Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Qupperneq 7
MÁNUÖAGUR Sí JÚIit Í9á9.‘
.q
7
Fréttir
Miklar lagfæringar standa nú yfir á Hóladómkirkju.
DV-mynd Þórhallur
Hóladómkirkja ber í
rauða sandsteminum
- miklar lagfæringar á kirkjunni standa yfir
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðarkrótd:
Framkvæmdir standa nú sem hæst
viö lagfæringar á Hóladómkirkju að
utan og á næsta umhverfi hennar.
Búið er að fjarlægja múrhúðina og
stendur nú kirkjan ber í rauða sand-
steininum.
Byrjað er að múrhúða kirkjuna að
nýju og einnig er unnið að endumýj-
un á gijóthleðslum umhverfis
kirkjugarðinn. Stefnt er að því að
ölium frágangi við ytri umgjörð
Hóladómkirkju verði lokið fyrir
haustið.
Kirkjubæjarklaustur:
Upplýsingaþjónusta
fyrir ferðamenn
Valgeir L Ólafsson, DV, Kirkjubæjarklaustri:
Um miðjan júní tók til starfa Upp-
lýsingaþjónustan á Kirkjubæjar-
klaustri og er þetta sjöunda sumarið
sem hún er rekin í félagsheimilinu
Kirkjuhvoh. Hún er opin frá kl. 10.00
til 16.00 alia daga vikunnar.
Þangað getur fólk komið og fengið
upplýsingar um staðinn og nágrenni
hans í rituðu og mæltu máli. Þar eru
seld veiðileyfi í nokkur vötn á svæð-
inu, einnig er þar vísir að minja-
gripaverslun þar sem m.a. em seldar
lopapeysur. Nokkur dagblöð íslensk
og erlend hggja frammi og getur fólk
sest niður, flett blöðunum og fengið
sér kaffisopa á meðan.
Sú nýbreytni var einnig tekin upp
nú í sumar að reka í tengslum við
upplýsingaþjónushma leiktækjasal
en þar eru m.a. billjarðborð, borð-
tennis, bob og fleira.
Upplýsingaþjónustan hefur um-
sjón með tjaldsvæðinu á Kleifum.
Umsjónarmaður Upplýsingaþjónust-
unnar er Valgeir Ingi Ólafsson en
sími hennar er 98-74621. Heimasími
umsjónarmanns er 98-74645.
Nýr skattstjóri á
Austurlandi
Emil Thoiarensen, DV, Eskifirði:
Nýr skattstjóri tók til starfa hjá
Skattstofu Austurlandsumdæmis
fyrsta júní sl. Hann heitir Karl S.
Lauritzson og er þrítugur Eskfirð-
ingur. Foreldrar hans eru Björg
Andrésdóttir og Lauritz Karlsson.
Karl er viðskiptafræðingur að
mennt og er að ljúka hagfræðinámi
frá háskólanum í Lundi. Fráfarandi
skattsijóri, Bjami G. Björgvinsson,
lét af störfum 1. febrúar sl.
Karl S. Lauritzson, skattstjóri Aust-
urlands. DV-mynd Sigrún
Minnisvarði
Sigurður Ægisscm, DV, Djúpavogi:
Á sjómannadaginn, 4. júní síðast-
Brjóstmyndin af Eysteini Guðjóns-
syni skólastjóra. DV-mynd SÆ
afhjúpaður
hðinn, var afhjúpuð hér brjóstmynd
af Eysteini Guðjónssyni, fyrrverandi
skólastjóra, er féll út af bát sínum
þann 4. júní 1988 milli Þvottáreyja
og lands og dukknaði, 39 ára gamall.
Mikil leit var gerð á sínum tíma um
allan sjó og fjörur hér eystra en lík
hans fannst aldrei.
Bijóstmyndina, sem er steypt í
kopar, gerði Ríkey Ingimundardótt-
ir, myndhöggvari í Reykjavík, en
platan með áletruninni var unnin hjá
Álfasteini í Borgarfirði eystri.
Stöpullinn undir bijóstmyndinni
er steyptur en klæddur svo með hvit-
um skeljasandi til að minnast tengsl-
anna við hafið. Minnisvarði þessi
stendur í nýju skógræktinm rétt fyr-
ir innan þorpið og horfir ásjóna
myndarinnar út í Þvottáreyjar í
Hamarsfirði.
1.500 MILUÓNIR
KRÓNA RENNA í VASA
KJÖRBÓKAREIGENDA
UM MANADAMÓTIN
í FORMI VAXTA
OG VERDBÓTA
Rétt einu sinni hafa Kjörbókareigendur ríkulega
ástæðu til að gleðjast. Nú um mánaðamótin, leggst hvorki
meira né minna en einn og hálfur milljarður króna í
_ formi vaxta og verðbóta við innstæður Kjörbóka.
En það er ekki allt talið enn: Standi innstæða á Kjörbók
lengur en 16 mánuði reiknast afturvirk hækkun á vexti,
og síðan aftur eftir 24 mánuði.
Samkvæmt nýjum lögum um verðtryggingu verða
bankarnirnú að breyta ákvæðum skiptikjarareikninga að
hluta. Það er gert á þann veg að verðtryggingar-
viðmiðunin gildir fyrir þann hluta innstæðu sem stendur
óhreyfður heilt samanburðartímabil.
Næsta samanburðartímabil er
frá 1. júlí til 31. desember.
Kjörbók Landsbankans, kjörin leið til sparnaðar.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna