Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Síða 17
17 MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1989. Lóur þykja víða sælkeramatur. Vantar lóur í kjötborðin Ég hef lengi furðað mig á því að ekki er hægt að kaupa lóur í kjöt- verslunum hérlendis. Þar sem ég hef spurst fyrir um þetta hafa menn rek- ið upp stór augu en fátt verið um svör. Víöast hvar erlendis eru lóur í kjöt- borðum verslana innan um annan mat. Á betri veitingastöðum eru lóur taldar til sælkerafæðu. Hér virðist hins vegar engum hafa dottið í hug aö bjóða þennan mat til sölu. Mér skilst að lóumar séu einmitt bestar þegar þær koma hingað á vor- in. Þær safna forða á veturna fyrir langflug yfir hafið. Þegar þær koma hingað er kjötið mjúkt og gott. Þar sem íslendingar framkvæma yfirleitt ekkert nema það hti vel út í augum útlendinga má benda á að hægt er að auglýsa ísland upp sem paradís sælkeranna þar sem þeir geta fengið bestu lóur í heimi. Slík auglýsingaherferð yrði ekki síðri en sú að reyna að telja útlendingum trú um gæði íslenska lambakjötsins, vatnsins og fisksins. Auk lóunnar má benda á að viðast hvar er hægt að kaupa þresti og aðra farfugla. Þá getur maður keypt dúfur til átu í flestum afkimum jarðarinnar nema hér. Daglaunamaður Lesendur Setningu biskups ekki sjónvarpað Valgerður og Margrét hringdu: Okkur langaði að koma á framfæri kvörtun við ríkissjónvarpið. Þegar páfinn kom til að heimsækja þær örfáu hræður sem eru í söfnuði hans hér á landi var sjónvarpað beint frá öllum athöfnum. En þegar biskup íslands, Ólafur Skúlason, var settur inn í embætti var ekkert verið að hafa fyrir því að sjónvarpa neinu. Nú heyra um 90% þjóðarinnar undir biskup íslands og hefði sá hluti þjóðarinnar, sem ekki var viðstadd- ur innsetninguna, haft mjög gaman af að sjá þetta. Valgerður og Margrét vildu sjá inn- setningu biskups í embætti í beinni útsendingu. Orðsending til ríkisstjórnarinnar Jóhann Þórólfsson skrifar: Þessi ríkisstjóm ætti að segja af sér sem fyrst, hún gerir hvort eð er lítið gagn eins og þingmennirnir. Vinnu- hrögð þingmannanna em mjög léleg fyrir þjóðarheildina. Þeir gera htið annað en að lofa og svíkja. Hvað gerðist í síðusu kaupsamningum? Þeir lofuðu að stöðva aht þjónustu- og vömverð í landinu eins og það var á þeim tíma. Öll þjóðin veit aö bæði þjónustu- og vöruverð hefur hækkað upp úr öllu valdi undir núverandi stióm. Með öðmm orðum, þeir hafa algjörlega svikið aht sem þeir lofuðu, einnig gagnvart þeim lægst launuðu. Nei, næst þegar kosið verður eigum við kjósendur að lofa þessum mönn- um að sofa heima hjá sér, þeir hafa ekkert með það að gera að komast á þing. Þetta eru eiginhagsmunasegg- ir. Við þurfum að fá duglega menn ásldlur sér rétt til að stytta bréf og símtöl sem birtast á lesendasíðum blaðsins. sem koma th með að framkvæma það sem er þjóðinni th heiha og standa við þaö sem þeir lofa, en ekki svíkja mest af því sem þeir lofa eins og núverandi stjóm gerir. Annars eigum við að breyta kerf- inu og kjósa 30 menn á þing. Þeir myndu gera jafnmikiö gagn og 63 gera nú. Þessir menn em duglegastir við að ' skipa nefndir á nefndir ofan og halda erlendum mönnum veislur sem kosta stórfé. Ég vona að kjósendur verði ekki svo vitlausir að kjósa þessa menn á þing aftur því þangað hafa þeir ekkert að gera. Þeir hafa ahavega ekki gert þjóðinni þaö mikið gagn þann tíma er þeir hafa setið á þingi. Mér finnst það einnig lágmark að ráðherramir kunni almenna kurteisi, en það dreg ég í efa að þeir kunni, a.m.k. sýndi sú kveðja, sem ríkisstjómin sýndi bændum, ekki neina kurteisi. Mjólkin var hækkuð svo mikið að hún varð illseljanleg og fréttir herma að salan hafi minnkað um helming og sumstaðar meira. Vinnubrögð ríkisstjómarinnar hafa verið öh eftir þessu. I D Mazda 626 LX hatchback, árg. '88, dðkkblár, 5 dyra, 5 gíra, ek. 22.000. V. 840.000. Toyola Corolla XL, érg. '88, 4ra dyra, siálfsk., rauður, ek. 21.000. V. 750.000. Subaru Justy 4x4. ðrg. '87, 5 gira, Ijósgrænn, ek. 26.000. V. 440.000. Volvo 340 GL, irg. '88, sitt- urgrár, 5 dyra, S glra, ek. 26.000. V. 650.000. Toyota Tercel 4wd statlon, árg. '87, grænn, ek. 33.000, 5 gira, V. 72S.OOO. Mazda 323 1500 GLX, árg. '87, ek. 32.000, bvítur, 5 glra, V. 530.000. Mazda 323 GLX, árg. '87, ður, ek. 26.000, 5 glra. 550.000. ERTÞI) AÐ LEITAAfl GÓÐUIVINOTUÐUM BlL? I ÞÚ FINNUR HANN HJÁ OKKUR I Charade TX turbo, dbkkgrðr, sóllúga 46.000. V. 640.000 '88, V. 840.000. Brimborg hf. Faxafeni 8, s. (91) 685870 zzzi cz — ~ Rakarastofan Klapparstíg Sími 12725 Hárgreiðslustofan Klapparstíg Tímapantanir 13010 HöggdeyfaE GJvara Hamarshöfða 1 Hamarshöfða 1 Simar 36510 og 83 Bolir með myndum Kr. 1.450.- □ Rambo □ Michael Jackson □ Europe □ A-Ha □ Iron Maiden □ Queen □ Scorpions □ Tina Turner □ Marilyn Monroe □ Whitney Houston □ James Dean □ Madonna □ Bob Marley □ George Michael □ U-2 □ Don Johnson Aldrei meira úrval Skólavörðustíg 42, sími 11506.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.