Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1989, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1989. Vetrarsólstöður, stysti dagur ársins var í gær. Sólin rétt kíkti upp fyrir sjón- deilarhringinn og svo er hún sigin. En það er ástæða til að gleðjast þar sem frá og með deginum í dag tekur daginn að lengja og smám saman hopar skammdegið um hænufet með degi hverjum. DV-mynd GVA 31 Fréttir Norskir laxaútflytjendur kærðir fyrir Evrópuráðinu: Sakaðir um að selja langt undir markaðsverði Skoskir og írskir lcixeldisaðilar hafa kært norska starfsbræður sína fyrir Evrópuráðinu fyrir að selja lax til EB-landanna langt und- ir markaðsverði eða á svokölluðu „dumping-verði“. Líkur þykja benda til að Evrópuráðið láti fara fram rannsókn vegna þessara ásakana. Norsk yfirvöld vísa ásökunum þessum á bug. Sýnt þykir þó að rannsókn á verðlagningu á norsk- um laxi getur haft alvarlegar af- leiðingar fyrir laxaútflutning Norðmanna til EB-landanna þar sem þeir yrðu mögulega að sæta refsitolb yrðu þeir fundnir sekir um „dumping-verð“. Evrópubandalagið er aðalmark- aðssvæði norskra laxaafurða. í fyrra fluttu Norðmenn 50 þúsund tonn til EB-landanna en í ár er reiknað með að útflutningurinn verði kominn í 70 þúsund tonn. Norðmenn munu sjá fyrir helmingi af neyslu lax í EB-löndunum. Þó laxneysla hafi aukist mikið í EB- löndunum hefur framboðið aukist enn meira sem aftur hefur leitt til verðfalls á laxi og vandræða laxeld- isstöðva í kjölfarið. Þó Norðmenn vísi ásökunum skoskra og írskra laxeldisaðila á bug eru þær btnar alvarlegum aug- um. Þannig reyndi norsk sendi- nefnd að hindra rannsókn á lax- verðsmyndun á vegum Evrópur- áðsins í síðustu viku en án árang- urs. Talsmaður norskra stjórnvalda telur vafasamt að Norðmenn verði fundnir sekir á grundvelli ásakana Skota og íra en að óvíst sé um úr- slit rannsóknar á vegum Evrópur- áðsins. -NTB/hlh Fjögur og hálft ár í fangelsi: Fyrir nauðgun og líkamsárás Hæstiréttur hefur dæmt mann í íjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað og veitt konu alvar- lega áverka á heimib hennar, í Þing- holtunum í Reykjavík, í september 1988. Konan hlaut alvarlega áverka vegna árásarinnar og var í lífshættu. Hún gekkst undir aðgerð strax og hún kom á sjúkrahús. Sannað er að maðurinn var valdur að áverkunum og að hann kom fram vilja sínum. Auk refsingarinnar er manninum gert að greiða konunni 400 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómararnir Guðmundur Jónsson, Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Braga- son og Þór Vilhjálmsson og Gunnar M. Guðmundsson, settur hæstarétt- ardómari. sme Dómur í nauðgunarmáli: Tveggja ára fangelsisdóm- ur vegna nauðgunar Hæstiréttur hefur dæmt rúm- lega tvítugan mann í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgunarbrot. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa aðfaranótt föstudagsins 8. janúar 1988 nauðgað tæplega þrítugri konu á heimbi hans í Vestmannaeyjum. Maðurinn játaði að hafa átt mök við konuna. í héraði var maðurinn dæmdur í áiján mánaða fangelsi. Hæsti- réttur þyngdi refsinguna um hálft ár. Þá var manninum gert að greiða konunni 300 þúsund krón- ur. Guðmundur Jónsson, Bjarni K. Bjarnason, Hrafn Bragason, Þór VUhjálmsson og Gunnar M. Guðmundsson kváðu upp dóm- inn. -sme Landhelgisbrot: Þrír skipstjórar dæmdir í Hæstarétti stað. Annar skipstjóri var dæmdur til að greiða 300 þúsund króna sekt eða sæta varðhaldi í þrjá mánuði verði sektin ekki greidd. Þriðji skipstjórinn var dæmdur til að greiða 180 þúsund króna sekt. Verði sektin ekki greidd skal skip- stjórinn sitja í varðhaldi í tvo mán- uði. -sme Þrír skipstjórar, sem staðnir voru að veiðum með ólögleg veiöarfæri, hafa verið dæmdir í Hæstarétti. í öll- um tilfellum reyndust möskvar í botnvörpum skipa þeirra vera með of htla möskva. Sá skipstjóranna, sem hlaut þyngsta dóminn, var dæmdur til að greiða 450 þúsund króna sekt í ríkis- sjóð. Verði sektin ekki greidd kemur varðhald í ijóra mánuði í hennar Selfossbær fagurlega skreyttur Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Um síðustu helgi fór Selfossbær í fallegan jólabúning. Ölfusárbrúin var þá skreytt og þegar það hefur verið gert þá fyrst er komin jólagleði í hjörtu Selfyssinga. Brúin er tignar- leg í ljósadýrðinni. Verslanir eru fahegar, KÁ mikið skreytt og mjög jólalegt í búðum síð- an í byrjun desember. Óvenjumörg jólatré við verslanir og ég hef ekki séð bæinn meira skreyttan en nú. Einnig var jólatré sett upp við Lands- bankann um helgina, mjög hátt en afar grannt og segja sumir að þetta viti á mikla kreppu í sameiningu bankanna. Alltaf áður hafa þarna ' verið bústin, há jólatré. Stjómarandstaðan vill skýrslu um Samvinnubankakaupin: Verður að fresta kaupunum um sinn? „Þess er óskað að bankamálaráð- herra gangi ekki frá kaupunum fyrr en hann hefur lagt fram þessa skýrslu á Alþingi. Það væri mikil vanvirða viö Alþingi ef þessari ósk yrði hafnað," sagði Þorsteinn Páls- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, en stjórnarandstaðan á þingi hefur sameinast um skýrslubeiðni til við- skiptaráðherra, Jón Sigurðssonar, en hann er einnig ráðherra banka- mála. Ef fara á að ósk stjórnarandstöð- unnár verður umræða á Alþingi um máhð áður en gengið verður frá kaupunum. Sú umræða gæti í fyrsta lagi orðið í lok janúar. I beiöninni er farið fram á upplýs- ingar um kaupverð og kjör og um leið skuldbindingar sem Landsbank- in tæki á sig. Þá er farið fram á upp- lýsingar um hlut hankaeftirhtsins. „Það kaupverð, sem nefnt hefur verið, þrefalt nafnverð Samvinnu- bankans, er algerlega fráleitt og með því væri verið að taka hundruð millj- óna króna frá skattborgurunum og gefa Sambandinu," sagði Þorsteinn. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.