Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1989.
Spumingin
Lesendur
Hver grillar á þínu heimili?
Jón Bergur Torfason verkamaður:
Mamma og ég. Við grillum stundum
kótelettur og svoleiðis.
Þóra Einarsdóttir verkakona: Pabbi
gerir það. Hann sér um þetta sjálfur.
Hrönn Ósk Óskarsdóttir sendill:
Pabbi hitar upp. Annars hjálpumst
við öll sex að í fjölskyldunni.
Svavar Magnússon, Hitaveitu
Reykjavíkur: Konan gerir það yfir-
leitt. En hún vill frekar að ég kveiki
upp í kolunum.
Freyja Lárusdóttir starfsstúlka:
Pabbi grlllar en mamma tekur til
kjötið.
Lúxushús Flugleiða á Kanaríeyjum:
Boðið upp á sambýli við
maura í drullu og skít
- og 20% afslátt í næstu ferð!
Okkur finnst ekki úr vegi að gefa
lesendum DV kost á því að kynnast
hvemig sú aðstaða er á Kanaríeyj-
um sem Flugleiðir leyfa sér að selja
í einum „glæsilegasta gististað sem
völ er á þar“ eins og þeir segja sjálf-
ir. Eftirfarandi lýsing er a.m.k.
okkar reynsla á þeim „lúxus“.
Við fórum tvenn hjón frá Akur-
eyri til Kanaríeyjameð Flugleiðum
í febrúar. Við höföum áður skoðað
smáhýsin í Gran Barbakan, leist
vel á húsin og pöntuöum okkur því
slíkt hús til að búa í þar úti í 3 vik-
ur.
Hins vegar er skemmst frá því
að segja að húsið, sem okkur var
fengið til íbúðar í 3 vikur, var ekki
mönnum bjóðandi. Maurar lifðu
þarna kóngalífi um alla íbúðina, í
homum og yfir hurðum og jafnvel
var maurabú undir gleri málverks
sem „prýddi“ stofuna. Á þremur
Ijósaperum kviknaði ekki, sturtu-
haus var ónýtur, þijú forstykki
dottin af eldhúsinnréttingu, kappa-
ljós í eldhúsinnréttingu laust svo
við tókum það af og aftengdum svo
enginn fengi í sig ráfstraum, veggir
vora grútskítugir og með fótafor-
um upp um allt, púðar í sófum rifn-
ir svo sá í svampinn, rúmdýnur
lágu lausar ofan á spónaplötu, svo
bældar að það var stór laut í þeim,
og á þessu átti maður að hvíla sig í
3 vikur. Þetta er nú lúxusinn sem
við borguöum fyrir.
Það ber hins vegar að taka fram
að fararstjórn Flugleiða var að
öðru leyti til fyrirmyndar, svo og
nánasta umhverfi „lúxushúss"
okkar og starfsfólk yfirleitt óað-
finnanlegt.
Það hefur gengið á ýmsu í sam-
skiptum okkar við Flugleiðir eftir
að heim kom enda viljum við ekki
una því að greiða fuÚt verð fyrir
þennan óþverra. Svar við bréfi
okkar til Flugleiða, sem var dagsett
5. mars, barst ekki fyrr en um 10.
apríl. Var okkur þar boðinn 20%
afsláttur í næstu Kanaríeyjaferð.
Það liggur alveg fyrir að við höf-
um mjög takmarkaðan áhuga á að
fara aftur með Flugleiðum til Kan-
aríeyja.
Eitt enn. Við fengum afslátt á
flugi frá Akureyri til Reykjavíkur
áður en við fórum út en fengum
ekkert nema dónaskap framan í
okkur þegar við fórum fram á sams
konar afslátt frá Reykjavík til Ak-
ureyrar að lokinni Kanarieyjaferð-
Hverfisgata en ekki Laugavegur
íbúi við Hverfisgötuna skrifar:
Ástæðan fyrir skrifum mínum er
þáttur Stöðvar tvö, Á faraldsfæti,
sunnudagskvöldið 18. júní.
í þessum þætti var rölt um Hverfis-
götuna. í raun alveg ágætisþáttur
nema í endinn, þá var fréttamaður-
inn kominn upp að homi Rauðarár-
stígs og Hverfisgötu.
Hann sagði að hús gasveitustjórans
(nú eru strætisvagnabílstjórar með
aðstöðu þar), væri númer 125 og þar
með síðasta húsið viö Hverfisgötuna.
Hann hefði átt að kynna sér aðeins
betur gatnakerfi Reykjavíkurborgar
áöur en hann fór að fullyrða í sjón-
varpi. Því í fyrsta lagi er Lögreglu-
stöðin númer 113, þannig að hús
númer 125 liggur ekki við hliðina á
henni. Og í öðru lagi er hús númer
125, gamli Norðurpóllinn, fyrir ofan
Rauðarárstíg við hliðina á Fiskversl-
un Haíliða, ef einhver væri þá nær.
Sem sagt, fyrir ofan Rauðarárstíg
eru fimm hús sem tilheyra Hverfis-
götu og fyrir ofan þau tekur svo
Laugavegur við. Það eru engin skil
þarna á milli, en Hverfisgata 125 er
merkt með stóru skilti.
Ég veit að margir íbúar þessara
húsa hafa hringt upp á Stöð tvö og
kvartað yfir þessu en ekki hefur enn,
mér vitanlega, komið leiðrétting á
þessu í sjónvarpinu. Það er víst nógu
Hús þau er standa við Hverfisgötuna fyrir ofan Rauðarárstíg eru oft talin
tii Laugavegar.
erfitt fyrir þá sem búa í þessum fimm
húsum að skýra fyrir fólki hvar þeir
búa (allir halda aö þetta sé Laugaveg-
urinn), þó svo aö sjónvarpið sé ekki
að skýra alþjóð frá því aö þetta sé
Laugavegurinn.
Eriendu kartöflurnar dýrar
inni. Það gerðist hins vegar síðar
að Ólafur Briem, deildarstjóri við-
skiptaþjónustu Flugleiða, bauð
okkur slíkan afslátt og fylgdi sög-
unni að þetta væri lokatilboð fyrir-
tækisins.
Sjálfsagt voru Flugleiðamenn
sviknir um það sem þeim var selt
og þeir endurseldu okkur, það dreg
ég ekki í efa. En er réttlætanlegt
að það bitni á okkur með þessum
hætti? Tilboðið um 20% afslátt í
næstu Kanaríeyjaferð okkar er svo
ekki til annars en að hlæja að því
og Flugleiðum til lítils sóma.
Sigurður Jónasson
Ellen Pétursdóttir
Þorgrímur Magnússon
Ragna Þórarinsdóttir
Svar Flugleiða:
Erfitt
þegar svona
kemur fyrir
DV leitaði svara hjá Ólafi Bri-
em, deildarstjóra viðskiptaþjón-
ustu Flugleiða, viö ásökunum
þeim er komu fram í bréfi hjón-
anna frá Akureyri, Kannaðist
Ólafur við máliö en sagði að það
væri afskaplega lítið sem Flug-
leiðir gætu gert í málinu.
Ferðin hafði verið keypt í gegn-
um ferðaskrifstofu á Akureyri og
hefði henni verið faliö að semja
við hjónin á ákveðnum grund-
velli. Þeim grandvelli hefði verið
hafiiað án þess að Ijóst væri hvað
farið væri fram á.
Aðbúnaður hússins í Gran Bar-
bakan væri hlutur sem hvorki
flugfélagið né ferðaskrifstofan
hefði yfirráð yfir. Það væri af-
skaplega erfitt þegar svona lagað
kæmi upp á því mat manna á
hlutunum væri misjafnt. Hjónun-
um hefði verið boðinn 20% af-
sláttur í næstu Kanaríeyjaferð og
þar stæðu máhn enn.
Lukkutríóið:
Usti yfir
vinnings-
hafana
Nýjar búlgarskar kartöflur eru dýrari en íslenskar.
Árni Gunnarsson hringdi:
Það hefur mikiö verið rætt og ritað
að undanfórnu um hversu ódýrar
erlendu kartöflumar yrðu.
Nú var það svo að mér var gengið
inn í verslun eina um daginn og rakst
þar á tveggja kílóa poka af búlgörsk-
um kartöflum á 185 krónur. Við hlið-
ina á þeim voru þessar gömlu, góðu,
íslensku, einnig tvö kíló í poka, á 135
krónur. Gat ég ekki betur séð en þær
erlendu væru dýrari en þær íslensku
en ekki öfugt eins og mikið er búið
að hamra á.
Ég varö mjög hissa á þessu og er
það augljóst að nú ætla einhveijir sér
að græða. Það er einhver stétt sem
alltaf græðir á almenningi. Hlýtur
álagningin að vera rosaleg á kartöfl-
ununum. Annars er maður löngu
hættur að skilja verðlagið hérna.
Mig langar svona í lokin að geta
þess að í Bretlandi fást 5 kíló af kart-
öflum á eitt pund, eða um 91 krónu.
Lilja Ólafsdóttir hringdi:
Sú var tíð að dregið var í
Lukkutríóinu á Stöð tvö. Nú hef-
ur því verið hætt. Ég er með þá
ábendingu hvort ekki væri hægt
að birta lista yfir vinningshafa
annaðhvort í blöðum eða í sjón-
varpi.
Brúðuviðgerð-
armaður gefi
sig fram
P.Á. hringdi:
Ég þarf bráðnauðsynlega að ná
sambandi við brúðuviðgerðar-
manninn Jón Kristinsson. Því
miður hef ég ekki númerið hans
en vonast til að hann sjái þetta
og gefi sig fram við DV.
Ég væri einnig mjög þakklát ef
aðrir þeir sem gera viö brúður
gæfu sig fram.