Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1989, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1989, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989. íþróttir Sagt eftir leikinn Ulf Kirsten: „Þessi sigur er mikil uppreisn fyrir okkur eftir slæmt gengi aö undanfömu. Við erum komnir í slaginn um annað sætið og ég trúi þvi að við getum fariö alla leið í úrslitakeppnina á Ítalíu eftir þessi úrslit,“ sagði Ulf Kirsten, sóknarmaöurinn skæði (númer 9) í austur-þýska liöinu, í samtali viðDV eftir leikinn. ,íg var hissa á hve illa íslenska liðið lék, það skapaði sér ekki umtalsvert marktækifæri allan leikinn. Viö sáum leik þess í Austurríki á myndbandi og þar sýndi það allt aðra knattspymu," sagði Kirsten. Guðni Bergsson: „Ég fer að halda að við séum með einhvem sálfræðilegan „komplex“ gagnvart Austur- Þjóðverjum. Þeir ná sér aldrei betur á strik en gegn okkur,“ sagöi Guöni Bergsson. „Þessi leikur kennir okkur að það má ekki slaka á eitt andar- tak, ekki missa einbeitinguna eina einustu mínútu, þá fer illa. Okkur gekk vel í byijun siöari hálfleiks, vorum farnir aö sækja meira og gleymdum þá vamar- leiknum. Það veröur að taka hlut- ina í réttri röð, byggia út frá sterkri vöm og beita skyndisókn- um. Maður verður að biðjast af- sökunar eftir svona leik.“ Sigurður Grétarsson: „Þetta var ekki okkar dagur og ég veit eiginlega ekki hvers vegna. Það var ekki af neinni einni ástæðu sem þetta fór svona,“ sagöi Sigurður Grétars- son. „Þeir léku mjög skynsamlegan vamarleik og það var virkilega erfitt að komast í gegnum vöm þeirra. í undanfómum lands- leikjum hölúm við alltaf náð að skapa okkur nokkur þokkaleg færi en það tókst alls ekki að þessu sinni." Friðrik Friðriksson: „Annað markið þeirra er einhver sá mesti „grís“ sem ég hef séð. Maðurinn ætlaði að skjóta en mistókst gersamlega og sparkaði í fótmn á sér. Af honum skrúfaö- ist boltinn upp í loftið og yfir mig,“ sagði Friðrik Friðriksson, markvörður fslendinga. „Ég var mjög vel staðsettur til að taka á móti skotinu og er ein- mitt búinn.aö leggja mikla vinnu í það í sumar að staösetja mig í svona tilfellum. Hin mörkin var erfitt að eiga við. í þvi fyrsta brást uppdekkingin í vöminni og þaö þriðja var einfaldlega gersamlega óverfandi skot“ ÓmarTorfason: „Vamarleikurinn var ekki góður í síðari hálfleik. Fyrsta mark Austur-þjóðverjar var reiðarslag fyrir okkur og annað markið var rothögg. í fyrri hálfleik hélt vöm- in og komust Austur-Þjóðveijar lítið áleiðis. Liðið náöi sér ekki á strik í leiknum, miöjan var slök og því fór sem fór,“ sagði Ómar Torfason eftir leikinn. -JKSIVS Hef aldrei sagt að þetta væri minn síðasti leikur - sagði Asgeir Sigurvinsson um viðureignina við A-Þjóðverja Asgeir Sigurvinsson átti ágæta spretti í leiknum í gær en hér reynir hann þrumuskot á austur-þýska markið. DV-mynd Brynjar Gauti H) „Ég hef aldrei lýst því yfir að þetta væri minn síðasti landsleikur en í augnablikinu lítur vissulega út fyrir að svo hafi ver- iö. Ég hætti sennilega í knatt- spyrnu eftir þetta keppnistímabil og ef það gengur eftir gefur það augaleið að ég spila ekki fleiri landsleiki," sagði Ásgeir Sigur- vinsson sem átti ágæta spretti í leiknum gegn Austur-Þjóðverjum í gær. Leiðinlegur endir á landsliðsferlinum „Ef ég hætti núna yrði þetta vissu- lega heldur leiðinlegur endir á lands- liðsferlinum,“ hélt Ásgeir áfram í samtalinu við blaðið. „Leikurinn var lengi vel í jámum og þá áttum viö jafna möguleika en eftir að þeir skoruðu fyrsta markið var eins og einbeitingin hjá okkur hyrfi og allt var búið,“ sagði Ásgeir. -VS Þetta var sorgiegur endir - sagði Sigfried Held sem kvaddi í gær „Eftir fyrsta mark Austur-Þjóð- verja hrundi leikur íslenska liðsins. Allur leikur liðsins fór úr skorðum. Austur-Þjóðverjar fóru í gang, komu framar á völlinn og voru stórhættu- legir í öllum sóknarlotum sínum,“ sagði Sigfreid Held landsliðsþjálfari' eftir leikinn. „Leikur austur-þýska liðsins hpnt- ar íslenska liðinu illa, leikmenn þess eru eldfljótir og ekki má líta af þeim eitt augnablik. Ég sá ekki ástæðu til að skipta fleiri leikmönnum inn á í síðari hálfleik. Amór fékk ekki leyfi Anderlecht til aö leika nema í rúmar fimmtíu mínútur, um þetta var gert samkomulag milli KSÍ og And- erlecht. Ungu piltarnir hefðu ekki haft gott að því að koma inn í leikinn eins og staðan var orðin. Þetta var sorglegur endir hjá íslenska liðinu," sagði Held. Held hélt að Pétur Ormslev gæfi ekki kost á sér Þegar Held var inntur eftir því hvers vegna aö hann heföi ekki valið Pétur Ormslev í liðið en Pétur hafði fyrr í sumar gefið þá yfirlýsingu út í DV að hann væri tilbúinn að leika fyrir ísland ef til hans yrði leitað. Held svaraði þessari spurningu á efirfar- andi hátt: „Ég veit ekki betur en að fyrri yfir- lýsingar Péturs, þess efnis að hann gæfi ekki kost á sér í landsliðið, stæðu enn í dag. Ég hef ekki fengið upplýsingar um að hann væri reiðu- búinn að klæðast landsliðspeysunni á nýjan leik,“ sagði Held, sem stjóm- aði íslenska liöinu í síðasta sinn. JKS Arnór Guöjohnsen var ekki ykja langt frá því að ná skoti í einm hættulegustu sokn Islendinga í gær. Eins og ráöa má af myndinni komst varnarmaður Austur-Þjóöverja fyrir sendinguna á elleftu stundu. DV-mynd Brynjar Gauti Sævar fer í leikbann - fékk annað spjaldið 1 röð í gær Sævar Jónsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í síðustu tveimur leikjum, verður ekki með þegar íslendingar mæta Tyrkjum í lokal- eik undankeppni HM þann 20. september. Hann fékk sitt annað gula spjald í keppninni og fer því í eins leiks bann. Sævar tók út leikbann þegar ís- lendingar léku við Sovétmenn í Moskvu í vor. Gegn Austurríkis- mönnum á Laugardalsvellinum í júní fékk hann að líta gula spjaldið og síðan annað gegn Austur-Þjóð- verjum í gærkvöldi. -VS Guðmundur Torfason átti erfitt uppdrát in heimavelli frammi fyrir fjölda áhorfem Þrjú mörk Aus - Islendingar kj Það haustaði heldur betur í íslensk- um knattspymuheimi í gær. Kannski var steingrá snjóhetta á Esjunni til marks um þá ógæfu sem ríflega sjö þúsund manns upplifðu í Laugardaln- um í gær. íslenska knattspymulands- liðið beið þá algert skipbrot á sama degi og kollur Esjunnar gránaði í fyrsta sinn á þessu hausti. Islenska liðið, sem svo margir höföu bundið vonir við í forkeppni heims- meistaramótsins, steinlá, 0-3, gegn Austur-Þjóðverjum. Skellurinn gat raunar hæglega orðið rosalegri. Skot Reiner Ernst geigáði nefnilega um miðbik síðari hálfleiks þar sem hann stóð óvaldaður andspænis Friörik Friðrikssyni og vítaspyma Tómasar Doll fór í stöngina á lokamínútun- um. íslendingar komust aldrei í takt við leikinn Óhætt er að'segja að íslenska liöið hafi aldrei komist í takt við leikinn í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.