Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Qupperneq 31
I MÁNUDAGUR 3. JTJLÍ 1989. 43 Meiming Dr. Harvey Milkman, prófessor í sálfræöi: Fjolbreytni og sveigjan leiki eru mikilvægust „í meðferð ungra fíkniefnasjúkl- inga er mikilvægast að bjóða upp á sem fjölbreytilegasta möguleika og að sveigjanieiki innan hvers með- ferðarúrræðis sé sem mestur. Það að einbiína á einstakar aðferðir og ósveigjanleiki verða til þess að með- ferðarúrræðin gagnast aðeins mjög fáum,“ sagði dr. Harvey Milkman, prófessor í sálfræði, frá Denver í Bandaríkjunum í viðtaii við DV. Dr. Milkman er sérfræðingur á sviði meðferðar eiturlyfjasjúklinga og kom hingað til lands í boði Menn- ingarstofnunar Bandaríkjanna og samstarfsnefndar ráðuneytanna um aögerðir í fíkniefnavandamálinu. „Við sem störfum að þessum mál- um verðum að taka mikið tillit til persónuleika og persónueinkenna hvers einstaklings sem kemur í með- ferð,“ sagði dr. Milkman. „Við verð- um að spyrja okkur að hvernig við ætlum að bregðast við ef einstakiing- ur neitar áð gangast xmdir einhveija grundvallarþætti meðferðarmódels- ins hjá okkur. Við verðum að hafa sveigjanleika tii að fmna leið fyrir viðkomandi við slíkar aðstæður. Jafnframt verðum við aö hafa víð- sýni til að sjá og viðurkenna að við getum ekki hjálpað öllum sjálf. Það er mjög margt sem verður að íhuga fyrirfram, vera reiöubúinn að mæta í meðferð þessara ungmenna. Við viljum gjaman taka þau úr um- hverfi sínu, einangra þau í hæfilegri fiarlægð frá þéttbýh meðan verið er að stíga fyrstu skrefin í enduruppeldi þeirra. Að meðferð lokinni þurfa þau hins vegar aö fara aftur út í þjóð- félagið og þá getur þeim verið mikil hætta búin ef þau fá ekki sérstakan undirbúning í þeim efnum. Þetta má gera á ýmsa vegu. Þau þurfa að fá að fikra sig skref fyrir skref inn í samfélagið að nýju og vera undir eftirliti á meðan svo þau misstígi sig síður. Þá hefur það sýnt sig að það hjálp- ar mikið ef hægt er að skapa með- ferðartímanum sérstöðu í lífi þeirra - gera meöferðina að sérstakri upp- lifun. Mikil tengsl við náttúruna, vinna við uppbyggingu umhverfis, allt sem tengist jákvæðum þáttum tilverunnar er mjög gott í þessu til- liti. Jafnframt ailt sem getur gert meðferðiria að „rituali" þannig að sú ákvörðun að neyta ekki framar fíkni- * efna verði þeim eiður sem af trúar- legum eða öðrum ástæðum verður erfitt að brjóta “ Dr. Milkman kom hingað af ráð- stefnu í Hollandi, þar sem fiallað var um fíkniefnavandamál. „Hollendingar eru ákveðnir að meðhöndla fikniefnamál sem heil- brigðismál en ekki afbrotamál," sagði dr. Milkman, „og telja sig ná betur tökum á þeim þannig. Ég er að sumu leyti sammála þeim um að þetta séu heilbrigðismál. Það verður auðvitað hver þjóð að taka sína eigin afstöðu til þessa. Ég held að flestir séu þó sammála um að þeir unglingar, sem ánetjast hafa fíkniefnum, eigi ekki heima í fangels- - um. Það þarf aö koma við endur- hæfingu og enduruppeldi sem ekki verður veitt innan fangelsisveggja. HV Li Dráttarbáturinn að draga Marianne Danieisen úr Njarðvikurhöfn. DV-myndir Ægir Már Strandskipið komið til Póllands Guðlaugur Guðmundsson og Finnbogi Kjeld. Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; Allar horfur eru á að danska flutn- ingaskipið Marianne Danielsen, sem náðist af strandstað í Grindavík' í vetur, sigh undir erlendum fána þeg- ar það kemur úr viðgerð frá Póhandi sem mun taka 60 daga. Enskur drátt- arbátur dró skipið til Póllands eftir að unnið hafði verið við að þétta botn þess í Njarðvíkurhöfn í tvo mánuði. Skráður eigandi er Lyngholt s/f í Vogum en aðaleigandi þess er Guð- laugur Guðmundsson húsasmiður sá er skipulagði björgun Marianne, sæhar minningar. Finnbogi Kjeld hefur mikinn hug á að kaupa skipið og reka það með erlendri áhöfn. Flestir sem tóku þátt í björguninni tóku á sig nokkra fiárhagslega áhættu sem fólst í því að greiðslur fóru mikið eftir því hvort björgunin lánaðist. Tíu milljónir kostaði að koma skipinu til Póllands með öllu, m.a. dráttarbátnum, sem kostaði tvær og hálfa milljón krónur. ■Y T'raði, öryggi og góð þjónusta er for- f—S senda þess að geta boðið flutn- A. JL ingaþjónustu sem stendur undir nafni. Daglegt flug milli Vestfjarða og Reykjavík- ur og áætlunarflug innan fjórðungs. Viðkomustaðir eru: Suðureyri, Flateyri, Ringeyri, Bíldudalur, Patreksfjörður og ísafjörður. Hraðsendingar okkar komast alla leið. Fljótt og örugglega. NY AFGREIDSLA Á REYKJA VÍKUR- FLUGVELU SÍMI62 n 00 m/mmgggÞ EnfVIn AFGREIÐSLA ÍSAFIRÐI SlMI 94-42 00 AFGREIÐSLA REYKJAVlK SlMI 91-62 42 00 Kodak Express

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.