Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1989, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1989.
31
Smáauglýsingar - Símí 27022 Þverholti 11
Bflar til sölu
Fréttir
Útsala á sætaáklæði, verð 3500 kr.
Póstsendum samdægurs. Bílteppi, litir
blár, rauður, grænn og svartur. Verð
1250 kr. fin. AVM driflokur fyrir flest-
ar gerðir jeppa fyrirliggjandi (Manu-
al), verð 7400. Sérpöntum varahluti í
flestar gerðir bifreiða. G.S. varahlutir,
Hamarshöfða 1, sími 83744 og 36510.
Til sölu þetta einbýlishús i Höfnum,
Suðurnesjum. Verð 2,7 millj., má
greiðast með húsbréfum. Uppl. í síma
91-627208 eða 97-71738 e.kl 19.
Hitaveitur - vatnsveitur. Vestur-þýskir
rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn.
Boltís sf., símar 91-671130 og
91-667418.
Vetrarhjólbarðar.
Hágæðahjólbarðar, Hankook,
frá Kóreu á mjög lágu verði.
Gerið kjarakaup.
Sendum um allt land.
Barðinn hf., Skútuvogi 2, Reykjavík,
símar 30501 og 84844.
Verslun
r i
I fi - í j. f
i
f 'fHv
1' Ífi i ■'J
! \l : :
[; 7 ^ , j
I .1,
1 | ;
1 - . j
l Íí Í
1 -
Mikið úrval fristandandi sturtuklefa.
Verð frá 34.400 staðgreitt. Einnig úr-
val sturtuhurða í horn eða beinar.
Erum einnig búnir að fá skilrúm á
baðker frá Koralle. Vandaðar vörur --
gott verð. Vatnsvirkirin hf., Ármúla
21, s. 685966, Lynghálsi 3, s. 673415.
Ef þú ert svolítið þykk eða átt von á
barni þá eigum við fötin. Draumurinn
sf., Hverfisgötu 46, sími 22873.
Viö smíðum stigana.
Stigamaðurinn, Sandgerði, sími
92-37631 og 92-37779.
Náttsloppar og náttfatnaður í miklu
úrvali. Frábært verð. Póstsendum.
Karen, Kringlunni 4, s. 686814.
Dráttarbeisli - Kerrur
Dráttarbeisli, kerrur. Framleiðum allar
gerðir af kerrum og vögnum, dráttar-
beisli á allar teg. bíla. Áratuga
reynsla. Aliir hlutir í kerrur og vagna.
Hásingar 500 kg - 20 tonn, með eða
án bremsa. Ódýrar hestakerrur og
sturtuvagnar á lager. Vinnuskúrar á
hjólum, 5-10 manna. Veljum íslenskt.
Víkurvagnar, Dalbrekku, símar
91-43911, 45270.
stígsmegin), sími 14448. Ödýr, æðis-
lega smart nærfatnaður á dömur, s.s.
korselett, heilir bolir með/án sokka-
banda, toppar/buxur, sokkabelti og
mikið úrval af sokkum o.m.fl. Meiri
háttar úrval af hjálpartækjum ástar-
lífsins í fjölmörgum gerðum fyrir döm-
ur og herra. Ath. allar póstkröfur dul-
nefndar. Sjón er sögu ríkari. Opið frá
kl. 10-18 virka daga og 10-14 laugard.
Vel merktur er vel þekktur.
Límmiðar: 15x35, 30x60, 35x70 cm.
Litir: gull, silfur, hvítur, glær, rauður.
Einnig aðrar stærðir og gerðir og al-
menn prentþjónusta, t.d. nafnspjöld.
Ódýr og góð þjónusta. Skiltagerð.
Texta- og vörumerkingar,
Hamraborg 1, 4 hæð, sími 641101.
j
---*
kr. 16.080. kr. 20.317.
Nýkomnir fataskápar. Mikið úrval og
gott verð. Gerið verðsamanburð. Vest-
ur-þýsk vara. Nýborg hf., Skútuvogi
4, s. 82470 (sama húsi og Álfaborg).
BROSUM /
í iLTnftirdinní ”
- og altt jenjur twtnr!
yuJJEROAR
Mitsubishi L-300 sendi/fólksbifreið, 6
manna, árg. ’88, ekinn 32 þús., 5 dyra,
fallegur bíll, (kostar nýr 1170 þús. ),
verð 940 þús. Góð greiðslukjör. Uppl.
í síma 91-17678 milli kl. 16 og 20.
Toyota LandCruiser ’81 til sölu, 3,4 l
dísil, 107 ha., ekinn 180 þús., í góðu
lagi. Uppl. í síma 18285 og 23872.
Þessi pallbíll er til sölu. M.Benz 307,
árg. ’82. Vörubílasalan Hlekkur, sími
672080.
S* |:ÆS5S;*ES5SSif
RW'
Golf GL ’88, 5 dyra, svartur, til sölu.
Uppl. í síma 91-17133 og 91-626633.
Þjónusta
Gröfuþjónusta, simi 985-25007.
Til leigu í öll verk Cat. 428 traktors-
grafa. Höfum einnig vörubíl. Leitið
tilboða. Kvöldsímar 91-670260 og
641557.
Gröfuþjónusta, sími 985-21901 og
91-689112, Stefán. Tökum að okkur
alla gröfuvinnu, JCB grafa með opn-
anlegri framskóflu, skotbómu og
framdrifi.
Jólaundirbúningur
Lions-manna hafinn
Lionsklúbburinn Freyr í Reykja-
vík og lionsklúbbar á flestum stöðum
á landinu hafa selt jóladagatöl með
sælgæti í meira en 15 ár. Flestir ís-
lendingar 25 ára og yngri hafa notið
þessara dagatala og tahð dagana til
jóla með þeim. Allur hagnaður af
sölu jóladagatalanna rennur til líkn-
armála og með því að kaupa þau er
fólk að styrkja margvísleg mannúð-
armál um leið og það gleður börnin.
Sem dæmi má nefna að Lionsklúb-
burinn Freyr gat veitt fé af sölu síð-
asta árs til kaupa á augnskurðartæki
fyrir Landakotsspítala, rafstillanleg-
um þjálfunarbekkjum fyrir endur-
hæfingadeild Reykjalundar, sjúkra-
rúmi fyrir heimili Styrktarfélags
vangefinna við Víðihlið og ýmsu
fleira. Lionsklúbbamir vona að jóla-
dagatölin fái jafngóðar móttökur og.
ávallt áður.
Merming
Söguskoðuní
grófum dráttum
- iun verk Arvids Pettersens á Kjarvalsstöðum
Undanfarið hefur staðið yfir sýning á verkum Norðmannsins Arvids
Pettersens í austursal Kjarvalsstaða. Hugmyndin að sýningunni virðist
komin frá norskum listmiðlurum og galleríeigendum, en styrkt af Nor-
ræna menningarsjóðnum. Persónulega álít ég vænlegra að Norræni
menningarsjóðurinn skipuleggi slíkar sýningar frá grunni og leggi þá
fremur áherslu á samsýningar - í það minnsta ef um yngri listamenn er
að ræða. Arvid Pettersen telst e.t.v. ekki lengur til yngstu kynslóðar nor-
rænna hstamanna, fæddur 1943, en hann er heldur ekki svo mikih bógur
á alþjóðamælikvarða enn sem komið er að einkasýning sem þessf sæti
miklum tíðindum. Hér er reyndar um farandsýningu aö ræða - á milli
vel metinna hstastofnana á Norðurlöndum, svo hlutimir eru greinilega
vel undirbúnir hjá þeim sem hér eiga hlut að máh.
í veglegri og litprentaðri sýningarskrá gefur að hta skrif tveggja skjól-
stæðinga Pettersens um hst hans og lífsviðhorf. Bjöm Springfeldt segir
í formála að „tilefni þessarar sýningar sé hið óvænta og sjálfstæða í könn-
un Arvids Pettersens á því hvemig nú á tímum má mála í senn hlutlægt
og af uppreisnarhug”. Verk Pettersens era að vísu hlutlæg sum hver;
uppistaða sýningarinnar er kyrralífsmyndir og. mannmyndir. En „upp-
reisn“ Pettersens felst kannski ekki hvað síst í þvi að bijóta upp þessi
stöðluðu mótív hstamanna um aldir og þar með hugtakið hlutlægni.
Mennina málar Pettersen á gamla og ónýta vatnskassa úr bílum og kyrra
______________Myndlist_______________
Ólafur Engilbertsson
lífsmyndimar era ýmist af hversdagslegum verkfærum eða torkennileg-
um skúlptúrum. Þessir skúlptúrar eru eins konar hstaverk í hstaverk-
inu; þar gefst Pettersen tækifæri til aö koma með fullkomlega huglægar
formhugmyndir inn í annars hlutbundna mynd. Við þetta verður verkið
fjarlægara og til að auka enn á firðina málar hstamaðurinn gjaman gerv-
iramma í jaðra myndarinnar og takmarkar sig við grábrúna tóna gam-
aha fjölskylduljósmynda. Verkin em samt sem áður langt frá því að geta
tahst fótóreahsk; Pettersen kappkostar einmitt með hrjúfri áferð í anda
Kiefers að minna horfandann rækilega á að hér sé um að ræða málverk
með stóm M-i.
Tilvitnanir og eftirhermur
Bo Nilsson ijahar ítarlega um þessa ígrunduðu framsetningu Pettersens
á sínum hstrænu afurðum og telur verk hans sýna „nauðhyggju þar sem
maðurinn stjómast af eigin vilja á fullkomlega blindan hátt“. Ámóta orð
hafa einmitt veriö viðhöfð um póstmódernismann og þá hermikráku-
speki sem ýmsir hafa tahð einkenna þá stefnu. En sé Arvid Pettersen
póstmódemisti þá sýnir hann það hér svart á hvítu að tilvitnanir í sögu
manns og hstar eru síður en svo þrándur í götu skapandi hugsunar. Th-
vitnanir í málverki byggja auk þess á gerólíkri hugsun miðað við efdr-
hermur og eiga ýmislegt að sækja til konsepthstarinnar. Plankauppsetn-
ing Pettersens er að þessu leyti minnisstætt verk, sem sækir hugmyndir
til leikhúss kreppuáranna, kúbismans og expressjónismans, svo eitthvað
sé nefnt. Málverkin númer 18 og 20 virðast hins vegar stílhrein afsprengi
naumhyggju og dadaisma og þar fær þrívíddarhugsun Pettersens annan
farveg eins og áður er getið.
Að öhu samanlögðu er hér um einkar forvitnilega sýningu að ræða.
Er vonandi að hér verði framhald á hjá Kjarvalsstöðum í kynningu á
póstmódemismanum og væri ekki úr vegi að selja upp yfirhtssýningu á
verkum norrænna hstamanna sem tengjast þessari umtöluðu stefnu á
einneðaannanhátt. -ÓE