Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989.
Utlönd
Blóðbað í Rúmeníu í nótt
Rúme.iskar öryggissveitir hófu
í morgun skothríö að andófsmönn-
um sem safnast höföu saman í miö-
borg Búkarest. Samkvæmt fréttum
júgóslavnesku fréttastofunnar
Tanjug mátti heyra skothríö í borg-
inni um sjöleytið í morgun en þá
hófu andófsmenn mótmæli gegn
stjóm Ceausescus forseta, annan
daginn í röð. Forsetinn lýsti yfir
neyðarástandi í öllu landinu í
morgun.
Vel vopnaðar öryggissveitir réð-
ust gegn tugum þúsunda mótmæ-
lenda á Háskólatorginu í Búkarest,
höfuöborg Rúmeníu, í nótt að því
er fréttamaður sovésku fréttastof-
unnar Tass skýrði frá í morgun.
Þetta var önnur árásin gegn mót-
mælendum í miðborg Búkarest á
innan við sólarhring. Hermennirn-
ir réðust aö andófsmönnum um
klukkustund eftir miðnætti, aðeins
örfáum tímum eftir aö öryggissveit-
ir Ceausescus forseta, gráar fyrir
jámum og með brynvarða skrið-
dreka sér til halds, réðust á andófs-
menn sem vom aö mótmæla stjóm
forsetans í borginni í gærdag.
Aö minnsta kosti tuttugu mót-
mælendur létust í aðgerðum
stjómvalda í gærdag. Ekki er vitað
um fjölda látinna frá árásinni í
nótt en óttast er að margir hafl týnt
lífi.
Óku skriðdrekum
yfir mótmælendur
Andstæðingar forsetans gengu
fylktu liði um torg og götur höfuð-
borgarinnar í nótt. Aðeins örfáum
klukkustundum fyrr höfðu her-
menn reynt að tvístra stórum mót-
mælafundi í miðborginni með því
að skjóta táragassprengjum yfir
höfuð andófsmanna.
Yfirvöld höfðu boöað til fundar
til stuðnings stjóm Ceausescus for-
seta á stærsta torgi Búkarest í gær-
dag. Fljótlega eftir að fimdurinn
hófst var ljóst að á torginu höfðu
andstæöingar stjómar einræðis-
herrans yfirhöndina og vom mun
fleiri en stuðningsmenn. Andstæð-
ingar forsetans kölluðu slagorð
gegn honum og reyndu að hrópa
hann niður þar sem hann ávarpaði
landa sína. Fyrst reyndu lögreglu-
menn að tvístra mótmælendum
með því að skjóta táragassprengj-
um að þeim. Þegar það tókst ekki
gripu þeir til vopna og blóðbaðið
hófst að því er fréttamenn erlendra
fréttastofa í Rúmeníu skýrðu frá í
gær.
Hermenn óku skriðdrekum yfir
þá sem fyrir vom, skutu á andófs-
menn með vélbyssum og eldflaug-
um úr herþyrlum að því er júgó-
slvaneska fréttastofan Tanjug
skýrði frá. Talið er aö að minnsta
kosti þijátíu hafi látist í þessum
aögerðum yfirvalda í borginni í
gær.
Og í gærkvöldi bárust svo fréttir
af mótmælaaðgerðum gegn stjórn
Ceausescus víðar um land. Fréttir
utan af landsbyggðinni em óljósar
en óttast er að tala látinna frá í gær
sé að minnsta kosti fimmtíu.
Blóðbaðið hélt
áfram í nótt
Blóðbaðið hélt svo áfram í nótt
að því er fréttir Tass frá í morgun
herma. Sovéskur fréttamaður
skýrði frá þvi að hermenn hefðu
ráðist gegn tugum þúsunda andófs-
manna á Háskólatorginu í miðborg
Búkarest um klukkustund eftir
miðnætti.
„Þaö heyrist skothríð. Óteljandi
sjúkrabílar og lögreglubílar eru á
þönum á mikilli ferö fram og til
baka á torginu. Sjónarvottar segja
að víða innan um mótmælendur
liggi látnir og særðir,“ sagði sov-'
éski fréttamaðurinn í morgun. Á
miðju Háskólatorginu er brenn-
andi herbifreið, sagði fréttamaður-
inn. „Heyra má skothylki springa
inni í bifreiðinni.“
Öryggissveitir tæmdu torgið í
Harðlinumaðurinn Ceausescu hefur mátt þola mikla gagnrýni fyrir að-
gerðir sínar gegn friðsamlegum mótmælum. Simamynd Reuter
nótt aö því er fréttamaðurinn sagði
en í morgun bárust fréttir af því
að fólk hefði safnast saman á torg-
inu á nýjan leik.
Mótmæli Rúmena í gær og í nótt
koma nokkrum dögum eftir að her-
sveitir og öryggissveitir réðust að
friðsamlegri mótmælagöngu í
borginni Timisoara í Timis-héraði
í vesturhluta landsins á sunnudag.
Samkvæmt sumum heimildum
voru allt að fjögur þúsund myrt í
Timisoara, þar á meðal konur og
böm. Ekki er ljóst hvernig ástandið
í borginni er þessa stundina.
Reuter
Tugþúsundir Rúmena héldu mótmælaaðgerðum áfram í nótt.
Símamynd Reuter
Fyrir jólín - um jólín - eftír jólin
URVAL - TIMARIT FYRIF ALLA
ÚRVAL - TÍMARIT í JÓLAFÖTUNUM