre-
et. Þá má geta útgáfu á þremur
kvikmyndum með Clint East-
wood þar sem hann er í hlut-
verki Dirty Harry.
Athyglisverðustu kvikmynd-
ir fyrir unnendur góðra mynda
eru sjálfsagt hin magnaða kvik-
mynd John Huston, Under The
Volcano, og síðasta kvikmynd
Bob Fosse, Star 80 - tvær úr-
valsmyndir tveggja látinna
leikstjóra sem skráðu nafn sitt
á spjöld kvikmyndasögunnar.
-HK