Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1989, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1989.
Utlönd
Forsætisráðherra Tékkóslóvakíu sagði af sér í gær:
Ný stjórn í dag
- Verður Vaclav Havel næsti forseti?
Hinn nýi forsætisráðherra Tékkósló-
vakiu, kommúnistinn Marian Calfa.
Simamynd Reuter
Marian Calfa, sem í gær var út-
nefndur forsætisráðherra Tékkósló-
vakíu, mun eiga viðræður við full-
trúa stjómarandstæðinga um nýja
stjóm í landinu í dag. Koma þær við-
ræður í kjölfar þess að Ladislav Ad-
amecs sagði af sér embætti forsætis-
ráðherra í gær. í fréttum hinnar op-
inberu fréttastofu Tékkóslóvakiu í
gær var skýrt frá því að Calfa, sem
gegndi embætti aðstoðarforsætisráð-
herra þar til forseti útnefndi hann
arftaka Adamecs, myndi kynna nýja
ríkisstjóm í dag.
Fulltrúar Vettvangs borgaranna,
breiðfylkingar stjómarandstæðinga,
sögðust í gær reiðubúnir til að styðja
stjómarmyndunartilraunir Calfa og
veita honum hæfilegan tíma til að
koma á laggimar starfhæfri stjóm.
Stjórnarandstaðan hefur farið
fram á að næsta stjóm landsins verði
skipuð til helminga mönnum úr röð-
um stjómarandstæöinga og krefst
m.a. að embætti utanríkis-, fjármála-
og vinnumálaráðherra fahi í skaut
andófsmanna.
En það var ekki bara Adamec sem
hvarf af sviði stjómmálanna í Tékkó-
slóvakíu í gær. Fyrrum leiðtogi
kommúnista, harðlínumaðurinn Mi-
los Jakes, og Miroslav Stepan, fyrr-
um leiðtogi Prag-deildar flokksins,
hafa verið reknir úr flokknum.
Sfjómarandstaðan heldur fast í þá
kröfu sína að Gustav Husak forseti
láti af embætti eigi síðar en á sunnu-
dag. Að mati fréttaskýrenda er Vac-
lav Havel, leikritaskáldið og einn
helsti leiðtogi Vettvangs borgaranna,
einn hugsanlegra arftaka. Þá hefur
einnig verið nefndur sá möguleiki
að Aiexander Dubcek, fyrrum leið-
togi kommúnista, taki við forseta-
embættinu. Reuter
Jólin nálgast!
Ertu búinn aö skrifa
óskalistann í ár?
Láttu draumana rœtast
Geföu fjölskyldunni gleðileg jól
JÚWTItBOÐ
"ísrssss*
M-370CD hljómtækjastæða
m/geislaspilara
Tvofalt kassettutæki með stillanleg
• p_- ■ .. . upptökuhraða + raðspi
Geislaspilan - forritanlegur fyrir 16 minn
• Fiarcrú • þrLBS.,a 9B,sla -■0versamplin
Fjarstyring fynr utvarp/hljóðstyrk/on-
Venjulegt verð 59.51
jjolatiiboð 49.900 stgi
ORION
VMC-206
Video-
töku-
vél
omin videotökuvél
jTOCUa
fvirk stilling á lýsingu
ir aðgerðir i glugga
lanleg lengd á upptöku
nleg í tösku með axlaról
gt að stilla upp á þrífót
ilegt verð 98.100
atilboð 71.900 stgr.
hljóm-
tækja-
stæða
m/stafrænu útvarpi
Venjulegt verð 28.900 9m upp,dkuhr
Jólatilboð 23.300 stgr.
Silver með Schneider CDP-7tnn
geislaspilara:
Jólatilboð 44.900 stgr.
Bjóðum einnig: Tagra - Tratec - Bosch gervihnattasjónvarp - Einstaklings-
og fjölbýlishúsabúnaður - ýmsir möguleikar.
^ Kapaltækni hf. föstudaga til 18
*--------- 11 — laugardaga til 18
B9—
ARMULA 4. SIMI 680816
GRUnDIG
53-330 CTi 25" litsjónvarp
25" hágæða litsjónvarp með fjarstynngu.
Gerir ráð fyrir Teletext-sendingum.
injulegt verð 93.700
ólatilboð 79.900 stgr,
Vaclav Havel hefur verið nefndur sem hugsanlegur arftaki Husaks, forseta
Tékkóslóvakíu, en stjórnarandstæðingar fara fram á afsögn hans.
Simamynd Reuter
A-þýski kommúmstaflokkurmn:
Víðtækrar uppstokk-
unar að vænta
Austur-þýski kommúnistaflokkur-
inn mun í dag segja skilið við stalín-
ismann fyrir fullt og allt á neyðar-
þingi flokksins sem hefst í Austur-
Berlín í dag, að því er margir sér-
fræðingar fullyrða.
Sagt er að fulitrúarnir á þinginu
muni ætla að endurskipuleggja
flokkinn og þykir ekki ólíklegt að
hann leggi niður nefndir sem al-
menningur tengir ósjálfrátt komm-
únistáflokkum. Er jafnvel talið að
flokknum veröi breytt til samræmis
við vestræna jafnaöarmannaflokka.
Bæði stjómmálaráðið og miöstjóm
flokksins hafa sagt af sér til að auð-
velda uppstokkunina á flokksþing-
inu.
Fuiltrúar stjómvalda og stjómar-
andstöðu komu saman í gær í fyrsta
skipti í sögu landsins og á fundinum
var samþykkt að fyrstu fijálsu kosn-
ingamar í landinu yrðu haldnar eigi
síðar en 6. maí á næsta ári. Einnig
var hvatt til að öryggislögreglan yrði
lögð niður. Hún hefur verið sökuð
um að hafa njósnað um óbreytta
borgara og dregið sér fé úr opin-
berum sjóðum til einkanota.
Yfirmaður öryggislögreglunnar
sagði í gær að loka hefði þurft bygg-
ingum öryggislögreglunnar í ýmsum
borgum þar sem almenningur hefði
reynt aö komast inn í byggingar til
að leita sönnunargagna um spilhngu
og misnotkun á valdi.
Embættismaöur öryggislögregl-
unnar sagði í gær að Alexander
Schalck-Golodkowski, yfirmaður ut-
anríkisviðskipta A-Þýskalands, sem
á miðvikudaginn gaf sig fram viö v-
þýsku lögregluna, hefði verið í sam-
bandi við a-þýsku leyniþjónustuna.
Schalck flúði frá A-Þýskalandi eftir
að upp komst um gjaldeyrisbrask
hans og ólöglega vopnasölu. Hann
tjáði v-þýsku lögreglunni að hann
hefði tekið 34 mifljónir dollara af
bankareikningum í Sviss og afhent
a-þýskum yfirvöldum.
Reuter og Ritzau
A-þýskur lögreglumaður reynir að koma i veg fyrir að óbreyttir borgarar
fari inn I aðalstöðvar öryggislögreglunnar i A-Berlín í gær. Sfmamynd Reuter