Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Page 36
FR É 1 T /V S KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsíngar - Ás tkrift - Dreifing: Sími 27022 Rannsókn vegna mannsláts: Lögregla hefur yfirheyrt marga ** Rannsóknarlögregla ríkisins er að rannsaka lát manns á fertugsaldri. Maðurinn lést um hádegi á laugar- dag. Hvers vegna Rannsóknarlög- regla hefur yfirheyrt marga aðila vegna þessa máls - vildi Bogi Nilsson rannsóknarlögreglustsjóri, en hann fer með rannsóknina, ekki segja til um. Bogi varðist allra frétta af máh þessu. Hann sagði að erfitt hefði ver- ið að yfirheyra suma þeirra sem teknir hafa verið fyrir vegna þess að viðkomandi hafi ekki verið í ástandi til að gefa skýrslur. Samkvæmt heimildum DV var maðurinn með talsverða áverka á höfði og er tahð að þeir hafi verið banamein hans. Grunur er um að ** ráðist hafi verið á manninn og hon- um veittir áverkar sem urðu honum að bana. Maðurinn mun hafa nefnt nafn eins manns, sem hugsanlega er einn árásarmannanna, áður en hann lést. Bogi Nhsson vhdi ekki segja th um hvort búið væri að handtaka ein- hvem vegna rannsóknarinnar. -sme Hella: Brotist inn í Grillskálann Brotist var inn í Grhlskálann á Hehu aðfaranótt föstudags. Talsvert á annað hundrað þúsund krónum var stohð. Rannsóknarlögreglan og lögreglan í Rangárvahasýslu fara með rannsóknina. Þetta er flórða innbrotið í Rangár- vahasýslu á skömmum tíma. Fyrst var brotist inn í bensínafgreiðslu á Hvolsvelh og síðan í tvær verslanir Kaupfélags Rangæinga, á Hvolsvehi og Rauðalæk, sömu nóttina. Öh inn- brotineruóupplýst. -sme Þjóðhagsstofiiun: Enn hættir sérfræðingur Benedikt Valsson, sérfræðingur Þjóðhagsstofnunar í sjávarútvegi, hefur ráðið sig sem hagfræðing hjá Farmanna- og fiskimannasamband- inu. Benedikt hefur mörg undanfarin ár séð um afkomuútreikninga sjáv- arútvegsins fyrir Þjóðhagsstofnun. Stóll hagfræðings Farmanna- og fiskimannasambandsins hefur verið Sfuður aht frá því að Bolh Héðinsson lét af störfum fyrir nokkrum árum. -gse LOKI Er ekki þar með komin ný tegund af minkaskinnum - reyklituð? Marglr í unglingavinnunm óhressir viö fyrstu útborgun: 15 ára unglingar borga skatta en 16 ára sleppa „Af hverju borgum við skatt meðan þau sem hafa meira í laun og eru eldri borga engan skatt?" Þessi spuming vaknaði hjá mörg- um 14 og 15 ára unglingum sem voru að fa útborgað um mánaða- mótin, í fyrsta skipti í sumar. Samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt eiga unglingar, sem verða 14 og 15 ára á árinu, aö greiða 6 prósent af tekjum sínum í skatt sem skiptist í 4 prósent tekjuskatt og 2 prósent úts var. Unghngar, sem verða 16 ára á árinu, eru hins veg- ar skattlagöir eins og fuhorönir og njóta því persónuafsláttar. Þeir hafa töíuvert hærra kaup en 14 og 15 ára unglingar en greiöa hins vegar engan skatt. Að sögn skattayfirvalda eru lögin svona og ekki hægt að svara spum- ingunni hvers vegna þó sú spura- ing brenni á vörum margra ungl- inga í unglingavinnunni. 14 ára unglingar vinna oftast hálfa vinnu og fa þá á mánuði rúm- ar 11 þúsund krónur. Um 660 krón- ur fara í skatt. 15 ára unglingar vinna fulla vinnu. Þeir hafa rúmlega 25 þús- und krónur á mánuði og greiða rúmlega 1500 krónur í skatt. 16 ára unglingar í bæjarvinnunni fá greitt samkvæmt Dagsbrúnar- taxta. Mánaðarkaup fyrir dag- vinnuer þá um 37þúsund. Af þeirri upphæð greiða þessir unglingar engan skatt Það finnst þeim yngri yfirleitt óréttlátt Að sögn Skúla Eggerts Þórðar- sonar hjá embætti ríkisskattstjóra era einstök tilfelh þar sem 14 og 15 ára unglingar koma betur út úr þessari skattlagningu, tílfehi þar sem launin eru töluvert há. Það sé þó undantekning. Með lengri skólagöngu komi þessi skattheimta verr út en hjá unglingum með skattkort. Hann bætti því við að einstaka sveitarfélög fehdu niöur útsvars- þáttinn, 2 prósent, til að hýran ent- ist betur hjá unglingunum. -hlh Um helgina var haldið skátamót á Ulfljótsvatni. Var þar saman kominn hópur hressra krakka sem höfðu það eitt að markmiði að skemmta sér hið besta. Og eins og alltaf á skátamótum þurfti ýmsum verkum að sinna eins og myndin sýnir. DV-mynd JAK Veðrið á morgun: Suðvestlæga áttin áfram Suðvestlæg átt verður áfram ríkj- andi um allt land. Skýjað verður um landið vestanvert og smáskúr- ir. Austantil á laUdinu verður aftur á móti bjart veður. Hiti verður 9-12 stig vestantil en mun hlýrra annars staöar, aht upp í 16 stig norðaustan- lands upp úr hádeginu. Reykjavík: Tvær kærðu nauðgun Maður um þrítugt er í gæsluvarð- haldi vegna rannsóknar á nauðgun- arkæra. Það var kona um tvítugt sem kærði hann. Hún segir manninn hafa nauðgað sér í íbúðarhúsi í austurbæ Reykjavíkur aðfaranótt síðasthðins laugardags. Rannsóknarlögregla rík- isins óskaði eftir gæsluvarðhaldi og hefur manninum verið gert að sitja inni í viku. Önnur kona um tvítugt kærði mann á svipuðum aldri fyrir að hafa nauðgað sér í íbúð í Breiðholti. Kon- an hefur dregið kæruna til baka - þar sem hún reyndist ekki á rökum reist. -sme Blönduós: Á tvö hundruð á vélhjóli og grun- aður um ölvun Lögreglan á Blönduósi tók síðdegis í gær ökumann á vélhjóh fyrir að aka á 194 kílómetra hraða. Maðurinn var stöðvaður rétt við Blönduós. Hann er granaður um ölvun við akstur. Lögreglan stöðvaöi 50 ökumenn fyrir að aka yfir hámarkshraða í Húnavatnssýslum um helgina. Fimm ökumenn voru teknir grunað- ir um ölvun við akstur. Þetta er þriðja helgin í röð sem svo margir era teknir fyrir hraðakstur. Fyrir viku vora 56 teknir og helgina áður voru 53 teknir. Vegalögreglan lenti í árekstri á blindhæð þegar verið var að veita vélhjólamönnum eftirfór. Ekki uröu slys á fólki og bílarnir skemmdust ekki mikið. -sme Sex teknir ölv- aðir við stýrið í nágrenni Selfoss var gífurleg umferð um helgina. Voru sex teknir, grunaðir um ölvun við akstur og 21 var tekinn fyrir of hraðan akstur. Taldi lögreglan á Selfossi þetta vera eins og gengi og gerðist á sumrin. Eitthvað var um smáárekstra og bíll valt á Mosfellsheiði. Var einn maður í bílnum og voru meiðsli hans minniháttar. -GHK Albert afhendir trúnaðarbréf Albert Guðmundsson sendiherra hefur afhent Juan Carlos I. Spánar- konungi trúnaðarbréf sitt sem sendi- herra Islands á Spáni með aðsetur í París. Átti athöfnin sér stað á mið- vikudag. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.