Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Síða 32
44
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1989.
Andlát
Benedikt Bogason, verkfræðingur og
alþingismaöur, lést 30. júní í Land-
spítalanum.
Anna Elísabet Ólafsdóttir lést 30. júní
í Landspítalanum.
Jarðarfarir
Einar Guðmundsson, Njálsgötu 38,
Reykjavík, verður jarðsunginn.frá
Fossvogskirkju í dag, 3. júlí, kl. 13.30.
Jarðarför Finnboga Hermanns Sig-
urðar Sigurðssonar frá Sæbóli í Að-
alvík fer fram frá Dómkirkjunni í
dag, 3. júlí, kl. 13.30.
Útför SofBu E. Ingólfsdóttur,
Hringbraut 65, Reykjavík, fer fram
frá Neskirkju þriðjudaginn 4. júlí nk.
V kl. 13.30.
Fanney Guðmundsdóttir Camphaus-
en, Dvalarheimili aldraðra, Seljahlíð,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 4. júh kl.
10.30.
Anna Sigurbjörg Leópoldsdóttir,
Tunguseh 8, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. júh.
Sigríður Ingveldur Sigurðardóttir,
Ölduslóð 27, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 4.
júh kl. 15.
Kristín H. Þórhallsdóttir lést 26. júní
sl. Hún var fædd 17. janúar 1931. Eft-
irlifandi eiginmaður hennar er Rögn-
valdur Sigurðsson. Þau hjónin eign-
uðust eina dóttur. Áður hafði Kristín
eignast son. Útfor hennar verður
gerð frá Áskirkju í dag kl. 15.
Tilkyimingar
Húnvetningafélagið
Sumarferð félagsins verður farin dagana
15. og 16. júlí nk. Gist í Þórsmörk. Upplýs-
ingar í símum 41150, 681941 eða 671673.
Félag eldri borgara
Farin verður dagsferð laugardaginn 8.
júlí nk. um Hvalfjörð, Borgames og Bif-
röst, Grjótháls, Þverárhlið, Kalmanns-
tungu, Húsafell, Hraunfossa, Hálsasveit,
Reykholt og Dragháls til Reykjavíkur.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins s.
28812.
Doktorsritgerð Jóns
Karlssonar
Þann 8. mai sl. varði dr. Jón Karlsson
doktorsritgerð sína við Læknadeild
Gautaborgarháskóla í Svíþjóð. Ritgerðin
nefnist „Charonic Lateral instabihty of
the ankle joint. A clinical, radiological
and experimental study". Ritgerðin fjall-
ar um áverka á ökklalið og viðgerðir á
þeim, einkum liðabandaáverka utanvert
á ökklanum, sem er algengasti áverki
sem íþróttamenn verða fyrir. Sýnt er
fram á að nýjungar í skurðaðgerðum
gefa betri og öruggari langtímaárangur
en eldri aðferðir. Dr. Jón Karlsson er
fæddur 1953, sonur hjónanna Láru M.
Benediktsdóttur og Karis M. Jónssonar
frá Klettstíu í Norðurárdal. Hann lauk
kandídatsprófi frá læknadeild Háskóla
íslands 1978. Hann hefur síðan 1981 dval-
ið við framhaldsnám í bæklunarskurð-
lækningum við Östra sjúkrahúsið í
Gautaborg og við Gautaborgarháskóla.
Hann hlaut sérfræðiréttindi í bæklunar-
skurðlækningum bæði í Svíþjóð og á ís-
landi 1986. Hann hefur fyrir utan dokt-
orsritgerð sína ritað fjölmargar visinda-
greinar um bæklunarskurðlækningar.
bæði í islensk og erlend læknatimarit
Hann starfar nú sem sérfræðingur viC
bæklunarskurðdeild Östra sjúkrahúss-
ins í Gautaborg,
Ferðalög
Útivistarferðir
Miðvikudagur 5. júli kl. 8 Þórsmerkur-
ferð. Dagsferð og til sumardvalar. Kl. 20
kvöldganga um Hjalla að Myllulækjar-
tjöm. Brottfór frá BSÍ, bensínsölu. Purk-
ey Breiðafjarðareyjar 7.-9. júli.
Sjáumst.
Ferðafélag ísland
Miðvikudagur 5. júli:
Kl. 8 Þórsmörk - dagsferð.
Kl. 20 Gálgahraun - kvöldferð. Létt rölt
um Gálgahraun á Álftanesi. Verð kr. 400.
Brottför í ferðimar er frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl.
Frítt fyrir böm.
t
MINNINGARKORT
Brýr og ræsi krefjast sérstakrar varkárni.
Draga verður úr hraða og fylgjast vel með
umferð á móti.
Tökum aldrei áhættu! mÉumferðar
Vráð
Fréttir
Á föstudaginn útskrifaði Iðnskólinn í fyrsta sinn snyrtifræðinga sem tekið höfðu sveinspróf í snyrtingu.
-JAK/-GHK
Ólafsvlk:
Aflakóngskeppni trillu-
karia á handfæraveiðum
„Ég er í hærri kantinum af þeim
sem stunda handfæraveiðar héðan
frá Ólafsvík. Ég er búinn að fiska um
43 tonn af þorski síðan 10. apríl. Við
erum tveir að bítast um aflakóng-
stignina, sá sem hefur aflað meira
en ég er búinn að fá 47-Á8 tonn,“ seg-
ir Marteinn Árnason sem gerir út
Magnús Ámason SH 38, 9,5 tonna
smábát.
„Maður er svo sem aldrei ánægður
með þaö verð sem maður fær fyrir
fiskinn. Ég legg inn hjá Fiskiðjunni
Bylgjunni og fæ landssambandsverð,
sem er ákveðið meðalverð, fyrir afl-
ann. Þegar vertíðin byrjaði fékk ég
35-36 krónur fyrir hvert kíló af
slægðum þorski en það hækkaði ný-
lega upp í 40 krónur.
Gæftir hafa verið ágætar, það
fiskast betur núna en í fyrra en
fiskiríið er mun lakara en í hitti-
fyrra. Þá fiskaði ég 80 tonn á vertíð-
inni og var hæstur þeirra sem gerðu
út á handfæri það árið frá Ólafsvík.
Hver túr tekur tvo daga, ég hgg úti
eina nótt en þeir sem gera út á minni
bátana landa hins vegar daglega.
Þeir fiska líka mun minna, viö erum
ekki nema þrír eða fjórir sem höfum
fiskað svipað og ég en æth við séum
ekki um 40 sem gerum út á trillur
og aðra smábáta héðan.
Æth maður verði ekki á hand-
færum þangað til í september þá
skiptir maður yfir á línu og rær með
hana fram í desember.
Við getum vahð um hvort við tök-
um kvóta eða banndagakerfið. Ég
valdi banndagakerfið og því verð ég
að stoppa 10. desember, ef ég hefði
vahð kvótakerfið hefði ég getað feng-
ið 95 tonna kvóta og nýtt hann eins
og mér sýndist. Ég taldi hins vegar
að banndagakerfið hentaði mér bet-
ur,“ sagði aflakóngurinn Marteinn
að lokum.
-J.Mar
Marteinn Arnason frá Olafsvik. Hann er búinn að fiska 43 tonn af þorski á handfæri siðan í apríl.