Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1989, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1989, Blaðsíða 18
26 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1989. Iþróttir Sport- stúfar Júgóslavar sigruöu Skota, 3-1, í 5. riöli • I forkeppni HM í Zagreb í gærkvöldi. Skotar komust yfir í leiknum meö marki frá Gordon Durie á 37. mínútu. Júgóslavar geröu út um leikinn á sjö mínútna kafla í síöari hálfleik. Jatanec jafnaði en Steve Nicol og Gary Gillespie skoruðu sjálfsmörk. 45 þúsund áhorfendur voru á leiknum. Belgar i miklu stuðí gegn Portúgölum Belgar tóku Portúgali í hreina kennslustund í forkeppni HM í Brussel í gærkvöldi. Geulemans kom Belgum yfir í fyrri hálfleik en Van Der Linden bætti viö tveimur mörkum í síðari hálfleik. Belgar eru í efsta sæti í riölinum og verða örugglega meö í úrslita- keppninni á Ítalíu næsta sumar að öllu óbreyttu. Dýrmætur sigt Ungverja í Belfí Í|ur fast Ungverjar unnu mikilvægan sig- ur á N-Irum í Belfast, 1-2. Kalman Kovacs skoraöi, 1-0, á 13. mínútu. Gyorgy Bognar kom Ungvexjum í 2-0 á 44. mínútu. Norman White- side skoraði eina mark N-íra á 89. mínútu. Láam Brady frá West Ham United lék sinn síöasta landsleik í gærkvöldi en hann á aö baki 71 landsleik fyrir Norö- ur-írland. Finnar sigruðu Wales- búa i Helsinki Mika Lipponen tryggði Finnum sigur á Walesbúum í forkeppni HM. Lipponen, sem leikur með hollenska félaginu Twente FC, skoraði markið á 50. mínútu. Nevil Southall, markvöröur Everton, átti möguleika á að vetja skallabolta Lippoenen. 8 þúsund áhorfendur voru á leiknum. Vestur-Þjóðverjar náðu aðeins jöfnu í Dublin írar og Vestur-Þjóðveijar skildu jafhir, 1-1, í vináttulandsleik í Dublin í gærkvöldi. Frank Staple- ton kom Irum yfir á 10. minútu leiksins en Hans Dörfner jafnaöi fyrir Vestur-þjóðvetja á 33. min- útu og þar við sat Áhorfendur voru 45.000. Danir náðu jöfnu i Amsterdam Hollendingar og Danir geröu jafntefli, 2-2, í vináttulandsleik í Amsterdam í gærkvöldi. Koeman og Wouters komu Hollendingum í 2-0 en Bartram og Heintze jöfnðu fyrir Dani á tveggja mín- útna kafla i síðari hálfleik. Áhorf- endur voru 12.000. Úrslit i1. deild á Italíu í gærkvöldí Ascoli - Sampdoria.......2-1 Atalanta - AC Milan......0-1 Bari-Verona..............2-1 Cesena - Napoli..........0-0 Genoa-Roma...............0-2 Inter Milan - Lecce......2-1 Juventus - Fiorentina....3-1 Lazio - Cremonese........1-1 Udinese - Bologna........1-1 Stórslgur Luzern á heimavelli Lið Sigurðar Grétarssonar, Luz- em, aigraöi Aarau, 3-0, í sviss- nesku 1. deildar keppninni í knattspymu í gærkvöldi. Sigurð- ur var flarri góðu gamni en hann lék með íslenska landsliöinu á sama tíma gegn Austur-Þjóðverj- um. Þetta var annar sigurieikur Luzem í röð og er liðið greinilega að rétta úr kútnum eftir frekar slæma byrjun. Þá tapaði Wetting- en á heimavelli fyrir Grasshop- pers frá Zörich, 1-3. Handknattteikur: i|P ^BMI BM norðan heiða - íslendingar töpuðu fyrir A-Þjóðverjum, 22-24 Kristitm Hreinssoti, DV, Akureyrú íslendingar biöu iægri hlut fyrir Austur-Þjóðverjum í vináttulands- leik í handknattleik á Akureyri í gærkvöldi. Austur-Þjóðveijar sigr- uðu í leiknum með 24 mörkum gegn 22. íslenska liöið byijaði ágætlega og skoraöi fyrsta markið en síðan var jafiit á öllum tölum upp í 8-8. Óskar Ármannsson byijaði leikinn vel og skoraði fiögur af fyrstu fimm mörkum íslenska liðsins í leiknum. Þegar á leið fyrri hálfleikinn tók markvörður austur-þýska liðsins að verja vel og í hálfleik höfðu Austur-Þjóöverjar þriggja marka forystu, 9-12. Schimrock varöi alls ellefu skot í fyrri hálfleik og þar af eitt víti. Tvö víti fóra forgörðum hjá ís- lendingum í fyrri hálfleik, Kristján Arason skaut framhjá en Óskar Ármannsson reyndi að skjóta i gegnum kloflö á markverðinum en mistókst. Austur-Þjóðveijar náðu fjögurra marka forystu í upphafi síðari hálf- leiks. íslenska liðið minnkaði mun- inn í tvö mörk en þá virtist allur vindur úr liðinu og Austur-Þjóð- veijar náðu fimm marka forskoti og sóknarleikur islenska liðsins varð ráðleysislegur. íslendingar klómðu aöeins í bakkann undir lokin og náöu aö laga stöðuna í 21-22 en austur-þýska liðið reynd- ist sterkara á lokasprettinum. íslensku stórskyttumar náðu sér ekki á strik, þeir náðu aðeins að skora fimm mörk fyrir utan. Lítið kom út úr hornaleiknum en eitt mark kom þaðan allan leikinn. Guðmimdur Hrafhkelsson var bestur í íslenska liðinu og varði oft vel á köflum og bjargaði íslenska liðinu frá stærra tapi. Óskar Ár- mannsson átti ágæta spretti inni á milli en annars léku íslendingar undir getu, náðu aldrei að sýna sín- ar réttu hliöar. Gunnar Schimrock var bestur í liði Austur-Þjóðverja ásamt fýrir- liða liðsins, Holger Winselmann. Heiko Triepel var einnig sterkur. • Dómarar leiksins vora tékk- neskir og skiluðu hlutverki sínu óaðfinnanlega. • Áhorfendur voru 800. • Mörk íslands: Óskar Ár- mamisson 8/3, Þorgils Óttar 5, Kristján Arason 4, Atli Hilmarsson 2, Geir Sveinsson 1, Bjarki Sigurðs- son 1, Gunnar Gunnarsson 1. • Mörk Austur-Þýskalands: Hauk 4, Triepel 4, Whal 3, Winsel- mann 3, Schake 3, Querengaesser 3, Sncheider 2, Fhurig 1, Baryth 1. • Terry Butcher, fyrirliði enska landsliðsins, gengur af leikvelli alblóðugur í Stokkhólmi I gærkvöldi. Butcher lenti í samstuði við sænska leikmanninn Jhonny Ekström snemma í leiknum. í hálfleik þurfti að sauma sjö spor i höf- uð Butcher en þegar á leikinn leið fóru saumarnir að gefa sig og blóð lak í stríðum straumum niður andlit hans eins og glöggt sést á myndinni ef hún prentast vel. JKS/Símamynd Reuter Jafnt í Stokkhólmi -1 nánast úrslitaleik milli Svía og Englendinga Svíar og Englendingar skildu jafn- ir í 2. riðli forkeppni heimsmeistara- keppninnar á Rasunda-léikvangin- um í Stokkhólmi í gærkvöldi, hvor- ugt liöið skoraði mark í leiknum. Þessar þjóðir hafa afgerandi forystu í riðlinum og Englendingar hafa enn ekki fengið á sig mark í keppninni. Mikil eftirvænting ríkti fyrir þennan leik og lögðu 39 þúsund áhorfendur leið sína á leikinn. Baráttan var í fyrirrúmi í leiknum, töluverð harka en bæði liðin sköp- uöu sér nokkur hættuleg tækifæri. Gary Lineker var nálægt því að skora í fyrri hálfleik eftir góða send- ingu frá John Bames en Ravelli, markvörður Svía, var vel á verði og varði glæsilega. Skömmu síðar skall hurð nærri hælum uppi við enska markið er Leif Engqvist átti gott skot að markinu en Peter Shilton, sem verður 40 ára síðar í þesum mánuði, varði vel. í upphafi síðari hálfleiks varði Ra- velli í tvígang á sömu mínútunni frá Gary Lineker. Á lokamínútu leiksins gátu Svíar hæglega skorað mark er Mats Magnusson, sem leikur með portúgalska félaginu Benfica, komst í ákjósanlegt færi en Shilton var á réttum stað í markinu. Bobby Robson einvaldur enska landsliðsins var sáttur við úrslit leiksins en sgaði þó að sínir menn hefðu ef til vill fengið fleiri mark- tækifæri í leiknum. Robson sagði ennfremur að Svíar hefðu barist vel og þegar á heildina er litið hefði jafn- tefli verið sanngjöm úrslit leiksins. Um eitt þúsund Englendingar lögðu leið sína til Stokkhólms til að freista þess að fá miða á leikinn en enska knattspyrnusambandinu var engum miðum úthlutað á leikinn. Englendingarnir urðu sér til skamm- ar eins og fyrri daginn. Sænska lög- reglan handtók yfir eitt hundrað breska ólátabelgi í miðborg Stokk- hólms fyrir leikinn. Fyrir utan leik- vanginn höfðu 300 lögreglumenn komið sér fyrir en ekki kom þar til óláta. -JKS Friðrik Friðriksson: Hættir líklega hjá B 1909 „Ég hætti væntanlega að leika með B 1909 að loknu þéssu keppnistíma- bili en hef mikinn hug á að leika áfram í Danmörku og þá í 1. deild- inni. Ég hef fengið nokkrar fyrir- spumir frá 1. deildar liðum um hvort ég hafi áhuga,“ sagði Friðrik Frið- riksson, markvörður íslenska lands- liðsins í knattspymu, í samtali við DV í gærkvöldi. Friðrik leikur nú sitt annaö ár með B1909 en hann stundar nám í Óð- insvéum. Hann fór með liðinu upp í 2. deild í fyrrahaust og þar er það nú í efri kantinum, en á ekki lengur raunhæfa möguleika á 1. deildar sæti. „Tvö ár er ekki langur tími og mér finnst ég hafa lært talsvert af þessu. Það er því freistandi að vera áfram og reyna fyrir sér ofar,“ sagði Friðrik Friðriksson. -VS HM-forkeppni: Jafnt í Vínarborg Austurríki og Sovétríkin, sem leika í sama riðli og íslendingar, gerðu markalaust jafntefli í Vín í gærkvöldi að viðstöddum 65 þúsund áhorfend- um. Bæði liðin tóku litla áhættu, hugsuöu mest um að veijast og þegar upp var staðið verða úrslitin að telj- ast sanngjörn. Úrslitin hafa það í fór með sér að Austurríkismenn hafa mikla mögu- leika að vinna sér sæti í úrslita- keppninni á Ítalíu næsta sumar. Sov- étmenn, sem eru í efsta sætinu í riðl- inum, hafa svo gott sem er tryggt sér sigurinn í riðlinum, þurfa aðeins eitt stig til viðbótar, sem verður eflaust léttur leikur fyrir þá. Fjóra lykilmenn vantaði í sovéska liðið en þaö kom ekki að sök. Austur- ríkismenn tefldu fram nánast sama liði og lék gegn íslendingum í Salz- burg á dögunum. Þeir léku skyn- samlega og náðu stundum að ógna sovésku vörninni en sárafá tækifæri sköpuðust af hálfu beggja aðila í leiknum. „Ég er ánægður með úrslit leiks- ins. Austurríkismenn léku vel qg við erum komnir hálfa leið til Ítalíu, vantar lítiö upp á,“ sagði Valeri Lo- banovsky, þjálfari sovéska liðsins, eftir leikinn, í samtali við Reuters- fréttastofuna. „Við lékum tæknilega séð mjög vel gegn liði sem álitið er mun betra en okkar. Við stefndum að því að fá eitt stig og það gekk eftir. Við komum til greina við að hreppa annað sætiö í riðlinum," sagöi Josef Hickersber- ger, þjálfari Austuríkismanna, eftir leikinn. -JKS Áfall hjá Fram: Þorsteinn ekki til Rúmeníu Þorsteinn Þorsteinsson, vamar- maðurinn öflugi, verður ekki með Frömumm í fyrri leik þeirra gegn rúmensku meistumnum Steaua sem fram fer í Búkarest næsta miðviku- dag. Hann er í prófum við Háskóla íslands og getur ekki farið. Framarar fara utan á mánudaginn, og æfa þá á velli Frem í Kaupmanna- höfn á meöan þeir bíða í sjö tima þar í borg eftir flugi. Leikurinn er á mið- vikudag en þeir verða ekki komnir heim til íslands fyrr en á íostudag, og eiga síðan að mæta Víkingum í lokaumferð 1. deildarinnar daginn eftir. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.