Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Page 10
10
MÁNUDAGISK 3/JÚLt 1089.
Útlönd
YfirvöM brióta mótmæli
í Nicaragua skildi að andstæðinga og stuðningsmenn
stjórnar sandinista < gær þegar til ryskinga kotn i borginni Leon.
Simamynd Reuter
Óeirðalögregla í borginni Leon, um áttatíu kílómetra norövestur af
Managua, höfuðborg Nicaragua, skildi að andstæðinga og stuöningsmenn
stjórnar sandinista þegar þeir fyrmefndu efndu til mótmæla i borginni
í gær. Um 200 stuðningsmenn sandinistastjórnarinnar, flestir þeirra ungl-
ingar, hópuðust að mótmælagöngu stjómarandstæðinga og hrópuðu siag-
orð tfl stuðnings stjórninni. Tfl ryskinga kom railli hópanna og skildi
óeirðalögregla þá aö.
Stjómarandstæðingamir, sem voru um tvö þúsund talsins, voru að
mótmæla stefnu stjómvalda og reyna að byggja upp stuöning meðal fbúa
landsins áður en kosningar fara fram í febrúar á næsta ári.
Hvetja til hungurverkfalls
Leiðtogar Paiestínumanna á vesturbakkanum og Gaza-svæðinu hafa
hvatt Palestínumenn hvarvetna í heiminum tfl aö taka þátt í hungurverk-
falli tfl að mótmæla þeirri ákvörðun ísraelskra yfirvalda aö vísa á brott
Palestínumönnum er þau gruna um að vera í forsvari fyrir uppreisn
þeirri er nú hefur staöið á herteknu svæðunum í nitján mánuði.
VerkfaUið á að standa frá sólarupprás tfl sólarlags þann 19. júlí. Alls
búa 1,7 mifljónir Palestínumanna á herteknu svæöunum en um þrjár
miUjónir víðs vegar um heiminn. ísraelsk yfirvöld, sem hafa visað á brott
58 Palestínumönnum, hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir brottvísanim-
ar, meðal annars af aöildarríkjura Sameinuðu þjóðanna. Á fimmtudag
yar átta Palestínumönnum gert að yfirgefa herteknu svæðin og mun
Öryggisráö SÞ fjalla um mál þeirra í dag að beiðni nokkurra arabaríkja.
Yitzhak Rabin, utanröosráðherra ísraels, kvaðst í gær mundu taka gagn-
rýni SÞ alvarlega þegar aðildarríkin gagnrýndu brottvísun sextíu þús-
unda Tyrkja frá Búlgaríu.
hyriuflugmenn í verkfall
DV
Samsteypustjórn
í Grikklandi
- samstarf íhaldssemi og hefndarþorsta, segir Papandreou
Konstantín Mitsotakis, leiðtogi griskra kommúnista, til hægri, og Tzannis
Tzannetakis, hinn nýi forsætisráðherra Grikklands. Simamynd Reuter
Hin nýja samsteypustjórn íhalds-
manna og kommúnista í Grikklandi
hefur störf í dag. Hún mun einbeita
sér að því næstu þrjá mánuði eða svo
að rannsaka meinta spillingu emb-
ættismanna í stjóm Andreas Pap-
andreous, fyrrum forsætisráðherra,
og undirbúa málsókn á hendur þeim.
Papandreou, sem er á sjúkrahúsi,
brást reiður við fregnum af stjórnar-
samstarfinu. „Kmmúnistar og Nýi
demókrataflokkurinn hafa myndað
samsteypustjórn íhaldssemi og
hefndarþorsta sem hefur það eitt að
markmiði að skaða sósíalistaflokk-
inn,“ sagði hann.
Kommúnistar ákváðu á laugardag
að ganga til liðs við Nýja demókrata-
flokkinn, flokk íhaldsmanna undir
stjórn Konstantíns Mitsotakis, og
bundu þar með enda á tveggja vikna
stjórnarkreppu í Grikklandi. Síðustu
hindrun fyrir stjórnarsamstarfi
þessara ólíku flokka var hmndið úr
veginum á laugardag þegar Mitso-
takis féll frá kröfu um fosætisráð-
herraembættið og stakk upp á
Tzannis Tzannetakis, þingmanni
íhaldsmanna og fyrrum liðsforingja
í sjóhemum. Hinn nýi forsætisráð-
herra var eiðsvarinn í gær.
Tzannetakis sagði í samtali við
fréttamenn aö stjórn sín myndi sitja
stutt, þrjá mánuði eða svo, og heföi
það eitt að markmiði að kanna spill-
ingu innan ríkisstjómar fyrrum for-
sætisráðherra, Andreas Papandreo-
us. Nokkrir embættismanna þeirrar
stjómar eru taldir viðriðnir stórfellt
fjármálahneyksli og sögðu átta
þeirra af sér eða voru reknir úr
starfi. Ákvarðanatökum í flestum
öðrum málefnum verður frestað þar
til kosningar hafa farið fram að nýju.
Kommúnistar, sem mynduðu
bandalag með vinstri mönnum fyrir
kosningarnar þann 18. síðasta mán-
aðar, voru 1 oddaaðstöðu í stjórnar-
myndunarviðræðum. En með 28 at-
kvæðum bandalagsins hefur stjómin
hreinan meirihluta á þingi, 173 af 300
sætum.
í staðinn fyrir stuðning til stjórnar-
myndunar lét Mitsotakis kommún-
istum í té embætti dómsmála- og inn-
anríkisráðherra sem munu hafa á
sinni könnu rannsókn á athöfnum
embættismanna fyrmm ríkisstjórn-
ar sem og undirbúning nýrra kosn-
inga sem munu fara fram í haust.
Reuter
Þyrluflugmenn, sem sinna flugi aö og frá norskum oliuborpöllum í
Norðursjó, fóru i verkfall á miðnættí í nótt til að krefjast hærri launa
og betri aöbúnaöar. Yflrvöld norskra olíumála segja að standi verkfallið
í fjóra til finun daga eða lengur getí það haft skaðvænleg áhrif á olíufram-
leiðslu Noregs þar sem flugmennirnir sjái um fólksflutninga sem og flutn-
ing matvæla til pallanna.
Noregur er annar stærsti olíuframleiðandi V-Evrópu á eftir Bretlandi.
Framleiðsla norskra olíufýrirtækia er um 1,6 milijón tunnur á dag.
Sáttasemjari, sem útnefndur var af norsku rikisstjóminni, sagði í gær
að tíu klukkustunda samningalota hefði ekki hafl tflætluð áhrif og hefðu
flugmennirnir þvi formlega lagt niður störf. Nokkrir af flugmönnunum
160, sem eru í verkfalli, munu sinna neyöartflfellum.
Nýjar kosningar á írlandi?
Charles Haughey, sem gegnir embætti forsætisráöherra írlands, lýsti í
gær andstöðu sinni viö hugmyndir um samsteypustjóm í landinu. Þar
með virðast líkur á samstarfi flokks hans og framsóknarflokks demó-
krata orðnar aö engu og óttast margir að til nýrra kosninga komi.
Fianna Fafl, flokkur Haugheys, tapaði í kosningunum sem fram fóm
um miðjan júnímánuö og sagði hann af sér embætti forsætísráðherra.
Hann mun þó gegna þvi áfram þar til ný ríkisstjóm hefur veriö mynduö.
Ochoa ver afstöðu sína
Arnoido Ochoa, hershöfðingi I kúbanska hernum, ásamt Humberto Or-
tega, varnarmólaróðherra Nicaragua. Þessl mynd var tekin árið 1985.
Símamynd Reuter
Arnaldo Ochoa, sem ásakaður hefúr verið um aöfld að umfangsmiklu
flkiflefnamáli á Kúbu, sagði í gær við réttarhöldin að fjármagnið, sem
fékkst fyrir smygl á fíkniefhum, hefði átt að renna til uppbyggingar ferða-
mannaþjónustu á Kúbu. Sagði hann að smyglið, er hainn hefði verið við-
riöinn, hefði verið í þdm tflgangi að afla erlends fjármagns tfl aö Qárfesta
áKúbu.
Upp komst um aöfld Ochoa að fikniefnasmygli nýverið og hefur þetta
mál teygt anga sína í ríkisstjóm Kúbu. Ochoa var sakaður um að hafa
verið leiötogj herraanna og embættismanna sem voru í tengslum við
MedeIlin-samtökin,fíkniefhasmyglhringíKolumbíu. Reuter
Stjórnarmyndun
með Samstöðu?
Samstaða, hin óháðu verkalýös-
samtök í Póflandi, stungu opinber-
lega upp á því í morgun að þau mynd-
uðu stjóm gegn því að þau styddu
frambjóðanda kommúnista í forseta-
kjöri í þessari viku.
Áður hafði verið haft eftir háttsett-
um meðlim í einum af samsteypu-
flokkunum í stjórn kommúnista aö
þessi möguleiki væri fyrir hendi.
Sagði hann hugmyndina þegar
njóta stuðnings nokkurra stjórnar-
meðlima en líklegt væri að þeir vfldu
halda innanríkisráðuneytinu, varn-
armálaráðuneytinu og utanríkis-
ráðuneytinu.
Hugmyndin um stjómarmyndun
Samstöðu kom upp eftir aö Jaruz-
elski Póllandsleiðtogi neitaði á fóstu-
daginn að fara í framboð sem forseti
og stakk upp á Czeslaw Kiszczak inn-
anríkisráðhema í embættið.
Heimildarmenn innan Samstöðu
sögðu að þingmennirnir Adam Mic-
hnik og Jacek Kuron hefðu á laugar-
daginn á fundi 260 þingmanna Sam-
stöðu, sem taka eiga þátt í forseta-
kjörinu, stungið upp á stuðningi við
frambjóðanda kommúnista meö því
skflyröi aö þeir fengju viss völd.
Starfsmenn Samtöðu höföu áður sagt
að þeir væru ekki reiöubúnir til að
taka við völdum né taka þátt í sam-
steypustjórn undir forystu kommún-
ista.
Samstaða, sem var bönnuð 1981 og
ekki lögleidd aftur fyrr en í apríl síð-
astliðnum, mun leika lykilhlutverk
þegar þjóðþingið kýs forseta, líklega
í þessari viku, þar sem samtökin
unnu 46 prósent af 560 sætum í þing-
inu í frjálsum kosningum í síöasta
Czeslaw Kiszczak, innanrikisráð-
herra Póllands, sem stungið hefur
verið upp á sem forsetaframbjóð-
anda kommúnista.
Símamynd Reuter
mánuði. Kommúnistar eru klofnir
og eiga í deilum við Þjóðarflokkinn
og Smábændaflokkinn sem eru með
þeim í stjórn.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
lýsti því yfir á laugardaginn aö hann
styddi Kiszczak sem forsetafram-
bjóðanda þar sem hann væri um-
bótasinni. Kiszczak átti stóran þátt í
aö koma á herlögum 1981 ásamt
Jaruzelski en hefur áunnið sér virð-
ingu Samstöðu þar sem hann var
aðalsamningamaður stjórnarinnar í
samkomulaginu um umbætur sem
undirritað var í aprfl síðastliðnum.
Reuter
Óeirðalögregla í Varsjá í átökum viö andstæðinga Jaruzelskis sem á föstu-
daginn neitaði að fara i forsetaframboð. Andstæðingar leiðtogans höfðu
krafist þess að hann færi ekki í framboð. Simamynd Reuter